Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015
Björn er formaður
Ranghermt var í viðtali á baksíðu
blaðsins í gær að Haraldur Haralds-
son væri formaður Víkings. Hið
rétta er að Haraldur er fram-
kvæmdastjóri, en formaður Víkings
er Björn Einarsson. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is
gerðu tónlist á makkann þinn
Duet 2
stúdíógæði í lófastærð
One
fyrir einfaldar upptökur
MiC
hágæða upptökur
Jam
alvöru gítarsánd
Mokkajakkar
Skinnkragar
Tryggvagötu 18 - 552 0160
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Þunnar
jakkapeysur
Verð 8.900 Str. 40-56/58
Stöndum öll saman sem ein þjóð
Sýnum kærleik og samkennd í verki.
Við megum ekki gleyma fátæka fólkinu
á Íslandi. Jólasöfnun er hafin hjá
Fjölskylduhjálp Íslands.
546-26-6609, kt. 660903-2590
Hjálpið okkur að hjálpa öðrum.
Margt smátt gerir eitt stórt. Guð blessi ykkur öll
Til sölu fallegt eintak af Mercedes-Bens ML 500 AMG útlitspakki. Árgerð 2006.
Ekinn aðeins 110 Þ.KM. Næsta skoðun 2016 BENSÍN knúinn. Skráður 5 manna.
SJÁLFSKIPTUR. 5000cc slagrými. 5 dyra. 303 hestöfl. 4 heilsársdekk. FJÓRHJÓLADRIF
Verð kr. 3.990.000. Skipti: ÓDÝRARI
Nánari upplýsingar veitir Bílasala Íslands í síma 510 4900, Skógarhlíð 10
Ökutækið er á staðnum.
MERCEDES-BENZ ML 500
Síðustu vél Flugfélags Íslands til
Akureyrar var snúið við skömmu
eftir flugtak frá Reykjavíkur-
flugvelli í fyrrakvöld eftir að hún
lenti í óvæntri og óvenjumikilli
ókyrrð. Flugfreyja slasaðist lítillega
á hné þegar hún rakst upp undir og
lenti illa, að sögn Árna Gunnars-
sonar, framkvæmdastjóra flug-
félagsins.
Fjörutíu farþegar auk þriggja
manna áhafnar voru um borð í vél-
inni sem hóf sig til flugs frá Reykja-
víkurflugvelli í fyrrakvöld. Vélinni
var hins vegar snúið við og lent aftur
í Reykjavík um klukkan 20.15 eftir
að hún lenti í mikilli ókyrrð.
„Þetta var óvenjumikil ókyrrð og
kom nokkuð óvænt. Það var í gangi
þjónusta um borð þegar þetta kom
upp á. Þetta var ekki eitthvað sem
við áttum von á að sjá þarna þrátt
fyrir að hafa eins góðar upplýsingar
um veður og hægt var á þeim tíma,“
segir Árni.
Við ókyrrðina kom hreyfing á vél-
ina sem varð til þess að flugfreyjan
sem bar fram drykki til farþeganna
rakst upp undir loft farþegarýmisins
og lenti svo illa. Marðist hún á hné
að sögn Árna en þó ekki svo illa að
hún væri óvinnufær eftir.
Engum öðrum varð meint af en
farþegunum var boðin áfallahjálp
eftir uppákomuna. Þá var þeim boð-
ið far með vél félagsins í morgun í
staðinn og segir framkvæmdastjór-
inn að eftir því sem hann viti best
hafi þeir allir þegið það boð.
Þáðu áfallahjálp
eftir ókyrrð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flugfélag Íslands Snúa þurfti vél-
inni við vegna ókyrrðar í lofti.
Flugfreyja meiddist á hné í ókyrrð
Umsóknum í fjarnám Háskólabrúar
Keilis hefur fjölgað milli ára og eru
þær fjórðungi fleiri núna en á sama
tíma í fyrra. Nú stunda rúmlega
tvö hundruð einstaklingar aðfar-
arnám að háskólanámi í Keili, þar
af um helmingurinn í fjarnámi. Þá
hófu um þrjátíu einstaklingar fjar-
nám í Háskólabrú með vinnu í lok
nóvember, en það nám er kennt á
tveimur árum og hentar vel þeim
sem vilja taka lengri tíma eða vilja
stunda námið með vinnu, segir í
fréttatilkynningu.
Við næstu útskrift í janúar 2016
má reikna með að heildarfjöldi út-
skrifaðra nemanda úr Háskólabrú
verði samtals hátt í 1.400. Keilir
býður upp á aðfararnám í samstarfi
við Háskóla Íslands og hafa lang-
flestir nemendur haldið áfram í há-
skólanám bæði hérlendis og erlend-
is. Að loknu námi uppfylla
nemendur inntökuskilyrði í háskóla
og telst námið sambærilegt stúd-
entsprófi samkvæmt samningi Keil-
is og Háskóla Íslands.
Fjórðungi fleiri
umsóknir í fjarnám
Ljósmynd/KeilirÁsbrú
Ásbrú Fjórðungi fleiri eru í
fjarnámi hjá Keili en í fyrra.
Helmingur í aðfararnámi í fjarnámi
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, hefur und-
irritað reglugerð um greiðslu des-
emberuppbótar til atvinnuleitenda.
Full desemberuppbót er 55.256 kr.
en greiðsla til hvers og eins reikn-
ast í hlutfalli við rétt hans til at-
vinnuleysisbóta á árinu. Þetta kem-
ur fram í frétt á vef velferðar-
ráðuneytisins.
Rétt á fullri desemberuppbót
eiga þeir atvinnuleitendur sem
tryggðir eru innan atvinnuleys-
istryggingakerfisins, hafa verið
skráðir án atvinnu hjá Vinnu-
málastofnun í samtals tíu mánuði
eða lengur á árinu 2015 og hafa
staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20.
nóvember til 3. desember. Greiðsla
desemberuppbótar til þeirra sem
eiga ekki fullan bótarétt reiknast í
hlutfalli við rétt þeirra til atvinnu-
leysisbóta á árinu og fjölda mánaða
sem viðkomandi hefur fengið
greiddar atvinnuleysisbætur.
Atvinnuleitendur fá jólauppbót
Morgunblaðið/Kristinn
Uppbót Atvinnuleitendur fá jólauppbót.
Slökkviliðsmenn höfuðborgarsvæðisins aðstoðuðu
eiganda timburbáts sem liggur við Reykjavíkurhöfn
úti á Grandagarði við að dæla sjó upp úr bátnum í
gær. Samkvæmt upplýsingum slökkviliðsins kom
leki að bátnum og var hann byrjaður að fyllast af
sjó.
Metradjúpur sjór
Kallað var á slökkviliðið þegar báturinn var byrj-
aður að hallast. Þá var um metradjúpur sjór búinn
að fylla bátinn, að sögn slökkviliðs. Svo virðist sem
að dæla í honum hafi bilað.
Báturinn var enn á floti, að sögn slökkviliðs sem
aðstoðaði við að dæla sjónum úr bátnum.
Dældu sjó úr sökkvandi báti
Grandagarður Sjó
var dælt úr bátnum.
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/mbl.is