Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Á síðustu árum hefur stuðningur ríkisins verið að eigngerast og nýtist ekki til fulls sem stuðningur við nú- verandi landbún- aðarframleiðslu og hefur verið Þrándur í Götu nýliðunar og kyn- slóðaskipta. Þess vegna er það sameiginlegt markmið að skoða hvernig við getum nýtt næsta búvörusamning til að komast út úr þessu kerfi,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra um stöðuna í viðræðum um nýjan búvörusamning ríkis og bænda. Samtök bænda kynntu á dögunum sameiginlegar hugmyndir samn- inganefnda ríkisins og bænda um meginefni nýrra búvörusamninga. Í kjölfarið hafa orðið verulegar um- ræður um samningsgrundvöllinn. Gagnrýni hefur helst beinst að því að leggja á niður núverandi kvóta- kerfi, hætta svonefndum bein- greiðslum út á greiðslumark og beina stuðningi ríkisins í greiðslur út á fjölda gripa og framleiðslu. Sumir bændur óttast að það leiði til auk- innar framleiðslu með tilheyrandi of- framleiðslu og verðfalli á afurðunum í kjölfarið. Vilja nýta markaði Sigurður vill komast hjá koll- steypum vegna kerfisbreytingar. Eðlilegt sé að gefa þeim sem nú eru í kerfinu aðlögunartíma, til að komast út eða halda áfram framleiðslu. Það sé ekki lítið verkefni en samn- inganefnirnar séu að fást við það. Komið hefur fram að erfiðleikar eru á helstu mörkuðum fyrir íslensk- ar búvörur, bæði kjöt og mjólk, og því lítið svigrúm til framleiðsluaukn- ingar eins og er. „Í nokkurn tíma hafa menn viðurkennt að framtíð ís- lenskrar kindakjötsframleiðslu byggist á útflutningi. Hann hefur numið um 30% af framleiðslunni. Um nokkurra ára skeið hafa menn líka haldið því fram að tækifæri séu fólgin í því að framleiða meira af mjólk en þarf innanlands og flytja það út,“ segir ráðherra. Heimsmarkaðsverð mjólkur sé vissulegt lágt vegna ástandsins í Evrópu. Miklar sveiflur á mark- aðnum. „En ef þróunin er skoðuð og framtíðarhorfur þá hefur eftir- spurn farið vaxandi og matarverð hækkandi. Það heldur áfram.“ Hann segir að tækifæri hafi verið til að flytja út skyr til Evrópu og smjör til Bandaríkjanna á jafnháu eða jafnvel hærra verði en hér fæst. Það hafi ekki breyst. „Mér vitan- lega hafa bændur ekki skipt um skoðun á því að vilja framleiða meira en það sem þarf innanlands. Stefna ríkisstjórnarinnar er að efla búvöruframleiðsluna,“ segir Sig- urður Ingi. Lifandi samningur Spurður um tækifæri til að hamla gegn offramleiðslu ef framleiðsla eykst án þess að góðir markaðir finn- ist segir Sigurður að verið sé að fara yfir hvernig megi tryggja það. Hann lætur þess getið að samningurinn sé langur og breytingin gerist því á nokkuð löngum tíma. Hann verði hægt að opna til endurskoðunar tvisvar á samningstímabilinu. „Við getum ekki spáð með neinni vissu fyrir um verð á heimsmarkaði eða framleiðslu íslenskra bænda næstu fimm til átta árin. Svarið er að hafa samninginn lifandi,“ segir ráðherra. Sigurður Ingi segir að samn- inganefnd bænda sé nú að fara yfir málin sín megin, eftir kynning- arfundi og umræður meðal bænda. Samninganefnd ríkisins sé reiðubúin að taka upp þráðinn í viðræðunum þegar þeirri yfirferð lýkur og ljúka samningum. Tekið verði upp nýtt kerfi án kollsteypu  Landbúnaðarráðherra segir að stuðningur ríkisins hafi verið að eigngerast og nýtist framleiðslunni ekki til fulls Morgunblaðið/Kristinn Í fjósi Landbúnaðarráðherra telur að matvæli muni í framtíðinni hækka í verði á heimsmarkaði. Ef nýtt bú- vörukerfi stuðli að offramleiðslu verði hægt að grípa til aðgerða við endurskoðun samninga. Sigurður Ingi Jóhannsson Sívinsælar og nytsamlegar jólagjafir í aldarfjórðung framleiðir einnig úrvals raftæki 25 ÁR HJÁ Lágmúla 8 sími 530 2800 ormsson.is Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Rætt hefur verið um að þetta verði búvörusamningur fyrir bændur framtíðarinnar. Mér finnst ýmislegt benda til að það sé réttnefni,“ segir Einar Freyr Elínarson, bóndi í Sól- heimahjáleigu í Mýrdal og for- maður Samtaka ungra bænda, um samningsdrög nýrra búvöru- samninga sem samninganefnd bænda kynnti á dögunum á opn- um bændafund- um. Einar Freyr tekur fram að stjórn ungra bænda hafi ekki ályktað um efni samning- anna enda vanti enn allar tölur um stuðning ríkisins. Hann tekur einnig fram að skiptar skoðanir kunni að vera hjá ungum bændum, eftir því hvort þeir hafi keypt greiðslumark eða ekki. „Það er verið að afnema kvótann. Sú hindrun verður þá ekki lengur fyrir ungt fólks sem vill koma inn í greinina. Það lækkar stofnkostnað þeirra sem eru að byrja. Eins eru að koma inn í samningana fjárfest- ingarstyrkir sem nýtast vel þegar ungur bóndi tekur við og þarf að gera breytingar á húsum, stækka fjós eða fjárhús,“ segir Einar Freyr. Stuðlar að nýliðun „Svo er líka í röðum ungra bænda fólk sem komið er út í bú- skap og hefur keypt sér kvóta. Breytingin horfir ekki eins vel við því. Þá eru margir af grundvall- arástæðum hræddir við að taka framleiðslustýringuna af. Það hugn- ast ekki öllum að hafa algerlega markaðsdrifið kerfi. Við eigum eftir að sjá hvaða tölur verða í þessu. Við hjá Samtökum ungra bænda höfum sagt að hver króna sem fer í nýliðun skili sér til baka í aukinni framleiðni. Það gerist alla jafna þegar nýtt fólk tekur við, að það tekur til í rekstrinum, breytir og hagræðir. Það þarf að bæta fram- leiðnina og ég hef mikið litið til þess í mínum rekstri.“ Einar Freyr er að taka við sauð- fjárbúskap í Sólheimahjáleigu af móður sinni, Elínu Einarsdóttur. Hefur verið að fjölga gripum. „Ég á ekki greiðslumarkið og mun ekki þurfa að kaupa ærgildin sem eru á okkar búi. Kemst beint inn í kerfið. Ég veit að margir eru óánægðir með þá tilfærslu sem verður. Það eru býsna margir sem ekki eru með ærgildi en stuðningurinn mun dreif- ast jafnt á alla framleiðslu, hvort sem bændurnir eiga ærgildi eða ekki,“ segir Einar. Hann segir eðlilegt að menn séu hræddir við offramleiðslu og verð- fall afurða ef framleiðslan eykst en markaðir erlendis lagast ekki. „Ef það gerist verðum við að spila eftir sömu leikreglum og önnur fyrir- tæki. Fara varlega í aukningu framleiðslunnar og halda skuldsetn- ingu í lágmarki,“ segir Einar Freyr. Ungt fólk getur komist beint inn í kerfið  Formaður Samtaka ungra bænda segir að afnám kvótans lækki stofnkostnað Morgunblaðið/Eggert Réttir Nýtt kerfi gerir ungu fólki auðveldara að hefja búskap. Einar Freyr Elínarson Búvörusamningar » Samninganefndir ríkisins og bænda hafa verið í viðræðum um nýja búvörusamninga. » Meginbreytingin verður, samkvæmt drögum, að greiðslumarkið, grundvöllur kvótakerfisins, verður lagt af. » Stuðningur ríkisins færist úr beingreiðslum í greiðslur út á framleiðslu afurða og fjölda gripa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.