Víkurfréttir - 21.12.1989, Qupperneq 18
18
Jólaleikur
Yíkurfréttir
21. des. 1989
FRETTA- OG IÞROTTA
Frétta-
getraun
Nú bregðum við á leik og
sláum hér fram fréttagetraun
Víkurfrétta, unnar úr fréttum
Víkurfrétta frá árinu 1989.
Um er að ræða 24 spurningar,
tvær úr hverjum mánuði. Við
gefum þrjá svarmöguleika, en
einungis einn þeirra er sá rétti.
Nú er bara að sjá hvað minnið
er gott...
1. Allir innanstokksmunir og
veggklæðningar voru rifnar inn-
an úr Innri-Njarðvíkurkirkju
fyrr á árinu. Af hvaða ástæðu
var það gert?
A. Kirkjan brann illa í elds-
voða.
B. Utgerðaraðilar í Sandgerði
hyggjast opna þar bjórkrá.
C. Breyta á kirkjunni í upp-
runalegt form.
2. Athafnamaður einn af höfuð-
borgarsvæðinu sýndi Sjöstjörn-
unni í Njarðvík mikinn áhuga á
árinu. Hvað heitir maðurinn?
A. Rolf Johansen.
B. Herluf Clausen.
C. Kristinn Kristinsson.
3. Upp á síðkastið hefur verið
rætt um fyrirtæki nokkuð sem
áhuga hefur á að setja upp verk-
smiðju í Helguvík. Hvernig
verksmiðju er verið að ræða
um?
A. Hvalstöð og lýsisverk-
smiðju.
B. Stálbræðslu.
C. Þilplötuverksmiðju.
4. Mildi þótti að ekki varð stór-
slys í iðnaðarhverfi í Njarðvík í
sumar er mikil sprenging varð.
Hvað sprakk?
A. Gaskútur í vélsmiðju.
B. Lakkklefi á sprautuverk-
stæði.
C. Bæjarstjórn Njarðvíkur.
5. Mikið tilstand varð á Mið-
ncsheiðinni í sumar er fjöldi
handariskra dáta voru þar með
alvæpni. Hvað voru dátarnir að
gera?
A. Utrýma sílamávum fyrir
veiðistjóra.
B. A heræfingunum „Norður-
víkingur1'.
C. I skoðunarferð á vegum
Atlantshafsbandalagsins.
6. Nokkuð var kvartað til Hita-
veitu Suðurnesja á árinu vegna
áveðins vandamáls er komið
hafði upp. Yfir hverju var kvart-
að?
A. Háum orkureikningum.
B. Tæringu í ofnum.
C. Söltu hitaveituvatni.
7. SBK yfirtók á árinu rekstur
sérleyfisfyrirtækis. Hvaða fyr-
irtækis?
A. Steindór Sigurðsson.
B. Aðalstöðin.
C. Sérleyfisbifreiðir Selfoss.
8. Vangaveltur voru um það á
árinu hvort Fiskmarkaði Suð-
urnesja yrði lokað um áramót
vegna ákvcðins vandamáls.
Hvaða vandamáls?
A. Vegna of lágs fiskverðs.
B. Vegna lagaákvæðis um fisk-
markaði.
C. Vegna húsnæðisvanda í
Grindavík.
9. Tvö sveitarfélög á Suðurnesj-
um samþykktu á árinu að hefja
formlegar sameiningarviðræð-
ur. Hvaða sveitarfélög voru
þetta?
A. Keflavík og Sandgerði.
B. Garður og Hafnir.
C. Hafnir og Njarðvík.
10. Á afmæli Keflavíkurbæjar í
vor var afhjúpað listaverk eftir
Erling Jónsson við höfnina.
Hvaða listaverk?
A. Mánahesturinn.
B. Stjáni blái.
C. Þotuhreiðrið.
11. Björgunarsveitarmenn í
Höfnum björguðu á land stór-
merkilegum hlut áhaustdögum.
Hvaða hlut?
A. Skrúfu rússneska skemmti-
ferðaskipsins Maxim Gorky.
B. Skírnarfonti úr Kirkjuvogs-
kirkju frá 16. öld.
C. Ankeri úr gömlu timbur-
skipi.
12. Deilur sköpuðust um veit-
ingastað á árinu, Píanóbarinn,
vegna ákveðins máls. Hvaða
máls?
A. Framlengingu vínveitinga-
leyfis.
B. Of mikillar froðu í bjór-
krúsum.
C. Greiðslu söluskatts.
13. Fjölmiðlar fjölmenntu í
Svartsengi á árinu þegar merk-
ur áfangi varð hjá hitaveitunni.
Hvaða áfangi?
A. Nýtt mötuneyti vakt-
manna.
B. Ormat raforkuvirkjun var
tekin í notkun.
C. Tíu nýjar borholur voru
teknar í notkun.
14. Stafnesbændur og afkom-
endur þcirra fjölmenntu að rad-
arskcrmunum á Stafnesi til að
mótmæla ákveðnum aðgerðum
á síðasta sumri. Hverju voru
þeir að mótmæla?
A. Því að olíumenguðum jarð-
vegi væri kastað á hauga á
Stafnesi.
B. Kanínurækt varnarliðs-
manna í frístundum við
skermana.
C. Að kanasjónvarpið nái ekki
út fyrir völlinn.
15. Fegurðardrottning Suður-
nesja 1989 var kjörin á árinu.
Hvað heitir hún?
A. Linda Olafsdóttir.
B. Elfa Hrund Guttormsdótt-
ir.
C. Kristín Jóna Hilmarsdóttir.
16. Allir læknaritarar á Heilsu-
gæslustöð Suðurnesja boðuðu
veikindaforföll í byrjun árs.
Hvers vegna?
A. Vírus sem olli hálsbólgu
hafði sýkt alla ritarana.
B. I mótmælaskyni viðákvörð-
un fjárhagsnefndar SSS um
ntinni yfirvinnu.
C. Vegna lélegraryfirstjórnará
Sjúkrahúsi Keflavíkurlæknis-
héraðs.
17. Menn töluðu um hugsanleg-
an húsnæðisskort í Keflavík á
árinu. Hver var ástæðan fyrir
þeim vangaveltum?
A. Tíðir brunar í 3ja herbergja
húsnæði.
B. Mikill fólksflótti af lands-
byggðinni til Keflavíkur.
C. Vegna fækkunar í íbúða-
byggingum.
18. Nýársbarn Suðurncsja 1989
fæddist við all sérstakar aðstæð-
ur. Hverjar?
A. í sjúkrabíl á Reykjanes-
brautinni.
B. í barnavagni utan við Sam-
kaup á föstudegi.
C. í foreldrahúsum í Höfnum.
19. Tímamótasamningur var
undirritaður milli íslcnskra
stjórnvalda og Vatnsveitu Suð-
urnesja á árinu. Um hvað var
samningurinn?
A. Að vatnsveitan annaðist all-
ar framkvæmdir við lagningu
nýrrar vatnsveitu og rekstur
hennar.
B. Um að vatnsveitan útvegaði
varnarliðinu heitan jarðsjó til
slökkviduftsframleiðslu.
C. Að Vatnsveitan framleiði
Coca-Cola og setji i vatns-
kerfið.
20. Víkurfréttir gáfu út veglegt
afmælisblað á miðju ári. Af
hvaða tilefni?
A. Vegna afmælis allra bæjar-
búa.
B. Vegna kaupstaðarafmælis
Keflavíkur.
C. Vegna afmælis annars rit-
stjóra Víkurfrétta, Emils Páls.
21. Samkvæmt úttekt Frjálsrar
verslunar mun skemmtistaður
einn á Suðurnesjum vera sá ann-
ar stærsti á landinu. Hvað heitir
staðurinn?
A. Félagsheimilið Glaðheimar.
B. Stapinn.
C. Glaumberg.
22. Æskulýðsráð Keflavíkur
hélt uppákomur víða í Keflavík
ekki fyrir svo löngu síðan. Við
Hafnargötu var boðið upp á
tvenns konar veitingar. Hvaða?
A. Kakó og kex.
B. Vatn og brauð.
C. Kaffi og kleinur.
23. Stórframkvæmdir eru fyrir-
hugaðar í næsta nágrenni Bláa
lónsins í framtíðinni, samkvæmt
fréttum á árinu. Hvað stendur
m.a. til að gera?
A. Koma upp sólarorkubún-
aði svo hitastig á ströndinni
verði alltaf yfir 30°C.
B. M.a. að byggja veitingahús
og heilsuþjónustu.
C. Búa til nýtt Blátt lón í mal-
arnáminu hjá Þormari.
24. Mikil og góð þátttaka var á
afmælishátíð Keflavíkurbæjar í
íþróttahúsinu í Keflavík í apríl.
Hvað er talið að margir gestir
hafi komið?
A. Um 2000.
B. Um 13.256.
C. Enginn kom vegna veðurs.
íþrötta-
GETRAUN
Þeir eru margir sem hafa
brennandi áhuga á íþróttum
og öllu sem þeim tengist. Hvað
veist þú um íþróttirnar hér á
Suðurnesjum? Við höfum tek-
ið saman létta íþróttagetraun
með 24 spurningum og eru þrír
valmöguleikar við hverja. Nú
er bara að sjá hver kunnáttan
er og minnið.
1. Hvað hét hinn keflvíski
þjálfari IBK í körfunni á síðasta
keppnistímabili?
A. Jón Kr. Olsen.
B. Jón Gunnarsson.
C. Jón Kr. Gíslason.
2. Áður en Jón tók við þjálfara-
stöðunni var Bandaríkjamaður
við stjórnvölinn í þjálfuninni.
Hvað hét hann?
A. Lee Nober.
B. Sandy Anderson.
C. Magnús Guðfmnsson.
3. Á árinu var kjörinn Iþrótta-
maður Suðurnesja. Hver er
hann?
A. Sigurður Bergmann.
B. Eðvarð Þór Eðvarðsson.
C. Sigurður Sigurðsson.
4. Þá var einnig kjörinn Iþrótt-
amaður Njarðvíkur. Hver hlaut
þann heiður?
A. Guðjón Skúlason.
B. Teitur Örlygsson.
C. Gísli Jóhannsson.
5. Axel Nikulásson, sem nú
leikur með KR í körfunni, lék
áður með Suðurnesjaliði.
Hvaða?
A. UMFG.
B. UMFK.
C. ÍBK.