Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 17
Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015
Munið að
slökkva á
kertunum
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Staðsetjið kerti ekki
nálægt opnum
glugga þar sem
vindur getur sveiflað
gluggatjöldum
í kertalogann
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Leiðtogar meira en 150 ríkja komu
saman í París í gær, á fyrsta degi tólf
daga ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna
um aðgerðir til að draga úr losun
gróðurshúsalofttegunda til að koma í
veg fyrir loftslagsbreytingar vegna
hlýnunar jarðar og ráðstafanir til að
hjálpa fátækum löndum að laga sig að
breytingunum. Aldrei áður hafa jafn-
margir þjóðarleiðtogar komið saman
á einum degi, að sögn embættis-
manna Sameinuðu þjóðanna.
„Það hefur aldrei áður verið jafn-
mikið í húfi á alþjóðlegum fundi vegna
þess að ráðstefnan snýst um framtíð
jarðarinnar, framtíð lífsins,“ sagði
Francois Hollande, forseti Frakk-
lands, þegar hann setti ráðstefnuna.
„Vonir alls mannkynsins hvíla á herð-
um ykkar.“
Christiana Figueres, fram-
kvæmdastjóri Loftslagsstofnunar
Sameinuðu þjóðanna, tók í sama
streng þegar hún ávarpaði fulltrúana
á ráðstefnunni. „Aldrei áður hefur svo
mikil ábyrgð verið í höndum svo
fárra,“ sagði hún. „Heimsbyggðin
reiðir sig á ykkur.“
Má ekki seinna vera
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, sagði að nú væru síðustu forvöð
að afstýra loftslagsbreytingum sem
gætu haft hörmulegar afleiðingar fyr-
ir komandi kynslóðir. Hann skírskot-
aði til viðvarana vísindamanna sem
telja að hlýnun jarðar geti leitt til auk-
inna öfga í veðurfari, mannskæðra
þurrka, flóða, fellibylja, hækkandi
sjávarborðs sem verði til þess að ey-
ríki hverfi, hungursneyða og stór-
felldra fólksflutninga milli landa.
Obama sagði að mörg fátæk lönd,
sem bæru litla ábyrgð á hlýnun jarð-
ar, fengju fyrst að súpa seyðið af lofts-
lagsbreytingunum. Hann lagði þó
áherslu á að hægt væri að afstýra
hörmungunum án þess að auðug ríki
þyrftu að fórna hagsældinni.
Loforðin duga ekki
Laurent Fabius, utanríkisráðherra
Frakklands, kvaðst vera vongóður
um að loftslagsráðstefnan bæri ár-
angur. „Samkomulag hefur ekki
náðst en ég tel það vera innan seil-
ingar,“ sagði hann.
Á ráðstefnunni er stefnt að því að
öll 195 aðildarríki loftslagssamnings
Sameinuðu þjóðanna nái samkomu-
lagi um aðgerðir til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda með það að
markmiði að hlýnun jarðar verði und-
ir 2°C fyrir næstu aldamót miðað við
meðalhita á jörðinni fyrir iðnbylt-
inguna. Um það bil 100 lönd, þeirra á
meðal eyríki sem óttast er að hverfi
vegna hækkandi sjávarborðs, telja að
þetta markmið dugi ekki og vilja að
stefnt verði að því að hlýnunin verði
undir 1,5°C. Að óbreyttu verður hita-
stigið um það bil 5°C hærra en fyrir
iðnbyltingu, að mati margra sérfræð-
inga í loftslagsmálum. Þeir telja að
miðað við þær aðgerðir sem ríki
heims höfðu lofað áður en ráðstefnan
hófst verði hlýnunin um það bil 2,7°C.
Þeir segja að ríki heims þurfi að
leggja meira af mörkum og að miklu
máli skipti að hefja aðgerðirnar þegar
í stað. Ef losun koltvísýrings nái há-
marki árið 2025 og snarminnki eftir
það séu 50% líkur á því að hlýnunin
verði undir 2°C.
Hlýnun ógnar fiskstofnum
Yfir 40.000 manns taka þátt í ráð-
stefnunni í París. Á meðal þeirra er
enski sjónvarpsmaðurinn og náttúru-
fræðingurinn sir David Attenborough
sem kveðst ekki vera vongóður um að
loftslagsráðstefnan beri tilætlaðan ár-
angur. „Við vitum um afleiðingar hlýn-
unarinnar, til dæmis fyrir heimshöfin,“
sagði hann í viðtali við breska ríkisút-
varpið. „Hlýnun sjávar veldur miklu
tjóni á fiskstofnum og hlýnun jarðar
veldur því að eyðimerkur breiðast út.
Vandamálin vegna hlýnunarinnar eru
gríðarleg; það verður að afstýra henni
hvað sem það kostar.“
AFP
Söguleg ráðstefna sett Leiðtogar meira en 150 ríkja tóku þátt í loftslagsráðstefnunni í París í gær. Embættis-
menn Sameinuðu þjóðanna segja að aldrei áður hafi jafnmargir þjóðarleiðtogar komið saman á einum degi.
„Framtíð lífsins“
sögð vera í húfi
Telja samkomulag „innan seilingar“ á loftslagsráðstefnu
Tíu lönd eða ríkjasambönd bera ábyrgð á 70%
af heildarlosun gróðurhúsalofttegunda í heiminum
Bandaríkin
Evrópu-
sambandið
(28 ríki)
Meðallosun í heim-
inum á hvern íbúa
Indland
Rússland
Japan
Brasilía
Mexíkó
Indónesía
Kanada
% af heildarlosun losun á hvern íbúa í tonnum af CO2-ígildi
Losun gróðurhúsalofttegunda
Heimildir: World Resources Institute (prósentutölurnar miðast við gögn frá 2012, m.a. um breytingar
á landnýtingu og skógrækt); Climate Analytics (losun á hvern íbúa miðað við árið 2010)
22,4%
12,2%
8,7
6,1
1,4
4,7
2,5
3,8
1,6
4,2
1,8
Kína
17
5,4
4,5
11
Varðar framtíð jarðar
» „Örlög Parísar-sam-
komulagsins eru í höndum
ykkar. Framtíð þjóðar ykkar,
framtíð plánetu okkar,“ sagði
Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna á
loftslagsráðstefnunni.
» „Við höfum aldrei áður stað-
ið frammi fyrir slíkri prófraun
– ef til vill fáum við aldrei slíkt
pólitískt tækifæri aftur.“