Morgunblaðið - 01.12.2015, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 01.12.2015, Qupperneq 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015 ✝ MagnúsGuðnason fæddist í Reykjavík 9. nóvember 1926. Hann andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 22. nóvember 2015. Foreldrar hans voru Guðni Páls- son, f. 29. apríl 1891 í Götu í Sel- vogi,d. 9. júní 1967, og Jórunn Þórey Magnúsdóttir, f. 16. júlí 1897 í Reykjavík, d. 23. mars 1981. Systkini Magnúsar voru: Ragnar, f. 12. apríl 1919, d. 29. desember 1975, Páll, f. 22. júní 1920, d. 20. febrúar 2000, Rann- veig, f. 16. september 1922, d. 6. nóvember 1922, Svanhildur, f. 3. janúar 1924, d. 12. sept- ember 2009, og tvíburasystirin Gyða, f. 9. nóvember 1926, d. 4. febrúar 2005. Magnús kvæntist 16. október 1948 Margréti Magnúsdóttur, f. 11. febrúar 1927. Foreldrar hennar voru Magnús Þorsteins- son, f. 4. september 1891, d. 25. maí 1969, og Magnea Ingibjörg Sigurðardóttir, f. 2. maí 1901, d. 20. júní 1995. Börn Magnúsar og Margrétar eru: 1) Magnús, f. 30. október 1949. Synir hans og fv. eig- inkonu, Ingveldar Salóme 1964. Dætur hennar og fv. eig- inmanns, Dúa Jóhannssonar Landmark, 19. október 1965, eru: a) Sædís, f. 6. júní 1991, í sambúð með Þórði Jóhannssyni, f. 29. desember 1988. b) Mar- grét, f. 4. júní 1996. Unnusti Jórunnar er Björn Davíð Krist- jánsson, f. 30. mars 1961. Sonur Björns er Davíð Freyr, f. 24. september 1992. Magnús ólst upp á Vatnsstíg 16 og síðar á Túngötu 36 í Reykjavík. Hann gekk í Austur- bæjarskóla og Miðbæjarskól- ann. Hann lauk sveinsprófi í prentiðn frá Iðnskólanum í Reykjavík og meistaraprófi síð- ar. Hann starfaði sem prentari allan sinn starfsaldur. Hann hóf störf hjá Prentsmiðjunni Leiftri. Var sjálfstætt starfandi og rak Kársnesprent um árabil. Síðasta aldarfjórðung starfsævi sinnar vann hann hjá Prent- smiðju Landsbanka Íslands. Hann stundaði skíði á sínum yngri árum og hafði yndi af stangveiði sem hann stundaði langt fram eftir aldri, m.a. með tengdaföður sínum, syni og mági og fleiri góðum félögum. Magnús og Margrét hófu bú- skap sinn á Háteigsveginum í Reykjavík, fluttu síðar í Stang- arholt 8 og bjuggu þar til árs- ins 2003 er þau flytja að Dal- braut 14. Útför Magnúsar verður gerð frá Háteigskirkju í dag, 1. des- ember 2015, og hefst athöfnin klukkan 15. Kristjánsdóttur, f. 27. janúar 1950, d. 8. nóvember 2013, eru: a) Kristján, f. 13. ágúst 1968. b) Magnús Guðni, f. 23. desember 1973, maki Naoko Ku- wahara, f. 30. janú- ar 1973, og eru dætur þeirra Sóley Júka, f. 18. júní 2006, og Salóme Haruka, f. 23. febrúar 2010. Dætur Magnúsar og Hrannar Hafsteinsdóttur, f. 24. júlí 1962, eru: c) Íris, f. 14. júní 1989. d) Rán, f. 11. maí 1991. Unnusta Magnúsar er Þorgerður S. Guð- mundsdóttir, f. 11. febrúar 1954. Dóttir Þorgerðar er Sunneva, f. 14. október 1975. 2) Guðni, f. 6. nóvember 1953, maki Alma Bergsveins- dóttir, f. 1. september 1955. Synir þeirra eru: a) Janus Freyr, f. 24. október 1977, maki Nanna Ýr Arnardóttir, f. 18. maí 1982, og eru börn þeirra Lára Júlía, f. 6. desember 2009, og Aron Heiðar, f. 17. október 2013. b) Magnús Már, f. 23. apr- íl 1981, maki Þórunn Sigurð- ardóttir, f. 26. júní 1981, og er dóttir þeirra Kristín Katla, f. 18. júní 2013. c) Kári, f. 4. apríl 1986. 3) Jórunn Þórey, f. 17. apríl Elsku besti afi Maggi, mikið hrikalega er erfitt að kveðja þig. Það var alltaf svo gaman að koma í heimsókn til ykkar ömmu, fyrst í Stangarholtið og síðar meir á Dalbrautina. Alltaf var passað upp á að maður væri vel dekraður þegar maður kom í heimsókn til ykkar og það var alls ekki verra þegar maður fékk að gista. Það var ýmislegt sem við brölluðum saman. Sem dæmi teiknuðum við oft og mikið en það var alltaf sérstaklega gaman þeg- ar við bjuggum til skutlur. Það voru líka prófaðar alls konar út- færslur með mismunandi pappír o.fl. til að láta þær fljúga sem lengst. Það var alltaf stutt í prakkaraskapinn og hláturinn hjá okkur. Brandararnir, sem reyndar voru oftar en ekki þeir sömu, klikkuðu heldur ekki. Eftir erfiða en árangursríka skurðaðgerð fórum við svo oft í göngutúra í sjoppuna. Við elskuðum að fara í sjoppuna og yfirleitt dugði bara að spyrja en stundum fórum við aðrar leiðir. Í eitt skipti teiknaði Margrét mynd af manni og stelpu sem hélt á grænum poka. Þegar hún var spurð af hverju myndin væri þá svaraði hún: „Þetta eru ég og afi á leið í sjopp- una“ útsmogið – en auðvitað var farið með stelpuna í sjoppuna. Í seinni tíð spjöllunum við svo meira um lífið og tilveruna en brandararnir og hláturinn voru aldrei langt undan. Nú er aðventan að ganga í garð, en hefðin hefur lengi verið sú að við stelpurnar komum til ykkar ömmu og áttum einn dásamlegan dag saman. Við föndruðum, amma gaf okkur að borða eins og henni er einni lagið og þú dáðist að þeim meistara- verkum sem sköpuð voru frá því við vorum litlar. Þú varst alltaf svo stoltur og hvattir okkur áfram sem er algjörlega ómetan- legt og hvetur okkur enn frekar áfram í þeim verkefnum sem við munum taka okkur fyrir hendur á ókomnum árum. Gleðin sem skein af þér í hvert sinn sem þú sást okkur gerði hvern dag betri. Það var gott að koma til þín. Á tímum sem þessum er gott að eiga allar fallegu góðu minning- arnar til þess að leita í. Þín verð- ur svo sannarlega sárt saknað en minning þín og kærleikurinn sem þú gafst okkur mun lifa áfram í hugum og hjörtum okkar allra. Elsku afi, að ferðalokum er víst komið og kvaddir þú ansi hratt en við höfum þetta ljóð hans Jónasar Hallgrímssonar í huga þar til við sjáumst aftur: Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. (Jónas Hallgrímsson.) Afastelpurnar þínar, Sædís, Margrét, Íris og Rán. Hvíld er ljúf að loknum degi. Lífsins hringrás eilíf er: Gleði, tilhlökkun, tregi, tár og bros, í heimi hér. Ljós og skuggi, líf og dauði, látlaust skiptast hér á. Er sígur svefn á brá sökk þér þá í draumsins dá þar sem sérhver ósk þín rætast má. Sofðu, sofðu. Svífðu frjáls um draumaheim. Sofðu, sofðu. Sæl er för um alvalds geim. Englar vaka og þig í faðm sér taka. Sofðu, sofðu. Svífðu frjáls um draumaheim. (Ómar Ragnarsson) Í dag kveðjum við hinstu kveðju heiðursmanninn Magnús Guðnason. Maggi, eins og hann var jafnan kallaður, var búinn einstaklega góðum mannkostum eða eins og Ragnar Þór, mágur hans, sagði eitt sinn og lagði áherslu á: „Engum manni treysti ég betur en Magnúsi Guðnasyni.“ Traustur, hógvær og hæglátur fjölskyldumaður, enda er ein sæl- asta minning okkar aðfangadags- kvöld í Stangarholtinu, búið að borða, fullorðna fólkið búið að tala og Maggi sestur við pakka- flóðið í kringum jólatréð og kom- inn tími til að lesa á jólapakkana. Aðrar minningar sækja á þessa dagana og allar eru þær tengdar samverustundum með Magga og ömmu Stellu, hvort sem þær eru af Háteigsveginum, Stangarholt- inu, Dalbrautinni, úr veiðiferð- um, Ítalíuferð eða frá Selvík við Álftavatn að ógleymdum bíl- skúrnum þar sem prentsmiðjan var til húsa og maður fékk alls kyns skringilegar stærðir af lit- uðum og ólituðum blöðum og pappír til að föndra með. Það hefur verið heiður að njóta leiðsagnar og samferðar Magga síðustu hálfa öld eða svo. Við biðj- um góðan Guð að styrkja ömmu Stellu og afkomendur og megi minningin um einstakan ættföður lifa í hjörtum ykkar um ókomna tíð. Guð blessi minningu Magnús- ar Guðnasonar. Signý, Gunnar og Svanhildur og fjölskylda. Magnús Guðnason ✝ Vigdís Val-gerður Magn- úsdóttir fæddist í Reykjavík 9. mars 1927. Hún lést 24. nóvember 2015. Foreldrar henn- ar voru hjónin Magnús Vagnsson skipstjóri, síðar síldarmatsstjóri ríkisins, f. á Leiru í Grunnavíkur- hreppi 3. maí 1890, d. á Siglu- firði 12. febrúar 1951, og Val- gerður Ólafsdóttir, f. í Reykjavík 19. desember 1899, d. 5. mars 1978. Systkini Vig- dísar voru Bragi (samfeðra), f. ólf, Erlu Hjördísi og Vigdísi Guðrúnu, og fimm barnabörn. 2) Magnús, f. 18.9. 1950. Maki Bergljót S. Steinarsdóttir, f. 31.10. 1952. Þau eiga tvö börn, Steinar Örn og Láru Lilliendahl, og fjögur barna- börn. 3) Guðrún, f. 28.2. 1952, d. 9.4. 1957. 4) Guðrún Bára, f. 11.5. 1957. Maki David C. Bustion, f. 29.8. 1948. Þau eiga tvö börn, Stéphanie og David Inga. 5) Ágúst Þór, f. 19.10. 1958. Maki Kristín E. Pálsdóttir, f. 23.2. 1961. Þau eiga þrjú börn, Anítu Ósk, Valgerði og Ingólf, og sex barnabörn. Vigdís og Ingólfur hófu bú- skap sinn á Siglufirði en flutt- ust svo til Grindavíkur og bjuggu þar til æviloka. Útför Vigdísar fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 1. desember 2015, kl. 14. 1917, d. 2001; Pét- ur, f. 1920, d. 1997; Hólmfríður, f. 1922; Sigríður, f. 1925, d. sama ár; Magnús, f. 1930, d. 1946, og Guðrún, f. 1937, d. 1990. Hinn 7. október 1947 giftist Vigdís Ingólfi Karlssyni frá Karlsskála í Grindavík, f. 2. júlí 1924, d. 29. desember 1982. Börn þeirra eru: 1) Valgerður, f. 2.9. 1947, d. 24.2. 1997. Maki Ólafur Sigurpálsson, f. 13.11. 1948. Þau eiga þrjú börn, Ing- Það er tómarúm hjá okkur fjölskyldunni. Ættmóðirin farin og nýir tímar taka við. Tengda- móðir mín, hún Vigga, eins og við kölluðum hana, skipaði stóran sess í lífi okkar. Hún naut þess að vera í kringum hópinn sinn. Hún var ekki margmál en sagði þess meira með ljómanum í augum sínum. Hún fylgdist vel með af- komendum sínum og var alltaf til staðar fyrir okkur, tilbúin að tak- ast á við þau verkefni sem henni voru falin. Vigga hafði gaman af að ferðast og eigum við meðal ann- ars góðar minningar frá ferðum okkar í Þjórsárdal, þar sem hún mætti með fulla dunka af nýbök- uðu vínarbrauði og snúðum, sem við gæddum okkur á þegar komið var á áfangastað. Hún var sjálfri sér nóg og líf hennar var í föstum skorðum. Hún naut þess að synda og var daglegur gestur í sundlaug Grindavíkur á meðan heilsan leyfði. Hún heimsótti bókasafnið reglulega og þar las hún blöðin og sótti sér bækur. Hún hafði ein- staklega gott minni, fylgdist vel með fréttum og þjóðmálaumræð- um og var ófeimin að tjá skoðanir sínar á þeim. Síðasta ár sitt bjó Vigga í þjón- ustuíbúð í Víðihlíð. Þar fór vel um hana og naut hún umönnunar heimahjúkrunar HSS og starfs- fólksins í Miðgarði, félagsstarfi eldri borgara. Þar eignaðist hún góða vini sem gerðu lífið auðveld- ara og skemmtilegra. Við kveðjum góða konu og er- um þakklát fyrir allt sem hún kenndi okkur. Hvíl í friði, elsku Vigga. Kristín Elísabet Pálsdóttir og fjölskylda. Elskuleg amma okkar, Vigdís Valgerður Magnúsdóttir, er látin. Farsælli lífsgöngu hennar er lok- ið og eftir standa afkomendur og vinir með minningar um ljúfa konu. Amma Vigga, eins og við kölluðum hana, ólst að mestu upp á Siglufirði og átti þar góða æsku með foreldrum sínum og systk- inum. Hún byrjaði ung að vinna í síld, eins og aðrar siglfirskar stelpur og síðar við afgreiðslu- störf. Amma starfaði um tíma í mjólkurbúðinni á Siglufirði, en þar lágu leiðir ömmu og afa sam- an. Unga sjómanninum úr Grinda- vík leist vel á búðardömuna og þau felldu hugi saman. Þau giftu sig og börnin fæddust eitt af öðru. Amma og afi hófu búskap sinn á Siglufirði en fluttust svo til Grindavíkur árið 1954 og bjuggu þar til æviloka. Fyrst bjuggu þau á Karlsskála hjá Guðrúnu lang- ömmu. Þau fluttu svo að Hólum. Þar bjuggu þau í nokkurn tíma en byggðu svo reisulegt hús, Stein- staði, sem stendur við Ránargötu 10. Síðar byggðu þau annað hús á Baðsvöllum 16, en þar bjó amma þar til í fyrrahaust, er hún flutti í Víðihlíð, dvalarheimili aldraðra í Grindavík. Þegar börnin voru að alast upp var amma heimavinnandi, sinnti börnum og heimilinu. Eftir að börnin uxu úr grasi vann amma við fiskvinnslu þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Amma var ekki kona margra orða, hún lá samt ekkert á skoð- unum sínum þegar sá gállinn var á henni. Hún hafði gaman af mönnum og málefnum. Hún vissi fátt skemmtilegra en að sitja saman með stórfjölskyldunni og hlusta á líflegar umræður og sög- ur sem voru sagðar eða fylgjast með þegar tekið var í spil, en ófá- ir „Kanar“ hafa verið spilaðir við borðstofuborðið á Ránargötunni og á Baðsvöllunum. Amma var virk í starfi Kven- félags Grindavíkur um árabil og var gerð að heiðursfélaga í því. Nú síðast sótti hún Kvenfélags- messu í Grindavíkurkirkju hinn 15. nóvember síðastliðinn. Ömmu leið vel í litlu íbúðinni sinni í Víðihlíð, það var gæfuspor fyrir hana að taka ákvörðun um að flytjast þangað. Í Miðgarði, fé- lagsmiðstöð eldri borgara, naut hún góðra stunda. Þar og í Víði- hlíð er frábært starfsfólk sem hugsaði vel um ömmu. Fyrir það viljum við þakka. Við minnumst ömmu með hlýju. Það var alltaf mikill sam- gangur á milli okkar og var hún tíður gestur á æskuheimili okkar og við hjá henni. Nú skilur leiðir. Amma ákvað að halda jólin ann- ars staðar, með ástvinum sem kvöddu á undan henni. Það er skrítið til þess að hugsa að hún sé ekki lengur hjá okkur, en hún hefur verið til staðar fyrir okkur alla tíð. Við vitum að hún var hvíldinni fegin, líkaminn orðinn lúinn eftir langa lífsgöngu. Hvíl í friði, elsku amma. Ingólfur, Erla og Vigdís. Vigdís Valgerður Magnúsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Okkar hjartkæra móðir, tengdamóðir, amma og langamma, OLGA SIGURÐARDÓTTIR, verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 4. desember klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð Margrétar Oddsdóttur, kt. 700410-1610, nr. 0130-15-381828. . Jóhanna Leópoldsdóttir, Sigurður Hjarðar Leópoldsson, Margrét Oddný Leópoldsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUNNAR KRISTMANN RÖGNVALDSSON, bóndi frá Dæli, Skíðadal, lést á sjúkrahúsinu á Akureyri miðvikudaginn 25. nóvember. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju mánudaginn 7. desember klukkan 13.30. . Ragnar Gunnarsson, Lára Stefánsdóttir, Margrét Gunnarsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, Óskar Gunnarsson, Jóhanna Arnþórsdóttir, Eygló Gunnarsdóttir, Kristján Daðason, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES GUNNARSSON vélfræðingur, Drápuhlíð 37, Reykjavík, sem lést laugardaginn 21. nóvember, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 2. desember klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á styrktar- og líknarsjóð Oddfellowa. . Jón A. Sigurbjörnsson, Lára Guðmundsdóttir, Jóhannes E. Jóhannesson, Sveinfríður Á. Jónsdóttir, Ómar Jóhannesson, Inga H. Hannesdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir, Kristín Jóhannesdóttir, Rúnar Magnússon, Gunnlaugur Jóhannesson, Elín Þ. Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.