Víkurfréttir - 17.11.1988, Síða 12
12 Fimmtudagur 17. nóvember 1988
TIL SÖLU
Húsnæði Samvinnubankans, Hafn-
argötu 62, Keflavík, er til sölu. Eign-
in er á tveimur hæðum, ca. 300 fer-
VlHUIAfiOtí*
Hluti keppendanna í Hljóðnemakeppni FS, sem haldin var í Stapanum.
metrar.
Nánari upplýsingar veittar í útibúinu
Keflavík, sími 11288, og í aðalbanka
hjá Friðriki Weisshappel, síma 91-
20700.
Samvinnubanki
r
Islands
SUÐURNESJAMENN!
- verslum heima.
Bergur sigraði í
hljöðnemakeppni
Fjölbrautaskólans
Bergur Þ. Ingólfsson, nem-
andi í Fjölbrautaskóla Suður-
nesja, söng sig inn í hjörtu
ballgesta í Stapanum um þar-
síðustu helgi. Þá var haldin
nýstárleg keppni á vegum
Nemendafélags FS, svokölluð
Hljóðnemakeppni. Sextán
þátttakendur, í öllum stærð-
• j§l»,
Þessir sjálfsögðu hlutir...
Rafmagn og hiti er snar þáttur í lífi okkar, þó við veitum því
varla athygli. Heimilið gengur nánast fyrir rafmagni,- sjónvarp-
ið, þvottavélin, eldavélin og ekki viljum við vera í myrkri. Nota-
legt, heitt bað og fullir ofnar af heitu vatni þykja einnig sjálf-
sagðir hlutir. Allri þessari ,,sjálfsögðu“ orku er dreift til okkar
af Hitaveitu Suðurnesja, sem leggur metnað sinn í stöðuga og
hnökralausa dreifingu til neytenda.
Til að tryggja að einn daginn verði ekki svarta myrkur í húsinu
og aðeins kalt vatn í baðinu er vissara að láta orkureikninginn
hafa forgang. Ógreiddir reikningar hlaða á sig háum vaxta-
kostnaði sem veldur því að orkan er nær þriðjungi dýrari hjá
þeim skuldseigustu,- þar til þeir vakna upp við vondan draum
og allt lokað....
HITAVEITA SUÐURNESJA - lnnheimtudeild
ar-, breiddar-, kyn- og hljóð-
flokkum, tóku þátt í keppn-
inni sem þótti jöfn og spenn-
andi allt frá upphafl til ioka.
Bergur var þó einna jafnastur
keppenda.
Að sögn heimildarmanna
blaðsins innan Fjölbrauta-
skólans var fjölmenni á ball-
inu og margir sem fylgdust
með. Meðfylgjandi ljósmyndir
tóku hirðljósmyndarar NFS,
þeir Ingólfur og Benni, við
þetta tækifæri.
Sigurvegarinn, Bergur Þ. Ingólfsson, söng af mikilli innlifun eins og
sést hér, og sigraði í keppninni.
Formannsskipti
hjá Alþýðuflokks-
félagi Keflavíkur
Ný stjórn var kosin á aðal-
fundi í Alþýðuflokksfélagi
Keflavíkur, sem haldinn var
um þar síðustu helgi. Fráfar-
andi formaður, Hermann
Ragnarsson, gaf ekki kost á
sér sökum anna.
Núverandi stjórn er þann-
ig skipuð: Kristján Gunnars-
son, formaður, Hrafnhildur
Gunnarsdóttir, gjaldkeri,
Karl E. Ólafsson, ritari, og
Ólafur Eyjólfsson og Herm-
ann Ragnarsson, meðstjórn-
endur. I varastjórn eru þau
Svava Ásgeirsdóttir og Guð-
jón Þórhallsson.