Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015 Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Á dögunum lauk í Listasafni Kalmar í Svíþjóð sýningu Erlu S. Haralds- dóttur myndlistarkonu á stórum fígúratífum málverkum. Á morgun gefur bókaútgáfan Crymogea út bók hennar, Make a Painting of Trees Growing in a Forest, um verkin á sýningunni. „Ég fékk hugmyndina að þessari bók þegar ég vann að þeirri síðustu, Difficulty of Freedom – Freedom of Difficulty sem Crymogea og Listaháskólinn í Umeå gáfu út í fyrra,“ segir Erla. Sú bók byggist á samstarfi þar sem myndlistarmenn og listnemendur gefa hver öðrum verkefni og lesandinn sér bæði fyr- irmælin og útkomuna. „Þessi nýja bók er líka undir áhrifum af franska bókmenntahópnum Oulipo sem í voru rithöfundar á borð við Italo Calvino og Georges Perec sem skrif- aði til að mynda heila bók án þess að nota bókstafinn E. Ég hreifst fyrst af slíkri nálgun í sköpunarferlinu fyrir um tuttugu árum og hef síðan af og til notað svona aðferðir í minni myndlist,“ segir hún. Röð verka út frá Hokusai Erla nam myndlist á sínum tíma við Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi, Listaháskólann í Va- land í Gautaborg og San Francisco Art Institute og hafa verk hennar verið sýnd víða um lönd í söfnum og sýningarsölum. Hún býr og starfar í Berlín. Málverkin í nýju bókinni urðu ýmist til út frá fyrirmælum sem hún fékk frá öðrum listamönn- um eða sjálfri sér um efni þeirra. Hvers vegna? „Mér finnst afar erfitt að komast inn í skapandi vinnuferli, í flæði eins og listamönnum á að finnast eftir- sóknarvert; manni fallast auðveld- lega hendur frammi fyrir hug- myndum um að það sem maður skapar eigi að vera alveg frábært,“ segir hún og hlær. „En til að komast inn í slíkt skapandi flæði hef ég beitt ýmsum aðferðum. Í þessu verkefni lét ég aðra listamenn gefa mér fyrir- mæli og verkefni að mála – eða gaf mér þau sjálf. Við að lesa þau koma fyrst orð upp í hugann, ég fer að skoða og taka ljósmyndir og teikna og loks tekst mér að koma hug- myndunum í málverk.“ Þegar spurt er hvernig þessi fyrirmæli geta verið segir hún eina spurninguna hafa verið „Hvað eru englar og hvaðan koma þeir?“ „Viðfangsefni málverkanna í bók- inni eru mismunandi en þau eru býsna há, 90 x 200 cm. Formið kem- ur frá japanska tréristu-meist- aranum Hokusai. Hann gerði röð mynda af fossum, sem allar eru í þessu formati. Verkefnið sem mér var falið að vinna út frá hljómar svona: „Láttu tréristu Hokusai, Li Po dáist að fossinum við Lo Shan, hafa áhrif á þig. Og gerðu olímálverk sem er 90 x 200 cm að stærð. Gerðu fjögur verk af þessari stærð og byggðu þau á stöðum sem þú hefur komið á og dáðst að.“ Út frá þessu kom röð verka. Eitt sýnir dyravörð í fordyri, annað er gangur í kastala með uppstoppuðum hausum veiði- dýra, þá Seljalandsfoss og torfbær.“ Aftur virðing fyrir handverki Um tíma vann Erla talsvert með ljósmyndasamklipp, teiknimyndir og teikningar en er málverkið alveg komið í forgrunninn hjá henni núna? „Grunnur minn er í málverki. Ég var í málaradeild í Stokkhólmi og málaði þar til á síðasta árinu en þá voru allir í kringum mig farnir að gera vídeóverk, performansa og inn- setningar. Mér leiddist að vera ein í vinnustofunni og vildi fást við það líka! Þá var mikið rætt um að mál- verkið væri dautt og ég vissi ekkert hvað ég ætti að mála. Á þessum tíma fannst mér að það ætti ekki eftir að mála neitt! Þá fór ég meðal annars að gera ljósmyndasamklipp, teikni- myndaverk og slíkt. En það togaði alltaf í mig að fara að mála aftur. Ég ákvað að helga mig aftur þessum miðli; ég hafði saknað málverksins. Og það tók nokkurn tíma að komast inn í það aftur.“ Er þú heldur ákveðnum perform- ansþætti í því með fyrirmælunum? „Já, það er satt. Og mér finnst eins og afstaðan sé breytt, til dæmis að nú sér aftur borin virðing fyrir handverkinu. Myndflæðið skellur nú á okkur alls staðar að, upplýsing- arnar eru á netinu og ekkert mál að taka myndir og horfa á þær, en að mála tekur langan tíma og maður þarf að einbeita sér og vera út af fyr- ir sig. Það þarf að gefa ferlinu gríð- arlega athygli og langan tíma, enda eru engar tvær pensilstrokur eins,“ segir hún af sannfæringu. Málverkið mannlegt og djúpt  Bók kemur út með röð málverka eftir Erlu S. Haraldsdóttur, sem sýnd voru nýverið í Listasafninu í Kalmar  Verkin gerð eftir fyrirmælum sem aðrir listamenn, og Erla sjálf, gefa henni um efni þeirra Morgunblaðið/Golli Listakonan „Ég vissi ekkert hvað ég ætti að mála,“ segir Erla S. Haraldsdóttir um glímu listamannsins. Fyrirmælaverk Þrjú af hinum stóru málverkum Erlu á sýningunni í Kalmar. „Ekkja elur dreng, sögusagnir kvikna um faðerni: Hvað þýða heimildirnar?“ nefnist hádegisfyr- irlestur sem Lára Magnúsardóttir flytur á vegum Sagnfræðingafélags Íslands í fyrirlestrasal Þjóðminja- safns Íslands í dag kl. 12.05. Um margra alda skeið var Íslend- ingum skylt að skrifta fyrir syndir og brot á lögum um kristni og taka sakramenti reglulega, ellegar bannsettir með tilheyrandi refsingu veraldlegra yfirvalda. „Miklar heimildir eru til um málarekstur af þessu tagi að minnsta kosti fram til loka 18. ald- ar. Talsvert hefur verið prentað og hluti heimildanna er því vel þekkt- ur en fjölmargt er aðeins til í hand- ritum. Rannsóknir sem Lára vinnur að miða að því að greina heimildir um saksókn fyrir brot á andlegum lögum sem sérstakan heimildaflokk og lýsa einkennum hans í því skyni að heimildirnar nýtist til fjöl- breyttra rannsókna. Eitt af því sem einkennir heim- ildaflokkinn er að málareksturinn snýst um karla og konur sem eru hvorki fulltrúar tiltekins hóps eða stéttar og varða atvik sem hvergi er annars getið í heimildum, svo sem ástarlíf. Heimildaflokkurinn felur því í sér einstakar upplýs- ingar um fortíðina. Annað einkenni er að málsaðilar hafa áhrif á framvindu málsins, og þar með heimildamyndun, því tregða sakborningsins til að skrifta er eina ástæða málaferlanna; engar heimildir urðu til í þeim tilvikum sem fólk skriftaði eins og lög gerðu ráð fyrir. Þess vegna má ætla að heimildirnar séu alltaf vitnisburður um afstöðu sakbornings til ein- hverra hluta. Þó liggur engan veginn ljóst fyrir hvaða afstaða það var sem réð því að sakborningur kaus að þrjóskast við að skrifta „út í bannið“, en gera þarf ráð fyrir því að hver og einn hafi haft sínar ástæður. Í fyrirlestr- inum eru heimildir um eitt slíkt mál kynntar með því að rekja mál ekkju sem neitaði að feðra barn sem hún ól á 8. áratug 17. aldar, afskipti sveitunga hennar af því og afleið- ingar sem það hafði fyrir sókn- arprestinn hennar, sem var ef til vill faðirinn, en þó kannski ekki,“ segir m.a. í tilkynningu um fyr- irlesturinn. Fræði Lára er forstöðumaður Rann- sóknaseturs HÍ á Norðurlandi vestra. Hvað þýða heimildirnar? Fákafeni 9 | 108 Reykjavík | Sími 553 7060 | Opið mánud.-föstud. 11-18 og laugard. 11-16 www.facebook.com/gaborserverslun Skór og töskur Gæði & glæsileiki í miklu úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.