Víkurfréttir - 21.12.1989, Blaðsíða 28
SímaðlBanki
SIMI15828
Fimmtudagur 21. desember 1989
Gleðileg jóly farsælt nýtt ár
Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.
Gleðilega
hátíð!
MTO®mi?(£)[LK
| Halnar^ötu 52 - Simi 14290 j
Hvað verður um
starfsmenn
Landshafnarinnar?
Búast má við mikilli jólaverslun þessa síðustu daga fyrir jól.
Verslanir á Suðurnesjum verða opnar til kl. 22 annað kvöld,
föstudag, en til kl. 23 á Þorláksmessu. Lokað verður á að-
fangadag, nema hjá þeim verslunum sem öllu jafna hafa opið
á kvöldin og um helgar. Enn og aftur minnum við fólk á að
verslun heima styrkir hag allra Suðurnesjamanna.
Ljósm.: GK
Sendum Suðurnesjamönnum
bestu jóla- og nýársóskir, með
þökk fyrir það liðna.
Víkurfréttir
„Enginn val'i cr á að starfs-
menn Landshafnarinnar
munu njóta- þeirra réttinda
sem þeir liafa haft“, sagði
Guðfinnur Sigurvinsson varð-
andi fyrirspurn frá Magnúsi
Haraldssyni. Magnús spurði
bæjarstjóra livað yrði um
starfsmenn Landshafnarinn-
ar nú um áramótin, en þeim
var sagt upp slörfum frá og
með 1. janúar 1990. Komf'ram
á fundinum að ekkert hefur
verið við starfsmennina rætt
ennþá varðandi franthaldið.
Líklegt cr að boða verði
aukafund í bæjarstjórn Kcfla-
víkur vegna Landshafnarinn-
ar. Ekki hefur enn fengist nið-
urstaða i málinu, þrátt fyrir
viðræður milli bæjaryfirvalda í
Kellavik og Njarðvík við sam-
gönguráðuneytið.
Bæjarstjórnir beggja bæjar-
félaganna hafa lýst þeirri skoð-
un sinni að ekki verði tekið við
Landshöfninni um áramót ef
ekki verði tryggt fjármagn til
endurbóta á höfnunum. Og nú
styttist óðum að aflienda á
Tafir á komu Auðuns
Einhverjar tafir hafa orðið á heimkoniu nýja lóðsbátsins í Keflavík, sem gefið var nafn um síðustu helgi,
eins og greint var frá í síðasta Reykjanesi. Þá varþessi mynd tekin af Skagablaðinu fyrirokkur. F.v.:
Jósef Þorgeirsson, framkvæmdastjóri skipasmíðastöðvarinnar, Pétur Jóhannsson, hafnarstjóri,
Auðunn Karlsson, en eftir honum heitir báturinn, og Halldór Ibsen, stjórnarformaður Landshafnar.
Keflavík:
Skiptar skoðanir
á hækkun
bæjargjalda
Skiptar skoðanir voru um
tillögu meirihluta Alþýðu-
flokksins um hækkun á út-
svarsprósentu. Töldu bæjar-
fulltrúar minnihlutans að ver-
ið væri að seilast í auknum
mæli í vasa skattborgaranna í
versnandi árferði og við
minnkandi gjaldþol einstakl-
inga og fyrirtækja. Bentu full-
trúar meirihlutans á, að álagn-
ingarprósenta fasteignagjalda
lækkaði, jafnframt því sem að
gjalddagar yrðu 10. Bent var á
að álagningarprósenta yrði að
vera 7,5%, eins og lagt var til,
til að Keflavík ætti möguleika
á framlagi úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga.
Þrír fulltrúar minnihlutans,
þeir Magnús Haraldsson, Þor-
steinn Arnason og Ingólfur
Falsson, lögðu fram svohljóð-
andi bókun:
„Okkur er ljóst að sam-
þykkt bæjarráðs felur í sér
stórfellda hækkun gjalda á
bæjarbúa og atvinnurekstur í
versnandi árferði og minnk-
andi gjaldþoli einstaklinga og
fyrirtækja. Hinsvegar teljum
við fjárhagsstöðu bæjarsjóðs
komna á það alvarlegt stig að
við sjáum okkur knúna til að
sitja hjá.“
Garðar Oddgeirsson greiddi
atkvæði á móti tillögu meiri-
hlutans og var hún því sam-
þykkt með 5 gegn einu.
1 —~
m — • i
TRÉ : /\
Ný röntgen-
tæki á
Sjúkrahúsið
Ný röntgentæki voru tekin í
notkun á Sjúkrahúsi Kefjavík-
urlæknishéraðs á laugardag-
inn. Það var Guðmundur
Bjarnason, heilbrigðisráð-
herra, sem tók tækin formlega
í notkun með því að taka rönt-
genmynd af hendi formanns
sjúkrahússstjórnarinnar, Ol-
afs Björnssonar.
Hin nýju tæki eru af Tosh-
iba gerð og leysa af hólmi 18
ára gömul tæki, sem fyrir voru
á sjúkrahúsinu. Er hér um að
ræða alhliða röntgentæki, sem
búin eru sjónvarpsskjá, er ger-
ir það að verkum að hægt er að
skoða nánar þaðsem mynda á.
Heildarkostnaður við upp-
setningu tækjanna og breyt-
ingar, ásamt verði þeirra, er
rúmar 14 milljónir króna.
Fékkst til þessa verks fjárveit-
ing á fjárlögum.
Trillukarlar
teknir í
landhelgi
Lítil trilla með tveimur
mönnuin var nýverið staðin að
ólöglegum veiðum á bannsvæði,
sem gilt hefur frá því í síðasta
mánuði fyrir svæði er markast
af línu dreginni úr Garðskaga-
vita í Bessastaðakirkju. Voru
þeir talsvert fyrir innan um-
rædda línu er varðskip kom að
þeim og skipaði þeim í land.
Við rannsókn hjá lögregl-
unni i Keflavík viðurkenndu
þeir staðsetningu bátsins og
báru við að þoka hefði villt
þeim sýn. Er málið nú í hönd-
um bæjarfógeta, en þeir félag-
ar réru frá Njarðvík.
Að sögn Ásgeirs Eiríksson-
ar, fulltrúa bæjarfógetans í
Keflavík, var um síðustu helgi
enn beðið eftir skýrslu varð-
skipsmanna, en þó átti hann
von á að dæmt yrði í málinu nú
fyrir jól.
MUNDI
Ætli þetta eigi eftir að
verða dýr soðning hjá
trillukörlunum?