Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 10
ekki tapast svo
við slógum til,
auk þess sem ég
hafði sníðagerð-
ina og hand-
bragðið sem til
þurfti úr náminu mínu.“
Vinsælt að fá
nýja skerma á
gamla lampa
Reksturinn hófst í
Vatnsnesi þar sem
Byggðasafn Reykjanes-
bæjar leigði um tíma að-
stöðu til lista- og hand-
verksfólks en þau hjónin
fluttu svo starfsemina í frum-
kvöðlasetrið Eldey á Ásbrú þar
sem allt kraumar í sköpun
og hugviti. Fyrirtækinu
fylgdi fullt af grindum,
efnisrúllum og borðum
sem mikill fengur var í,
að sögn Unnar, því mik-
il ásókn sé í viðgerð á
skermum. „Það er ekki óalgengt að
lampaskermanir sem koma til mín
séu af lömpum sem hafa gengið í
erfðir og eru orðnir lúnir eftir
Svanhildur Eiríksdóttir
Reykjanesbær
Lampa- og skermagerðinLjósberinn er fyrirtækisem hjónin Unnur Karls-dóttir og Davíð Bjarna-
son hafa rekið í Reykjanesbæ frá
árinu 2011. Ætlunin var aldrei að
fara út í þennan rekstur en leit að
grind í lampaskerm vatt heldur
betur upp á sig. „Davíð er alltaf
eitthvað að brasa og fann rekavið
og ákvað að búa til lampa úr hon-
um og bað mig að búa til skerm.
Hér áður fyrr gat maður alltaf
keypt grindur og búið til skerma
og ég fór af stað. Það voru hins
vegar hvergi til grindur eins og í
gamla daga og við hugsuðum ekk-
ert út í að fara á nytjamarkaðina
og athuga þar. Svo Davíð auglýsir
á Barnalandi og óskar eftir
skermagrind. Stuttu síðar hringir
maður sem segist ekki bara eiga
fullt af grindum handa okkur held-
ur líka fyrirtæki,“ segir Unnur.
Þó að Unnur sé menntaður
textíl- og fatahönnuður og hafi ekki
vílað fyrir sér að búa til lamp-
askerma voru þessi áform engan
veginn á döfinni. Hjónin þurftu því
að hugsa málið en komust á nokkr-
um dögum að þeirri niðurstöðu að
þetta væri alls ekki svo galin hug-
mynd. „Þegar við skoðuðum þetta
nánar komumst við að því að þetta
var lager frá mömmu mannsins
sem hafði hringt í okkur. Hún hafði
rekið skermagerð í Garðabæ í um
40 ár en var hætt vegna aldurs.
Okkur fannst að handverkið mætti
Óskuðu eftir skermagrind
og var boðið fyrirtæki
Hjónin Unnur Karlsdóttir og Davíð Bjarnason reka ævintýralega lampa- og
skermagerð í frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú. Ekki aðeins fá úrsérlesnar skáld-
sögur og landakort nýtt líf í skermum heldur má þar finna lampa sem eiga enga
sína líka. Upphaf fyrirtækjareksturins var líka ævintýralegt.
Gamalt verður nýtt Edison-lampar og skermar úr gömlum landakortum.
Ljósberinn Lampinn ber
nafn fyrirtækisins enda
líkastur manni í laginu
sem ber ljósið uppi og er í
„steampunk-stíl“.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015
Loftslagsmál og þar af leiðandi um-
hverfisvernd eru í brennidepli um
þessar mundir í tengslum við lofts-
lagsráðstefnuna sem nú stendur yfir
í París. Grænu boðberarnir, eða
Green Messenger HI (Hostels Int-
ernational), eins og þeir eru líka kall-
aðir, láta sitt ekki eftir liggja og sýna
kl. 18 í kvöld, heimildarmyndina Hvell
í Farfuglaheimilinu í Laugardal.
Hvellur fjallar um þann einstaka
atburð í sögunni þegar bændur í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu tóku sig saman og
sprengdu í loft upp stíflu í Laxá við
Mývatn síðsumars árið 1970. Áður
höfðu bændurnir mótmælt harðlega
virkjanaáformum á svæðinu en sjón-
armið þeirra voru virt að vettungi.
Með sprengingunni tókst bændunum
að koma í veg fyrir eyðileggingu Lax-
ár og Mývatns. 113 lýstu verkinu á
hendur sér, 65 voru ákærðir. Sam-
staðan brást aldrei og ekki var upp-
lýst fyrr en árið 2013 þegar myndin
var frumsýnd hverjir sprengdu. Þessi
uppreisn er jafnan talin hafa markað
upphaf náttúruverndarbaráttu á Ís-
landi.
Heimildarmyndin Hvellur í Farfuglaheimilinu í Laugardal
Uppreisn sem markaði upphaf
náttúruverndarbaráttu á Íslandi
Hvellur Heimildarmyndin Hvellur fjallar um bændur sem fyrir 45 árum tóku
málin í sínar hendur og sprengdu upp stíflu til að bjarga landinu frá eyðingu.
Hið árlega bókaspjall verður í
kvöld kl. 20 í Bókasafni Kópa-
vogs, Hamraborg. Bókaspjallið
verður á fyrstu hæð safnsins.
Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir,
Hallgrímur Helgason og Jón Kal-
man Stefánsson lesa upp úr bók-
um sínum og taka þátt í pall-
borðsumræðum sem Maríanna
Clara Lúthersdóttir stjórnar.
Þrjú skáld í bókaspjalli
Bókasafn Kópavogs
Hallgrímur
Helgason
Auður
Jónsdóttir
Jón Kalman
Stefánsson
Þú getur hjálpað núna með því að greiða valgreiðslu í heimabanka.
Einnig:
• Frjálst framlag á framlag.is
• Gjafabréf á gjofsemgefur.is
• Styrktarsími: 907 2003 (2.500 kr.)
• Söfnunarreikningur:
0334–26–50886, kt. 450670-0499
Þinn stuðningur gerir kraftaverk
Skortur á drykkjarhæfu vatni og hreinlætisaðstöðu veldur banvænum sjúkdómum
en með aðgangi að hreinu vatni hefur allt líf möguleika á að vaxa og dafna.
Hjálparstarf kirkjunnar tryggir fólki aðgang að hreinu vatni í Úganda og Eþíópíu
– og þitt framlag skiptir sköpum.