Víkurfréttir - 17.11.1988, Síða 7
MUR
Fimmtudagur 17. nóvember 1988 7
Bláa lónið:
Farið að
bera aftur á
næturgestum
Lögreglan í Grindavík
þurfti að hafa afskipti af sjö
næturgestum sem svömluðu
í Bláa lóninu aðfaranótt sl.
laugardags.
Að sögn Sigurðar Ágústs-
sonar hjá Grindavíkurlög-
reglunni eru það áberandi
mest „gestir“ úr Reykjavík
sem sækja í lónið að nætur-
lagi um helgar. Var það orð-
ið fátítt hjá Iögreglu að hafa
afskipti af þessum óboðnu
gestum en virðist nú vera að
færast í aukana á ný.
Mikið um út-
köllí
heimahús
Mjög annaSamt var hjá
lögreglunni í Keflavík um
síðustu helgi. Fékk lögreglan
56 útköll á föstudagskvöldi,
laugardegi og sunnudegi. Þ’á
var mikið um ölvun í heima-
húsum og útköll vegna þess.
Einnig ók lögreglan mörg-
um ölvuðum til síns heima en
þó gistu 7 aðilar fanga-
geymslur. Vegna ólæta í mið-
bænum á föstudagskvöld og
aðfaranótt laugardagsins var
mikið að gera og komu m.a.
upp tvö útköll sem Iögreglan
gat ekki sinnt sökum anna.
Um síðastnefnda atriðið,
þ.e. lætin í miðbænum, er
nánar fjallað annars staðar í
blaðinu í dag.
Þau kunna að nafngreina hlutina, krakkarnir í Holtaskóla. Síð-
asta föstudag héldu þau HIPPABALL í skólanum. í stað þess
að klæðast sinu fínasta var komið í fataleppum, líkum þeim
sem voru í tísku á hippatímabilinu og tónlistin var blönduð, bæði ný
og gömul. Það er erfitt að lýsa því sem er að gerast á svona böllum
með orðum og því látum við myndir þær sem Ijósmyndari blaðsins,
Hilmar Bragi, tók sl. föstudagskvöld tala sínu máli....
ðlvun og slagsmál
Nokkur ölvun var í
Grindavík um síðustu helgi
sem stafaði helst af dansleik,
sem haldinn var í Félags-
heimilinu Festi. Nokkur
slagsmál urðu og tveir settir
inn af þeim sökum. Annars
var helgin þokkaleg að sögn
lögreglu.
Undratæki
sem bæta heilsuna
Manquic er hand- og
fótsnyrtitæki sem lagar
ýmsa kvilla á höndum
og fótum og er gott til
snyrtingar.
Neistarinn er lítið undra-
tæki sem vinnur á verkjum,
s.s. vöðvabólgu, liðagigt
og mörgu fleiru.
Grape Slim megrunarlyf
sem gefur árangur.
Superglandi er hrukku-
meðal - eyðir smáhrukkum
og lagfærir húðina.
Heilsuvörur í úrvali.
\\\ \ \ \ i / / / //.
\SOLHAÐS & SNYHTISTOFAN ^
Hufnartfötu !»♦ - Kcflavík
Leikfélag Keflavíkur:
„Erum við svona?“
Frumsýnt á morgun á Glóðinni
Leikfélag Keflavíkur frum-
sýnir annað kvöld, föstudag,
íslenska revíu eftir leikstjór-
ann Huldu Ólafsdóttur. Ber
revían nafnið Erum við svona?
og er þar tekið á brennandi
málum í þjóðfélaginu í léttum
dúr.
Sautján leikarar taka þátt í
sýningunni ásamt fjögurra
manna hljómsveit en alls taka
um 30 manns þátt í uppsetn-
ingu verksins. Æfingar hófust
í byrjun október og var þá æft í
Garðaseli í Keflavík en nú síð-
ustu daga hefur verið æft á
Glóðinni.
Erum við svona? verður
frumsýnt á morgun, föstudag,
og hefst sýningin kl. 21. Önnur
sýning verður á laugardag og
sú þriðja á sunnudag og hefj-
ast þær jafnframt kl. 21.
Að sögn Hjördísar Árna-
dóttur er þessi uppsetning til
þess að lyfta fólki upp í
skammdeginu en einnigerver-
ið að kanna hvort grundvöllur
sé fyrir því að setja upp stærri
og viðameiri revíu á 40 ára af-
mæli Keflavíkurbæjar næsta
vor, sem mun fjalla um Kefla-
vík fyrr og nú. Til þess að það
sé hægt þarf leikfélagið til sín
allar fáanlegar hendur, að
sögn Hjördísar.
Leikararnir 17 sem þátt taka í sýningu Leikfélags Keflavíkur á Glóðinni um þessa og næstu helgiLjósm.: hbb.
Ferskur veitingastaður í notalegu umhverfi,
þar sem þjónustan er frábær og þú nýtur þess að
snæða ljúffenga rétti.
Ef þú vilt fara í fjörið eftir matinn þá ertu vel-
kominn í Glaumberg án þess að greiða aðgangs-
eyri. ATH: Lokað föstudag vegna einka-
samkvæmis.
Sjávargullið
og góðan mat
Glaumberg
-ef þú vilt gleði
Pierre Cardin
- orð eru óþörf
PERSÓNA
Hafnargötu 61 - Keflavík - Sími 15099
- Þegar þú kaupir föt