Víkurfréttir - 17.11.1988, Side 20
mun
Fimmtudagur 17. nóvember 1988
AFGREIÐSLA BLAÐSINS
er að Vallargötu 15. -.Símar 14717, 15717.
TÉKKAREIKNINGUR
SPURÐU SPARISJÓÐINN
IVEikill stærðarmunur á
báta- og togarafiski
Stærðarmunur bátaþorsks og togarafisks hefur mikið verið í umræðunni. A mvnd þessari sést best um
hvað verið er að ræða. Þó golþorskurinn sé af stærri gerðinni, þá veiddist hann á línu hjá Eldevjar-Boða.
Til samanburðar sjást þorskar af sömu stærð og dæmigerður togarafiskur. Ljósm.: epj.
Atvinnumálaneínd Suðurnesja:
Áskorun til
þingmanna og
sveitarstjórn-
armanna
Eftirfarandi ályktun var
samþykkt á fundi Atvinnu-
málanefndar Suðurnesja síð-
asta þriðjudag:
„Atvinnumálanefnd Suður-
nesja skorar á þingmenn
Reykjaneskjördæmis og sveit-
arstjórnamenn á Suðurnesjum
að koma í veg fyrir að fleiri
skip verði seld burt af svæðinu
og jafnframt að gert verði sér-
stakt átak til að endurreisa og
viðhalda útgerð og fiskvinnslu
á Suðurnesjum.
Á síðastliðnum íjórum ár-
um h?fa verið seld skip burt af
Suðurnesjum með 17.000
tonna kvóta. Eins og allir ættu
að vita hefur þetta víðtæk áhrif
á alla atvinnustarfsemi. Fyrir-
huguð togaraskipti hjá HK tel-
ur nefndin ekki ganga upp
vegna mikilla skulda sem eftir
stæðu hjá HK.
Atvinnumálanefnd Suður-
nesja telur það siðferðislega
skyldu stjórnar HK að stuðla
að því að togarar fyrirtækisins
verði ekki seldir burt af svæð-
inu.“
SKARFUR
kominn úr
endurbótum
Grindavíkurbáturinn Skarfur GK 666 er kominn úr um-
fangsmiklum endurbótum, sem framkvæmdar voru íReykja-
vík. Hefur áður verið greint frá því hvað framkvæmt var. Er
skipið nú farið til síldveiða. Ljósm.: hbb.
Erum við svona?
Leikfélag Keflavíkur frum-
sýnir annað kvöld, föstudag,
íslenska revíu eftir Huldu Ól-
afsdóttur, sem jafnframt er
leikstjóri. Sautján leikarar
taka þátt í sýningunni, auk
fjögurra manna hljómsveitar.
Sýningar verða á Glóðinni og
hefjast kl. 21, föstudag, laug-
ardag og sunnudag.
Meðfylgjandi ljósmynd var
tekin á æfingu hjá Leikfélagi
Keflavíkur í siðustu viku.
Ljósm.: hbb.
—
41 ii'i ■ m m
TRÉ
TRÉ-X byggingavörur
Iðavöllum 7 - Keflavík - Sími 14700
Hlp
Ég er svona, og skammast
mín ekkert fyrir það . . .