Morgunblaðið - 01.12.2015, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 01.12.2015, Qupperneq 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. DESEMBER 2015 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ave Maríur og aríur úr óp- eruheiminum eru á efnisskrá tón- leika dagsins sem bera yfirskrift- ina „Mæðgur með Maríu“, en verkin tengjast öll á einn eða ann- an hátt heilagleika jólanna“ segir Antonía Hevesi píanóleikari sem verið hefur listrænn stjórnandi há- degistónleika í Hafnarborg frá upphafi, en hún leikur á hádeg- istónleikum í Hafnarborg í dag kl. 12 ásamt mæðgunum Hönnu Björk Guðjónsdóttur og Björgu Birg- isdóttur sem báðar eru sópran. „Björg mun syngja tvær aríur, annars vegar Mi chiamano Mimi sem Mimi syngur í La Bohème eft- ir Puccini, en óperan gerist um jól- in, og Ave Maria sem Desdemona syngur í Óþelló eftir Verdi,“ segir Antonía og bendir á að fluttar verði sjaldheyrðar Ave Maríur í bland við þekktari. „Hanna Björk syngur Ave Maria eftir Astor Piaz- zolla sem er mjög falleg vókalísa, en lítið þekkt. Þær mæðgur syngja Ave Maria eftir Camille Saint- Saëns sem er dúett sem maður heyrir ekki á hverjum degi hér- lendis. Af þekktari verkum má nefna Ave Maria dúett eftir Eyþór Stefánsson og Vögguljóð Maríu eftir Max Reger, sem á sér mikla sögu sem ég ætla að segja frá á tónleikunum,“ segir Antonía. Bæði ljúft og skylt Að sögn Antoníu leggur hún mikið upp úr því að kynna ungar raddir auk þess sem sér þykir nauðsynlegt að gefa Hafnfirð- ingum tækifæri til að koma fram á hádegistónleikunum í Hafnarborg. „Það má segja að ég slái tvær flug- ur með því að bjóða Björgu að syngja á tónleikunum,“ segir Ant- onía, en Björg hóf klassískt söng- nám í söngskólanum Domus Vox 15 ára hjá Hönnu Björk og lauk þaðan miðprófi. Hún lauk LRSM prófi frá Söngskóla Reykjavíkur og stundaði einnig nám við Söng- skóla Sigurðar Demetz. Björg er nú búsett í Vínarborg þar sem hún sækir einkatíma hjá Gabriele Lec- hner. Hanna Björk útskrifaðist frá Söngskólanum í Reykjavík 1992 og stundaði framhaldsnám í London. Hún hefur kennt við einsöngsdeild söngskólans Domus vox frá árinu 2000. „Hanna Björk og Björg eru báðar Hafnfirðingar, en mér er það bæði ljúft og skylt að fá heimamenn til samstarfs,“ segir Antonía og tekur fram að hún þekki báðar söngkonur vel. „Því þær hafa báðar starfað með Kór Íslensku óperunnar þar sem ég starfaði um ellefu ára skeið.“ Gætu skipt í miðju lagi Að sögn Antoníu eru mæðg- urnar með mjög líkar raddir. „En báðar eru þær mjög lýrískar. Við höfum hlegið að því á æfingum að þær eru með svo líkar raddir að þær gætu skipt um rödd í miðjum dúett án þess að ég tæki eftir því,“ segir Antonía kímin og tekur fram að efnisskránni í dag fylgi tvær kökuuppskriftir. „Hönnu Björk og Björgu finnst gaman að baka og langaði að deila fjölskylduupp- skriftum með tónleikagestum,“ segir Antonía og tekur fram að sjálf baki hún aldrei. „Ég kann ekki að baka og þarf þess ekki þar sem ég bý ég fyrir ofan bakarí.“ Þess má að lokum geta að húsið verður opnað í dag kl. 11.30. Tón- leikarnir hefjast kl. 12 og standa yfir í um hálfa klukkustund. Þeir eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Fyrstu hádegistónleikar á nýju ári verða þriðjudaginn 2. febrúar. Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólatónar Antonía Hevesi, Hanna Björk Guðjónsdóttir og Björg Birgisdóttir koma fram á hádegistónleikum í dag. Antonía segir mæðgurnar vera með mjög líkar raddir og báðar séu mjög lýrískar. Mæðgur með Maríu í Hafnarborg í hádeginu  Sópransöngkonurnar Hanna Björk Guðjónsdóttir og Björg Birgisdóttr syngja Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Dagur íslenskrar tónlistar er hald- inn hátíðlegur í dag og á þeim degi hafa tilnefningar til Íslensku tónlist- arverðlaunanna verið kynntar en svo verður ekki í ár. Sú breyting hef- ur orðið á fyrirkomulagi verð- launanna að tilnefna plötur eftir almanaksári en ekki miðað við að þær hafi komið út fyrir 15. nóv- ember, eins og verið hefur. Mörgum er eflaust í fersku minni að ekki var hægt að tilnefna plötu Hjaltalín, En- ter 4, til verðlaunanna 2013 þar sem hún kom út eftir 15. nóvember árið 2012. Platan hlaut átta tilnefningar í desember 2013 og tvenn verðlaun 2014, fyrir bestu söngkonu og upp- tökustjórn. Eftir breytinguna verða því allar plötur gjaldgengar sem gefnar voru út á árinu öllu. Þetta hefur í för með sér að ekki er hægt að merkja plötur sem koma út á þessu ári með límmiðum sem á stendur að þær séu tilnefndar. Íslensku tónlistarverðlaunin eru haldin fyrir tilstuðlan hagsmuna- samtaka tónlistarinnar undir merkj- um Samtóns, Samtaka tónlistarrétt- hafa. Gunnar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SFH, Sambands flytjenda og hljómplötuframleiðenda og Samtóns, segir að ákveðið hafi verið að miða tilnefningar við alman- aksárið sökum þess að plötur sem gefnar eru út í lok árs hafi ekki verið gjaldgengar til verðlaunanna. Þá hafi verið samið við Saga Events um að sjá um verðlaunin. Tilkynnt verður um tilnefningar í janúar og verðlaunahátíðin haldin 4. mars. Nánar verður greint frá því síðar. Spurður að því hvort verðlaunin verði að öðru leyti með sama sniði segir Gunnar að hugsanlega verði verðlaunaflokkum fækkað. „Að öðru leyti á umgjörðin að vera eins,“ segir hann. „Þetta ferli er byrjað á fullu. Þetta hefur farið aðeins seinna af stað og það á í raun að opna þessa dómnefndavinnu, gefa fleirum kost á að taka þátt í störfum dómnefnda. Það er nýjung,“ bætir Gunnar við. Allar plötur árs- ins gjaldgengar Morgunblaðið/Ómar Raddfögur Salka Sól hlaut verðlaun sem söngkona ársins 2014. Skútuvogur 1c 104 Reykjavík | Sími: 550 8500 | www.vv.is sjáu mst! Frískleg og hugvitsamleg hönnun, þau eru afar létt og þæginleg í notkun. Lýsing og rafhlöðuending er framúrskarandi. Útsölustaðir: Ísleifur Jónson, Reykjavík. Iðnaðarlausnir ehf, Kópavogi Straumrás, Akureyri. Vélsmiðjan Þristur, Ísafirði. • Ljósstyrkur: 100 lm • Drægni: 100 m • Þyngd: 105 g • Batterí: 3 x AAA 1.5V • Vatnsvarið: IPX6 • Stillanlegur fókus og halli • Þrjú hvít LED ljós og eitt rautt LED ljós sem hentar vel til að halda nætursjón HUNGER GAMES 4 2D 5:15,8,10:10 THE NIGHT BEFORE 8,10:45 GÓÐA RISAEÐLAN 2D 5:15 SPECTRE 6,9 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ Ný hljómplata tónlistarkon- unnar Adele, 25, hefur slegið öll sölumet hljóm- platna til þessa vestanhafs en samkvæmt Billboard seldust 3,38 milljónir platna, á netinu og á geisla- diskum, fyrstu vikuna sem hún var á markaði. Það er meira en milljón fleiri eintök en eldra metið frá 2000 sem sveitin ’N Sync átti; platan No Strings Attached. Metsala plötu Adele vestra Söngkonan Hin ofurvinsæla Adele.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.