Víkurfréttir - 17.11.1988, Blaðsíða 9
\llKUti
julUt
Fáir fiskkaupendur voru á þessu fyrsta uppboði í Kefiavík.
Fiskmarkaður Suðurnesja:
Hð FUÐSTÖÐVARN AR
KOMNAR TIL
KEFLAVÍKUR
Fiskmarkaður Suðurnesja
hefur flutt höfuðstöðvar sínar
frá Fitjabraut í Njarðvík að
Bryggjuvegi í Keflavík. Fór
síðasta uppboðið fram í Njarð-
vík á föstudag en hið fyrsta í
Keflavík á laugardag.
Fyrsta salan í Keflavík á
uppboðinu á laugardag voru
þrjú kör af blönduðum og góð-
um þorski, óslægðum, veidd-
um á línu af Eldeyjar-Boða
GK 24. Var þetta magn slegið
Garðari Magnússyni, Njarð-
vík, á 46 kr. fyrir hvert kíló.
Annars var hér um litlar söl-
ur að ræða þennan fyrsta dag
en hæsta verðið sem fékkst fyr-
ir þorsk var það sem hér að
framan greinir, fyrir ýsu fékkst
mest 61,50 á hvert kíló, keilu
18kr.,lýsu 11 kr.,löngu 29 kr.,
lúðu 214 kr., karfa 25 kr. og
fyrir ufsa fékkst mest 15 kr.
fyrir hvert kíló.
Boðinn var upp fiskur af 11
bátum og var uppboðið sam-
tengt Keflavík og Grindavík.
Uppboðshaldari var Ólafur
Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri FMS. Var ýmist boðinn
upp fískur staðsettur í húsa-
kynnum markaðarins í Kefla-
vík eða Grindavík og hjá ein-
stökum fiskverkanda, eða um
borð í bátum sem væntanlegir
voru að landi í Sandgerði,
Keflavík eða Grindavík.
Ólafur Jóhannesson stjórnaði uppboðinu. Með honum á mvndinni
eru aðrir starfsmenn Fiskmarkaðar Suðurnesja í Keflavík.
Ljósm.: epj.
B.v. Gnúpur GK-257:
Tíu daga stopp
vegna skemmda
„Það er verið að skoða
skemmdirnar og byrjað að
gera við“ sagði EiríkurTóm-
asson, útgerðarstjóri hjá
Þorbirni hf. um skemmdirn-
ar á Gnúpi GK, en skipið
skemmdist töluvert þegar
það fékk á sig brotsjó sunnan
við Víkurál út af Vestfjörð-
um sl. fimmtudag.
Veðurhæðin var mikil
þegar skipið fékk á sig brot-
sjói þá er skemmdu skipið.
Fyrst um kl. níu á fimmtu-
dagsmorgninum fékk skipið
á sig brot, sem braut tvo
glugga í brú og því var haft
samband við Reykjavíkur-
radíó, sem síðan hafði sam-
band við Heiðrúnu og fleiri
skip. Var haft samráð á milli
skipstjóra Gnúps og Heið-
rúnar um að síðarnefnda
skipið fylgdi Gnúpi GK til
lands. A landleiðinni fékk
skipið síðan á sig annað
sterkt brot, sem braut þrjá
glugga í brú og eyðilagði
einnig hurð inn í brúna
og að auki flest öll siglingar-
tæki.
-Hvað kemur þetta óhapp
til með að stoppa skipið
lengi?
„Við eigum ekki von á að
stoppið verði mikið meira en
tíu dagar,“ sagði Eiríkur
Tómasson að lokum.
Fimmtudagur 17. nóvember 1988 9
Veislutilboð
um helgina
Draumaterta 420 kr. - Peruterta 385 kr.
Marengsterta 385 kr. - Rjómahringur 370 kr.
og margt fleira....
OPIÐ:
Virka daga. 8.30-18.00
Laugardaga. 10.00-16.00
(ívAjí Sunnudaga. 13.00-16.00
■Æ,»ariif
Hafnargötu 31 - Simi 11695
Fulltrúa-
ráðsfundur
Fulltrúaráðsfundur D-álmu samtakanna
verður haldinn í samkomuhúsinu í Garði,
laugardaginn 26. nóvember kl. 14:30.
Stjórnin
BORÐ
-allar stærðir
Körfubolta-
grindurnar
komnar
Ný lína í
dart-fjöðrum
REIÐHJÓLA-
VERKSTÆÐI M.J.
Hafnargötu 55 - Sími 11130
Ódýr leikföng
í úrvali
Laserbyssur,
róbótar,
dúkkur,
bílar og m.fl
\ \ \ i / / /. .
SÓLBAÐS & SNYRTISTOFAN
S’ObEY
Sími 11616
\ Hafnargötu 54 • Keflavík I
Hjólaskautar
á góðu verði