Víkurfréttir - 17.11.1988, Side 8
yfiKun
8 Fimmtudagur 17. nóvember 1988
molar grín - gagnrýni - vangaveltur Umsjón: Emil Páll
Hljómsveitarstjóri
sjóðanna
Einum af gömlu við-
skiptavinum Stefáns Val-
geirssonar, fyrrum leigubíl-
stjóra í Keflavík og núver-
rFIBGi
HöEL
(Fyrsta flokks
restaurant og bar
Morgunverður
frá 5:45-10:00
Hádegisverður
frá 11:00-14:00
Kvöldverður
frá 18:00-21:30
Fyrir þig og
mig, þar sem
vinir og kunn-
ingjar hittast.
Halnargötu 57 - Ketlavik
Simi 15222
andi hljómsveitarstjóra sjóð-
anna, varð þetta að orði þeg-
ar Stefán stóð ekki með Kefl-
víkingum í stjórn Byggða-
stofnunar: „Hann virðist al-
veg vera búinn að gleyma
okkur, gömlu viðskiptavin-
unum.“
Rústuðu ekki
Eitthvað varð okkur á í
messunni í síðasta blaði er
sagt var frá ferð starfsmanna
Aðalverktaka til Amster-
dam, þar sem hluta hópsins
var vísað af hóteli sem gist
var á vegna slæmrar hegðun-
ar. Jafnframt var sagt að
hópurinn hafi rústað tvö her-
bergi á hótelinu. Það mun
ekki vera rétt, engin herbergi
voru rústuð. Leiðréttist það
hér með.
Urgur í
Sandgerðingum
Nokkur urgur er meðal
Sandgerðinga vegna fregna
um erfiðleika við útborgun
tveggja fyrirtækja á staðn-
um, sem birtist m.a. í DV.
Eins vegna frétta um sölu
fimm báta frá byggðarlag-
inu. Samkvæmt heimildum
Mola var ekki fótur fyrir
fréttum þessum að öllu leyti
og það sem rétt var í málinu
átti alls ekki að leka út við
heimsókn þingmanna á dög-
unum, eins og raunin varð á.
Þó er vitað um að einn bátur
Rafns h.f. hefur verið í um-
ræðunni sem seldur til hafna
á norðurlandi. Efþað reynist
rétt er hér um að ræða enn
einn Suðurnesjabátinn sem
nú fer á skömmum tíma í
þann landsfjórðung.
Bankastjórinn á
Eldeyjar-banka
Nú, þegar nokkuð er ljóst
að Sambandið selji Eldeyjar-
mönnum hlut sinn í H.K.,
velta menn fyrir sér nöfnum
á skipum H.K., þ.e. hvað
þau muni heita eftir breyt-
ingarnar. Hallast menn helst
að því að annar togarinn fái
nafnið Eldeyjar-banki og þá
yrði skipstjórinn nefndur
bankastjóri. Hvort hitt skip-
ið fái nafnið Eldeyjar-Jón er
líka möguleiki og þá í höfuð-
ið á Jóni Norðfjörð.
Sambands-laus
Suðurnes
Mikill fögnuður spratt út
þegar fréttist af ákvörðun
stjórnar Sambandsins að
hefja viðræður við Eldeyinga
um sölu á hlutafé SÍS í Hrað-
frystihúsi Kefiavíkur. Þó
höfðu menn á orði að slæmt
væri fyrir Suðurnes að verða
með þessu Sambands-laus en
þó væri það betra en að verða
togaralaus.
Vetrargarður ’88
A mánudag fór fram, þó
furðulegt sé, úthlutun fegr-
unarverðlauna í Miðnes-
hreppi. Höfðu menn á orði
að garður sá, sem hlaut þessi
verðlaun, fengi nafnbótina
„Vetrargarður ’88“. Enda
með ólíkindum að verið sé að
úthluta slíkum verðlaunum
eftir að vetur er genginn í
garð. Hefði því allt eins getað
verið snjór yfir öllu, eins og
hvað annað.
Fjölbreytni í
skemmtanalífi
Fjölbreytnin í skemmt-
analífinu eykst sífellt. „Sér-
kvöld“ svokölluð í Glaum-
bergi eins og Bergáskvöld,
Erobikkkvöld o.s.frv., hafa
heppnast vel. Það næsta sem
vitað er um er „Gloriugleði"
en samnefnd snyrtivöru-
verslun verður I. des. n.k.
með umrædda gleði í Glaum-
bergi. Ýmislegt verður til
„skemmtunar” s.s. undir-
fatasýning, tískusýning og
ilmvatnskynning.
Þá verður erobikksýning hjá
Önnu Leu og loks „Fendi“-
dans hjá Dansstúdíói Sóleyj-
ar. Kynnir verður enginn
annar en Heiðar Jónsson,
snyrtisérfræðingur Islands.
Hver er munurinn?
Hver skyldi vera munur-
inn á 400 milljóna króna
skuld sem flutt er til Sauðár-
króks og 400 milljóna króna
skuld sem fengin erfrá Sauð-
árkróki? Sá sem veit svarið
við þessu ætti að láta stjórn
H.K. vita. Þessi sama stjórn
hamrar mjög á því að aðeins
skipti á togurum milli H.K.
og Sauðkrækinga geti bjarg-
að H.K. Skoðum því dæmið
nánar. Selja á báða togarana
fyrir 374 milljónir króna og
kaupa annan fyrir 300. Af
mismuninum þarf að nota
a.m.k. 40 milljónirtilaðgera
Drangeyna að frystiskipi.
Eftir eru því innan við 34
milljónir til að greiða þær
100 milljónir sem gjaldfalln-
ar cru. Þessar 34 milljónir
eiga hinsvegar að dekka 4000
tonna aflakvóta, sem er ansi
lítið gjald að dómi allra nema
stjórnar H.K.
Eru heimamenn-
irnir gungur?
Sigurður Markússon upp-
lýsti það á dögunum í Morg-
unblaðinu að stjórn SIS
skipti sér ekki af störfum ein-
stakra stjórna Sambandsfyr-
irtækja, þær væru sjálfstæð-
ar í skoðunum. Fyrst svo er
þá er spurn hvers vegna
heimamennirnir 4 í stjórn
H.K. láta Ólaf Jónsson, eina
aðkomumanninn, ráða ferð-
inni í togaramálinu?
Var verið að borga
fyrir greiðann?
Sú ákvörðun Guðjóns B.
Ólafssonar að hunsa óskir
Suðurnesjamanna, þing-
manna og forsætisráðherra í
togaramálinu, vakti að vonum
verðskuldaða athygli. Það
skyldi þó ekki vera rétt sem
einn anti-SÍS maður sagði á
dögunum: „Hér er Guðjón
að borga Marteini, stjórnar-
manni í SÍS vestanhafs, fyrir
að hann skyldi hafa staðið
með honum þegar fjölmiðlar
og aðrir gagnrýndu launa-
mál Guðjóns fyrr á árinu.
Þessi sami Marteinn stjórn-
ar SIS fyrirtækinu á Sauðár-
króki". Hvað sem þessu líð-
ur, þá er eins og fram kemur
hér að framan, vonandi
komin lausn í málinu.
Að meina það
sem sagt er
Verslunarmannafélag
Suðurnesja hélt síðasta
fimmtudag upp á 35 ára af-
mæli sitt. Vakti það athygli
Mola hvernig staðið var að
kynningu afmælis þessa, eða
kynningu á opnu húsi þann
dag. Þar var fremur leitast
við að styrkja atvinnurekstur
á höfuðborgarsvæðinu en
heimamanna, því hvorugt
heimablaðanna fékk auglýs-
ingu um atburð þennan en
það fékk hins vegar Ríkis-
sjónvarpið. Er þetta all
furðulegt miðað við að for-
ysta félagsins hefur haft uppi
stór orð vegna atvinnumissis
félagsfólks og eins tekið þátt
í umræðu um að skora á
Suðurnesjamenn að versla
heima. Þeir skyldu þó ekki
taka mark á eigin orðum?
Gleyminn
sjóðakóngur
Sjóðakóngur íslendinga,
Stefán Valgeirsson, virðist
vera orðinn nokkuð gleym-
inn maður. Annað er vart
hægt að ætla þegar hann
hreytir á Alþingi ónotum í
Keflvíkinga vegna togara-
málsins margnefnda. A.m.k.
virðist hann hafa gleymt því
að fyrir peninga úr sjóðum
Fólksbílastöðvarinnar í
Keflavík, sem einu sinni var
til, kom hann undir sig fót-
unum á landsbyggðinni. Þá
voru Keflvíkingar ekki eins
slæmir og hann gefur nú í
skyn.
Snöggir í Grindavík
„Stöðin var byggð með
hraði. Framkvæmdir hófust
í gær og húsið var afhent 1.
nóvember". Þessa skrítnu
málsgrein má finna í frétt
DV sl. mánudag um bygg-
ingarframkvæmdir við
slökkvistöð þeirra Grindvík-
inga. Hefur auðsjáanlega
eitthvað skolast þarna
illilega til hjá viðkomandi
fréttaritara.
Erfitt að lesa
fundargerðir SSS
Á fundi bæjarstjórnar
Keflavíkur síðasta þriðjudag
höfðu menn á orði að erfitt
væri að fylgjast með og fietta
fundargerðum frá SSS. Ef
menn vildu skilja hvað þar
væri til umræðu, þyrftu þeir
að hafa á borðinu margar
undanfarnar fundargerðir til
að vita um hvað væri verið að
tala.
\i%au%
Keflavíkurkirkja
Sunnudagur 20. nóv:
Guðsþjónusta í sjúkrahúsinu
kl. 10:30.
Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá
Ragnars og Málfríðar. Munið
skólabílinn.
Messa (altarisganga) kl. 14.
Kór Kefiavíkurkirkju syngur.
Organisti og stjórnandi Orn
Falkner.
Mánudagur 21. nóv.:
Félagsfundur og laufabrauð
hjá systrafélaginu kl. 20:30 í
Kirkjulundi.
Miðvikudagur 23. nóv.:
Kynningarfundur um sorg og
sorgarviðbrögð í Kirkjulundi
kl. 20:30.
Sóknarprestur
Innri Njarðvíkurkirkja
Barnastarf kl. 11:00 í safnað-
arheimilinu.
Sóknarprestur
Ytri Njarðvíkurkirkja
Messa og barnastarf kl. 11:00.
Prófasturinn, Bragi Friðriks-
son, prédikar. Organisti Odd-
ný Þorsteinsdóttir. Kaffi eftir
messu.
Sóknarprestur
Útskálakirkja:
Fjölskylduguðsþjónusta verð-
ur kl. 11. Þessidagurerkirkju-
dagur Kiwanismanna í Garði
og munu þeir annast ritning-
arlestur.
Hjörtur Magni Jóhannsson
Hvalsneskirkja:
Fjölskylduguðsþjónusta verð-
ur kl. 14. Barn verður borið til
skírnar.
Hjörtur Magni Jóhannsson