Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 28.11.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015 Ert þú að rannsaka orku og umhverfi? Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar styrkir námsmenn og rannsóknarverkefni á sviði umhverfis- og orkumála. Ísland er ríkt af endurnýjanlegum orkuauðlindum. Þess vegna felast mikil verðmæti í íslensku hugviti til að auka þekkingu á orku og umhverfismálum. Til úthlutunar úr Orkurannsóknasjóði árið 2016 eru í heild allt að 56 milljónir króna. Styrkir til efnilegra nemenda í meistara- eða doktorsnámi á sviði umhverfis- eða orkumála. Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis- og orku- mála, veittir til að mæta kostnaði vegna vinnu sérfræðinga, þátttöku meistara- og doktorsnema og öðrum útgjöldum. Nánari upplýsingar um sjóðinn og úthlutunarreglur eru á landsvirkjun.is/orkurannsoknasjodur. Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til og með 8. janúar 2016. Andríki fjallar um „Sókn-aráætlun í loftslagsmálum“ sem stjórnvöld settu saman fyrir ráðstefnu í París á næstu dögum.    Andríki bend-ir á að ann- að af tveimur tölusettum markmiðum í sóknaráætl- uninni sé að los- un gróðurhúsa- lofttegunda frá sjávarútvegi minnki um 40% til ársins 2030. Þetta líti út fyrir að vera metn- aðarfullt markmið, en þegar haft sé í huga að upphafsárið sem mið- að er við er 1990, þá horfi málið öðruvísi við, því að þegar hafi dregið úr losuninni um 38%.    En eins og Andríki bendir ásegir þetta líka aðra sögu. Stundum sé sagt að kvótakerfið hafi loks verið fullskapað hér á landi árið 1990, „kvótinn hafi orð- ið sæmilega traust eign sem gat gengið kaupum og sölum. Vafalít- ið á kvótakerfið sinn þátt í því að dregið hefur úr olíunotkun í sjáv- arútvegi því það gefur miklu betri færi til skipulagningar veiða en önnur og fyrri kerfi. Skipum hef- ur því fækkað og dregið úr orku- þörf.“    Og Andríki bendir á að þetta sé„í raun frábært dæmi um hvernig ná má árangri í orku- og umhverfismálum án skatta, boða og banna. Orkusparnaður er inni- falinn í góðum kerfum á borð við íslenska fiskveiðistjórnunarkerf- ið.“    Það er ekki slæmt veganestifyrir íslensku fulltrúana, sem eins og fram hefur komið munu fara um ráðstefnusvæðið í stórum hópum, að geta bent á hvernig bæta má nýtingu auðlinda jarð- arinnar. Árangur langt umfram væntingar STAKSTEINAR Veður víða um heim 27.11., kl. 18.00 Reykjavík -2 skýjað Bolungarvík -3 snjókoma Akureyri -2 alskýjað Nuuk -11 skýjað Þórshöfn 2 skúrir Ósló 7 skýjað Kaupmannahöfn 6 skýjað Stokkhólmur 8 skýjað Helsinki 7 skúrir Lúxemborg 0 skýjað Brussel 5 skýjað Dublin 5 skúrir Glasgow 5 léttskýjað London 12 skýjað París 3 alskýjað Amsterdam 7 súld Hamborg 5 heiðskírt Berlín 3 léttskýjað Vín 3 alskýjað Moskva -3 alskýjað Algarve 18 heiðskírt Madríd 15 heiðskírt Barcelona 15 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 8 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -11 léttskýjað Montreal 12 alskýjað New York 14 léttskýjað Chicago 5 skúrir Orlando 25 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 28. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:37 15:55 ÍSAFJÖRÐUR 11:10 15:33 SIGLUFJÖRÐUR 10:54 15:14 DJÚPIVOGUR 10:13 15:18 Forrannsókn á matarsóun heimila í Reykjavík bendir til að a.m.k. 5.800 tonnum af mat og drykk sé hent af reykvískum heimilum árlega, en 17 heimili tóku þátt í rannsókninni. Þetta samsvarar a.m.k. 4,5 millj- örðum króna, að því er fram kemur í niðurstöðum rannsóknar á matar- sóun, en það var Landvernd sem gerði rannsóknina í samvinnu við Reykjavíkurborg. Rannsakendur telja matið varfærið og að mat- arsóun kunni að vera enn meiri, en frekari rannsóknir vanti. Samkvæmt mælingum inni á sautján heimilum hendir hver ein- staklingur um 48 kílóum á ári sem gerir um 150 þúsund krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu. Sú upp- hæð dugar fyrir einu kílói af lamba- kótelettum og léttu meðlæti í hverri viku. Skráðu niður hverju var hent Ef dregið yrði úr matarsóun um 20% væri 1.150 tonnum minna hent af mat sem þýddi um 900 milljóna sparnað fyrir íbúa Reykjavíkur í heild sinni. Tæplega 18,5 milljóna króna sparnaður yrði vegna gjalda fyrir meðhöndlun úrgangs, segir í tilkynningu um skýrsluna. Tilgangur forrannsóknarinnar var að fá vísbendingar um umfang matarsóunar á reykvískum heim- ilum og reyna hérlendis þær aðferð- ir sem eru notaðar til að mæla mat- arsóun annars staðar í heiminum. Heimilin 17 svöruðu tveimur spurn- ingalistum varðandi hegðun og við- horf gagnvart matarsóun og skráðu niður allan mat og drykk sem var hent yfir viku tímabil í matar- dagbók. Borgarbúar henda 5.800 tonnum af mat  Rannsókn gerð á matarsóun á 17 heimilum  Matarsóun kann að vera meiri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.