Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 Hafðu okkur með í ráðum 569 6900 08:00–16:00www.ils.is Okkar hlutverk hefur frá upphafi verið að stuðla að jafnvægi og að allir hafi jafna möguleika á að eignast húsnæði, hvar sem er á landinu. Hjá okkur færðu óháða og trausta ráðgjöf, hvort sem þú ætlar að kaupa eða leigja, þannig að þú vitir örugglega hvað þú ert að fara út í. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis- ráðherra telur Morgunblaðið hafa rangtúlkað ummæli sem það hafði eftir Matthias Brinkmann, sendi- herra ESB á Ís- landi. Var haft eftir Brinkmann að ESB-umsókn- in sem samþykkt var á Alþingi 2009 væri mögu- lega enn í gildi. Eftir að viðtal- ið birtist óskaði Morgunblaðið eftir viðtali við Gunnar Braga. Þeim beiðnum var ekki svarað á miðvikudag og fimmtudag. Það gerðist svo í gærmorgun að aðstoð- armaður ráðherrans hafði samband við blaðamann í kjölfar ítrekaðrar beiðni um samtal við utanríkisráð- herrann. Viðtalið væri svar ráðherra Benti aðstoðarmaðurinn á viðtal við Gunnar Braga á sjónvarpsstöð- inni Hringbraut sl. fimmtudag. Lauk samtalinu á þann veg að ráð- herrann myndi ekki veita blaðinu viðtal. Umrætt viðtal væri svar ráð- herrans. Samkvæmt endursögn á vef Hringbrautar telur Gunnar Bragi Morgunblaðið hafa rangtúlkað um- mæli sendiherra ESB. „Gunnar Bragi segir engu breyta hvort rykið verði dustað af gömlu umsókninni eða ný umsókn send, ráðherraráð ESB þurfi hér eftir sem hingað til að samþykkja Ísland sem umsókn- arríki,“ sagði m.a. á vef Hringbraut- ar. Að sögn heimildarmanns sem hef- ur reynslu af aðildarferli ESB þarf að fylgja skýru verklagi í öllu sem snýr að aðildarumsóknum. Ummæli einstakra ráðherra og ráðamanna um stöðu aðildarumsókna hafi ekki formlegt gildi. Starfsmenn ESB séu alvanir því að ráðamenn tjái sig um stöðu aðildarviðræðna. Það hafi vak- ið athygli starfsmanna sambandsins að ummæli íslenskra ráðamanna á Íslandi í tíð síðustu ríkisstjórnar komu ekki alltaf heim og saman við málflutning þeirra á lokuðum fund- um með fulltrúum ESB í Brussel. Ráðherra vísar á sjónvarpsþátt  Utanríkisráðherra ræðir ESB-málið Gunnar Bragi Sveinsson Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Héraðsdómur Suðurlands hefur ógilt tvær ákvarðanir meirihluta hluthafa í Vinnslustöðinni hf. í Vestmanna- eyjum, frá 8. október 2014. Þetta eru ákvarðanir um samruna útgerðar- félagsins Ufsabergs útgerðar og Vinnslustöðvarinnar og hins vegar ákvörðun um að auka hlutafé Vinnslustöðvarinnar. Þetta er í annað sinn sem dóm- stólar fjalla um samruna fyrirtækj- anna en árið 2013 ógilti Hæstiréttur sameiningu áðurnefndra félaga. Dómurinn var kveðinn upp 25. nóv- ember sl. og hefur meirihluti eigenda Vinnslustöðvarinnar ákveðið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar. Stilla útgerð ehf., í eigu bræðr- anna Guðmundar og Hjálmars Krist- jánssona, er minnihlutaeigandi að Vinnslustöðinni, með um 33% eign- arhlut. Brjóta á rétti minnihlutans Fram kemur í tilkynningu frá Grími Sigurðssyni, lögmanni þeirra bræðra, að þeir hafi talið nauðsynlegt að fá svar dómstóla við því hvort meirihluti hluthafa og stjórnar Vinnslustöðvarinnar hf. væri að brjóta á rétti minnihlutans, með sam- runa Vinnslustöðvarinnar og Ufsa- bergs.Nú liggi fyrir staðfesting tveggja dómstiga á því að svo hafi verið. Orðrétt segir m.a. í bréfi lög- mannsins: „Héraðsdómur Suðurlands byggir ákvörðun sína á ákvæði um minnihlutavernd í íslenskum hluta- félögum, rétt eins og Hæstiréttur gerði árið 2013. Markmið verndar- innar er að veita minni hluthöfum til- tekin réttindi og veita ákveðið mót- vægi þannig að meirihluti hluthafa geti ekki, í krafti stærðar sinnar, mis- notað aðstöðu sína á kostnað minni- hlutans.“ Í dómi Hæstaréttar frá 26. mars 2013 segir m.a.: „...verður að líta svo á að samningur stefnanda [Vinnslu- stöðvarinnar] við Ufsaberg-útgerð ehf. 10. maí 2011 hafi engan annan til- gang haft en þann að virkja atkvæð- isrétt eigin hluta í stefnda og snið- ganga þannig það jafnræði og um leið atkvæðavægi sem 3. mgr. 82. laga nr. 2/1995 er ætlað að tryggja hlut- höfum.“ Á heimasíðu Vinnslustöðvarinnar kemur fram að lögmaður Vinnslu- stöðvarinnar, Helgi Jóhannesson, lýsi furðu sinni á niðurstöðu héraðsdóms og hann muni leggja til við stjórn fé- lagsins að dómnum verði áfrýjað til Hæstaréttar. Orðrétt er m.a. haft eftir lög- manninum: „Eigendur meira en tveggja þriðju hlutafjár VSV sam- þykktu samruna félagsins og Ufsa- bergs útgerðar algerlega óháð með- ferð hinna umdeildu 2,5%. Óskiljan- legt er að héraðsdómarinn taki ekki tillit til þess. Í öðru lagi er ómögulegt annað en álykta sem svo að aðrar hvatir en viðskiptalegar liggi að baki þessum málarekstri minnihlutaeigenda í VSV. Augljóst er að fyrri samruninn var fé- laginu hagfelldur, enda fengu fyrrum hluthafar Ufsabergs-útgerðar stærri eignarhlut í félaginu sem gagngjald í seinna skiptið en í því fyrra.“ Samruni ógiltur öðru sinni fyrir dómstólum Morgunblaðið/ÞÖK Vinnslustöðin Samruni við Ufsaberg var ógiltur öðru sinni.  Ætla að áfrýja til Hæstaréttar Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.