Morgunblaðið - 28.11.2015, Síða 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015
Rússar unnu tvöfaldan sigurá Evrópumótinu í skáksem lauk í Laugardalshöllum síðustu helgi. Undan-
farin ár hefur rússneskum liðum
gengið allt annað en vel í flokka-
keppnum og hafa þau margoft mátt
sjá á eftir gullinu í greipar annarra
þjóða. Armenar hafa verið aðsóps-
miklir og einnig Úkraínumenn. En
Rússar mættu vel skipulagðir til
leiks með öfluga aðstoðarmenn og
sveitir þeirra í opna flokknum og
kvennaflokknum báru höfuð og
herðar yfir keppinautana.
Íslensku liðunum gekk upp og of-
an; í síðustu umferð tókst A-liði Ís-
lands að vinna Svía á öllum borðum
eða 4:0 og rekur mig ekki minni til
þess að slík úrslit hafi áður sést í
viðureignum þjóðanna. Frískustu
liðsmenn sveitarinnar, Hjörvar
Steinn Grétarsson og Guðmundur
Kjartansson, náðu báðir að vinna
með svörtu. Hjörvar Steinn var með
bestan árangur allra íslensku skák-
mannanna; hlaut fimm vinninga af
sjö mögulegum. Sveitin endaði í 19.
sæti, sem er ágætur árangur. Í loka-
umferðinni vann „gullaldarlið“ Ís-
lands Skota 3½:½ en liðsmenn voru
einkennilega seinheppnir og stund-
um klaufskir og kom það t.d. kom
fram í viðureigninni við A-lið Íslands
þegar Jón L. Árnason „sofnaði“ í
jafnteflislegri stöðu í skákinni við
Hjörvar Stein og féll á tíma. Þrjú
efstu lið opna flokksins á EM 2015
voru:
1. Rússland 15 stig 2. Armenía 13
stig 3. Ungverjaland 13 stig.
Góð frammistaða Guðlaugar Þor-
steindóttur vakti athygli, en hún
hlaut 5½ vinning af níu mögulegum
og náði áfanga að alþjóðlegum meist-
aratitli. Efstu liðin í kvennaflokki
urðu:
1. Rússland 17 stig 2. Úkraína 15
stig. 3. Georgía 14 stig.
Framkvæmd Evrópumótsins tókst
með ágætum, en Skáksambandið
fékk til liðs við sig fjölmarga aðila til
hjálpar. Sjálfboðaliðar settu mikinn
svip á mótið, vingjarnlegir og leystu
hvers kyns vanda. Engin sérstök
vandamál komu upp „á gólfinu“. Þar
var aðgengi áhorfenda frjálslegra en
á sambærilegum mótum.
Um frammistöðu einstakra kepp-
enda er það að segja að lítill heims-
meistarabragur var framan af á tafl-
mennsku frægasta þátttakendans,
Norðmannsins Magnúsar Carlsen.
Bestum árangri á 1. borði náði Viktor
Bologan frá Moldavíu, en hann vann
t.d. Vasilí Ívantsjúk í aðeins 19 leikj-
um. 1. borðs maður Rússa fór heldur
ekki mjúkum höndum um Úkraínu-
manninn:
EM 2015; 4. umferð:
Vasilí Ívantsjúk – Peter Svidler
Spænskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4.
Ba4 Rf6 5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3
O-O 8. c3 d5
Marshall-árásin. Ívantsjúk hafði
undirbúið sig vel fyrir þessa skák.
9. exd5 Rxd5 10. Rxe5 Rxe5 11.
Hxe5 c6 12. d3 Bd6 13. He1 Bf5 14.
Df3 He8 15. Hxe8 Dxe8 16. Rd2
De1+ 17. Rf1 Bg6 18. g3!?
Endurbót Ívantsjúk á skák Kar-
jakins og Svidlers í lokaeinvígi
heimsbikarkeppninnar FIDE í Bakú
á dögunum. Þar lék Karjakin 18. Bc2
og Svidler missti af 18. …. Rxc3! með
vinningsstöðu á svart.
18. … b4 19. h4 h5 20. c4 Rf6 21.
Bd1 He8 22. Bd2 De5 23. Hc1 Bc5
Gott var einnig 23. … Dxb2. Það er
ekki gott að segja hvað Ívantsjúk yf-
irsést í undirbúningi sínum en ekki
er skemmtilegt að verja hvítu stöð-
una.
24. a3 a5 25. axb4 axb4 26. Hc2
Rg4 27. Re3 Dd6! 28. Rxg4 hxg4 29.
Dxg4
Tilbúinn að gefa d3-peðið en meira
býr í stöðunni.
29. … Bh5! 30. Dxh5 Dxg3+ 31.
Kh1 Dxf2
- og Ívantsjúk gafst upp. Fram-
haldið gæti orðið 30. Dg4 Df1+ 31.
Kh2 Bd6+ og vinnur.
Rússar unnu velheppnað
Evrópumót í Höllinni
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is Á þessu hausti eru
liðin rétt tuttugu ár
síðan ég hratt af stað
hjónanámskeiðum
undir heitinu „Jákvætt
námskeið um hjóna-
band og sambúð“. Í
gegnum tíðina hafa
ýmsir aðilar komið að
starfinu með mér.
Námskeiðið hefur ver-
ið haldið um allt land
mörgum sinnum og
eins í Noregi og Svíþjóð. Og pörin
skipta þúsundum sem hafa tekið
þátt.
Sjálft inntak námskeiðanna hefur
lítið breyst í gegnum árin – að hjálpa
þátttakendum að greiða úr flækjum
lífsins og finna leiðir til að styrkja
ástina og efla sambandið. Umgjörðin
hefur aftur á móti tekið stakkaskipt-
um, enda breytist samfélagið stöð-
ugt og spurningarnar sem fjöl-
skyldur glíma við. Margar ástæður
eru fyrir því að pör taka þátt í slíku
námskeiði. Sum koma til að leysa úr
vanda í sambandinu, en önnur til að
styrkja það sem gott er fyrir.
Það má segja að hjónanámskeiðið
sé þess eðlis að þar sé verið að fást
við mál og benda á lausnir sem fólk
ætti að geta sagt sér
sjálft. Á námskeiðinu
eru engar töfralausnir í
boði sem engum hefur
dottið í hug fyrr. En
vandinn er sá að við
höfum oft gleymt lausn-
unum, týnt þeim í ann-
ríki hversdagsins. Ástin
er eins og fjársjóður
sem býr innra með okk-
ur. Hjónanámskeiðin
eru eins og fjársjóð-
skort, verkfæri til að
finna fjársjóðinn, grafa
hann upp og láta gullið glitra í sól-
inni. Ég vil þakka öllum sem hafa
tekið þátt í námskeiðunum í gegnum
árin og aðstoðað við fræðslu og ann-
að þeim tengt og hlakka til að halda
áfram fræðslunni með nýju fólki
Hjónanám-
skeið í 20 ár
Eftir Þórhall
Heimisson
Þórhallur
Heimisson
» Sjálft inntak nám-
skeiðanna hefur
þess vegna lítið breyst í
gegnum árin – að hjálpa
þátttakendum að greiða
úr flækjum lífsins.
Höfundur er sóknarprestur
og ráðgjafi.
Aukablað alla
þriðjudaga