Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er ljóst að við erum búin að ná ótrúlegum framförum með íslensku sauðkindina í gegnum ræktunar- starfið. Árangurinn er samanburð- arhæfur við bestu kjötkyn annars staðar í heiminum, til dæmis hvað varðar þykkt bakvöðva,“ segir Ey- þór Einarsson, ábyrgðarmaður í sauðfjárrækt hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Við uppgjör slátur- tíðar og útgáfu Hrútaskrár fara ráðunautar yfir stöðu ræktunar- starfsins með bændum á Hrúta- fundum. Sauðfjárbændur bíða ávallt spenntir eftir Hrútaskránni sem kemur út í lok nóvember ár hvert. Skráin hefur verið aðgengileg á vef RML um tíma og prentútgáfan er nú fáanleg. Í Hrútaskránni eru upp- lýsingar um eiginleika 45 hrúta sem eru á sæðingastöðvunum í Laugar- dælum og Borgarnesi, um árangur sæðinga og fleira. Byrjað verður að afhenda sæði frá sæðingastöðvunum 1. desember og verður hægt að fá það afgreitt fram undir jól. Nýir og spennandi hrútar Í Hrútaskránni eru hrútar sem verið hafa í notkun síðustu eitt til þrjú árin en einnig er óvenjumikið af nýjum hrútum. Saumur frá Ytri- Skógum og Bósi frá Þóroddsstöðum voru langvinsælustu hrútarnir í fyrra enda taldir hafa mikið kyn- bótagildi. Eyþór vonast til að notk- unin dreifist sem mest. „Þeir hrútar sem teknir eru á stöð eru þar vegna þess að þeir hafa eitt- hvað sérstakt til brunns að bera. Við teljum að hrútakosturinn sé gríð- arlega sterkur. Þarna eru margir nýir og spennandi hrútar og sífellt fleiri hrútar sem bæði eru sterkir lambafeður og ærfeður,“ segir Ey- þór. Hann segir að þarfir bænda séu mismunandi eftir því hvað þeir þurfa að bæta og því sé reynt að hafa hrútana fjölbreytta enda mark- miðið að viðhalda helstu sérkennum stofnsins. Flestir eigi að geta fundið álitlegan hrút við sitt hæfi. Eyþór telur að framfarir í sauð- fjárræktinni skili sér vel í gegn um sæðingahrútana. Bendir hann á að útkoman í flokkun sláturlamba í haust, samkvæmt bráðabirgðatölum kjötmats Matvælastofnunar, sýni það. Þannig hafi holdfyllingareink- unn sláturlamba verið 8,76 að með- altali sem sé betra en sést hafi frá því flokkunarkerfið var tekið upp. Fitueinkunn hafi verið 6,39 að jafn- aði sem er næstminnsta fitueinkunn sem sést hafi. Þá var meðalfallþungi sláturlamba 16,2 kg sem er með því mesta sem verið hefur. Eyþór segir að vissulega leiki tíð- arfarið alltaf stórt hlutverk. Gott haust hafi bjargað miklu í ár. „Það er magnað að fá þessa niðurstöðu í haust, miðað við hvernig útlitið var í vor,“ segir hann. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Hrútar Nýir og spennandi hrútar eru á sæðingastöðvunum og sífellt fleiri alhliða kynbótahrútar. Besta holdfylling slátur- lamba sem sést hefur  Kynbótastarfið skilar árangri  Hrútaskráin er komin út Samninganefndir Félags leikskóla- kennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar, skrifuðu undir nýjan kjarasamning fyrir leikskólakennara seint í fyrra- kvöld. Launahækkanir samkvæmt samningnum eru afturvirkar frá 1. júní síðastliðnum en leikskólakenn- arar hafa verið með lausa samninga síðan þá. „Það tekur því við samn- ingur af samningi,“ segir Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara. Gildistími samningsins er til 31. mars árið 2019. Kjarasamningurinn verður kynntur um helgina og í næstu viku. Haraldur Freyr segir samninginn í samræmi við þá samninga sem hafa verið gerðir að undanförnu. Hann verði nú lagður í dóm félagsmanna. „Samningurinn fer í kynningu meðal félagsmanna yfir helgina og í byrjun næstu viku og síðan verður atkvæða- greiðsla, sem á að vera lokið fyrir 8. desember,“ segir hann. Viðræðum samninganefndar sveitarfélaganna við Félag stjórn- enda í leikskólum var haldið áfram í gær og enn er ósamið í viðræðum sveitarfélaganna við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Í gær áttu samningamenn sveitar- félaganna einnig viðræður við félög iðnaðarmanna og sjúkraliða og fleiri stéttarfélög starfsmanna hjá sveit- arfélögunum, sem enn eiga ósamið. Morgunblaðið/Frikki Samningur í höfn Hækkanir gilda frá 1. júní að sögn Haraldar Freys Gíslasonar, formanns FL. Leikskólakennarar gera kjarasamning Bændur sýna nokkra hug- myndaauðgi í nafngiftum hrúta sinna. Það kemur meðal ann- ars fram í úrvali þeirra sem keyptir hafa verið á sæðingastöðvarnar. Á þeim lista er þó aðeins einn sem skreyttur er með nafni listamanns. Borkó frá Bæ í Árneshreppi er nýr á sæðingastöð. Hann kom vel út úr afkvæmarann- sókn á Smáhömrum á Strönd- um í haust. Sú skýring er gef- in á einkennilegu nafni hrútsins að hann heiti í höf- uðið á Birni Kristjánssyni, tónlistarmanni og kennara á Drangsnesi, listamanninum Borko. Athygli vekur hversu margir hrútar koma frá einstaka bú- um. Þannig eru á sæðing- arstöðvunum fimm hrútar frá Heydalsá í Steingrímsfirði, jafnmargir og frá fjárrækt- arbúi Landbúnaðarháskólans á Hesti. Fjórir hrútar eru frá Ytri-Skógum undir Eyjafjöll- um. Einn með lista- mannsnafn NAFNGIFTIR Borko á tónleikum. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Við erum ekki að fara fram á að borgin skerði lögbundna þjónustu vegna þess að það þurfi að endur- nýja gervigrasvelli. Við viljum for- gangsraða þannig að börnin njóti vafans,“ segir Freyr Hermannsson, faðir ungs markmanns og talsmaður hóps sem vill nýja gervigrasvelli um landið sem eru lausir við dekkjakurl. Hópurinn hefur tekið saman ýmsa punkta um dekkjakurl á gervigras- völlum. Þar kemur fram að kostn- aðaráætlun, sem var lögð fram á fundi ÍTR, er um 360 milljónir króna sé tekið tillit til allra vallarsvæða. Fylkismenn þurfa mest, eða 71 millj- ón og félögin KR og Fram þurfa 65 milljónir. Í niðurlagi kostnaðaráætl- unar segir: „Flestir þessir núverandi vellir uppfylla ekki nútíma kröfur.“ Verkfræðistofan Verkís vann áætl- unina fyrir Reykjavíkurborg. 15 skólar með dekkjakurl Í punktunum kemur fram að sex af sjö gervigrasvöllum borgarinnar séu nánast ónothæfir og þá þurfi að endurgera. Við endurgerðina skuli tryggja að efni af viðurkenndri gerð verði í undirlaginu. „Við leggjum til að það verði lagð- ar til hliðar 200 milljónir á næsta ári til að taka þá þrjá velli sem eru í hvað versta ásigkomulaginu,“ segir Freyr en frá því dekkjakurlsumræðan komst í hámæli hefur hópurinn verið duglegur að safna að sér upplýsing- um, krefja sveitafélög um svör og deila þeim áfram. Þannig hefur Kópavogur, Hafnarfjörður og Fjallabyggð ákveðið að setja nýtt undirlag á sína velli í stað dekkjak- urlsins. Borgarstjóri Reykjavíkur- borgar hefur þó ekki séð ástæðu til að hitta hópinn. „Borgarstjóri hefur ekki viljað hitta okkur. Við höfum ekki enn fengið tíma hjá honum,“ segir Freyr en vellir hjá fimm íþróttafélögum borgarinnar og 15 skólum eru með velli sem innihalda dekkjakurl. Sex af sjö völl- um ónothæfir  Nýtt undirlag kostar um 360 milljónir Morgunblaðið/Golli Árbær Ungir Fylkismenn á fótbolta- æfingu. Fylkir þarf 71 milljón króna til þess að skipta um gervigras.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.