Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 27
kvenna. Það var ekki almennt talið sjálfsagt að stúlkur menntuðu sig á mínum ungdómsárum. En mennt- unin þeirra varð mikilvæg forsenda fyrir síauknum réttindum kvenna.“ Þórhildur tók þátt í að setja á stofn Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi og veitti því forstöðu fyrstu árin. Frá 1981 og fram yfir sjötugt var hún skjalavörður við Héraðsskjalasafn Austur-Húna- vatnssýslu og byggði það safn upp en áður hafði ekki verið þar fastráð- inn skjalavörður. Þá hefur hún rannsakað líf og starf kvenna og hafa greinar eftir hana birst í Húna- vökunni og Skírni. Einnig hefur hún samið Nemendatal fyrir Kvenna- skóla Húnvetninga á árunum 1879- 1901, en skólinn starfaði lengst af á Ytri-Ey á Skagaströnd. Endurminningar Þórhildar, skráðar af séra Kristjáni Björns- syni, birtust í bókinni Betri helm- ingurinn sem kom út 1992. Á afmælisdaginn verður Þórhild- ur á heimili dóttur sinnar í Arkar- holti 7 í Mosfellsbæ. Fjölskylda Þórhildur giftist á vetrardaginn fyrsta 1951 Jóni M.G. Ísberg, f. 24.4. 1924, d. 24.6. 2009, lengst af sýslumanni í Húnavatnssýslu. For- eldrar hans voru Guðbrandur Magnússon Ísberg, f. 28.5. 1893, d. 13.1. 1984, alþingismaður í Möðru- felli í Eyjafirði og síðar sýslumaður Húnavatnssýslu, og k.h., Árnína Hólmfríður Jónsdóttir Ísberg, f. 27.1. 1898, d. 3.10. 1941, húsfreyja. Börn Þórhildar og Jóns eru Arn- grímur, f. 10.5. 1952, héraðsdómari í Reykjavík, kvæntur Marjöttu Ís- berg kennara og eru börn þeirra Elsa, f. 1979, kennari og á hún Arn- grím Alex Ísberg Birgisson en sam- býlismaður Elsu er Stefán Þór Westlund háskólakennari í Noregi, Þórhildur, f. 1981, nemendastjóri jarðhitaskóla Sameinuðu þjóðanna, og Vilbrandur, f. 1984, BA í lög- fræði, en sambýliskona hans er Anniina Tenno glerlistamaður; Eggert Þór, f. 18.6. 1953, bygginga- tæknifræðingur, var kvæntur Sig- rúnu Hönnu Árnadóttur sjúkraliða og eru börn þeirra Jón Þór, f. 1976, húðflúrmeistari, og Árný Björg, f. 1981, viðskiptafræðingur, gift Fann- ari Erni Þorbjörnssyni viðskipta- fræðingi og eiga þau Dag Leó, Kristrúnu Lilju og Þorbjörgu Helgu, en dóttir Sigrúnar og stjúp- dóttir Eggerts er Hildur Helga Jó- hannsdóttir, f. 1968, og sambýlis- kona Eggerts er Sigríður Jónsdóttir kennari; Guðbrandur f. 10.5. 1955, prentari; Guðjón, f. 14.2. 1957, hag- fræðingur; Jón Ólafur, f. 20.2. 1958, sagnfræðingur og sérfræðingur hjá Alþingi, kvæntur Oddnýju Yngva- dóttur kennara og eru börn þeirra: Guðrún Rósa, lögfræðingur í innan- ríkisráðuneytinu en sambýlismaður hennar er Helgi Þór Þorsteinsson hdl. hjá Lex og eiga þau Oddnýju Maríu, Ólöf Gerður, lífeðlisfræð- ingur og í doktorsnámi í Kaup- mannahöfn, og Salvör, nemi við MR; Nína Rós f. 17.2. 1964, dr. í mannfræði og kennari en maður hennar er Samson Bjarnar Harð- arson landslagsarkitekt og eiga þau Sölva Þór, en dóttir Samsonar og stjúpdóttir Nínu er Þórdís. Systkini Þórhildar: Steingrímur, f. 1917, d. 1982, bóndi í Vatnsdal og verslunarmaður í Reykjavík; Hall- grímur f. 1919, bóndi í Hvammi í Vatnsdal; Sigurlaug, f. 1920, d. 1995, prestsfrú í Bjarnarnesi við Hornafjörð; Jón Auðunn, f. 1921, d. 2014, bóndi á Marðarnúpi í Vatns- dal; Ingibjörg, d. 1923, d. 1979, hús- freyja í Gerðum í Garði, og Eggert, f. 1927, d. 1953, bóndi á Marðar- núpi. Foreldrar Þórhildar voru Guðjón Hallgrímsson, f. 17.11. 1890, d. 8.9. 1982, bóndi, í Hvammi en lengst af á Marðarnúpi í Vatnsdal, og Ingi- björg Rósa Ívarsdóttir, f. 26.8. 1891, d. 11.9. 1982, húsfreyja. Úr frændgarði Þórhildar Ísberg Þórhildur Ísberg Una Þorleifsdóttir húsfr. á Vatnsnesi Kristmundur Bjarnason bóndi á ýmsum bæjum á Vatnsnesi Ingibjörg Kristmundsdóttir húsfr. á Kötlu- stöðum og víðar Ívar Jóhannesson Sjóm. á Skeggjastöðum Ingibjörg Rósa Ívarsdóttir húsfr. á Marðarnúpi Rósa Jóhannesdóttir húsfreyja og vinnu- kona í Vatnsdal Jóhannes Jónsson bóndi og vinnum. í Vatnsdal Ingibjörg Guðjónsdóttir Jón Auðunn Guðjónsson Inga Rósa Þórðardóttir kennari og rithöfundur Guðjón Auðunsson forstjóri Reita Ingibjörg Sólrún Gísladóttir svæðisstjóri UN WOMEN Níels Hafstein forstöðumaður Safnasafnsins Ragnheiður Brandsdóttir húsfreyja á Sölvabakka Guðlaugur Jóelsson bóndi á Sölvabakka Sigurlaug Guðlaugsdóttir húsfreyja í Hvammi Hallgrímur Hallgrímsson b. í Hvammi Guðjón Hallgrímsson bóndi á Marðarnúpi Margrét Magnúsdóttir húsfr. í Meðalheimi Hallgrímur Erlendsson b. í Meðalheimi Séra Guðjón Skarphéðins- son síðast pr. á Staðastað Gunnar Skarphéðins- son íslensku- kennari við VÍ Sigurlaug Guðjónsdóttir prestfrú í Bjarnarnesi Ingibjörg J. Níelsd. húsfr. í Rvík Rósa Aðalheiður Níelsdóttir Halldóra Guðrún Ívarsdóttir húsfr. á Kóngsbakka ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015 Haraldur fæddist á Gríms-stöðum á Mýrum 1.12. 1868,sonur Níelsar Eyjólfssonar, bónda þar, og k.h., Sigríðar Sveins- dóttur húsfreyju. Níels var sonur Eyjólfs Guð- mundssonar, bónda á Kirkjubóli í Vöðlavík, og Ragnhildar Sigurð- ardóttur, en Sigríður var dóttir Sveins Níelssonar, prófasts og alþm.á Staðastað, og Guðnýjar Jóns- dóttur skáldkonu í Klömbur. Hálfsystkini Sigríðar, samfeðra, voru Hallgrímur Sveinsson, biskup Íslands, og Elísabet Sveinsdóttir, móðir Sveins Björnssonar forseta. Systir Haralds var Þuríður, móðir Níelsar Dungal læknis. Fyrri kona Haralds var Bergljót Sigurðardóttir sem lést 1915 og eignuðust þau fimm börn en meðal þeirra var Soffía Emelía, móðir Har- aldar Sveinssonar, fyrrv. fram- kvæmdastjóra Árvakurs, og Elín Sigríður, amma Maríu Ellingsen leikkonu. Seinni kona Haralds var Aðalbjörg Sigurðardóttir kennari og eignuðust þau tvö börn, Jónas Haralz bankastjóra og Sigríði hús- freyju. Haraldur lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum 1890, cand.phil.- prófi frá Hafnarháskóla 1891, prófi í hebresku sama ár, í kirkjufeðra- fræði 1893, embættisprófi í guðfræði 1897, stundaði nám við Pastorial- seminaritet í Höfn og framhaldsnám í hebresku og gamla textamentis- fræðum við háskólann í Halle og í Cambridge 1899-91. Haraldur vann að þýðingu gamla textamentisins úr frummálinu á ár- unum 1897-1908, var stundakennari við Lærða skólann og Barnaskólann í Reykjavík, kennari við Prestaskóla Íslands frá 1908, var prestur við Laugarnesspítala frá 1908 og til ævi- loka, var prófessor í guðfræði við Háskóla Íslands frá 1911 og var tví- vegis rektor Háskóla Íslands. Haraldur sat í framkvæmdanefnd Stórstúku Íslands, var einn af stofn- endum Sálarrannsóknarfélags Ís- lands, einhver áhrifamesti málsvari spíritisma hér og á landi og gríðar- lega afkastamikill rithöfundur. Haraldur lést 11.3. 1829. Merkir Íslendingar Haraldur Níelsson 90 ára Óskar Guðmundsson Rannveig Árnadóttir 85 ára Ósk Guðmundsdóttir 80 ára Hrafnkell Þórðarson Sigurfljóð Káradóttir Þorbergur Skagfjörð Jósefsson 75 ára Friðdís Friðjónsdóttir Guðrún Einarsdóttir Haraldur Friðriksson Jón Hallur Jóhannsson Rúnar Guðjónsson Svala Sóleyg Jónsdóttir 70 ára Guðfinna H. Karlsdóttir Haraldur Hinriksson Helgi Leifsson Jónína Baldvinsdóttir Pálmi Sigfússon Valdís Kristín Kristinsdóttir Þórarinn Kristjánsson 60 ára Andrés Kristján Stefánsson Bergþóra S. Þorbjarnardóttir Felicisimo Tagam Basalan Grétar Eiríksson Guðný Þorbjörg Ísleifsdóttir Hrönn Hjörleifsdóttir Kristín Björk Gunnarsdóttir Lára Hanna Einarsdóttir Rósa Marta Guðnadóttir Sigrún Ragnarsdóttir Sigurður Kristinn Sigurðsson 50 ára Brynhildur Kristinsdóttir Erla Björk Sverrisdóttir Eydís Mikaelsdóttir Guðríður Bríet Kristjánsdóttir Hjalti Þórðarson Kolfinna Guðmundsdóttir Lilja Gísladóttir Pétur Ingason Sigríður L. Sigurðardóttir Þórir Kristinsson 40 ára Arnar Ingi Lúðvíksson Birkir Jónsson Dóra Eyland Garðarsdóttir Guðlaug Kristín Jónsdóttir Jintana Naknarong Jónas Gunnarsson Ragnheiður Harðar Harðardóttir 30 ára Anna Kristín Jensdóttir Arnar Anderson Carlos Mendoza Eva Margrét Kristinsdóttir Haukur Sveinn Hauksson Louis Pierre Morales Maria Krogh Iversen Til hamingju með daginn 30 ára Flóvent ólst upp í Eyjum, býr þar, lauk stúd- entsprófi í Eyjum og starf- ar í Áhaldahúsi Vest- mannaeyja. Systkini: Júlíus Freyr Theodórsson, f. 1978, og Ingveldur Theodórsdóttir, f. 1981. Foreldrar: Jóhanna Krist- ín Júlíusdóttir, f. 1958, húsfreyja í Eyjum, og Theodór Theodórsson, f. 1958, sjómaður á fiski- bátnum Maggý VE. Flóvent Máni Theodórsson 40 ára Sigurþór ólst upp í Hafnarfirði, býr þar, er húsasmíðameistari og starfar hjá Regin hf. Maki: Margrét Betty Jónsdóttir, f. 1975, grunn- skólakennari. Synir: Axel Þór, f. 2005, og Aron Logi, f. 2014. Foreldrar: Jóhannes Skarphéðinsson, f. 1956, rafvirki og sölustjóri, og Unnur Runólfsdóttir, f. 1957, aðstoðarverslunar- stjóri. Sigurþór R. Jóhannesson 40 ára Sigurbjörn býr í Hafnarfirði, lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá HÍ og starfar hjá Algalíf. Maki: Marzena Katarzyna Szypulewska, f. 1979, starfsmaður hjá Actavis. Börn: Mateusz Szypu- lewski, f. 1998 (stjúpson- ur) og Lára Sigurbjörns- dóttir, f. 2010. Foreldrar: Björn R. Lár- usson, f. 1942, d. 1999, og Edda Ársælsdóttir, f. 1948. Sigurbjörn J. Björnsson Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Rafstöðvar og dekkjavélar öflugaroghagkvæmar fráZipper - fjölmargar gerðir Umfelgunarvél ZI-RMM94 Hæð á felgum10-22” Breidd á felgum 3-16” Mestahæðádekki1100mm Verð frá 328.000 með vsk Jafnvægisstillingarvél ZI-RWM99 Hæð á felgum 10-24” Breidd á felgum 1,5-20” Verð frá 250.000 með vsk Rafstöð 1,36kw-STE3000 Verð 97.456 með vsk Rafstöð 7,5kw-STE8000 Verð 237.305 með vsk Rafstöð 1,3kw-STE2000 Verð 141.721 með vsk Eigum einnig fyrirliggjandi fleiri tegundir rafstöðva IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.