Morgunblaðið - 28.11.2015, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015
Á sunnudaginn, 29. nóvember,
verða ljósin tendruð á Óslóartrénu
við hátíðalega athöfn á Austurvelli
og hefst hún klukkan 15.30.
Dagskráin verður með hefð-
bundnum hætti. Lúðrasveit leikur,
Stefán Hilmarsson og Ragnheiður
Gröndal syngja jólalög og jólasvein-
ar heilsa upp á börnin. Kynnir verð-
ur Gerður G. Bjarklind.
Fyrir hönd Reykvíkinga mun
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
veita grenitrénu viðtöku frá
Khamshajiny (Kamzy) Gun-
aratnam, varaborgarstjóra Óslóar,
sem afhendir Reykvíkingum tréð
að gjöf. Að loknu þakkarávarpi
mun hin sjö ára norskíslenski Birk-
ir Elías Stefánsson tendra ljósin á
trénu. Dagskrá hátíðarinnar verð-
ur túlkuð á táknmáli. Boðið verður
upp á heitt kakó og kaffi.
Ljósin tendruð á Óslóartrénu á Austurvelli
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Austurvöllur Jólasveinarnir gera ætíð
mikla lukku hjá yngstu kynslóðinni.
Ásýnd Jólaþorpsins í Hafnarfirði er að breytast og verð-
ur allur miðbær Hafnarfjarðar eitt stórt jólaþorp. Þorp-
ið í ár mun ná frá Byggðasafninu að Íshúsi Hafnar-
fjarðar og munu íbúar, fyrirtæki og félagasamtök í
bænum leggja sitt af mörkum til að taka þetta stóra
skref, segir í frétt frá bænum. Þúsund jólakúlum var
komið fyrir á jafnmörgum bílum í Hafnarfirði í fyrrinótt
til að vekja athygli á þessum breytingum. Kúlunum
fylgdu jólabros, góðar óskir um gleðilega aðventu og
hamingjurík jól. Eins og áður verður jólamarkaður í
jólahúsum á og við Thorsplan og þau verða opin frá
12.00-17.00 laugardaga og sunnudaga á aðventunni auk 22. og 23ja de-
sesmber en þá verða þau opin frá klukkan 18.00 til kl. 21.00. Dagskrá á
sviði hefst kl. 13.30 og kl. 14.30 verður spilað jólabingó. Jólaböll, andlist-
málun, myndataka með jólasveini, skátaævintýri og margt fleira verður í
boði að auki. Kveikt var á jólatrénu á Thorsplani í gærkvöldi og kveikt
verður á Cuxhaven-trénu við höfnina í dag, kl. 15.00.
Miðbær Hafnarfjarðar breytist í jólaþorp
Jólakúla fest á bíl.
Aðventuhátíð verður haldin í Kópa-
vogi 28. og 29. nóvember með jóla-
dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Hátíðin er að þessu sinni á nýjum
stað, á túninu við menningarhúsin í
Hamraborg og verður einnig dag-
skrá í menningarhúsunum laugar-
dag og sunnudag.
Tendrað verður á jólatré bæjarins
klukkan 16 á laugardegi og slegið
upp jólaballi með söng og leik. Jóla-
sveinarnir og jólakötturinn líta í
heimsókn og jólaandinn svífur yfir
vötnum á jólamarkaði.
Dagskrá aðventuhátíðarinnar við
menningarhúsin hefst klukkan 13 í
dag. Þá verður opnður markaðurinn
Hönnun og handverk í Kópavogi í
Gerðarsafni og jólamarkaður á túni
menningarhúsanna. Bragi Valdimar
Skúlason kemur í jólaheimsókn í
Bókasafn Kópavogs og ræðir um
jólasveina og nýju plötuna sína.
Klukkan 16 hefst aðventu-
dagskrá. Sendiherra Svíþjóðar,
Bosse Hedberg, og Ármann Kr.
Ólafsson bæjarstjóri tendra á jóla-
trénu, sem er gjöf frá vinabæ Kópa-
vogs, Norrköping. Síðan tekur við
fjölbreytt jóladagskrá.
Morgunblaðið/RAX
Hamraborg Dagská helgarinnar verður í
menningarhúsinu og nágrenni þess.
Fjölbreytt aðventu-
hátíð í Kópavogi
Í dag, laugardaginn 28. nóvember,
verða ljósin tendruð á jólatré Mos-
fellsbæjar við hátíðlega athöfn á
Miðbæjartorginu kl. 16.00. Athöfn-
in á torginu hefur um árabil mark-
að upphaf jólahalds í bænum og á
sér fastan sess í hjörtum bæjarbúa
sem fjölmenna á viðburðinn ár
hvert. Skólahljómsveit Mosfells-
bæjar spilar hátíðleg lög í anda
jólanna. Leikskólabörn koma og að-
stoða bæjarstjóra við að kveikja á
jólatrénu. Skólakór Varmárskóla
syngur fyrir gesti og gangandi.
Kveikt á jólatré
Mosfellinga
Hinn árlegi jólabasar KFUK verður
haldinn í húsi KFUM og KFUK á
Holtavegi 28 laugardaginn 28. nóv-
ember kl. 14.00-17.00. Á boðstólum
verður handverk ásamt ljúffengum
kökum, t.d. jólasmákökur og tertur,
sultur og marmelaði. Þá verður einn-
ig boðið upp á nýbakaðar vöfflur,
kaffi og heitt súkkulaði með rjóma á vægu verði. „Hægt er að gera góð
kaup á frábærum og einstökum jólagjöfum og styrkja um leið starf KFUM
og KFUK,“ segir í tilkynningu. Basarinn er mikilvæg fjáröflun fyrir starf-
semi KFUM og KFUK og allur ágóði af honum rennur til starfs félagsins.
Allir eru hjartanlega velkomnir á basarinn.
Basar til styrktar KFUM og KFUK
Jólaljósin verða tendruð á Akra-
torgi, Akranesi laugardaginn 28.
nóvember 16.00. Regína Ásvalds-
dóttir bæjarstjóri aðtoðar barna-
börn Bjarna Þóroddssonar, sem
gróðursetti tréð fyrir 20 árum við
að tendra ljósin á trénu. Jóla-
skemmtun hefst klukkan 14. Skóla-
kór Grundaskóla og lúðrasveit Tón-
listarskóla Akraness flytja nokkur
jólalög og jólasveinar kíkja í heim-
sókn.
Morgunblaðið/Eggert
Ljós á Akratorgi
ÚR BÆJARLÍFINU
Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður
Félagsstarfið blómstrar nú þegar
komið er fram á vetur. Karlakórinn
Kári, sem skipaður er 25 körlum úr
Grundarfirði, Stykkishólmi og Snæ-
fellsbæ, æfir annan hvern mánudag
í Grundarfjarðarkirkju en hinn
mánudaginn inni í Stykkishólms-
kirkju. Kirkjukórinn æfir svo á
þriðjudagskvöldum og er það gít-
arleikarinn Sigurgeir Sigmundsson
sem leikur undir kórsönginn á gítar.
Lionsklúbburinn hefur í nógu að
snúast þessa dagana og Kvenfélagið
Gleym mér ei hyggur á utanlands-
ferð um næstu helgi.
Blóðsykursmæling fyrir til-
stilli Lionsklúbbs Grundarfjarðar
fór fram sl. laugardag í samvinnu
við Heilsugæslustöðina hér. Hjúkr-
unarfræðingur og sjúkraflutnings-
maður á vakt sáu um að gera mæl-
inguna og á þeim þremur tímum
sem mælingar stóðu yfir létu 89
manns athuga stöðu sína. Af þeim
var átta boðið að koma til frekari
athugunar á Heilsugæslustöðinni.
Þessi viðburður fer fram í tengslum
við alþjóðlegan sykursýkisdag
Lions 14. nóvember ár hvert og er
liður í forvarnarstarfi Lionshreyf-
ingarinnar.
Í tengslum við blóðsykursmæl-
inguna afhentu Róbert W Jörg-
ensen og Sigríður Finsen, fulltrúar
Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofn-
unar Vesturlands, Heilsugæslustöð-
inni í Grundarfirði blóðþrýst-
ingssírita þennan sama dag og tók
hjúkrunarfræðingurinn Edda Ýr
Þórsdóttir við gjöfinni fyrir hönd
Heilsugæslustöðvarinnar. Í stuttri
tölu sem Róbert flutti greindi hann
frá því að Hollvinasamtökin vildu
gjarna nota tækifæri sem þetta til
að tengja afhendingu gjafa við, þar
sem Lionsklúbbarnir væru svo ötul-
ir í stuðningi við heilbrigðiskerfið.
Aðventan bíður handan við
hornið og af því tilefni verður margt
um að vera í Grundarfirði 1. sunnu-
dag í aðventu. Dagurinn hefst á
guðsþjónustu í Grundarfjarðar-
kirkju kl. 11, eftir hádegið stendur
kvenfélagið fyrir sínum árlega að-
ventu- og fjölskyldudegi í Sam-
komuhúsinu. Kl. 17.00 verður stór-
söngvarinn Þór Breiðfjörð með
tónleika í Grundarfjarðarkirkju og
að þeim loknum verður tendrað á
miðbæjarjólatrénu. Það er Lions-
klúbburinn sem sér um að útvega
og setja upp jólatréð og síðan að
tendra ljósin en kirkjukórinn að-
stoðar við sönginn. Miðbæj-
arjólatréð hefur um nokkurra ára
skeið verið fengið frá Skógrækt-
arfélagi Eyrarsveitar úr skóg-
arlundi ofan við byggðina en þar
var byrjað að gróðursetja árið 1987.
Félagsstarfið blómstrar
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Tækið afhent Edda Ýr Þórsdóttir hjúkrunarfræðingur tók við blóðþrýst-
ingssíritanum fyrir hönd Heilsugæslustöðvarinnar í Grundarfirði.
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra við-
burða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
26 dagar til jóla
Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar
hefur hafnað beiðni frá EAB Ný
orku ehf. um uppbyggingu vind-
myllugarða í sveitarfélaginu. Fé-
lagið hefur umboð fyrir samnefnt
vindorkufyrirtæki í Þýskalandi sem
hefur haft áform um uppsetningu
vindmyllugarða hér á landi.
Fulltrúar frá EAB Ný orku komu
í sumar til fundar við sveitarstjórn
Eyjafjarðarsveitar. Þar var óskað
eftir samstarfi um uppbyggingu
vindmyllugarðs, eða -garða, til raf-
orkuframleiðslu. Sveitarstjórnin
frestaði umfjöllun á fundi sínum 10.
júní sl. en tók málið fyrir að nýju
núna í vikunni. Þar var ákveðið að
hafna óskum fyrirtækisins.
Telur sveitarstjórnin að Eyja-
fjarðarsveit henti „alls ekki“ fyrir
vindmyllugarð, eins og áætlanir
fyrirtækisins gera ráð fyrir.
EAB Ný orka hefur óskað eftir
samstarfi við fleiri sveitarfélög,
m.a. Norðurþing og Rangárþing
ytra, án þess að þar hafi verið skrif-
að undir formlegt samstarf. Þá var
gerð viljayfirlýsing með Fallorku,
orkufyrirtæki á Akureyri. Andri
Teitsson, framkvæmdastjóri Fall-
orku, segir viljayfirlýsinguna við
EAB Ný orku enn í gildi og hafi
ekki verið háð samstarfi við Eyja-
fjarðarsveit. Hugmyndir þýska fyr-
irtækisins gangi út á stóran vind-
myllugarð en Fallorka sé á eigin
vegum einnig að skoða ýmsa
smærri möguleika í raforkufram-
leiðslu. bjb@mbl.is
Eyjafjarðarsveit hafnar samstarfi um vindmyllugarð
KAI Pure Komachi 2:
• Kai hefur framleitt hágæðahnífa í yfir 100 ár
• Hnífarnir eru úr High-carbon
ryðfríu stáli og með
non-stick litaðri húð
• Yfir 23.000 hnífar
seldir á Íslandi
Hágæða hnífar
Allt fyrir eldhúsið
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi
Sími 540 3550 | progastro.is
Opið alla virka daga kl. 9–18, laugard. kl. 11-14.