Morgunblaðið - 28.11.2015, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 28.11.2015, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 332. DAGUR ÁRSINS 2015 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 838 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. „Það hrúguðust allir á brettið“ 2. Kalt kranavatn ekki í boði 3. Komust ekki til útlanda í morgun 4. Grímuklæddur maður í lyftunni  Fjórði Billy-drengurinn bætist við í kvöld þegar Bjarni Kristbjörnsson þreytir frumraun sína í aðalhlutverk- inu í söngleiknum Billy Elliot hjá Borgarleikhúsinu. Bjarni hefur farið með hlutverk Michaels, vinar Billys, frá frumsýningu, en fór fljótlega í þjálfun fyrir titilhlutverkið. Fjórði Billy-drengur frumsýnir í kvöld  Árviss rithöf- undalest fer um Austurland um helgina. Meðal höfunda sem lesa úr nýjum verkum sínum eru Iðunn Steinsdóttir, Jón Gnarr og Kristín Helga Gunnarsdóttir. Auk þess verða með í för austfirskir höfundar og þýðendur. Í dag kl. 14 verður lesið upp á Skriðuklaustri í Fljótsdal og kl. 20.30 í kvöld í Skaftfelli á Seyðis- firði. Á morgun kl. 14 verða þeir í Safnahúsinu í Neskaupstað. Rithöfundalest fer um Austurland  Bjarni Gunnarsson hlýtur Ísnálina 2015 fyrir þýðingu sína á bókinni Blóð í snjónum eftir Jo Nesbø. Í niðurstöðu dómnefndar segir m.a.: „Ljóðræn og yfirlætislaus frásögn af einmana og umkomulausum morðingja skilar sér einkar vel í vandaðri þýð- ingu Bjarna.“ Dómnefnd skipuðu Katrín Jakobs- dóttir, Kolbrún Berg- þórsdóttir, Magnea J. Matthíasdóttir, Quent- in Bates og Ragn- ar Jónasson. Bjarni Gunnarsson hlýtur Ísnálina 2015 FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 8-15 m/s og snjókoma eða él fyrir norðan. Hægari og úr- komulítið syðra, en sums staðar él suðaustanlands. Frost 2-12 stig, kaldast í innsveitum. Á sunnudag Norðan og norðaustan 10-18 m/s norðantil og snjókoma eða él, en hægari vindur og yfirleitt þurrt fyrir sunnan. Frost 0 til 8 stig. Á mánudag Norðlæg átt, 5-10 m/s fyrir norðan og dálítil él á annesjum, en hægari vind- ur og bjartviðri sunnantil. Áfram kalt í veðri. „Ég viðurkenni fúslega að ég hefði al- veg viljað mæta Barcelona, Brescia eða Slavia Prag,“ sagði landsliðs- konan Sara Björk Gunnarsdóttir við Morgunblaðið en lið hennar, sænska meistaraliðið Rosengård, dróst á móti Evrópumeisturum Frankfurt í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Sigurliðið mæt- ir svo Wolfsburg eða Brescia. »4 Sara mætir Evrópu- meisturunum Eyjamenn urðu að sætta sig við tveggja marka tap, 28:26, fyrir portúgalska lið- inu Benfica í fyrri leik lið- anna í 3. umferð Áskor- endabikarsins í handknattleik en liðin átt- ust við í Lissabon í Portúgal í gærkvöld. ÍBV var yfir stór- an hluta leiksins en liðið gaf eftir á lokakaflanum. Liðin eigast aftur við á sama stað í kvöld. »3 ÍBV gaf eftir á lokakaflanum Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Þetta er skemmtilegt ferðalag að leggja upp í á hverju ári. Ég er hætt að leika svona opinberar sýningar eins og verður í Sólheimasafni. Ég kemst bara ekki yfir meira,“ segir Þórdís Arnljótsdóttir en frá 1989 hef- ur hún skemmt börnum með sýningu sinni Grýla og jólasveinarnir í skólum og leikskólum. Eina opna sýning hennar verður í dag kl. 13 í Sól- heimasafni í Sólheimum 27. Fyrir jólamánuðinn 1989 var Þór- dís ekki að vinna sem leikari og ákvað að sjóða saman þessa sýningu úr mörgum jólaævintýrum. Nú, 26 árum síðar, tekur hún sér frí í mánuð frá sinni vinnu, sem fréttamaður á RÚV, og ferðast með leiksýninguna. Sýn- ingin kemst fyrir í einni ferðatösku og þess vegna heitir leikhúsið Leikhús í tösku. Markmiðið er að gleðja og fræða börnin um Grýlu og jólasveinana en börnin taka virkan þátt í sýningunni. Þar leiðir gömul kona litla stúlku, Björt, í leikferð með jólasveinunum og Grýlu. Gamlar vísur um Grýlu, Jólasveinakvæði Jóhannesar úr Kötl- um og fleiri vísur eru leiknar og sungnar en Þórdís leikur allar per- sónurnar. „Ég ætlaði að gera þetta ein jól þegar ég var ekki að vinna en svo var svo mikil eftirspurn að ég gat ekki hætt. Sumir leikskólar panta sýninguna á hverju ári.“ Sýning sem er aldrei eins Börnin verða ekki hrædd á sýning- unni og þannig gefa þau sjálf Þórdísi leyfi til að setja á sig Grýlunefið. Í lokin syngja svo allir saman við kertaljós. „Sýningin er aldrei eins því áhorfendurnir eru svo misjafnir, stundum eru þeir mjög ungir og þá þarf ég að gera Grýlu mjög væga en þeir eru líka upp í þriðja bekk og þá gef ég aðeins meira í. Er aðeins hræðilegri,“ seg- ir hún og glottir. Þórdís byrjar sýninguna sem hún sjálf og setur á sig Grýlunefið með leyfi barnanna. „Ég er ekki með nefið á mér nema í u.þ.b. tvær mínútur en sýningin í heild er um 35 mínútur. Þau verða að samþykkja að þetta sé ekki alvöru nef.“ Grýla er ekki góð Aðspurð hvort hennar Grýla sé góð er svarið afdráttarlaust: „Nei. Hún er í þeirri útgáfu sem hentar ungum börnum. Ég er ekki mikið að tala um að hún sé að borða óþekk börn. Hún, ásamt jólasveinunum, er svolítið vit- laus sem börnum finnst fyndið en hún er ekki ill í sýningunni. Stundum er hún óhugnanleg en það þarf lítið til að hræða börn. Grýla er ekki góð en mín hentar vel fyrir þennan aldurshóp.“ Börnin verða að samþykkja nefið  Þórdís Arnljóts- dóttir hræðir eng- in börn sem Grýla Morgunblaðið/Styrmir Kári Grýlufjör Þórdís leikur öll hlutverkin í sýningu sinni Grýla og jólasveinarnir en jólaferðalag hennar með sýninguna tekur um mánuð. Hér er hún í miðri sýningu í leikskólanum Vinaminni í Breiðholti þar sem fjörið var mikið. „Það eru margir hræddir við þetta nef,“ segir Þórdís en fyrstu börnin sem sáu sýn- inguna árið 1989 eru sum hver komin með börn sem sjá svo sýninguna og upp- lifa sömu hræðslu og önn- ur börn gagnvart Grýlu. „Einu sinni hitti ég strák sem var að vinna í leikskóla hér í Reykjavík, hann hefur verið um 25 ára aldurinn. Hann kom til mín eftir sýninguna og spurði hvort ég hefði verið lengi með þessa sýningu. Já, svaraði ég. Þá sagði hann mér að hann hefði munað eftir nefinu því hann hafði séð sýninguna sem barn í leikskóla. Mundi vel eftir nefinu. Nú var hann orðinn starfsmaður í leikskóla og upplifði smá fortíðarótta þegar ég tók fram nefið,“ segir Þórdís og hlær. Margir þekkja Grýlunefið SÝNINGIN VEKUR LJÚFSÁRAR MINNINGAR „Ef vel gengur gæti ég þurft að taka ákvörðun, þegar fjórir mánuðir eru liðnir, um það hvort ég fari á fullt eða bíði aðeins lengur. Það fer svolítið eftir aðstæðum hjá liðinu og fleiru. Ég vonast til þess að vera alla vega í þeirri aðstöðu þegar fjórir mánuðir eru liðnir frá aðgerð,“ segir Hannes Þór Halldórsson, landsliðs- markvörður í knattspyrnu, sem er á góðum bata- vegi eftir uppskurð á öxl. »1 Vonast til að þurfa að taka ákvörðun

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.