Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 36
ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 335. DAGUR ÁRSINS 2015
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696
1. Viðvörun vegna óveðurs
2. Nakinn í kassa og án alls í viku
3. Flugfreyja meiddist í mikilli ókyrrð
4. Stormur á morgun og slæm færð
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Snjóblinda eftir Ragnar Jónasson
er meðal átta glæpasagna sem
breska dagblaðið Independent mælir
með til jólalesturs af þeim sem kom-
ið hafa út í Bretlandi á árinu og blað-
ið telur til þeirra bestu. Snjóblinda
var gefin út á ensku fyrr á þessu ári
og náði hún efsta sætinu á metsölu-
listum Amazon Kindle í Bretlandi og
Ástralíu.
Morgunblaðið/Kristinn
Snjóblinda Ragnars
meðal átta bestu
Helgi Gíslason
tekur þátt í sam-
sýningu í Agora-
galleríinu í New
York 3.-22. des-
ember og verður
það í fyrsta sinn
sem verk hans eru
sýnd í borginni.
Helgi hefur starf-
að að höggmyndalist í rúm 40 ár og
sýnir verk úr bronsi og járni í Agora.
Helgi sýnir högg-
myndir í New York
Tilkynntar verða í dag tilnefningar
til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
á Kjarvalsstöðum kl. 17 og þá verða
einnig kynntar þær fimm þýðingar
sem tilnefndar eru til Íslensku þýð-
endaverðlaunanna. Mikil
eftirvænting ríkir jafnan
meðal útgefenda, rithöf-
unda og lesenda um það
hverjir hljóti tilnefn-
ingar. Verðlaunin verða
síðan afhent um
mánaðamótin
janúar-febrúar á
næsta ári.
Greint frá verðlauna-
tilnefningum í dag
Á miðvikudag Norðvestan og vestan 13-20 m/s og snjókoma
norðaustantil fram eftir degi, en lægir síðan og rofar til, hvassast á
annesjum. Suðvestan 8-13 og dálítil él sunnan- og vestanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG 15-25 m/s um hádegi, hvassast við suð-
vesturströndina. Búist er við mikilli snjókomu og skafrenningi á
höfðuborgarsvæðinu. Frost víða 1 til 8 stig.
VEÐUR
Afturelding, Grótta og
Stjarnan komust í gærkvöld
áfram í 8 liða úrslit Coca
Cola-bikars karla í hand-
knattleik. Grótta hafði bet-
ur gegn FH eftir fram-
lengdan leik á
Seltjarnarnesi, þar sem FH-
ingar náðu þó góðu forskoti
um tíma, 1. deildar lið
Stjörnunnar skellti Akureyr-
ingum í Garðabæ, og Aftur-
elding hafði betur gegn Vík-
ingi í Mosfellsbæ. »2, 3
Stjarnan skellti
úrvalsdeildarliði
„Sandra er gríðarlega metnaðarfull
og kemst langt á því. Hún ætlar sér
stórt hlutverk í íslenskum kvenna-
körfubolta í framtíðinni og hún vinn-
ur markvisst að því að bæta sig og
þroskast sem leikmaður. Hún er ung
og á mikið inni og það er ákaflega
gott og gaman að vinna með henni,“
segir þjálfari Keflvíkinga um leik-
mann umferðarinnar í körfubolta
kvenna. »4
Gríðarlega metnaðarfull
og ætlar að ná langt
Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyr-
irliði í knattspyrnu, er nú búinn að
spila 300 deildaleiki á ferlinum þrátt
fyrir að vera enn aðeins 26 ára gam-
all. Hann hefur þar með náð þeim
áfanga mun yngri að árum en aðrir ís-
lenskir knattspyrnumenn, og er sá
eini sem náð hefur því fyrir þrítugt.
Aðeins tveir leikmenn landsliðsins í
dag hafa spilað fleiri deildaleiki. » 3
Aron búinn að spila 300
deildaleiki á mettíma
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Fjölskyldan sameinast í fluginu
sem er stór þáttur í lífi okkar allra.
Hluti af starfinu er að fylgjast vel
með veðri og þá gildir sá mælikvarði
að sé flugfært sé allt í fínasta,“ segir
Vigdís María Borgarsdóttir sem frá
og með deginum í dag er umboðs-
maður flugfélagsins Ernis á Höfn í
Hornafirði. Hún er tvítug og tekur
við starfinu af afa sínum, Vigni Þor-
björnssyni, sem í gær hætti störfum
eftir 53 ár á flugvellinum.
Þjónusta er rauði þráðurinn
Á Hornafirði er þjónusta við flug-
ið starf sem gengur í erfðir. Þegar
Flugfélag Íslands hóf flug á þennan
áfangastað árið 1939 hafði langa-
langafi Vigdísar Maríu, Sigurður
Ólafsson skipstjóri, hlutverkið með
höndum. Þorbjörn, sonur Sigurðar,
og Ágústa Vignisdóttir, kona hans,
tóku við flugafgreiðslunni síðar.
Sonur þeirra, Vignir Þorbjörnsson,
kom svo til starfa og þau Sigríður
Eymundsdóttir, kona hans, tóku svo
formlega við merkinu árið 1970 og
hafa verið á vellinum síðan.
Vignir og Sigríður störfuðu lengst
fyrir Flugfélag Íslands sem hætti
Hornafjarðarflugi árið 2007. Ernis-
menn fylltu í það skarð og umboðs-
maðurinn færðist milli félaga.
Eins og gengur og gerist hafa
börn þeirra Vignis og Sigríðar gripið
í störf á flugvellinum, svo sem Þor-
björn, móðurbróðir Vigdísar Maríu,
sem er fimmti ættliðurinn á Horna-
firði sem sinnir flugafgreiðslunni.
Þetta telst vera tveggja manna starf
og Vigdís réð því föður sinn, Borgar
Antonsson, til starfa hjá sér enda
hafi það legið beint við.
„Stundum segist ég vera alin upp
hér á flugvellinum og ég var ekki há
í loftinu þegar ég byrjaði að sniglast
hér með afa. Því tel ég mig þekkja
ganginn í þessu starfi, þar sem þjón-
usta er rauði þráðurinn. Maður þarf
alltaf að vera tilbúinn að bjarga mál-
unum og síminn hringir á ótrúleg-
ustu tímum. Raunar er þetta í undir-
meðvitundinni því í gegnum
svefninn skynja ég hljóðið ef hingað
koma til dæmis sjúkraflugvélar á
nóttunni. Önnur hljóð verð ég þá
ekki vör við,“ segir Vigdís María.
Skemmtilegast í ókyrrð
„Já, mér finnst ofsalega gaman að
fljúga og reyni þá að fá sæti fram-
arlega í vélinni til að geta fylgst með
flugmönnunum. Skemmtilegast er
þetta ef það eru einhver læti og
ókyrrð er í loftinu og það hræðir
mig ekkert, því við stýrið eru
þaulvanir menn sem kunna
þetta alveg upp á tíu.“
Fimm ættliðir á flugvellinum
Vigdís María er
nýr umboðsmaður
Ernis á Hornafirði
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Samtaka Vigdís María og Vignir, afi hennar, sem er hættur störfum eftir um hálfa öld á Hornafjarðarflugvelli.
Ernir fljúga til Hornafjarðar fimm
daga í viku og stundum raunar
tvær ferðir á dag. Farþegar á þess-
ari leið er um 10.000 á ári og þetta
telur Vigdís María sýna hve mik-
ilvægt flugið sé fyrir Hornafjarð-
arsvæðið. Vaxandi ferðaþjónusta
eigi mikið undir fluginu. En flugið
skiptir heimamenn miklu máli.
Milli Hafnar í Hornafirði og Reykja-
víkur eru 457 kílómetrar og fólk
þarf því að ætla sér daginn í ferð-
ina. Því getur verið þægilegast að
fara með fluginu, sem skiptir líka
miklu máli fyrir verslanirnar á
staðnum. „Á mánudögum koma
engir flutningabílar hingað austur
og þann daginn er fragtin með
fluginu yfirleitt mikil. Bakaríinu
hér var lokað ekki alls fyrir löngu
og bakkelsi dagsins kemur því
með flugi að sunnan, ásamt mörgu
öðru sem við getum ekki verið án,“
segir umboðsmaður Ernis eystra.
Brauðið kemur með flugi
10.000 FARÞEGAR Á ÁRI Í HORNAFJARÐARFLUGINU