Víkurfréttir - 17.11.1988, Page 1
fi
s9Öt/,
Kim
Undirbúnings-
fundur að
stofnun sam-
taka um sorg
Almennur fundur um sorg
og sorgarviðbrögð verður
haldinn miðvikudaginn 23.
nóvember n.k. í Kirkjulundi.
Verður þetta jafnframt und-
irbúningsfundur til stofnun-
ar samtaka um sorg og sorg-
arferil.
Sóknarprestarnir í Keíla-
vík og Njarðvík, séra Ólafur
Oddur Jónsson og Þorvald-
ur Karl Helgason, svo og
sóknarprestur Aðventista,
Þröstur Steinþórsson, hafa í
sameiningu haldið námskeið
fyrir syrgjendur sem hafa
orðið kveikjan að undirbún-
ingsfundi að stofnun sam-
taka um sorg.
Á fundinum á miðvikudag
verður Páll Eiríksson sér-
stakur gcstur fundarins en
auk þess mun Steinn Erlings-
son syngja nokkur lög.
Grindavík:
Skurðgrafa
sleit loftlínur
Það óhapp átti sér stað á
þriðjudag í síðustu viku að
skurðgrafa, sem dregin var
af vörubifreið, sleit niður
tvær 11 KW háspennulínur
sem tengja laxeldisstöðvar
þær, sem eru utan við
Grindavík, við rafmagn.
Urðu stöðvarnar allar raf-
magnslausar. Ekki er vitað
hvort tjón hafi orðið hjá
stöðvunum en engin tilkynn-
ing þess efnis hafði borist til
lögreglunnar í Grindavík.
Féll úr áhorf-
endastúku
Kalla þurfti til lögreglu
þegar ungur drengur féll of-
an úr áhorfendastúku
íþróttahússins í Grindavík í
síðustu viku. Flutti lögreglan
drenginn á sjúkrahús en
hann mun hafa brákast á
hendi við lendinguna.
RÖSTURSAMT f MIOBÆNUM:
Atlaga gerð
að lögreglunni
Lögreglan í Keflavík átti
mjög annasama nótt aðfara-
nótt laugardagsins m.a. vegna
óláta í miðbæ Keflavíkur þá
nótt og fyrr um kvöldið. Kom
m.a. til átaka milli lögreglu-
manna og unglinga er brotin
hafði verið rúða í versluninni
Róm.
Þar var lögreglart hindruð í
starfi og atlaga gerð að lög-
regluþjónum við störf sin.
Rifnaði jakki eins Iögreglu-
mannsins og bindi slitnaði hjá
öðrum en báðir hlutu þeir ein-
hver meiðsli í átökum þessum.
Sem betur fer eru ekki allir
þeir unglingar sem safnast
saman í miðbænum um helgar
til vandræða, en þeim mun
meira ber á þeim sem taka þátt
í ólátum þessum. Hafa rúðu-
brot í verslunum á svæðinu oft
á tíðum verið óaðskiljanlegur
þáttur í máli þessu, sem er
miður. Þá var nú farið inn í
brunarústir Kaupfélagsins og
náð í verslunargrindur og þær
fylltar af öldósum sem síðan
var dreift meðal unglinganna.
En hvað vill lögreglan gera í
máli þessu? Gefum Karli Her-
mannssyni, aðstoðaryfirlög-
regluþjóni, orðið:
„Það alvarlegasta í þessu er
að menn skuli veitast að lög-
reglunni við sín skyldustörf
eins og þarna átti sér stað. Hér
er á ferðinni vandamál sem
þarf að Finna lausn á. Teldi ég
t.d. það vera til bóta ef breið
samstaða næðist meðal lög-
regluyFirvalda, bæjaryFirvalda
og skólamanna um málið.
Þessir aðilar þyrftu að aðstoða
okkur við að Finna lausn á því.
Mikið ungiingavandamál hefur skapast i miðbx Keflavíkur um hclgar. Þessir ungu menn
dreifðu gosdrykkjum til þeirra sem vildu, en gosið höfðu þeir fengið með innbroti í rústir
Kaupfélagsins að Hafnargötu 30. Vandamál þetta var rætt í rúma klukkustund á fundi bæjar-
stjórnar Keflavíkur sl. þriðjudag. - Sjá nánari umfjöllun um málið á síðu 2 í dag. Ljósm.: hbb.
Þá gæti það líka verið lausn
að draga úr umferðarþunga
um Hafnargötuna m.a. með
því að gera hana að einstefnu-
akstursgötu eða jafnvel Ioka
henni á kafla.“
Sextán
einstaklingar
gjaldþrota
í Lögbirtingablaðinu 9.
nóvember birtast tilkynningar
um uppkveðna gjaldþrotaúr-
skurði á Suðurnesjum. Þar er
um að ræða 16 einstaklinga er
skiptast þannig eftir búsetu,
að 7 eru úr Keflavík, þrír úr
Njarðvík, jafn margir úr Sand-
gerði og einn úr Vogum.
ELDEY 0G SAMSTARFSAÐILARNIR:
Beðið eftir reikningum HK
Mikil fundahöld voru á
þriðjudag og í gær vegna
áhuga Eldeyjarmanna o.fl. á
kaupum hlutafjár Sambands-
ins í HK. Voru haldnir fundir
með þingmönnum, samstarfs-
aðilum o.fl. á þriðjudag en í
gær var haldinn fyrsti viðræðu-
fundurinn við Sambandið.
Að sögn Jóns Norðfjörðs,
stjórnarformanns Eldeyjar
h.f., er ekki raunhæft að ganga
frá tilboði í hlutaféð fyrr en
staða fyrirtækisins er borð-
liggjandi. Er nú unnið að því
að taka út stöðu fyrirtækisins
og meðan á því stæði yrði eng-
in niðurstaða fengin um kaup-
ín.
Þeir aðilar sem eru í sam-
starfi við Eldey h.f. um kaupin
eru Valbjörn h.f. í Sandgerði
og íslenskur gæðafiskur h.f. í
Njarðvík.