Víkurfréttir - 21.12.1989, Blaðsíða 8
8
HATTURINN
„Keyptir þú hattinn fyrir jól-
in, sem þú varst brjáluð í?“
„Já, reyndar,“ sagði frúin.
„Hvað sagði maðurinn?“
„Hann var líka brjálaður."
ÞRJÚ ORÐ
„Kalli minn, þú átt að læra
þrjú orð fyrir morgundaginn,"
sagði kennarinn.
„Já,“ sagði Kalli.
Þegar heim kom sagði Kalli
litli við systur sína: „Systir, ég
á að læra þrjú orð fyrir morgun-
daginn.“
„Þegiðu,“ sagði systirin.
Við bróður sinn sagði Kalli
hið sama og bróðirinn svaraði:
„Supermann.“
Að síðustu sagði Kalli móður
sinni að hann xtti að læra þrjú
orð fyrir morgundaginn.
„Já, elskan," svaraði móðir
hans.
Þegar Kalli síðan kom í skól-
ann spurði kennarinn Kalla
hvaða orð hann hafi lært. „Þeg-
iðu,“ svaraði Kalli. Kennarinn
byrsti sig og sagði: „Hvað þyk-
ist þú vera?“ Kalli: „Super-
mann.“ Kennarinn sagði þá:
„Nú kemur þú til skólastjór-
ans.“ Þá svaraði Kalli: „Já,
elskan.“
Þessa brandara sendi Smári
Logi Kristinsson, Hafnargötu
68 í Keflavík.
Til jóla frá Dropanum
STAKAR MOTTUR:
60x120 cm ....
77x135 cm ....
120x180 cm ....,
165x240 cm ....,
140 cm hringur
frá kr. 1.824
frá kr. 2.448
frá kr. 5.088
frá kr. 9.612
frá kr. 5.174
Bómullarmottur:____________
60x120 kr. 1.550 - 70x140 kr. 1.620
Eldhúsmottur frá kr. 2.470
Baðmottur og sett í úrvali.
SKÓSKÁPAR: STÖK TEPPI:
Fyrir 30 pör ... kr. 12.838 60x120 cm........ frá kr. 1.824
Fyrir 18 pör... kr. 9.185 DREGLAR: 1 m. .. kr. 1.616 pr. m.
80 cm kr. 986 pr. m.
Svart króm - Einfaldir rekkar:
5 hæða............... kr. 9.670
Svartir einfaldir rekkar:
2ja hæða kr. 3.929
3ja hæða kr. 5.677
4ra hæða kr. 7.220
5 hæða kr. 8.791
Rörberahillur:________________
Tvöfaldur skrifborðsrekki
í hvítu ........... kr. 15.230
Gier og króm - Einfaldir rekkar:
2ja hæða .......... kr. 5.873
3ja hæða .......... kr. 8.379
4ra hæða........... kr. 11.137
5 hæða............. kr. 13.245
Plastrimlagluggatjöld:
Hvít - bleik - svört - og grá.
Breidd fra 50x160 cm upp í 180x160.
Gleðileg jól, þökkum
viðskiptin á árinu. Á wfOpillA Hafnargötu 90 - Simi 14790
mdar'
\Íkurfréttir
21.des.1989
grín ■ gagnrýni
vangaveltur ■
un^sjón."emil páll.*t
Hvað getur umræðan
um gervigrasið gengið
lengi?
Það er alveg furðulegt hvað
íþróttaráð Keflavíkur fundar
mikið og bókar um gervigras,
á sama tíma og bæjarstjórn
Keflavíkur hefur látið það frá
sér fara, að umræðan sé ótíma-
bær sökuni fjárskorts. Virðist
sem íþróttaráðsmönnum komi
fjárhagsstaða bæjarins ekkert
við, gervigrasið skuli koma
hvað sem tautar og raular.
Hafa þeir því leitað tilboða í
slíkt efni, auk þess sem farnar
hafa verið skoðunarferðir til
að sjá efni þetta á leikvöllum.
íþróttaráð og
almenn samkeppni
Þó umræðan um gervigrasið
sé orðin leiðigjörn, þá virðast
þeir í íþróttaráði vera fjarri
góðu gamni á öðrum sviðum.
A.m.k. fylgjast þeir ekki vel
með gerðum bæjarstjórnar
Keflavíkur, sem þó er þeirra
yfirboðari. Annað dæmi um
það er umræða um að sundfél-
agið eigi að fá afnot af þrek-
miðstöð í sundmiðstöðinni. Er
þetta í allt aðra veru en álit
nefndar um rekstur sundmið-
stöðvar var, en hún skilaði áliti
sínu fyrir skemmstu við góðan
orðstír. Leggur nefndin til að
aðilum, s.s. sólbaðsstofum
verði gefinn kostur á að bjóða í
aðstöðuna. Þetta virðist
íþróttaráð ekki vilja eða ekki
vilja vita af.
Óskar inn á
atkvæðum krata
Fyrr í haust var Óskar Guð-
jónsson, málari og frammari í
Sandgerði, ráðinn í stöðu verk-
stjóra Miðneshrepps. Vakti
það athygli, að Óskar fékk 4
atkvæði, en yfirlýstur krati,
eða óháður, eins og það heitir á
þeim bæ, fékk aðeins tvö at-
kvæði. Virðist því einsýnt að
Óskar hafi fengið stöðuna út á
atkvæði eins krata er spilaði út
fölsku spili, því þriðji aðili
fékk 1 atkvæði.
Jón A. og Böðvar
í framboð?
Fréttir berast af því að
íhaldið í Njarðvík leiti nú log-
andi Ijósi að nýju blóði á fram-
boðslista í komandi bæjar-
stjórnarkosningum. Hafa
heyrst nöfneins ogJónsA. Jó-
hannssonar, heilsugæslulækn-
is, og Böðvars Jónssonar, for-
manns UMFN. Þó er vitað að
fleiri flokkar en íhaldið hafa
leitað til þess síðarnefnda.
Heitar umræður
í framsókn
Frá framsókn í Keflavík
berast þær fregnir að hart sé
barist bak við tjöldin um efstu
sæti listans. Þorsteinn Árna-
son vilji fá fast sæti í stað vara-
mannssæti og Skúli Skúla
leggi áherslu á fyrsta sætið og
þá jafnvel að Þorsteinn verði
með honum, í 2. sæti. Einnig
heyrast fréttir af því að ífðrir
flokksmenn liggi í Magnúsi
Haralds að halda áfram. I um
ræðunum er minna rætt um
hvað verði um Drífu.
Hannes vill 1. sætið
Hjá krötum eru framboðs-
málin einnig í sviðsljósinu og
hafa borist fréttir af því, að
Hannes Einarsson telji sigeiga
að fá 1. sætið nú og að Anna
Margrét fylgi honum. Sem
kunnugt er stefndi hann á um-
rætt sæti síðast en hafnaði í 3.
sæti við prófkjör. Hafa heyrst
þær fregnir, að Hannes kæri
sig lítið um að hafa þá Guðfinn
og Vilhjálm á lista með sér.
Óvissan í Njarðvík
Þá berast nú þær fréttir að
kratarnir Guðjón og Eðvald
og frammarinn Steindór séu
allir að hugsa um að draga sig í
hlé frá bæjarmálum í Njarð-
vík. Með þennan síðastnefnda
hefur það komið mörgum á
óvart.
Illa séðir farandsalar
Kaupmenn hér syðra voru
heldur óhressir á dögunum, er
verslanirnar Trax og Caskó úr
Reykjavík slógu upp fata-
markaði í húsnæðinu viðTangó
um helgi eina. Töldu þeir veg-
ið að hagsmunum sínum með
þessu og gætu því ekki sætt sig
við að sitja við sama borð og
farandsalar, er kæmu hingað
með varning sinn í upphafi
jólasölunnar. Þrátt fyrir ýms-
ar aðgerðir tókst þeim ekki að
stöðva söluna. Nú berast frétt-
ir af slíkuin uppákomum í
Vestmannaeyjum, þar sem
kaupmenn reyndu líka hvað
þeir gátu, en án árangurs. Þar
höfðu þeir þó bæjaryfirvöld
með sér.
„Minnstu ekki á hann
ógrátandi“
Það er óhætt að fullyrða að
núverandi fjármálaráðherra
hefur tekist að skapa sér mikia
óvild í röðum sveitarstjórnar-
manna og þá sér í lagi hér á
Suðurnesjum. Nægir að benda
þar á mál eins og Gjaldheimt-
una og Landshöfnina og mörg
önn,ur. Gjaldheimtumálið var
sérstaklega tekið fyrir í leiðara
jólablaðs Reykjaness og er
merki um fáheyrðan atburðog
þá ekki síst með tilliti til þess
að umræddur fjármálaráð-
herra er varaþingmaður síns
flokks fyrir Reykjaneskjör-
dæmi. Einn sveitarstjórnar-
maður sagði við molahöfund
er minnst var á Olaf Ragnar,
„minnstu ekki á hann ógrát-
andi", og eru þau orð táknræn
fyrir marga sveitarstjórnar-
menn hér syðra þessar vikurn-
ar.