Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 49
MENNING 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@gmail.com Það sýnir alltaf djörfung og þorer menn stíga út fyrir ramm-ann, við erum dýr vanans og auðvitað er þægilegra að sýsla við það sem maður kann frekar en að vera að paufa við eitthvað sem er manni framandi. En afrakstur slíkra ævintýra getur verið bæði gagn- legur og góður, jafnt fyrir þann sem tekur stökkið og nærumhverfið. Slíkt á svo sann- arlega við hér. Eitt er sveimi bundin plata (e. „ambi- ent“) þar sem tónlistin lykst um hlustandann, gár- ar í bakgrunn- inum fremur en að kalla eftir athygli en þegar vel tekst til smýgur hún inn í mann, eða drýpur inn í mann, hægt og sígandi. Jón Ólafsson og Future- grapher virðast við fyrstu sýn standa ansi langt hvor frá öðrum í tónlistarlegu tilliti en er það svo? Þegar maður hugsar um það þarf samstarfið ekki að koma svo mikið á óvart. Þó að Jón sé hvað þekktastur fyrir glúrið og áferðarfallegt popp í gegnum Nýdönsk og sólóefni sitt, og svo veru sína í Bítlavinafélaginu, hefur hann alla tíð verið leitandi og forvitinn. Hann er kannski að svala þeirri þörf nú með hvað mest afger- andi hætti en lítum á önnur dæmi: Hin stórskemmtilega Possibillies fór t.d. iðulega skringilegar leiðir (og gaf út tvöfalda vínylplötu, Töfra- maðurinn frá Riga, þar sem fjórða hliðin var auð en bar þó titillinn Gætt að … Tveir Samstarf Futuregrapher og Jóns Ólafssonar er gifturíkt á plötunni. „Töframaðurinn hugsar“). Jón sá um hljóðmottuna á ljóðadiski Ceres 4 sem hann gaf einnig út í gegnum merki sitt og var hún sveimkennd mjög. Einnig tók hann upp og gaf út plötu Vinabandsins, þar sem hópur eldri borgara söng saman, dásam- lega einlæg og falleg plata. Future- grapher hugsar á líkan hátt, piltur sá er með galopinn huga og hefur snert á flestum geirum raftónlist- arinnar á ferli sínum. Þeir félagar eru í raun sjálfsagðir bólfélagar fremur en óvæntir. En hvernig er svo útkoman? Það er nærandi andi í Eitt og flæðið kallar fram þessar klassísku sveim- plötur; meistarar eins og Brian Eno koma upp í hugann og líka þessi evr- ópska raf-sveimklassík frá síðari hluta áttunda áratugarins og eitt- hvað inn í þann níunda. Minimalistar eins og Gavin Bryars og samtíma- skáldið Nils Frahm svífa og í kring. Þeir félagar eru alls ekki að finna upp hjólið, þetta er sveimplata með sígildu sniði og sterkt framlag í þennan nefnda geira, stendur jafn- fætis mörgu því besta sem maður hefur heyrt þaðan. Árni leggur raf- mottur af mikilli natni og Jón breiðir píanóið yfir af viðlíka næmi – þeir félagar dansa einhvern veginn fal- lega hvor í kringum annan. Platan rúllar þægilega áfram, það er heil- andi að hlusta, en aldrei er hún ódýr og minnir ekki á þá hroðvirknislegu nýaldarframleiðslu sem maður heyrir gjarnan í anddyri nuddstofa. Þar koma tónlistarmennirnir Jón og Árni inn þar sem platan hef- ur rökrétta heilsteypta uppbygg- ingu. Píanóið er t.a.m. sparlega not- að oftast nær og það er unnið markvisst með þögnina þótt Jón taki stundum á sprett, Satie-legar mel- ódíur gera t.d. vart við sig. Lögin minna hvert á annað þó að blæ- brigðamunur sé og þetta er undir- strikað í titlum stundum; „Sálmur“ er … tja … sálmalegt og heyra má barnsraddir í „Börn“. Það er þá ókennileg spenna – ég veit að þetta hljómar þversagnakennt – í sumum lögunum sem gefur þeim aukna vigt og dýpt. Virkilega vel heppnað verk og að sama skapi lukkulegt samstarf. Ég hlakka til að heyra næsta skammt, sem ku vera í undirbúningi. » Árni leggurrafmottur af mik- illi natni og Jón breiðir píanóið yfir af viðlíka næmi – þeir félagar dansa einhvern veginn fal- lega hvor í kringum annan. Eitt er plata eftir þá Jón Ólafsson og Future- grapher sem er listamannsnafn Árna Grétars Jó- hannessonar. Jón leikur á píanó en Futuregrapher sér um hljóðgervla og áhrifs- og vettvangshljóð. Jón og Árni hljóðblönduðu en Finnur Hákonarson hljómjafnaði. Möller Records gefur út. Leiksýningin How to Become Ice- landic in 60 minutes eftir Bjarna Hauk Þórsson, í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar, hefur verið sýnd í Hörpu frá árinu 2012 og í dag verð- ur hún sýnd í þrjúhundraðasta sinn. Bjarni Haukur lék í fyrstu sjálfur í sýningunni, sem er einleikur, en er nú hættur því og þeir Örn Árnason og Karl Ágúst Úlfsson skipta kvöld- um á milli sín. Nýlega var undirritaður samn- ingur við Halldór Guðmundsson, forstjóra Hörpu, um framhald á sýningum á verkinu og segir Bjarni Haukur að ljóst sé orðið að sýningin verði í Hörpu fram til ársins 2019. Morgunblaðið/Ómar 300 Bjarni Haukur Þórsson er höfundur How to Become Icelandic in 60 minutes sem sýnd verður í 300. skipti í dag. Sýning Bjarna í Hörpu til 2019 Taívanska kvikmyndin The Assassin er sú besta af þeim sem frumsýndar voru á árinu að mati 168 gagnrýnenda víða um lönd. Þeir svöruðu könnun fyrir tímaritið Sight & So- und sem birti niðurstöðurnar í vikunni. Breska kvikmyndastofnunin, British Film Institute, gefur út tímaritið. Leikstjóri The Assassin, Hou Hsiao-Hsien, hlaut verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Can- nes í vor sem besti leikstjórinn. Myndinni er lýst sem bardagalistadrama, sögusviðið Kína á 7. öld og segir í myndinni af leigumorð- ingja sem fær það verkefni að ráða af dögum yfirmann í hernum. Í öðru sæti yfir bestu myndirnar varð Carol og í því þriðja Mad Max: Fury Road. Á eftir koma Arabian Nights og Cemetery of Splendour. Í frétt breska ríkisútvarpsins um könnunina kemur fram að í sjö myndum af þeim tíu efstu séu konur í aðalhlutverkum og sýni eftirtekt- arverðan leik. Taívanska leikkonan Shu Qi fer með aðalhlutverkið í The As- sassin, hlutverk ungrar konu sem er rænt af nunnu í æsku, þjálfuð í bardaga- listum og fengið það verkefni að ráða frænda sinn af dögum. The Assassin talin besta kvikmyndin Best Shu Qui í The Assassin. Sýning á myndverkum Þorgerðar Sigurðardóttur verður opnuð í Grensáskirkju í dag, laugardag, klukkan 14. Þorgerður lést árið 2003 en hún hefði orðið sjötug í dag hefði hún lifað. Þorgerður var nemandi við Handíða- og myndlistaskólann 1962–1964, tók síðan kennarapróf, las listasögu við HÍ og nam við Myndlistaskólann í Reykjavík. Hún brautskráðist úr grafíkdeild MHÍ 1989 og lauk síðar réttindanámi til framhaldsskólakennslu. Auk mynd- listarkennslu fékkst Þorgerður við frjálsa listsköpun seinni hluta æv- innar. Flest verka hennar eru tréristur á pappír og hún var meðal annars þekkt fyrir verk sem byggjast á kirkjulegum myndlistararfi Íslendinga. Hún hélt tæplega fjörutíu einka- sýningar víða um land en auk þess í Finnlandi, Svíþjóð og Englandi. Verk eftir hana eru í eigu ýmissa listasafna landsins. Sýning á verkum Þorgerðar Sigurðar- dóttur opnuð í Grensárskirkju Þorgerður Sigurðardóttir Samsýning átta nemenda á fyrra ári meistarastigs við Listaháskóla Ís- lands verður opnuð í Nýlistasafninu í Breiðholtinu, í Völvufelli 13-21, í dag, laugardag, kl. 16. Heiti sýning- arinnar er „Heim- urinn tilheyrir öllum, ekki fáum útvöldum“ og er útgangspunktur hennar sú um- gjörð sem Ný- listasafnið lagði til, bæði í menningarlegu tilliti safn- eignar þess og sögu, sem og stað- háttum og nærumhverfi safnsins í Breiðholti. Spurt er um miðju og út- jaðar menningar; hvort hin virka innspýting og hreyfiafl í listsköpun sé ef til vill að finna á jaðrinum rétt eins og í miðborginni. Eru Fellin ef til vill meiri miðja en Lækjartorg? Fyrir hverja er myndlistin og hvert sækir hún sín áhrif? Til að mynda hafa á sýningunni verið dregin fram óþekkt höf- undaverk í safneigninni og hverfið verið kortlagt í gönguferðum: „Alls staðar og allt um kring svífur saga“ er staðhæft. Meistaranemendur sýna í NÝLÓ Brot úr kortlagninu nágrennis NÝLÓ. - með morgunkaffinu RÚGBRAUÐ HUNGER GAMES 4 2D 5,8,10:10 THE NIGHT BEFORE 8,10:45 GÓÐA RISAEÐLAN 2D 2,5 SPECTRE 6,9 HANASLAGUR 2,3:50 HOTEL TRANSYLVANIA 2 1:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar TILBOÐ KL 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.