Morgunblaðið - 28.11.2015, Side 21
FRÉTTIR 21Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015
kíktu í heimsókn
Opnunarhátíð
í dag 28. nóv. frá kl. 10-18
Kauptúni 3 | Garðabæ | Sími: 564 3364 | fisko.is L i f and i v e r s l un
Erum í sama húsi en höfum flutt okkur um nokkur verslunarbil
Verð að
eins
13.900
kr.
Ný stærri og glæsilegri verslun
Frábær
opnunar-
tilboð
Elite fiskabúr 54 l.
TILBOÐ
• Ljós og ljósastæði
• Lok
• Dæla
• Hitari
Jólasveinninn kemur við kl. 2
með gotterí fyrir börnin.
Bjarni trubardor kemur kl. 3
og spilar fyrir gesti.
Hunda- og kattafóður
á frábæru verði
Biskup Íslands hefur auglýst laust
til umsóknar embætti sóknarprests
í Nesprestakalli, Reykjavíkur-
prófastsdæmi vestra. Embættið
veitist frá 1. febrúar 2016.
Biskup Íslands skipar í embætti
sóknarprests til fimm ára.
Í Nesprestakalli er ein sókn, Nes-
sókn, með rúmlega ellefu þúsund
íbúa og eina kirkju, Neskirkju í
Reykjavík.
Nesprestakall er á samstarfs-
svæði með Hallgrímsprestakalli,
Dómkirkjuprestakalli, Háteigs-
prestakalli og Seltjarnarnes-
prestakalli. Umsóknarfrestur er til
5. janúar næstkomandi.
Núverandi sóknarprestur í Nes-
prestakalli er sr. Örn Bárður Jóns-
son. Hann hefur verið í leyfi og
starfar erlendis um þessar mundir.
Samkvæmt upplýsingum frá Bisk-
upsstofu hefur sr. Örn Bárður nú
sagt embættinu lausu. Prestar
kirkjunnar eru sr. Skúli Sigurður
Ólafsson og sr. Sigurvin Jónsson.
sisi@mbl.is
Embætti
laust til
umsóknar
Hvatningarverðlaun Vísinda- og
tækniráðs voru afhent á sérstöku
afmælisþingi Rannís sl. fimmtudag,
en um þessar mundir eru 75 ár síð-
an Rannsóknaráð Íslands var stofn-
að.
Tveir ungir vísindamenn hlutu
verðlaunin. Dr. Sesselja Ómars-
dóttir, prófessor við lyfjafræðideild
Háskóla Íslands og forstöðumaður
gæðarannsókna hjá Alvotech, og
dr. Egill Skúlason, eðlisefnafræð-
ingur og dósent við raunvís-
indadeild Háskóla Íslands, hlutu
viðurkenninguna að þessu sinni.
Forsætisráðherra, Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, sem jafn-
framt er formaður Vísinda- og
tækniráðs, afhenti Sesselju og Agli
verðlaunin.
Sesselja er fædd árið 1975 og
lauk prófi í lyfjafræði frá Háskóla
Íslands árið 2000. Hún varði svo
doktorsritgerð sína frá Háskóla Ís-
lands vorið 2006 á sviði lyfja- og
efnafræði náttúruefna.
Egill Skúlason er fæddur árið
1979 og lauk meistaraprófi í reikni-
efnafræði frá Háskóla Íslands árið
2005 og síðan doktorsprófi 2009 í
verkfræðilegri eðlisfræði frá
Danska tækniháskólanum.
Hvatningarverðlaun Vísinda- og
tækniráðs eru veitt vísindamanni
sem snemma á ferlinum þykir hafa
skarað fram úr og skapi væntingar
um framlag í vísindastarfi er
treysti stoðir mannlífs á Íslandi.
Verðlaunin, sem nú eru 3 milljónir
króna, hafa verið veitt frá árinu
1987, í fyrsta sinn á 50 ára afmæli
atvinnudeildar Háskóla Íslands.
Vísindamenn verðlaunaðir
Afhending Verðlaunahafarnir ásamt Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni.
Tveir ungir vísindamenn hlutu Hvatningarverðlaunin
Vinna er nú hafin
við að setja upp
tæplega 400 fer-
metra skautasvell
á Ingólfstorgi sem
umbreytist í Ing-
ólfssvell í desem-
ber. Nova stendur
að svellinu í sam-
starfi við Sam-
sung í tilefni af 8 ára afmæli Nova 1.
desember og þann dag verður svellið
opnað formlega kl. 20. Svellið verður
opið frá hádegi og fram á kvöld til og
með 23. desember.
Svell í Sahara-eyðimörkinni
Jólaþorp mun rísa í kringum Ing-
ólfssvellið þar sem hægt verður að
kaupa veitingar og útivistarfatnað.
Frítt er inn á svellið, hægt að leigja
skauta og hjálma og leigja sérstakar
skautagrindur. Hægt verður að panta
svellið fyrir skólahópa og fyrir-
tækjahópa.
Nova er í samstarfi við hollenskt
fyrirtæki um uppsetningu á skauta-
svellinu. Hefur það meðal annars sett
upp svell í Sahara-eyðimörkinni og
Suður-Afríku.
Skautasvell á
Ingólfstorgi
í desember