Víkurfréttir - 17.11.1988, Blaðsíða 11
mun
futUt
Fimmtudagur 17. nóvember 1988 11
IVi HEIMA
Reiðhjólaverkstæði M.J.:
„Meira hjólað
væri aðstaða
fyrir hendi"
„Það er mikið hjólað hérna
á Suðurnesjum en það væri
mikið meira um það að fólk
hjólaði, ef einhver aðstaða
væri fyrir hendi. Það hefur al-
veg gleymst hjá bæjaryfirvöld-
um að það eru til hjól. Það eru
lagðir reiðvegir en ekki hjól-
reiðavegir. Það er til dæmis
ekki hjólandi niður Hafnar-
götuna,“ sagði Sigurður Ei-
ríksson, eigandi Reiðhjóla-
verkstæðis MJ, í samtali við
blaðið. Sigurður rekur eitt af
þessum gamalgrónu fyrirtækj-
um við Hafnargötuna, sem
verslar með reiðhjól og vara-
hluti fyrir þau. Eftirað Sigurð-
ur tók við rekstri fyrirtækisins
fyrir þremur árum síðan hefur
hann þó bætt við ýmsum
,,aukabúgreinum“, ef það má
orða það á þann veg, því fyrir
utan hjólin býður Sigurður
upp á allt fyrir pílukastáhuga-
manninn og snókerspilarann,
svo eitthvað sé nefnt. En
hvernig lýst Sigurði á ástandið
í verslunarmálunum? Finnst
honum mikið um það að fólk
fari til Reykjavíkur til þess að
kaupa sér hjól?
„Það fer alltaf eitthvað til
Reykjavíkur en ég er ekki viss
um að það sé mikið um það.
Hjólin eru á sama verði og
innfrá, nema hvað flutnings-
kostnaður leggst á verðið. Eg
er með hjól frá öllum aðilum í
Reykjavík og einnig viðgerðar-
þjónustu.“
-Hvernig gengur að halda
uppi varahlutaþjónustu fyrir
öll þessi hjól?
„Eg er með varahluti í öll
hjól. Að vísu hefur gengið erf-
iðlega með bæði frönsk og am-
erísk reiðhjól. Þýsk hjól eru
gegnumgangandi á markaðn-
um. Þau bandarísku eru svo-
lítið frábrugðin.“
-Ahugi fyrir hjólreiðum, fer
hann vaxandi eða er áhuginn í
lægð?
„Ahuginn hefur aukist í
sumar. Það eru aðallega ungl-
ingar sem hjóla. Fyrst voru
þetta alltaf unglingar og kven-
fólk sem hjóluðu, en það er að
færast í vöxt að karlmenn séu
farnir að hjóla.“
-Verð á hjólum?
„Verð á hjólum er mjög lágt
miðað við t.d. krakkaleikföng
og notagildið er ólíkt meira.“
-Nú hefur þú aukabúgreinar
með hjólasölunni og viðgerð-
unum, pílur, píluborð, billiard
og ýmislegt fleira.
„Pílan er alltaf í gangi. Ég er
með alla nauðsynlega hluti,
bæði allar gerðir af nýjum
hlutum ogeinnig varahluti. Þú
getur fengið pílur fyrir frá 300
til 3000 krónur og allt þar á
milli. Þá verð ég einnig með
sýnishorn af billiard- og tenn-
isborðum. Ég reyni að útvega
hluti strax. Ef komið er að
morgni, þá ætti hluturinn að
vera kominn að kvöldi.“ Sig-
urður sagði ennfremur um píl-
una: „Þetta er sport sem er að
aukast. Spjöld eru oft á vinnu-
stöðum og þú getur verið með
pílurnar í vasanum.“
Þegar litið er yfir verslunina
gefur að líta hluti til hinna
ýmsu nota. Þrektæki, krikket
eða hornabolti, mikið úrval af
módelum og leikföngum. Ekki
vantaði hjólaskautana og
hjólabrettin, sem eru að ryðja
sér til rúms hér á landi og eru
þegar orðin mjög vinsæl. í
einni hillunni mátti sjá amer-
HÖLDUM FJÁRMAGNI í HEIMABYGGÐ
„Pílan er alltaf vinsæl“, segir Sigurður Eiríksson í Reiðhjólaverkstæði M.J. Ljósm.: hbb.
ískan fótbolta. „Ameríski fót-
boltinn er að verða vinsæll hér
á landi og gengur nokkuð út
hjá okkur núna.“
-Svona undir lokin, ef við
snúum okkur aftur að reið-
hjólunum, eru þau af sama
gæðaflokki og á árum áður?
„Hjól eru svipuð að gæðum
og áður. Þau hjól sem hér fyrr
á árum voru vinsælust eru í
dýrari kantinum í dag. Mest
seldu hjólin í dag eru ekki í
sama gæðaflokki og áður, en
þau eru til. íslendingar eru allt
of frjálsir í því að kaupa reið-
hjól. Til dæmis er ég með
fimmtíu hjólategundir í gangi
þessa dagana,“ sagði Sigurður
Eiríksson í Reiðhjólaverkstæði
MJ að lokum.
Leiksýning og
þríréttaður matseð-
ill - aðeins 2000 kr.
ERUM VIÐ SVONA?
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir
„Svona erum við“ um helgina.
Sýning föstudagskvöld 17. nóv. kl. 21.
Sýning laugardagskvöld 18. nóv. kl. 21.
Sýning sunnudagskvöld 19. nóv. kl. 21.
Munið sunnudags-
fjölskylduhlaðboröið
frá kl. 12-14:30 og
18-21 á aðeins
1.050.- kr.
Fritt fyrir 8 ára og
yngri - '/2 fyrir 12 ára
og yngri.
barnahorn
með vldeoi.
HARPA
gefur lífinu lit!
MÁLNINGARSALA ÓLA
BOLAFÓTUR 3, NJARÐVÍK. SÍMI 12471.
SENDING AF STÖKUM JÖK^UM FRÁ
KR. 9.900 JAKKAFÖTUM FRA 13.900
SKYRTUM FRÁ KR. 2.400 og mörgu fleiru
PERSÓNA
Hafnargötu 61 - Keflavík - Sími 15099
- Þegar þú kaupir föt