Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 Meiri snjó Þá glettast fer krakkakórinn/ er kemur jólasnjórinn/ og æskan fær aldrei nóg,/ meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó. Þessar stúlkur kunna vel að meta snjóinn eins og höfundur vísunnar. RAX Strax er mér varð ljós alvara hryðjuverkaárás- anna í París, að kvöldi föstudags- ins 13. nóvember sl., óskaði ég eftir því við presta og djákna þjóðkirkj- unnar að í mess- um sunnudagsins yrði sérstaklega beðið fyrir þol- endum árásanna. Fólki sem átti sér einskis ills von og naut lífs- ins með vinum og sam- ferðafólki. Ofbeldi er best svarað með hugrekki og kærleika. Hin kristna köllun kennir okkur að feta í fótspor Jesú Krists. Eitt af því sem hann kenndi var að biðja. Margir þekkja mátt bæn- arinnar. Hún hefur verið nefnd tungumál vonarinnar. Hún er farvegur góðra hugsana til þeirra sem um sárt eiga að binda. Hér heima fyrir og alls staðar þar sem ráðist er gegn saklausu fólki. Öll þörfnumst við friðsælla stunda sem færa okkur innri ró og þrótt til að láta gott af okk- ur leiða. Kirkjan er samfélag kærleika og bænin er samfélag við Guð. Slíkt samfélag á sér stað í helgihaldi kirkjunnar og einnig hvarvetna þar sem bæn er beðin, heima við, á göngu- ferð úti í náttúrunni eða í um- ferðinni. Guð er þar. Þegar bænarandinn er vakinn er gott að biðja með okkar eigin orð- um, með bænarorðum annarra eða án orða með því að hlusta á Guð. Undanfarið hafa gefist mörg tæki- færi til að hugsa um það hvernig bregðast á við of- beldi hvers konar. Það þarf ekki að leita langt yfir skammt til að sjá birtingarmynd of- beldis og illsku. Orð friðarverð- launahafans Desmonds Tutus í íslenskri þýðingu Arinbjörns Vilhjálmssonar minna á að kærleikurinn er vopn í barátt- unni gegn illsku og hatri. Gæskan er öflugri en illskan, ástin gegn hatrinu fer, ljósgeislinn lýsir upp myrkrið, lífið af dauðanum ber! Sigurinn fæst, sigurinn fæst því ást Guðs er næst. Kærleiksboðskapur Krists er sá dýrmæti fjársjóður sem öll- um er ætlaður. Það þarf ekki fjármagn til að eignast hann. Hvikum hvorki frá honum né þeim lífsgildum sem ganga út frá dýrmæti hvers barns er fæðist í þennan heim. Samein- umst í bæn fyrir friði í dag og alla daga. Eftir Agnesi Sigurðardóttur »Kirkjan er samfélag kær- leika og bænin er samfélag við Guð. Agnes M. Sigurðardóttir Höfundur er biskup Íslands. Biðjum fyrir friði Með lögum um sér- stakan saksóknara var í fyrsta skipti heimilað að einstaklingar gætu sam- ið sig undan ákæru með upplýsingagjöf. Ríkis- saksóknari gæti, að til- teknum skilyrðum upp- fylltum og tillögu frá sérstökum saksóknara, ákveðið að einstaklingur sem léti lögreglu eða saksóknara í té upplýsingar eða gögn sæti ekki ákæru þótt gögnin eða upplýsingarnar leiði líkur að broti hans sjálfs. Slík vitni hafa t.d. verið áberandi í svokölluðu „Al Thani“ máli og „Stím“ máli. Í báðum þessum málum hefur það gerst að vitn- isburður þeirra sem hafa samið sig frá ákæru tók stakkaskiptum eftir slíkt samkomulag. Þurfa ekki að svara. Samkvæmt lögum metur dómari hvort nægjanleg sönnun hafi komið fram sem ekki verði vefengd með skynsamlegum vafa, þar á meðal hvað varðar sönnunargildi vitn- isburðar. Trúverðugleiki vitnisburðar getur því skipt miklu máli og þá um leið hvort uppi séu tilvik sem kunni að draga þann trúverðugleika í efa. Eitt af því sem máli skiptir er að- koma vitnisins að málinu og hvort það hafi persónulega hagsmuni af vitnisburði sínum, svo sem hvort vitnið hafi fengið friðhelgi frá sak- sókn, hvert sé inntak og umfang slíkrar ívilnunar, hvort hún nái til fleiri mála í rannsókn, sé jafnvel bundin skilyrðum og þá hverjum svo og inntak hennar að öðru leyti. Sérstakur saksóknari hefur mót- mælt því að vitni svari slíkum spurningum og hafnað að veita aðgang að samskiptum og gögn- um sem urðu tilefni þess að ákveðið var að falla frá saksókn gegn til- teknum vitnum m.a. með vísan til trúnaðar- og þagnarskylduákvæða. Dómstólar hafa staðfest að vitnum sé óskylt að skýra frá þessu og að verjendur hafi ekki að- gang að þessum gögn- um. Þannig er tryggð ákveðin leynd um það þegar tilteknum ein- staklingum er veitt friðhelgi frá því að allir séu jafnir fyrir lögum. Réttlát málsmeðferð Með Mannréttindasáttmála Evr- ópu er reynt að tryggja réttláta málsmeðferð m.a. með því að máls- meðferðin sé opin og gagnsæ og hver sá sem er borinn sökum geti spurt eða látið spyrja vitni sem leidd eru gegn honum. Í tilviki vitnis sem veitt hefur verið friðhelgi liggur að baki samningur sem byggist á gagnkvæmum hags- munum. Ákæruvaldið hefur hags- muni af því að fá vitnisburð sem er í samræmi við uppbyggingu ákær- unnar og vitnið hefur gríðarlega hagsmuni af því að fá friðhelgi frá saksókn, hugsanlegum álitshnekki, starfsmissi og fjártjóni svo ekki sé minnst á mögulega frelsissviptingu. Þessi samningur er ekki lagður fram til skoðunar og því möguleikar á að leggja mat á verðmæti endurgjalds- ins takmarkaðir. Í þeim tilvikum þar sem verjendur hafa freistað þess að leggja fram skýrslur sérfræðinga, er yfirleitt eina spurning ákæruvaldsins hvað ákærði greiddi fyrir þær. Slíkar spurningar þykja sjálfsagðar af hálfu ákæruvaldsins og eru undantekn- ingalaust leyfðar af dómstólum, þótt þær varði ekki á neinn hátt inntak þeirra skýrslna og hafi þann eina til- gang að varpa rýrð á trúverðugleika þeirra á ómálefnalegan hátt. Réttlát og opin málsmeðferð tryggir ekki aðeins spurningar til vitna og óheftan aðgang að gögnum, heldur einnig að upplýst sé um for- sendur slíkra samninga og hverjir eiga möguleika á að njóta slíkrar friðhelgi. Þetta tryggir þrennt. Í fyrsta lagi að eðlileg málsvörn og sönnunarfærsla geti farið fram. Í öðru lagi að að dómari geti með full- nægjandi hætti metið trúverðugleika vitnis og hvatir að baki vitnisburð- inum. Í þriðja lagi aðhald til þeirra sem veita slíka friðhelgi, þ.e. að gætt sé eðlilegra jafnræðissjónarmiða og heimildin sé ekki misnotuð til þess að hygla sumum á kostnað annarra. Það er síðan sérstök spurning hver hefur eftirlit með því hvernig heimild til úthlutunar á friðhelgi hefur verið notuð og einnig hvort mikilvæg vitni í ákveðnum málum hafi notið þess að litið hafi verið framhjá mögulegum brotum þeirra í öðrum tilvikum til að varpa ekki rýrð á trúverðugleika þeirra. Eftir Helga Sigurðsson » Þannig er tryggð ákveðin leynd um það þegar tilteknum ein- staklingum er veitt frið- helgi frá því að allir séu jafnir fyrir lögum. Helgi Sigurðsson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Hvað kostar vitnisburðurinn ?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.