Morgunblaðið - 01.12.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015
Það hefur áhrif á mat á fréttumhvort tilefni þeirra er fátítt eða
algengt. Þess vegna er það miklu
meiri frétt þegar ekki verður upp-
hlaup á Alþingi en hitt.
Slík fréttatilefnieru sárasjald-
gæf en samt missa
þeir blaðamenn sem
helst „skúbba“ und-
antekningarlaust af
slíkum fréttum. Þær
gera ekki boð á und-
an sér, eins og upp-
hlaupin gera nær
alltaf.
Ein úr hópi þess-ara ekki-frétta
varð í gær.
Þá hlupu til tveirsérlega siðprúðir þingmenn, og
áttu erfitt með sig vegna framgöngu
formanns fjárlaganefndar Vigdísar
Hauksdóttur.
Meðal algengustu ekki-frétta erueinmitt þær þegar þingmenn
hlaupa upp til þess að finna að ein-
hverju sem Vigdís á að hafa sagt.
Það mega hinir prúðu þingmenn,Helgi Hjörvar og Svandís Svav-
arsdóttir eiga, að aldrei voru þau
með minnstu aðfinnslur við neitt
sem Björn Valur Gíslason sagði sem
formaður fjárlaganefndar.
Enda hraut aldrei neitt annað afvörum Björns Vals en það, sem
„prúðasta prestsmaddama“ hefði
verið fullsæmd af, svo notað sé gam-
alt sýslumannaorðalag.
Hitt er svo annað mál að FriðrikSophusson fjármálaráðherra
sagði stundum um sinn ríkissjóð,
grátklökkur eins og Jón Grindvík-
ingur: „Minn herra á aungvan vin.“
Vigdís
Hauksdóttir
Siðavendir sópa
STAKSTEINAR
Björn Valur
Gíslason
Veður víða um heim 30.11., kl. 18.00
Reykjavík -3 léttskýjað
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri -2 alskýjað
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 3 skýjað
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 5 heiðskírt
Stokkhólmur 2 heiðskírt
Helsinki 5 skýjað
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 11 skýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 3 léttskýjað
London 12 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 11 skýjað
Hamborg 3 skýjað
Berlín 7 heiðskírt
Vín 7 skúrir
Moskva -1 snjókoma
Algarve 17 heiðskírt
Madríd 16 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 16 heiðskírt
Róm 12 heiðskírt
Aþena 10 léttskýjað
Winnipeg -7 léttskýjað
Montreal -6 skýjað
New York 5 skýjað
Chicago 5 alskýjað
Orlando 24 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
1. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:46 15:49
ÍSAFJÖRÐUR 11:20 15:24
SIGLUFJÖRÐUR 11:05 15:06
DJÚPIVOGUR 10:22 15:11
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Samninganefnd bænda er þessa
dagana að fara yfir athugasemdir
sem fram hafa komið við drög að
nýjum búvörusamningi. Sérstaklega
er verið að athuga hvort hægt sé að
bregðast við ótta sumra bænda við
að afnám kvótakerfis leiði til offram-
leiðslu og verðfalls, sérstaklega í
mjólkurframleiðslunni.
Samninganefnd bænda í viðræð-
unum við ríkið um nýjan búvöru-
samning boðaði til fjögurra al-
mennra bændafunda til að kynna
stöðuna í viðræðunum. Fram komu
hugmyndir samningsaðila um að
hætta framleiðslustýringu í mjólkur-
og kindakjötsframleiðslu á samn-
ingstíma nýs samnings sem á að
verða 10 ár og breyta stuðningi rík-
isins í afurða- og gripagreiðslur. Um
420 bændur komu á þessa fundi, fyr-
ir utan þá sem komu á fulltrúaráðs-
og aukaaðalfundi kúabænda og
sauðfjárbænda.
Ekki einhliða breyting
Sindri Sigurgeirsson, formaður
Bændasamtaka Íslands, segir að öfl-
ug og málefnaleg umræða hafi farið
fram á fundunum og þeir verið gagn-
legir fyrir samninganefndina. Hann
segir að fram hafi komið áhyggjur af
afnámi framleiðslustýringar og of-
framleiðslu og verðfalli í kjölfarið.
Það eigi meira við mjólkurfram-
leiðsluna en einnig við sauðfjárrækt-
ina að einhverju leyti. Athugasemdir
hafi verið gerðar við fleiri atriði.
Sigurður Loftsson, formaður
Landssambands kúabænda, segir að
áhyggjur bænda vegna þessara at-
riða hafi verið greinilegar. Við því
þurfi að bregðast, til að koma í veg
fyrir tekjuhrun hjá bændum. Sig-
urður tekur fram að í þeim hug-
myndum sem kynntar voru hafi
falist sameiginleg áhersla samnings-
aðila svo samninganefnd bænda hafi
það ekki í hendi sér að breyta ein-
hliða um kúrs. Eigi að síður þurfi að
fara yfir málin og athuga hvað hægt
sé að gera.
Sindri segir að samninganefnd
bænda muni funda í dag og ef til vill
næstu daga til að ræða þau atriði
sem efasemdir hafi komið um og at-
huga hvort hægt sé að finna leiðir til
að leysa þau. „Það sem við vorum að
kynna var ekki endanlegt plagg. Við
förum yfir allar athugasemdir,“
segir Sindri.
Að því loknu mun bændaforystan
funda með ríkinu.
Athuga hvort
hægt sé að
bregðast við
Sindri
Sigurgeirsson
Sigurður
Loftsson
Samninganefnd bænda fer yfir
athugasemdir frá bændafundum
Búvörusamningar
» Stefnt hefur verið að undir-
ritun nýrra búvörusamninga
fyrir jól. Formaður Bænda-
samtakanna segir enn ekki
ljóst hvort það tekst.
» Samningarnir verða síðan
kynntir bændum um allt land
og í kjölfarið verða þeir lagðir
fyrir í almennri atkvæða-
greiðslu.
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Láttu það eftir þér
Reyktur og
grafinn
lax
á aðventunni
Söluaðilar: 10-11, Hagkaup, Iceland verslanir, Kostur, Kvosin, Melabúðin, Nettó,
Pure Food Hall flugstöðinni Keflavík, Samkaup, Sunnubúðin.
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður | Sími: 560 4300 | www.saltkaup.is
Hálkusalt fæst hjá okkur í 5kg og 25kg pokum
Nú kólnar í veðri
Salt - Umbúðir - Íbætiefni