Morgunblaðið - 01.12.2015, Side 6

Morgunblaðið - 01.12.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Stefnt er að því að opna íbúðahótel í bakhúsi neðst á Laugavegi í Reykja- vík í mars á næsta ári. Framkvæmd- irnar fela í sér stækkun hússins og fjölgun hótelíbúða úr fjórum í átta. Fyrirtækið Icewear á húseignina. Um er að ræða bakhús með hús- númerið Laugavegur 1. Það er á bak við eitt elsta verslunarhúsnæði Reykjavíkur. Félag í eigu Icewear hefur leigt hótelíbúðir í bakhúsinu. Við framkvæmdirnar er bakhúsið endurbyggt. Kjallari hefur verið grafinn niður og verður þar verönd. Að auki er nú byggð 4. hæð ofan á húsið. Með henni bætast við 109,5 fermetrar og verður húsið 452 fer- metrar. Líka með íbúðir á Akureyri Ágúst Þór Eiríksson, eigandi Icewear, segir framkvæmdirnar við bakhúsið kosta vel á annað hundrað milljónir króna. Hann segir verk- efnið hluta af starfsemi Icewear. „Við erum að byggja átta hótel- íbúðir og reiknum með að opna 1. mars. Ég er þegar með þrjár íbúðir til útleigu á Akureyri. Þetta er því útvíkkun á starfsemi Icewear. Það er ekki lengur kjallari í bakhúsinu, enda grófum við niður á jafnsléttu.“ Staðsetningin er mjög góð og myndu 8 ríflega 50 fermetra íbúðir á þessum stað ekki kosta undir sam- tals 200 milljónum króna. Ásgeir Þór segir mikil tækifæri í rekstri hótelíbúða í miðborg Reykjavíkur. Eftirspurnin sé mikil. Umræddar íbúðir verði í lúxus- flokki. Hann segir einn starfsmann hafa verið ráðinn til að sinna bók- unum og öðrum verkefnum. Svo bætist við þrif og annað sem tengist rekstrinum. Lyklamóttaka verður þar sem nú er minjagripaverslun í framhúsinu á Laugavegi 1. Þar verður opnuð Icewear-verslun. Fyrirtækið Icewear á framhúsið líka. Framhúsið er skráð hjá Fast- eignaskrá sem 336,5 fermetra versl- un. Á sömu lóð er jafnframt umrætt 350 fermetra bakhús sem var byggt 1927. Bæði húsin tilheyra sömu lóð. Samkvæmt Fasteignaskrá var húseignin Laugavegur 1 byggð árið 1827, nánar tiltekið framhúsið. Hins vegar segir í bókinni Reykjavík: Sögustaður við Sund, eftir Pál Líndal að framhúsið hafi verið reist 1848 og er hér miðað við það ártal. Margir kannast við verslunina Vísi sem er nú rekin í austari við- byggingu við framhúsið. Þess má geta að nú eru 100 ára liðin síðan þeir Guðmundur Ásbjörnsson og Sigurbjörn Þorkelsson hófu þar verslunarrekstur og var sá síðar- nefndi jafnan kenndur við Vísi. Gamla húsið endurbyggt Ásgeir Þór segir miðhúsið friðað, en það er elsti hluti framhússins. Viðbyggingar á einni hæð til vesturs og austurs séu það ekki. Hann segir standa til að rífa viðbyggingarnar og endurbyggja miðhúsið. „Við eigum byggingarrétt upp á 1.350 fermetra [á lóðinni]… Hug- myndin er að endurgera húsið og byggja eina hæð í kjallara, gera verslun á tveimur hæðum og fara út í portið. Við höfum leyfi til þess að fara út í portið með verslunina,“ segir Ágúst Þór og tekur fram að þessi uppbygging sé á hugmynda- stigi. Ætlunin sé að auka versl- unarrými úr 260 í 660 fermetra. Þessi hluti Laugavegar mun taka frekari breytingum þegar fram- kvæmdir við nýja glerbyggingu á Laugavegi 2-4 hefjast á næstunni. Byggja lúxusíbúðir á Laugavegi  Icewear endurbyggir gamla vörugeymslu  Þar verða átta lúxusíbúðir leigðar út til ferðamanna  Gamalt framhús frá 1848 líka endurbyggt  Gert verður port sem tengir framhús og bakhús Teikning/Davíð Kristján Pitt/Stúdíó andrúm arkitektar/Birt með leyfi Drög Eins og teikningin sýnir verða gerðar svalir á vesturhlið bakhússins. Morgunblaðið/Árni Sæberg Gamla Vísishúsið Til stendur að endurbyggja framhúsið og rífa viðbyggingar til vesturs og austurs. Morgunblaðið/Baldur Arnarson Breyting Verið er að byggja fjórðu hæðina ofan á bakhúsið. Hótelíbúðir verða í húsinu. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Nú er vetur! Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ S805-10D 135cm ál snjóskófla 2.595 S805-4L 170CM ál snjóskafa 2.190 Rúðuskafa 190Hálkusalt 5 kg 585 Rúðuvökvi -18°C 4 lítrar 740 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Veðurstofa Íslands biður fólk um að aka ekki af stað á illa útbúnum bílum og fylgjast vel með veðri og færð á vegum í dag en spáð er mikilli snjó- komu, stormi og skafrenningi suð- vestan til framan af degi en óveðrið færist síðan norður og austur yfir landið þegar líður á daginn. Búast má við slæmu skyggni víða suðvest- anlands fram eftir degi. Haraldur Eiríksson, veðurfræð- ingur hjá Veðurstofu Íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi að austan stormur gerði vart við sig strax í morgunsárið suðvest- anlands. Fram að hádegi yrði skaf- renningur í borginni og um hádeg- isbil tæki að snjóa. Mest yrði snjókoman frá því um hádegisbil til klukkan fjögur, fimm seinnipartinn í dag. Allt að 20 m/s í Reykjavík Vindur verður á bilinu 15 til 25 m/s suðvestan til og segir Haraldur að í höfuðborginni gæti vindur farið í allt að 20 m/s. Þegar líður á daginn snýst vind- áttin í vestanátt á höfuðborgarsvæð- inu og lægir þá mikið að sögn Har- aldar, en búast má við að það verði fljótlega upp úr hádegi sem það ger- ist, um tvö-, þrjúleytið. Veðrið færist síðan austur og norður yfir landið þegar líður á dag- inn en að sögn Haraldar sleppur Norðurlandið eitthvað betur við storminn, þar verður úrkoma ekki eins mikil, en þó má búast við skaf- renningi enda er þar nokkur lausa- snjór á jörðu. Búast má við því að dragi verulega úr snjókomu á höfuðborgarsvæðinu seinni partinn í dag, um klukkan fjögur, fimm. Frost verður víða 1 til 10 stig en hlánar við suðurströndina í dag. Spáð mikilli snjókomu og ófærð um land allt  Færist austur og norður yfir land þegar líður á daginn Morgunblaðið/Golli Óveður Veður verður verst á höfuð- borgarsvæðinu upp úr hádegi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.