Víkurfréttir - 17.11.1988, Blaðsíða 10
\)iKun
10 Fimmtudagur 17. nóvember 1988
| jUUU
VERSLUN OG VIÐSKIPTI
VERSLU
Aldan, Sandgerði:
„Helgaropnun-
in hefur mikið
aðdráttarafl"
- segja þær Gunnþórunn og Lydia, sem
stækkað hafa verslun sína
„Helgaropnunin og kvöldin
hafa mælst mjög vel fyrir hjá
viðskiptavinum okkar og þá
sérstaklega helgaropnunin
sem hefur mikið aðdráttarafl"
sögðu þær Lydía Egilsdóttir
og Gunnþórunn Gunnars-
dóttir, eigendur Öldunnar í
Sandgerði, í samtali við blaðið.
Þær hafa ásamt eiginmönnum
sínum stækkað verslunina að
Tjarnargötu 6 í Sandgerði um
50 fermetra.
Með stækkun þessari verður
auðveldara fyrir viðskiptavin-
ina að sjá hvað verslunin hefur
upp á að bjóða og við getum
kappkostað góða þjónustu. En
það er mikið og fjölbreytt úr-
val af fatnaði fyrir alla aldurs-
hópa, vinnufatnaði, sjófatn-
aði, leikföngum og gjafavöru
og er opið til kl. 23 öll kvöld
vikunnar.
En hvaðan skyldi viðskipta-
hópurinn koma? „Af Suður-
nesjasvæðinu og víðar“ svör-
uðu þær stöllur. Hvað skyldi
þeim þá finnast um þann áróð-
ur sem nú er í gangi um að
hvetja fólk til að versla heima:
„Þessi áróður er alveg sjálf-
sagður, því ef fólk verslar ekki
heima er ekki hægt að bjóða
upp á það vöruval sem okkur
langar til, né þá þjónustu sem
til þarf. Verslun í heimabyggð
er því frumskilyrði þess að
verslunin hér suður frá þríf-
ist.“
-Haldið þið að Suðurnesja-
menn komi mikið hingað eða
fari frekar inneftir til að
versla?
„Við höfum ekki neinn sam-
anburð en þó kemur mikið af
fólki hingað af Keflavíkur-
svæðinu til að versla. Eins eru
dæmi um að fólk fari fyrst til
Reykjavíkur til að leita að ein-
hverju ákveðnu en komi síðan
hingað af því að það fékk ekki
JÓLAS
í GARÐINUM
í tilefni 10 ára
afmælis sjoppunnar
17. nóvember verður
opnaður jólamarkaður
að Heiðartúni 2, Garði.
Allt jólaöl á
stórmarkaðsverði
Leikföng, gjafavara og
margt fleira á fínu verði.
OPIÐ ALLA DAGA frá 13-18
Komdu og kíktu íafmæliskaffi
Stöllurnar Gunnþórunn Gunnarsdóttir og Lydia Egilsdóttir i versluninni Öldunni í Sandgerði.
Ljósm.: epj.
það sem það leitaði að, en fékk
síðan hjá okkur.
Eins eru dæmi um að á
Suðurnesjum fáist ódýrari
vörur en í verslunum á höfuð-
borgarsvæðinu. Vitum við t.d.
um jakka sem kostaði 5000 kr.
í Reykjavík en fékkst í búð á
Suðurnesjum fyrir aðeins 4000
krónur. Því er ekki alltaf ódýr-
ara að fara til Reykjavíkur. Þá
er örugglega vandleitað að
betri þjónustu í verslunum,
bæði matvöru- og fataverslun-
um en hér syðra og oft á tíðum
er vöruverðið síst lakara hér.
Það eru þó utanlandsferð-
irnar sem fólkið fer í sem koma
ver niður á okkur en Reykja-
víkurverslunum. Vitum við
dæmi til þess að fjölskyldur
hafi eytt 100 þúsund krónum í
þessum verslunarferðum er-
lendis og þetta sama fólk
kvartar síðan yfir lélegu vöru-
úrvali hér heima. Slíkt gengur
ekki upp. Virðast þessar versl-
unarferðir vera eitthvert tísku-
fyrirbrigði hérá Suðurnesjum í
dag.“
-En hvernig hefur þjóðfél-
agsástandið komið niður á
ykkur?
„Það er vart hægt að merkja
neinn samdrátt hjá okkur. Á
þessum árstíma er verslunin
alltaf lélegri. Hér í Sandgerði
hefur atvinna verið næg og við
höfum haft gott starfsfólk, því
erum við bjartsýn," sögðu þær
Gunnþórunn og Lydía.
Ætti fólk að láta það eftir sér
að skreppa út í Ólduna og
skoða breytingar þessar á
versluninni sem sömu aðilar,
Gunnþórunn Gunnarsdóttir,
Óli Bjarnason, Lydía Egils-
dóttir og Björn Maronsson,
hafa rekið í 17 ár.
Verslunin að Tjarnargötu 6 liefur verið stakkuð uni 50 ferm. til þess að auð-
velda viðskiptavininum að sjá hvað verslunin hefur upp á að bjóða..
Forseti bæjarstjórnar Njarðvíkur:
Vill láta torgsölu
óáreitta
Steindór Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar Njarðvíkur,
taldi í samtali við blaðið ekki
ástæðu til að flæma torgsölu
aðkomumanna frá Njarðvík,
eins og minnst var á í síðasta
tölublaði.
„Eg vil látta þetta óáreitt.
Við getum ekki bannað fólki
að koma með eitthvað ódýrara
en kaupmenn bjóða upp á. Sá
aðili sem býður kartöflur til
sölu hefur fengið leyfi okkar til
þessarar sölu og við höfum
ekkert út á þetta að setja, ef
þessir aðilar borga sín að-
stöðugjöld hingað.
Við verðum að horfa á þetta
frá tveimur hliðum, eða hvað
eigum við að gera við þessa
menn ef þeir ganga í hús og
bjóða kartöflur, rófur, græn-
meti, egg o.fl. til sölu?“ var
svar Steindórs.
Var hann því spurður hvort
hann teldi eðlilegra að leyfa
slíka sölu, sem skapaði enga
atvinnu, en að halda verndar-
væng yfir þeim kaupmönnunt
sem bjóða upp á atvinnutæki-
færi á staðnum.
Stofnað hefur verið í Njarð-
vík hlutafélag er ber nafnið
ístek h.f. Tilgangur þess er að
stunda smásölu, heildsölu,
inn- og útflutning.
Stofnendur eru Vélsmiðja
01. Olsen h.f., Jakobína
Magnúsdóttir, Karl Olsen,
Jenný Olsen og Agnar Már Ol-
sen, öll í Njarðvík.
„Ég get ekki séð að þessir
menn, sent staldra hér við í
þrjá tíma á viku, skaði kaup-
mennina, þó þeir selji ódýrari
vöru, að vísu í miklu magni.
Svo framarlega sem þeir
greiða hingað gjöld. Vill ég því
ekki flæma þessa menn í
burtu."
Hlutafélögin Húsafell h.f.,
Keflavík, og Faxi h.f., Vest-
mannaeyjum, hafa verið sam-
einuð í eitt. Mun Húsafell h.f.
því verða afmáð úr hlutafél-
agaskrá því eftir þetta heita
fyrirtækin Faxi h.f., Vest-
mannaeyjum.
- FYRIRTÆKJAFRÉTTIR -