Morgunblaðið - 28.11.2015, Page 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 2015
Sameinuðu þjóð-
irnar gerðu 29. nóv-
ember að alþjóðlegum
samstöðudegi með
réttindabaráttu palest-
ínsku þjóðarinnar og
Félagið Ísland-
Palestína var stofnað á
þessum degi árið 1987.
Dagurinn er ekki til
kominn af tilviljun því
að það var hinn 29.
nóvember 1947 sem Allsherjarþing
SÞ samþykkti að leggja til skipt-
ingu Palestínu í tvo jafna hluta milli
gyðinga og araba. Sú skipting varð
aldrei að veruleika. Hryðjuverka-
hópar gyðinga hröktu hundruð þús-
unda íbúa landsins á flótta og
stærsta flóttamannavandamál sög-
unnar varð til, um helmingur þjóð-
arinnar missti heimili sín. Þegar
Ísraelsríki var stofnað hálfu ári síð-
ar, réðust herir nágrannaríkja á
Ísrael en höfðu ekki erindi sem erf-
iði. Þvert á móti höfðu
Ísraelsmenn bætt við
sig fjórðungi landsins
til viðbótar þeim helm-
ingi sem SÞ höfðu ætl-
að þeim þegar vopna-
hlé komst á í júní 1949.
Hernámið 1948 er það
sem í dag heitir Ísrael
og miðast við vopna-
hléslínuna frá 1949.
Afgangurinn eða 22%
landsins var síðan tek-
inn í Sex daga stríðinu
1967, það er Gaza og
Vesturbakkinn að meðtalinni Aust-
ur-Jerúsalem. Þar með var hernám
allrar Palestínu fullkomnað.
Sameinuðu þjóðirnar hafa sam-
þykkt óteljandi ályktanir um rétt
palestínsks flóttafólks til að snúa
heim aftur, um afnám hernáms og
að Ísrael skili herteknu svæðunum
frá 1967 og fjölmargar ályktanir
sem fordæmt hafa framferði Ísraels
gagnvart íbúum herteknu svæð-
anna. Engu hefur þó verið fylgt eft-
ir. Þar kemur til sögunnar neitun-
arvald Bandaríkjanna, sem hafa
ávallt varið gerðir Ísraelsríkis með
atkvæði sínu og þannig gert þessu
hernámsveldi kleift að halda áfram
framferði sínu, þvert á alþjóðalög.
Landtökubyggðirnar hafa verið
stækkaðar með hervaldi og fjöldi
gyðinga sem leyft hefur verið að
setjast að í þessum ólöglegu land-
ránsbyggðum er kominn í 600 þús-
und. Slíkir mannflutningar inn á
hernumið land eru skýlaust brot á
Genfarsáttmálunum sem eru al-
þjóðalög.
Meðferð hernámsveldisins á íbú-
um herteknu svæðanna einkennist
af grimmd og mannréttindabrotum.
Ferðafrelsi er mjög takmarkað og
íbúarnir eiga stöðugt yfir höfði sér
árásir landtökuliðs og hers. Með
vissu millibili er efnt til stórárása á
Gaza, síðast í fyrra þegar yfir 2.200
manns voru drepnir, þar af 551
barn. En auk þess er árásum haldið
áfram jafnt og þétt á palestínsku
íbúana. Ráðamenn í Ísrael segja í
kaldhæðni að það þurfi að slá gras-
flötina af og til. En það var engin
kaldhæðni í orðum ísraelsku þing-
konunnar úr einni landtökubyggð-
inni, sem sagði að það þyrfti að
drepa hverja einustu palestínsku
móður, því að hún myndi geta af
sér börn sem yrðu hryðjuverka-
menn. Þessi unga kona er nú orðin
dómsmálaráðherra Ísraels.
Það hefur mikill árangur náðst
fyrir Palestínu á sviði alþjóðamála.
Mikill meirihluti Sameinuðu þjóð-
anna, eða yfir 70% aðildarríkjanna,
hefur viðurkennt Palestínu sem
sjálfstætt og fullvalda ríki innan
landamæranna frá 1967. Nýverið
vannst sigur hjá Norðurlandaráði
þegar stór meirihluti þar samþykkti
áskorun til ríkisstjórna Norð-
urlanda að fara að dæmi Íslands og
Svíþjóðar og viðurkenna Palestínu.
Engu að síður hefur staða palest-
ínsku þjóðarinnar sjaldan verið
verri og þá ekki síst íbúa herteknu
svæðanna. Innilokun íbúanna á
Gaza sem búa við skort á öllum
sviðum og jafnframt við stöðugar
árásir og ógn frá Ísrael. Ekki verð-
ur séð að umheimurinn sé að gera
mikið til að rjúfa þessa herkví um
Gaza sem hefur verið alger frá
árinu 2006. Umsátursástandið á
Vesturbakkanum og í Austur-
Jerúsalem er öðruvísi en ástandið
hefur aldrei verið verra þar síðan í
stríðinu 1967. Palestínumenn leggja
samt áherslu á að þeir þurfi enga
mannúðaraðstoð, það sem þeir
þurfa er frelsi og þá bjarga þeir sér
sjálfir.
Tökum undir réttmætar kröfur
palestínsku þjóðarinnar fyrir frelsi
og sjálfstæði, réttlátum friði og
mannréttindum.
Alþjóðleg samstaða með Palestínu
Eftir Svein Rúnar
Hauksson » Tökum undir rétt-
mætar kröfur pal-
estínsku þjóðarinnar
fyrir frelsi og sjálfstæði,
réttlátum friði og
mannréttindum.
Sveinn Rúnar Hauksson
Höfundur er læknir og formaður
Félagsins Ísland-Palestína.
Væri meiri friður í
heiminum, ef Ísr-
aelsríki hefði aldrei
orðið til?
Tvímælalaust, svar-
ar sá sem þetta ritar.
Stofnun þess 1948
mætti einna helst
líkja við einskonar
dulbúna íkveikju. Áð-
ur en þeir gerðu sér
fulla grein fyrir því
eignuðust Ísraelar
sérlega erfiða og heittrúaða ná-
granna, sem ríghéldu svo fast við
sín eigin trúarbrögð að engar
málamiðlanir voru hugsanlegar
eða mögulegar.
Ekki þætti mér ólíklegt að
sagnfræðingar framtíðarinnar
myndu telja stofnun Ísraelsríkis
eitt af herfilegustu mistökum í
mannkynsögunni á vorri jörð.
Í gamalli grein í Morgunblaðinu
gat ég þess að það væri álitamál
hvort trúarbrögð hefðu fært okkur
meiri blessun eða böl. Nú eftir að
aldurinn færist yfir mig er ég
gjörsamlega sannfærður um að
þau hafi fært okkur meira böl.
Áður en við fæddumst vissum
við ekki neitt og er ekki ósenni-
legt að eitthvað svipað gerist eftir
að við stígum niður af leiksviði
lífsins og höfum endanlega gefið
upp andann, þ.e.a.s. algjört vit-
undarleysi eins og fyrir fæð-
inguna. Ekkert himnaríki eða hel-
víti. Slíkir staðir eru aðeins til í
hugarheimi trúaðs fólks, sem er
ýkjulaust meirihluti mannkynsins
hér á þessari ófullkomnu plánetu
okkar. Þótt ég hafi
ekki minnstu hug-
mynd hversu margir
trúarsöfnuðir eru til í
öllum heiminum, þá
er eitt víst að sérhver
söfnuður telur sig
boða hina einu réttu
og sönnu trú!! Og
hvert leiðir slíkt við-
horf oss nema til
árekstra, átaka,
hryðjuverka og
trúarbragðastyrjalda
eins og mannkyns-
sagan hefur margoft
sýnt okkur og það er alveg víðs-
fjarri að ástandið fari batnandi á
vorum tímum nema síður sé. Lít-
um bara á allar þær hörmungar
sem dynja yfir Sýrland og önnur
Mið-Austurlönd á hverjum degi
að heita má og reyndar víðar í
veröldinni.
Fyrir allmörgum árum lét sá
sem þetta ritar í ljós nokkuð
djarfa skoðun varðandi guð og
sköpunarverk hans. Í stuttu máli
taldi ég að mennirnir hefðu skap-
að Guð, en ekki öfugt og auk þess
hefðu þeir samið sjálfir biblíuna,
það snilldarverk í þokkabót.
Með sívaxandi loftárásum vest-
urveldanna og Rússa á Ríki ísl-
ams eru ekki allar líkur á því að
þriðja heimsstyrjöldin sé nú í
uppsiglingu? Þröngsýni heittrú-
aðra múslima, ríkjandi og æva-
fornt feðraveldi þeirra ásamt al-
gjörri kúgun kvenna er okkur
Vesturlandabúum þyrnir í augum
svo ekki sé minnst á dagleg
hryðjuverk þeirra.
Enginn hefur þó alveg hreinan
skjöld í þessum skelfilegu átök-
um, hvorki við Vesturlandabúar
né íslamistar í Mið-Austurlöndum
og það er alveg á hreinu að stofn-
un Ísraelsríkis hefur átt sinn þátt
í því að magna hatrið og heiftina í
þessum ógnvænlegu og örlagaríku
átökum sem við höfum fyrir sjón-
um okkar að heita má á hverjum
degi.
Hvernig á nokkur hugsandi
maður að fá nokkurn botn í þetta
stríðsástand þegar til að mynda
Frökkum dettur í hug að smíða
herskip handa andstæðingum sín-
um, Rússum. Vopnasmiðir láta
aldrei að sér hæða og það er ekki
ofmælt að það sé jafnan gleði í
þeirra höll þegar styrjaldir geisa
um allan heim. Þær eru nefnilega
þeirra ær og kýr.
Og nú að lokum langar mig til,
lesendur góðir að enda þessi skrif
mín á ekki of neikvæðum nótum
með því að vitna í sérlega góða
grein eftir Þór Rögnvaldsson
heimspeking í Morgunblaðinu 30.
október sem ber heitið: Tveir
blóðheitir og friðurinn og er í
raun opið bréf til Jóns Baldvins
Hannibalssonar. Þar segir hann í
niðurlagi greinarinnar, það sem
fer hér á eftir. „Úkraína og Sýr-
land eru sín hver hliðin á sama
málinu. Til þess að leysa þær
ídeólógísku flækjur sem þetta mál
felur í sér verður mannkynið að
hefja sig á æðra siðferðisplan, þar
sem við yfirvinnum firringuna
sem felst í afstöðunni“ við hið
góða: „þeir“ hið illa og tileinkum
frekar þá afstöðu sem kveður á
um mennsku allra manna. Ef það
kraftaverk gerist að okkur muni
takast að leysa þessar flækjur
táknar það einfaldlega að sögunni
hefur lokið á jákvæðan hátt – í
friði.
Bestu kveðjur og í von um að
kraftaverkið gerist.
Auðsætt er að Þór ljær orðinu
kraftaverk hálfbiblíusögulegan
blæ að mínu viti.
Væri meiri friður í heiminum ef
Ísraelsríki hefði aldrei orðið til?
Eftir Halldór
Þorsteinsson » Það er alveg á hreinu
að stofnun Ísraels-
ríkis hefur átt sinn þátt í
því að magna hatrið og
heiftina í þessum ógn-
vænlegu og örlagaríku
átökum.
Halldór
Þorsteinsson
Höfundur er fv. skólastjóri
Málaskóla Halldórs.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birtir aðsendar grein-
ar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota
innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notkun og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru sendar á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu
mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn
grein“ er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn
í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu
notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólar-
hringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla virka daga í síma
569-1100 frá kl. 8-18.
Í einkasölu glæsilegt einbýli með innbyggðum bílskúr samtals 220 fm.
Byggt 2009. Frábær staðsetning og útsýni m.a. yfir Ölfusána. Glæsilegur
garður og hellulagt bílaplan. Sólstofa, útsýnisstofa og fleira. Fullbúin
eign í sérflokki. Verð 49,8 millj.
Allar nánari upplýsingar
gefur Helgi Jón sölustjóri,
s. 893 2233.
Magnús Emilsson lögg. fasteignasali
Ártún 2a – Selfoss
Einstök staðsetning og útsýni
Sólvallagata 14, 107 Reykjavík
ÞRJÁR ÍBÚÐIR
Höfum fengið til sölu þrjár íbúðir í þessu fallega virðulega húsi við
Sólvallagötu í vesturbænum. Um er að ræða eftirfarandi íbúðir:
3ja herbergja 117,2 fm íbúð í kjallara hússins.
4ra herbergja 138,4 fm íbúð á 1. hæð hússins.
2ja herbergja 72,0 fm íbúð í risi.
Samtals 327,6 fm.
Eignin þarnast verulegs viðhalds og endurnýjunar.
Íbúðirnar seljast saman. Verð 93,0 millj.
ÍBÚÐIRNAR VERÐA SÝNDAR MIÐVIKUDAGINN
2. DESEMBER MILLI KL. 17:00 OG 18:00.