Víkurfréttir - 21.12.1989, Page 25
Verslum heima - Höldum fjármagninu í heimabyggð
_________25
\4kurfréttir
21.des. 1989
„Smávöruversl-
unin orðin meiri“
- segir Ástþór B. Sigurðsson í Frístund
„Ég get ekki sagt að verslun-
in sé betri fyrir þessi jól heldur
en í fyrra. Fólk verslar meira
ódýrari varning í dag og raun-
ar hefur smávöruverslunin
vaxið mikið, miðað við það
sem áður var,“ sagði Astþór B.
Sigurðsson, kaupmaður í Frí-
stund, sem rekur m.a. verslan-
ir í Keflavík og Njarðvík, í
samtali við blaðið. Frístund er
jafnframt eini innflytjandinn á
Grundig, AKAI og Orion raf-
tækjum, allt gæðamerki en þó
ekki i mjög háum verðflokki.
-Nú rekur Frístund verslun
tengda heildsölunni í Kringl-
unni íReykjavík. Verður þú var
við viðskipti Suðurnesjamanna
í þinni verslun þar?
,,Ég verð var við það, að fólk
skoðar mikið vöruna hjá mér í
Kringlunni, en verslar hana
síðan í Njarðvík eða Keflavík,
sem mér finnst mjög góður
punktur."
-Hvað finnst þér um þann
áróður sem í gangi er um að
fólk versli heima?
,,Svo framalega sem kaup-
menn bjóða góða og sambæri-
lega þjónustu og veitt er á höf-
uðborgarsvæðinu og láta vita
af sér, þá mun fólk versla
heima. Aróðurinn hefurskilað
sér, en raunar á ekki að þurfa
að segja fólki þessa hluti,“
sagði Astþór B. Sigurðsson í
Frístund að endingu.
Fólk skoðar vöruna í Frístund í Kringlunni en verslar hana hér
syðra. Það finnst Astþóri góður punktur. Ljósm.: hbb.
Bæjarstjórn Keflavíkur:
Mótmælir skatti á
orkufyrirtæki
Bæjarstjórn Keflavíkur sam-
þykkti á fundi sínum á þriðju-
daginn tillögu, þar sem mót-
mælt er fyrirhuguðum skatt-
lagningum á orkufyrirtæki. Var
það Hannes Einarsson sem
lagði fram tillöguna sem allir
bæjarfulltrúarnir skrifuðu und-
ir.
í máli Hannesar kom fram,
að þær hugmyndir sem uppi
væru hjá ríkisstjórninni um
tekjuskattsálögur á orkufyrir-
tæki hefðu í för með sér að
orkuverð til almennings og
fyrirtækja hækkaði. Kom fram
á fundinum að stjórn hitaveit-
unnar samþykkti svipuð mót-
mæli á fundi sínum á föstudag-
inn.
Tillagan, sem samþykkt
var, er svohljóðandi:
„Bæjarstjórn Keflavíkur
mótmælir harðlega fram
komnum hugmyndum um
skattlagningu Ríkisins á orku-
fyrirtæki og bendir á að hún
leiðir aðeins til hækkunar
orkuverðs til fyrirtækja og al-
mennings.
Bæjarstjórn Keflavíkur
minnir á að Hitaveita Suður-
nesja er stofnuð af sveitarfél-
ögunum á Suðurnesjum og
Ríkissjóði Islands með frjáls-
um samningum aðila og lög-
um byggðum á þeim samning-
um. I þessum lögum
(100/1974) er skattleysi fyrir-
tækisins gagnvart öllum eign-
araðilum tryggt.
Með fram komnum hug-
myndum er ljóst, að Ríkissjóð-
ur íslands hyggst einhliða
breyta grundvallaratriðum í
þeim samningum sem gerðir
voru er H.S. var stofnuð sér í
hag.
Þessum hugmyndum mót-
mælir Bæjarstjórn Keflavíkur
harðlega og krefst þess að við
fyrri samninga og setningu
laga þar um verði staðið.
Hannes Einarsson
Vilhjálmur Ketilsson
Anna M. Guðmundsdóttir
Guðfinnur Sigurvinsson
Garðar Oddgeirsson
Ingólfur Falsson
Magnús Haraldsson
Þorsteinn A rnason
Jón Olafur Jónsson."
Hætt við tengingu Heiðar-
bóls og Vesturgötu
Ákveðið hefur verið að
hætta við tengingu Heiðarbóls
við Vesturgötu aðsinni. Er það
gert vegna mótmæla íbúa við
Heiðarból. Var þetta ákveðið á
fundi bæjarstjórnar Keflavík-
ur á þriðjudaginn.
Hannes Einarsson, Jón Ól-
afur Jónsson, Anna Margrét
Guðmundsdóttir og Guðfinn-
ur Sigurvinsson lögðu fram
svohljóðandi bókun vegna
þessa máls:
„Við erum fylgjandi teng-
ingu Heiðarbóls við Vestur-
götu og teljum að slík tenging
stuðli að jafnari dreifmgu um-
ferðar um Heiðarhverfi. Þaðer
skoðun okkar að vandalaust sé
að koma í veg fyrir hraðaakst-
ur um Heiðarból og hafa teng-
ingu við Vesturgötu með þeim
hætti að fyllsta öryggis verði
gætt. Jafnframt er vandséð að
umrædd tenging auki umferð
um Heiðarból frá því sem nú
er. Við munum þó samþykkja
afgreiðslu skipulagsnefndar á
málinu þar sem flestir íbúar
Heiðarbóls, sem mest hagræði
hefðu af tengingunni hafa
mótmælt henni mjög ákveðið.
Ární Ragnar endur-
kjörinn formaður
Árni Ragnar Árnason var
endurkosinn formaður full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
Keflavík á aðalfundi þess á
mánudaginn. Þá var Jónas
Ragnarsson endurkosinn
varaformaður og Einar Leifs-
son ritari. Júlíus Jónsson var
kosinn gjaldkeri í stað Maríu
Valdimarsdóttur, sem gafekki
kost á sér til endurkjörs.
Matthías Á. Mathiesen, al-
þingismaður, fiutti ræðu um
stjórnmálaviðhorfið og kom
hann inn á fjölmörg mál sem
efst.eru á baugi í þjóðmálum.
Töluverðar umræður urðu
um bæjarstjórnarkosningar,
sem verða á næsta ári. Kosin
var skipulagsnefnd til að sjá
um skipulagningu kosninga-
starfsins.
Bergáskvöld
á þrettánd-
anum
Fyrirhugað var að halda
,,Bergás-kvöld“ í Glaumbergi
30. des. n.k. Vegna óviðráðan-
legra o'rsaka verður því frestað
fram á þrettándann, 6. jan.
KÆRULEYSI
GETUR SPILLT
HÁTÍÐINNI
Hitaveita Suðurnesja óskar
þér gieðiiegrar jólahátíðar.
Hún vili jafnframt minna
á að kæruleysi í meðferð
rafmagns getur spillt
hátíðinni. Láttu það ekki
koma fyrir þig.
Ennfremur er það mikil-
vægt að raforkunotkun sé
dreift sem jafnast á aðfanga-
degi og gamlársdegi. Með því
tryggjum við að allir fái
hátíðarsteikina.
HITAVEITA
SUÐURNESIA