Víkurfréttir - 21.12.1989, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fjölmenni við útför Bjarna F. Halldórssonar
Mikið fjölmenni var við útför Bjarna F. Halldórssonar, fasteignasala og fyrrum skólastjóra, er fram
fór frá Ytri-Njarðvikurkirkju á föstudag. Séra Þorvaldur Karl Helgason jarðsöng, en félagar úr Odd-
fellowstúkunni Nirði stóðu heiðursvörð og báru hinn látna úr kirkju. Ljósm.: epj.
Foreldrar
athugið!
Er með laus pláss fyrir börnin ykkar, fyrir há-
degi, strax eftir áramót. Er fóstra með dag-
mömmuleyfi. Upplýsingar fyrir hádegi og eftir
kl. 18.00 alla daga í síma 14054 (íris).
Yikurfréttir
21. des. 1989
Þrátt fyrir kulda og rok var ijölmennt er kveikt var á jólatrénu í
Keflavik á dögunum. Voru þá meðfylgjandi myndir teknar af ungu
kynslóðinni í söng og á „hest“-baki. Ljósm.: hbb.
JÓLAFÖTIN FRÁ Po/cWon
Vorum að taka upp
mikið af nýjum, fall-
egum jólafatnaði.
SKYRTUR - PEYSUR
STAKIR ULLARJAKKAR
JAKKAFÖT - DÖMU-
DRAGTIR OG MARGT
FLEIRA...
Gleðileg jól - þökkum viðskiptin
Pe/cMon
Kuldaskór
-kærkomin jólagjöf
■Skébúdin /Ce/lavífcHF,
Hafnargötu 35 Keflavík
Sími 11230
Harður árekst-
ur við Voga-
afleggjara
Mjög harður árekstur tveggja
b'i.Yeiða, er komu úr gagnstæðri
átt, varð síðdegis á mánudag á
Reykjanesbraut, við Vogaaf-
leggjara. Ástæðan mun hafa
verið sú, að bifreið, er ók inn
brautina, beygði í veg fyrir bif-
reið er kom innan að.
Fernt var í bifreiðunum og
var það allt flutt á sjúkrahúsið
í Keflavík, en þó er ekki talið
að um alvarleg slys hafi verið
að ræða. Til að losa fólkið úr
bilunum þurfti að fá á staðinn
hinn nýja björgunar- og
slökkvibíl Brunavarna Suður-
nesja. Þá komu ástaðinn tveir
sjúkrabílar frá sama aðila, auk
lögreglu úr Hafnarfirði og
Keflavík.
Fyrrnefnda lögreglan var á
brautinni við radarmælingar, í
samráði við heimamenn. Bæði
ökutækin, er lentu í árekstrin-
um, voru óökufæreftiróhapp-
ið.
Utgefandi: Víkurfréttir hf. --------------------------------------------------------------------------------------
Afgreiösla, rítstjórn og auglýsingar: Vallargötu 15, símar 14717,15717, Box 125, 230 Keflavík. - Rltstjórn: Emil Páll
Jónsson, heimas. 12677, bílas. 985-25916, Páll Ketilsson, heimas. 13707, bilas. 985-25917. - Fréttadeild: Emil Páll
Jónsson, Hilmar Bragi Bárðarson. - Auglýsingadeild: Pál I Ketilsson. - Upplag: 5600 eintök sem dreift er ókeypis um
öll Suðurnes. - Aðili að Samtökum bæja- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráðs. - Eftirprentun,
hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimildar sé getið.
Setning, filmuvinna og prentun: GRÁGÁS HF., Keflavik