Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 HJARTAVERND Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Steingerðurfæddist á Önd- ólfsstöðum í Reykjadal 8. maí 1932. Hún lést 12. nóvember 2015 á dvalarheimilinu Lögmannshlíð á Akureyri. Foreldrar Stein- gerðar voru Jón Stefánsson, bóndi og byggingameist- ari, f. 8. apríl 1900, d. 1989, og Þórveig Kristín Árnadóttir, f. 5. september 1908, d. 1935. Systkini Steingerðar: 1) Stef- án Þengill, f. 26. apríl 1929, d. 2001. 2) Ingigerður Kristín, f. 21. september 1930, gift Þor- móði Ásvaldssyni. 3) Árni Guð- mundur, f. 10. nóvember 1933, d. 2004. Hann var kvæntur Þor- gerði Aðalsteinsdóttur. 4) Hólm- fríður Valgerður (hálfsystir) f. 19. desember 1944. Hún var gift Torfa Sigtryggssyni d. 2011. Hinn 27. desember 1953 gift- ist Steingerður Helga Jónassyni, bónda á Grænavatni. Foreldrar hans voru Jónas Helgason, bóndi og söngstjóri, og Hólm- fríður Þórðardóttir húsfreyja. Synir Steingerðar og Helga býliskona hans er Karen Ósk Kristjánsdóttir háskólanemi; Friðrik Páll verkmennta- skólanemi. c) Þórður, f. 15.8. 1960, verslunarmaður á Ak- ureyri, kvæntur Helgu Þyri Bragadóttur, iðjuþjálfa. Börn þeirra eru Bjarki, háskólanemi; Freyr, stálsmiður; Sólveig María, menntaskólanemi; Ari, verkmenntaskólanemi. d) Árni Hrólfur, f. 27.10. 1962, kennari á Akureyri, kvæntur Kristínu List Malmberg, kennara. Sonur þeirra er Sveinn Áki grunn- skólanemi. Sonur Árna úr fyrri sambúð er Daníel Örn, land- fræðingur í Kaupmannahöfn, sambýliskona hans er Ene Bugge, landfræðingur. Dóttir Kristínar er Elísabeth, íþrótta- fræðingur á Akureyri. Sam- býlismaður hennar er Óðinn Stefánsson sölumaður. Þau eiga dótturina Kristínu Köru. Steingerður vann við sveita- störf, fyrst sem unglingur á Öndólfsstöðum, en svo á Græna- vatni eftir að hún fluttist þang- að. Hún var tvo vetur við nám í Héraðsskólanum á Laugum og síðan eitt ár í Húsmæðraskól- anum á sama stað. Eftir að hún flutti á Grænavatn var hún fyrst og fremst húsmóðir á heimilinu, en einnig löngum virkur félagi í ungmennafélaginu og kirkjukór Skútustaðakirkju. Útför Steingerðar verður gerð frá Skútustaðakirkju í dag, 28. nóvember 2015, klukkan 14. eru: a) Jónas, f. 15.9. 1954, kennari á Akureyri, kvænt- ur Guðrúnu Bjarna- dóttur, bankastarfsmanni. Synir þeirra eru Tómas, hugbún- aðarverkfræðingur í Kópavogi, kvænt- ur Sigríði Antons- dóttur, lyfjatækni, og eiga þau börnin Anton, Patrek Jónas og Guðnýju Söru; Helgi, sölu- og markaðs- fulltrúi á Akureyri, kvæntur Þóru Ýri Árnadóttur matvæla- fræðingi og eiga þau börnin Kristínu Völu og Jóhann Óla; Bjarni, kennari í Hafnarfirði, sambýliskona Marín Eiríks- dóttir. b) Jón Haraldur, f. 4.9. 1956, bóndi á Grænavatni, kvæntur Freyju Kristínu Leifs- dóttur, starfsmanni í leikskóla. Börn þeirra eru Einar Már, bif- vélavirki á Akureyri, sambýlis- kona hans er Sigrún Arna Jóns- dóttir; Anna Björk, markaðsfull- trúi í Kaupmannahöfn, gift Peter Martin Røder húsasmið. Þau eiga soninn Jóhann Önnu- son; Kristinn Björn, versl- unarmaður á Akureyri, sam- Eftir 40 ára samfylgd langar mig að kveðja tengdamóður mína með þessu ljóði: Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós tsem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Guðrún Bjarnadóttir. Við tengdamóðir mín náðum vel saman frá fyrstu stundu. Stundirnar við eldhúsborðið á Grænavatni eru minnisstæðar. Lilla settist þó sjaldan, heldur stóð og þeyttist reglulega inn í búr til að sækja fleiri kræsingar á borðið. Henni fannst bakkelsið sitt oft frekar ómerkilegt en það var svo sannarlega fjarri lagi. Hún notaði ekki framandi krydd, salt, pipar og aromat dugðu en lambalæri Lillu og brúna sósan var eitt það besta sem ég fékk. Lilla miklaði oft fyrir sér mannamót, fannst hún ekki nógu fín en skemmti sér konunglega þegar á hólminn var komið. Hún var mjög glæsileg kona og elskaði föt og hluti sem glitruðu eða glönsuðu. Hún var mikill húm- oristi og gaman var að gantast við hana. Glettið brosið sem náði til augnanna er mér í fersku minni. Þegar fyrsta heimsókn pabba á Grænavatn stóð fyrir dyrum var Lilla mjög stressuð. Mektarmað- urinn úr höfuðborginni á leiðinni og hún var viss um að bakkelsið hennar væri ekki nógu gott. Mekt- armaðurinn mætti með úfið hár og með bindið skakkt. Hann slafraði í sig kjötsúpuna sem var eitt það besta sem hann fékk og fannst heimasmurða brauðið herramannsmatur. Lilla var aldrei stressuð eftir þetta þegar pabbi kíkti með okkur á Grænavatn. Lilla var heimakær en þegar þau hjónin þurftu til Akureyrar þá lá henni alltaf á að fara heim aftur. Frægt er þegar hún sagði að þau þyrftu að drífa sig heim fyrir myrkur en þá var þegar orðið al- dimmt. Þegar Sveinn Áki var lítill var hann oft veikur og voru Helgi og Lilla hrædd um að við yrðum rekin vegna fjarvista frá vinnu. Það varð úr að Helgi skutlaði Lillu til okkar þegar drengurinn veikt- ist og var hún oft hjá okkur nokkra daga í senn. Þarna áttum við saman rólegar og notalegar stundir og Sveinn Áki kynntist ömmu sinni vel. Drengurinn kvartaði reyndar eftir fyrsta dag- inn og sagði að amma Lilla kynni bara ekki neitt, hún kynni ekki á sjónvarp, dvd-spilara eða tölvu og bætti svo við að aumingja amma hefði ekki átt neitt dót þegar hún var lítil. Hún hefði þurft að leika sér með bein! Lilla var listræn, hún saumaði út, prjónaði og var mjög söngelsk. Henni fannst því mikið til koma að ég kynni að spila á klarínett. Músíkgenið hoppaði nefnilega yfir eina kynslóð, þ.e. syni hennar en barnabörnin komu sterkari inn í þeim efnum. Hún var mjög upp með sér yfir að Danni syngi í kór. Við sýndum henni oft upptökur með kórnum hans og leyndi stoltið sér ekki í svip hennar. Þegar Kristín Kara kom í heimsókn söng langamma ævinlega fyrir hana. Lilla fylgdist vel með til hinsta dags. Hún las, réð krossgátur og fylgdist með fréttum og sjón- varpsþáttum. Daginn áður en hún lést ræddum við til að mynda um fólkið í Downton Abbey en það var einn af hennar uppáhaldsþáttum. Lilla var tilbúin í ferðina löngu og situr nú örugglega og drekkur kaffi með Helga sínum. Pabbi er eflaust líka búinn að heilsa upp á hana og kannski kynna hana fyrir mömmu. Hver veit? Bestu þakkir færi ég starfsfólki Lögmannshlíðar fyrir hlýju í garð Lillu og góða umönnun. Blessuð sé minning elsku tengdamömmu. Kristín List. Þetta er óraunsætt, ósann- gjarnt. Okkur ástkær mannsævi í nokkur hundruð orðum. Örfá orð í minningargrein lýsa hvað best vanmætti mannsins gagnvart dauðanum. „Ekki svona háfleygir, drengir mínir, ekki hafa svona mikið fyrir mér,“ segir amma ljúf- róma. Eflaust hefði hún þó fussað og sveiað yfir því að við skulum nú eyða tíma okkar í minningargrein um hana. Þarfari hlutir hljóta að bíða okkar en grafskriftir. „Hér mætti nú alveg þrífa að- eins,“ segir amma og hlær hlýlega til okkar. Í raun, líkt og heima á Græna- vatni, er hér allt tandurhreint – amma bægði pæluvarginum frá vitum allra sem í návist hennar voru – við tökum í það minnsta ekki eftir því að hér sé skítugt. Hér er allt tandurhreint og lind- artært, meira að segja í glugga- kistum, þökk sé henni. Við skulum þó láta það vera að gorta okkur af arfleifðinni sem hún lét okkur í té, slíkt er óþarfa dramb og hefur ekkert upp á sig, líkt og hjónabönd í Leiðarljósi. „Hahhaa“ hlær amma, tekur und- ir með okkur og minnist Elísu; ljúfasta lambs, jafnt í fyrsta þætti sem og síðasta slætti. Himnaríkið, paradísin kristall- ast í þeim minningum sem amma skildi eftir. Biti úr bleikri tertu, brothættri sökum öldrunar, mag- nyl og dúnmjúkur svefn til handa öllum meinum. „Farðu bara og leggðu þig, farðu bara og leggðu þig,“ segir amma af umhyggju og brosir blíðlega. Skömmu seinna vöknum við á hörðum dívaninum, með vangann á blómakodda, allt er tandur- hreint og enginn kennir sér meins. Skrítið, svefninn hjá ömmu var alltaf töfrum líkastur. Bjarni, Helgi og Tómas Jónassynir. Með þessum orðum Þórunnar Sigurðardóttur sem segja allt vil ég þakka systur minni fyrir allar góðar stundir. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt og hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Þín litla systir, Hólmfríður Valgerður Jónsdóttir. Hún Steingerður kvaddi á þann hátt sem mér fannst hún alla tíð helst kjósa í daglegu lífi sínu, það er án þess að valda öðrum óþarfa fyrirhöfn. Ég er þakklátur Árna Hrólfi fyrir að láta mig vita um daginn að ekki væri allt eins og ætti að vera varðandi heilsu henn- ar og leit ég því til hennar viku fyr- ir andlátið. Að vanda var hún létt í tali en þó ekki alls kostar ánægð með það að þurfa súrefnisgjöf upp í nefið, fannst það óþarfa tilstand. Í þessari síðustu heimsókn minni til hennar var eftirá að hyggja eins og hún gerði sér grein fyrir að líklega myndum við ekki hittast aftur því hún rifjaði upp eitt og annað, „æi Doddi minn ég ætlaði nú alltaf að kenna þér al- mennilega að elda ysting“, og sagði svo góð orð um mig og þakk- aði mér hug minn til Grænavatns. Ég sagði að hún ætti nú stóran þátt í lífi mínu, tók mér sem syni sínum þegar ég kom þangað fimm ára gamall og umbar mig hvert sumar næstu 20 árin. „Æi Doddi minn, þú getur nú borðað eina fiskbollu í viðbót, það þarf að klára þetta núna.“ „Gleymið ekki að fá ykkur mjólk og kleinu í búrinu fyrir háttinn,“ þegar von var á okkur heim í hús seint að kvöldi. Öll árin eftir að sumardvöl minni á Grænavatni og sumar- vinnu í Mývatnssveit lauk og á meðan hún og Helgi bjuggu á Grænavatni, var ystingur ávallt til þegar hún vissi að ég væri að koma og súrt slátur vantaði ekki heldur. Ég minnist þess að ég var bara nokkuð stoltur þegar hún sagði að enginn syngi nú neitt svipað og ég á dráttarvélinni, það glymdi um öll tún og ægði öllu saman, bútum úr dægurlögum, ættjarðarlögum og kaþólskum messusöng. Ég tók það sem svo að ég gæti líklega sungið og hefði snefil af rödd, en auðvitað fólst í þessu góð- látleg stríðni, ég bara fattaði það sem betur fer ekki. Ég dreif mig því í kór þegar ég hóf nám í MH og hef notið kór- söngs síðan, takk Steingerður. Að fá að alast upp frá barns- aldri hvert sumar á heimili Stein- gerðar, vera hluti af fjölskyldunni, er mín mesta gæfa eins og ég hef oft sagt áður og fyrir það verð ég ævinlega þakklátur. Strákar og fjölskyldur ykkar, hugur minn er með ykkur öllum á þessum tímamótum. Við eigum góðar minningar sem við skulum vera dugleg að rifja upp og deila á milli okkar, í minningu þeirra sem farnir eru. Þóroddur F. Þóroddsson (Doddi). Steingerður Sólveig Jónsdóttir ✝ Kristbjörg Sig-urjóna Bjarna- dóttir fæddist í Stóru-Brekku í Fljótum 13. maí 1935. Hún lést 22. nóvember 2015. Foreldrar henn- ar voru Bjarni Kristjánsson bóndi í Ökrum og eigin- kona hans Aldís Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja. Bræður hennar voru Ásmundur Bragi Bjarnason, f. 25.5. 1923, d. 16.11. 1948, og Guðmundur Sævin Bjarnason, f. 18.10. 1928, d. 13.2. 2010. Kristbjörg ólst upp með for- eldrum sínum og bræðrum í Ökrum. Hún gekk í gagnfræða- skóla á Siglufirði í 3 vetur. Eiginmaður hennar var Axel Þorsteinsson, fæddur á Vatni á Höfðaströnd 28. október 1927, dáinn 3. ágúst 2013. Foreldrar hans voru Þor- steinn Helgason frá Læk í Við- víkursveit, bóndi á Vatni, og eiginkona hans Ingibjörg Jóns- dóttir frá Skúfsstöðum í Hjalta- dal. Árið 1953 keyptu Axel og Kristbjörg jörðina Litlu-Brekku á Höfðaströnd, þau fluttu þang- að það vor og giftu sig um haustið, þann 8. nóvember. Börn þeirra eru: 1) Bragi Reynir, fæddur 1954, dáinn 5.4. 1995 af slysförum. Hann var kvæntur Guðbjörgu Hinriksdóttur, þau eignuðust eina dóttur, Ingu Jónu, f. 1990. Sambýlismaður hennar er Daní- el Kárason. Fyrir átti Guðbjörg synina Hinrik Inga, f. 1979, og Þorgrím Gunnar, f. 1982. 2) Ingibjörg, f. 1956, gift Eyj- ólfi Sveinssyni. Þau eiga 4 börn: a) Sigríði Elfu, f. 1978. b) Axel Sigurjón, f. 1981, eiginkona hans er Ósk Bjarnadóttir og eiga þau þrjú börn, Anton Þorra, Bríeti og Eydísi Ingu. c) Friðrik Örn, f. 1988, sambýlis- kona hans er Ingiríður Hauks- dóttir. Þau eiga eina dóttur Rík- eyju. d) Jóna Katr- ín, f. 1995, unnusti hennar er Fannar Kári Hauksson. 3) Bjarni, f. 1959, eiginkona hans er Birna Júl- íusdóttir. Börn þeirra eru: a) Júl- íus Helgi, f. 1985, unnusta hans er Sigrún Helgadóttir og eiga þau eina dóttur, Birnu Guðrúnu. b) Kristbjörg María, f. 1988, sambýlismaður hennar er Björn Jóhann Steinarsson. Þau eiga tvö börn, Efemíu Birnu og Ágúst Marinó. c) Lilja Rut, f. 1993, sambýlismaður hennar er Pétur Ben Guðmundsson. d) Axel Bragi, f. 1996, sambýlis- kona hans er Brynja Ýr Júl- íusdóttir 4) Aldís Guðrún, f. 1963, eig- inmaður hennar er Eysteinn Steingrímsson, þau eiga þrjá syni: a) Elmar, f. 1989, unnusta hans er Aníta Rós Aradóttir. b) Eyþór, f. 1992. c) Reyni, f. 1999. 5) Guðný Hólmfríður, f. 1967, eiginmaður hennar er Páll Friðriksson. Þau eiga þrjár dætur: Snæbjörtu, f. 1993, Hugrúnu, f. 1997, og Ey- vöru f. 2002. 6) Þorsteinn, f. 1968, sam- býliskona hans er Jóhanna B. Einarsdóttir. Dætur hennar eru Eyrún Harpa, f. 1984, og Kolbrún Rut, f. 1996. Kristbjörg og Axel bjuggu í Litlu-Brekku til ársloka 1987 er Bjarni sonur þeirra tók við jörðinni. Þau dvöldu áfram í Litlu-Brekku til ársins 2002 en fluttu þá að Túngötu 2 á Hofs- ósi þar sem Kristbjörg bjó þar til fyrri hluta líðandi árs. Hún dvaldi hjá Aldísi dóttur sinni á Laufhóli uns hún fékk pláss á Dvalarheimili aldraðra á Sauð- árkróki. Útför Kristbjargar fer fram frá Hofsóskirkju í dag, 28. nóvember 2015, klukkan 11. Þú kvaddir þegar blómin fóru að falla og fölva haustsins sló á sumarskraut. Þú hafðir gengið götu þína alla og gæfu notið hér á lífsins braut. Það syrtir að og söknuðurinn svíður, hann svíður þó að dulin séu tár en ævin okkar eins og lækur líður til lífsins bak við jarðnesk æviár. Og tregablandin hinsta kveðjan hljómar svo hrygg við erum því við söknum þín, í hugum okkar stjarna lífs þíns ljómar, sem ljós á vegi í brjóstum okkar skín. Við biðjum að þér ljóssins englar lýsi og leiði þig hin kærleiksríka hönd í nýjum heimi æ þér vörður vísi, sem vitar inn í himnesk sólarlönd. Þér sendum bænir upp í hærri heima og hjartans þakkir öll við færum þér. Við sálu þína biðjum guð að geyma, þín göfga minning okkur heilög er. (Guðrún E. Vormsdóttir.) Elsku amma og tengda- mamma. Við minnumst þín með hlýju og þakklæti, nú ert þú kom- in til strákanna þinna Axels og Braga sem án efa hafa tekið vel á móti eiginkonu og móður. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Inga Jóna Bragadóttir og Guðbjörg Hinriks- dóttir (Bubba). Kristbjörg Sigur- jóna Bjarnadóttir Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og við- eigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefn- um. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna.. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.