Víkurfréttir - 17.11.1988, Qupperneq 18
18 Fimmtudagur 17. nóvember 1988
ViKurt
julU,
... eða Valþór og Þorsteinn?
Þótt Hólmbert sé et'stur á
óskalistanum hjá mörgum hvað
varðar þjálfun ÍBK liðsins, þá
hefur fleiri hugmyndum^skotið
upp kollinum. Hin er sú að fá
Þorsteinn Bjarnason og Valþór
Sigþórsson, sem þjálfaði Sand-
gerðinga núsíðast. til að takalið-
ið í sameiningu. Samkvæmt
heimildum blaðsins eru ali flest-
ir sammála því að heimamaður
eða -menn verði ráðnir ; þjálf-
arastöðuna. Hafa nöfn Astráðs
Gunnarssonar og Steinars Jó-
hannssonar mikið verið nefnd í
þessu santbandi en þeir hafa
báðir náð ágætum árangri með
yngri flokka ÍBK.
Handbolti - 2. deild:
„Réttum þeim
sigurinn
á silfurfati"
- sagði Ölafur Thordersen eftir
sögulegan sigur ÍBK á UMFN
„Við áttum þetta inni og
þó svo að við höfum stolið
sigrinum á síðustu sekúnd-
unum, þá var sigur okkar
sanngjarn. Við vorum með
frumkvæðið í leiknum allan
tímann og lékum betur. En
heppnin var með okkur að
þessu sinni,“ sagði Haukur
Ottesen þjálfari ÍBK, sem
sigraði Njarðvík í æsispenn-
andi leik í Njarðvík á föstu-
dagskvöldið, 29:28. Keflvík-
ingar höfðu yfir í leikhléi,
16:14.
Svo virðist sem Keflvík-
ingar séu með tak á nágrönn-
um sínum. Þeir mættu miklu
ákveðnari til leiks og lögðu
allt í sölurnar. Njarðvíking-
ar virtust ekki alveg með á
nótunum en náðu þó að
halda í við Keflvíkinga, sem
leiddu allan tímann með 2-3
mörkum. Með harðfylgi
tókst UMFN að jafna þegar
hálf mínúta var til leiksloka,
28:28, og Keflvíkingar voru
tveimur leikmönnum færri.
Þegar 12 sekúndur voru eftir
kom Hafsteinn Ingibergsson
inná aftur og þá reyndi
Björgvin Björgvinsson skot
en Einar Ben varði. Einar
ætlaði síðan að gefa á sam-
herja sinn en tókst ekki betur
til en svo að Hafsteinn fékk
boltann beint í hendurnarog
hugsaði sig ekki um tvisvar
heldur skaut og skoraði og
tryggði Keflvíkingum sigur í
ótrúlegum leik. Njarðvíking-
ar fengu ekki tækifæri til að
taka miðju. Leikurinn var
búinn.
„Þetta var grátlegur endir.
Við vorum búnir að jafna
eftir að hafa verið undir allan
leikinn en svo réttum við
þeim sigurinn á silfurfati“
sagði Olafur Thordersen,
Njarðvíkingur, eftir leikinn.
„Við áttum skilið að sigra.
Það hefði verið grátlegt ef við
hefðum misst annað eða
bæði stigin. Baráttan hjá
okkur var góð í þessum leik
og þessi sigur hressir upp á
mannskapinn. Við höfum
tapað nokkrum leikjum af
því við höfum ekki haldið
haus á lokamínútunum.
Litlu munaði að það gerðist
núna en heppnin var með
okkur í lokin“ sagði Gísli Jó-
hannsson, einn besti maður
IBK í leiknum.
Með þessum sigri lyftu
Keflvíkingar sér upp eftir
stigatöílunni . og eru nú
komnir með 4 stig. Njarðvík-
ingar eru með 5.
Bestu menn liðanna voru
þeir Björgvin Björgvins og
Gísli Jóhanns hjá IBK en
Eggert Isdal hjá UMFN, sér-
staklega á lokamínútunum.
Mörk UMFN: Eggert 11,
Arinbjörn 6, Sigurjón 5,
Guðbjörn 4 og Magnús T. 2.
Mörk ÍBK: Björgvin 8,
Gísli 7, Hafsteinn 6, Olafur
Lár. 5, Hermann 2 og Jó-
hann Júl. 1.
Fjórir efstu menn í íslandsmótinu í pílukasti. F.v.: Þór Kristinsson, Pétur Hauksson, íslandsmeistari, Guðjón
Hauksson og Oskar Þórmundsson. Ljósm.: Eirikur Eysteinsson
Pétur vann bræðraslaginn
- og varð Islandsmeistari í pílukasti
Enginn leikmannaflótti
Leikmannahræringar hafa
talsvert verið í umræðunni
manna á milli. Ragnar Mar-
geirsson og Sigurður Björgvins-
son voru sagðir vera á leiðinni til
KR en það mun ekki vera fótur
fyrir þeirri fregn. Þá mun Óli
Þór Magnússon ætla að vera
áfram í herbúðum ÍBK en hann
var orðaður við önnur félög.
Ekki er vitað um leikmenn sem
eru á leiðfrá ÍBK að undanskild-
um' þeim Guðmundi Sighvats-
syni og Einari Ásbirni Ólafssyni,
sem hafa hug á því að setja
skóna á hilluna.
Ársþing IBK um helgina:
Tekur Ragnar við af Ragnari?
- sem næsti formaður bandalagsins?
Ársþing ÍBK verður hald-
ið í íþróttavallarhúsinu í
Keflavík n.k. laugardag kl.
10. Auk formannsskipta
verður mál knattspyrnuráðs
ÍBK án efa mál málanna á
þinginu.
Ragnar Marinósson, nú-
verandi formaður ÍBK, mun
ekki gefa kost á sér til áfram-
haldandi starfa í því em-
bætti. Nafni lians, Ragnar
Örn Pétursson veitingamað-
ur, hefur verið nefndur sem
arftaki hans. Hvað mál
knattspyrnuráðs varðar þá
bíða ntenn eflaust spenntir
eftir að fá að sjá reikninga
ráðsins sem hafa verið til
mikillar umræðu að undan-
förnu. Ljóst er að nýr for-
maður tekur við ráðinu.
Rúnar Lúðvíksson lögreglu-
maður, en hann mun stýra
nýju knattspyrnuráð sem
mun byrja á „núlli“. Talað er
um að knattspyrnuráð sitji
uppi með margra milljóna
skuldahala. Nokkuð víst er
að eftir ársþingið verður
skipuð skilanefnd sem er
ætlað að vinna að því að leysa
mál knattspyrnuráðs.
Á þinginu verður einnig
íþróttamaður Keflavíkur úi-
nefndur.
Fimm Suðurnesja-
dömur í landsliðinu
Fimm stúlkur úr ÍBK eru í
unglingalandsliðinu I körfu-
knattleik, semerá keppnisferða-
lagi í Englandi um þessarmund-
ir. Þetta eru þær Bylgja Sverris-
dóttir, Eva Björg Sveinsdóttir,
Jana Guðmundsdóttir, Kristín
Blöndal og Marta Guðmunds-
dóttir. Ein stúlka úr Njarðvík er
í hópnum, Harpa Magnúsdóttir.
8. sigur ÍBK
ÍBK stúlkurnar í 1. deild
kvenna í körfu sigruðu í sínum
áttunda leik í röð i deildinni er
þær léku gegn IR fyrir skömmu.
Lokatölur urðu 72:57 eftir að
ÍBK hafði verið yfir í leikhléi
30:19. Björg Hafsteinsdóttir
skoraði mest, 20 stig, Anna
María 19 og Marta Guðmunds-
dóttir 15.
Tap hjá UMFN
UMFN tapaði illilega fyrir
Stúdínum í Seljaskóla fyrir
skömmu, 33:55. Stúdínur náðu
afgerandi forystu strax í leikn-
um, höfðu yfir, 31:14, í leikhléi
og juku forskotið í seinni hálf-
leik.
---------------------i
Hólmbert Friðjónsson erefst-
ur á lista hjá Keflvíkingum sem
þjálfari knattspyrnuliðsins
næsta keppnistímabil. Rætt hef-
ur verið við Hóimbert og sam-
kvæmt heimildum blaðsins hef-
ur hann sýnt starfinu áhuga.
Hólmbert, sem er einn virtasti
þjáifari iandsins, var siðast með
IBK 1986 en hann hefur þjálfað
stóriið á borð við Fram og KR
með góðum árangri.
Björgvin Björgvinsson, Keflvíkingur, á Itér skot að marki UMFN. Hann var
atkvæðamestur Keflvíkinga í leiknum. Ljósm.: pkct.
Þjálfar Hólmbert ÍBK ...
Pétur Hauksson varð ís-
landsmeistari í pílukasti er
hann sigraði bróður sinn,
Guðjón, í úrslitaviðureign í
beinni útsendingu á Stöð 2 á
laugardaginn. Pétur sigraði í
fjórum viðureignum en Guð-
jón aðeins í einni. Þeir bræður
sýndu snilldartilþrif í úrslitun-
um og var ekki að sjá að bein
útsending hefði nein áhrif á þá.
í 3.-4. sæti urðu þeir Óskar
Þórmundsson og Kristinn Þór
Kristinsson. Fjórir efstu menn
sem eru allir af Suðurnesjum,
bræðurnir úr Grindavík, Ósk-
ar úr Keflavík og Kristinn úr
Sandgerði, munu skipa lands-
lið Islands sem mun keppa á
alþjóðlegu móti á næsta ári.
i Guðmundur Valur til ÍBK i
Þá hefur heyrst að Guðmund- I sé á heimleið og hafi hug á að I
■ ur Valur Sigurðsson, fyrrum ganga til liðs við Keflvíkinga. |
■ Njarðvíkingur og síðast Þórsari,
L— ____________________________________________I