Víkurfréttir - 17.11.1988, Side 5
muti
jtittU
Fimmtudagur 17. nóvember 1988 5
Garðurinn að Vallargötu 29, Sandgerði, meðan hann var í blóma í sumar.
Miðneshreppur:
Verðlaun veitt fyrir
fallegasta garðinn
Umhverfisnefnd Miðnes-
hrepps hefur veitt viðurkenn-
ingar fyrir fallegasta garðinn í
Miðneshreppi 1988 og einnig
viðurkenningu fyrir miklar
endurbætur á lóð.
Það voru íbúarnir að Vallar-
götu 29 í Sandgerði sem fengu
viðurkenningu fyrir fallegasta
garðinn 1988 en hann er í eigu
Olafíu Guðjónsdóttur og Jóns
Norðfjörðs. Segir í áliti nefnd-
ar að garðurinn hafí verið val-
inn úr mörgum fallegum görð-
um og margir komið til greina.
Umhverfismál í Sandgerði
hafa tekið miklum stakka-
skiptum til betri vegar undan-
farin ár, bæði í umhirðu húsa
og lóða.
Við þetta tækifæri var eig-
endum garðsins að Vallargötu
29 afhent grjót úr Miðnesheið-
inni með plötu sem í vargrafið
„Fallegasti garðurinn ’88“.
Þá var einnig afhent viður-
kenning fyrir miklar endur-
bætur á lóð. Voru það íbúar að
Suðurgötu 29 sem þá viður-
kenningu fengu, en þar er um
tvíbýli að ræða og eigendur eru
Þorri sf. annars vegar og Sig-
urbjörn Grétarsson og Þórdís
Stefánsdóttir hins vegar.
Umhverfisnefnd Miðnes-
hrepps tók ákvörðun um að
veita þessar viðurkenningar í
lok júlímánaðar en vegna sum-
arleyfa bæði nefndarfólks og
síðan verðlaunahafa hefur
dregist að afhenda viðurkenn-
ingarnar þar til nú.
Nefndarmenn ásamt eigendum garðsins að Vallargötu 29. F.v.: Oskar Guð-
jónsson fulltrúi í umhverfisnefnd, Jón Norðfjörð og Olafía Guðjónsdóttir
eigcndur garðsins, og Sólrún Simonardóttir formaður umhverfisnefndar
Miðneshrepps. Ljósm.: hbb.
Alþýðubandalagið varar
við sjávarútvegsstefnunni
Grindavík, 12.11.88.
Aðalfundur kjördæmisráðs
Alþýðubandalagsins í Reykja-
neskjördæmi, haldinn þann
12.11.1988, varar eindregið við
þeirri stefnu í sjávarútvegs-
málum, sem leiðir til þess að
sjósókn og fiskveiðar flyst frá
Reykjanesi og Suðurlandi til
annara landshluta. Ef áfram
heldur sem horfír stefnir í hrun
sjávarútvegs á Suðurnesjum.
Taka þarf upp gjörbreytta
stefnu í þessum málum byggða
á reynslu, þekkingu og vísind-
um, með langtíma sjónarmið
að leiðarljósi. Tryggja verður
að heimabyggðin haldi hluta
sínum í fiskistofnunum, ella
getur kvótakerfi sem byggir á
því að kvóti fylgi skipum leitt
til alvarlegrar byggðarröskun-
ar og atvinnuleysis.
Kjördæmisráðið áréttar sér-
staklega nauðsyn þess að efla
atvinnuþróun á Suðurnesjum.
Öflugur sjávarútvegur og iðn-
aður er forsenda þess að hægt
er að draga úr ítökum hersins á
atvinnulíf Suðumesjamanna.
Hjónadansleikur
í Garði
Hjónadansleikur verður haldinn í Sam-
komuhúsinu í Garði n.k. laugardag og
hefst kl. 22.
Lúdó og Steini leika fyrir dansi.
Garðbúar, mætum öll og tökum með okk-
ur gesti.
Hjónaklúbburinn í Garði
NAMSKEIÐ
w í gerð aðventukransa verður haldið um
helgina, ef næg þátttaka fæst.
Uppl. í síma 12157.
Meira
BERO fjör
SKEMMTISTADUR
Opið laugardagskvöld kl. 22-03. Miðlarnirsjá
um fjörið. Snyrtilegur klæðnaður. Aldurstak-
mark 20 ára. Aðgangseyrir 600 kr. Lokað
föstudagskvöld vegna einkasamkvæmis.
Uppskeruhátíð ÍBK
Uppskeruhátíð meistaraflokks karla og
kvenna, 2. fl. karla og eldri flokks drengja
verður í Glaumbergi 26. nóv. kl. 19.
Dagskrá:
Kvöldverður
Verðlaunaafhending
Skemmtiatriði
Happdrætti
Allir velkomnir. Miðasala verður í íþrótta-
vallarhúsinu mánudag og þriðjudag kl. 18-
19:30.
Alþýðuflokksfélag
Miðneshrepps
AÐALFUNDUR
verður haldinn fimmtudaginn 17. nóv.
(í kvöld) kl. 20:30 í samkomuhúsinu í
Sandgerði.
Stjórnin
/^i k T^T'T1 - góður sport-
VJ /\1 N X fatnaður á herra
PERSONA
Hafnargötu 61 - Keflavík - Sími 15099
- Þegar þú kaupir fót