Morgunblaðið - 10.12.2015, Page 21

Morgunblaðið - 10.12.2015, Page 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 ✝ GuðmundaKristbjörg Þor- geirsdóttir fæddist 11. september 1929. Hún andaðist á Landspítalanum 4. desember 2015. Foreldrar henn- ar voru þau Þorgeir Magn- ússon, útvegsbóndi á Lambastöðum í Garði, f. 17. nóv- ember 1875, d. 9. september 1956, og Helga Jónína Þor- steinsdóttir, f. 21. nóvember 1891, d. 9. desember 1957. Þeim hjónum varð 12 barna auðið og var Guðmunda Kristbjörg þriðja yngst í aldursröðinni. Systkinin eru: Helga Steinunn, f. 27. mars 1911, d. 5. september 1975, Þor- steinn, f. 4. desember 1913, d. 6. mars 2001, Magnea Rannveig, f. 10. nóvember 1916, d. 22. febr- úar 2010, Guðrún, f. 28. júní 1918, d. 15. janúar 1997, Guð- mundur, f. 3. mars 1921, d. 6. febrúar 2008, Símon, f. 3. mars 1922, d. 22. apríl 1983, Gróa Sig- Guðbjörg, f. 1967, maki Bjarni Brynjólfsson, f. 1966. Börn þeirra eru: Brynjólfur, f. 1992, Berglind Lára, f. 1994, og Gunn- ar Stefán, f. 2003. Barnbörn Guðmundu er 10 og barna- barnabörnin eru sex. Þau fluttu í eigið húsnæði að Hlíðargerði 23 sem þau byggðu með þeim hætti sem tíðkaðist á þeim tíma eða með hjálp vina og vandamanna. Í Hlíðargerðinu fæddust Grétar yngri, Oddur og Guðbjörg. Störf Mundu utan heimilis voru verslunarstörf og barna- gæsla. Hún var ötul í sjálfboða- liðastarfi, má þar nefna störf við Bústaðakirkju og í Reykja- víkurdeild Rauða krossins. Eftir lát Eiríks bjó Munda í Hlíð- argerðinu í nokkur ár en fluttist þá innan hverfis eða í Hæðar- garð 29. Þegar meira fór að bera á veikindum hennar fluttist hún á Hjúkrunarheimilið Eir þar sem hún bjó til dauðadags. Útför Guðmundu fer fram frá Fossvogskapellu í dag, 10. des- ember 2015, klukkan 11. ríður, f. 13. sept- ember 1923, d. 14. júlí 2004, Þorgeir, f. 6. janúar 1925, d. 30. mars 1970, Rannveig, f. 9. maí 1926, Guðmunda Kristbjörg, f. 11. september 1929, sem hér er minnst, d. 4. desember 2015, Valgerður, f. 20. janúar 1931, og Einar, f. 14. desember 1934, d. 6. apríl 1986. Maki Eiríkur Oddsson, f. 10. desember 1926, d. 28. maí 1999. Börn Guðmundu og Eiríks voru fjögur: 1) Grétar eldri, f. 24. apríl 1949, d. 15. ágúst 1949. 2) Grétar (yngri), f. 1. desember 1955, maki Elín Hilmarsdóttir, f. 1957. Börn þeirra eru: Sif, f. 1982, Hlynur, f. 1985, Hjálmar, f. 1987 og Gunnhildur Hjördís, f. 1993. 3) Oddur, f. 21. febrúar 1957, maki Alda Steingríms- dóttir f. 1961. Börn þeirra eru: Eiríkur, f. 1985, Freysteinn, f. 1987, og Benedikt, f. 1990. 4) Þegar við systkinin hugsum til baka þá koma upp í hugann margar minningar. Mamma var að mestu heimavinnandi þann tíma sem við vorum að alast upp í Hlíðargerðinu. Fjöldi barna var í hverfinu á þessum tíma og mikið líf og fjör allan ársins hring. Stutt var í vini, náttúru, dýr, hey- skap og brekkur þar sem mátti renna sér í snjónum. Háaloftið var sérheimur út af fyrir sig með öllum sínum leyndarmálum og kjallarinn var ekki síður skemmtilegur vettvangur til leikja fyrir okkur. Hún gaf okkur mikla ást og hlýju og hvatti okkur áfram með jákvæðri en ákveðinni fram- komu. Ekkert vantaði upp á hjálpsemina hjá henni. Hún var mikil handavinnukona og eftir hana liggja margir fallegir hlutir sem hún vann af natni. Það mikla nákvæmni lagði hún í hlutina að pabbi kallaði hana oft „Mundu millimetra“. Mikið var um heimsóknir í Hlíðargerðið. Fjölskyldan, Labbakútarnir, saumaklúbbur- inn, aðrir vinir og nágrannar sem litu inn. Alltaf var kaffi á könn- unni og kátt í höllinni. Meðlæti skorti aldrei og er það minning okkar systkina að það var eilíft verið að bera í okkur mat. Lífið var í föstum skorðum hjá mömmu. Fastir liðir eins og venjulega, s.s. kartöfluupptaka úti í Garði, sláturgerð með Gunnu og Möggu, kleinur steikt- ar í balavís, jólakökubakstur með Diddu, þrif fyrir jólin þar sem staðið var uppi á borðum og öll skúmaskot og loft þrifin. Allt skyldi vera hreint fyrir jólin og átti hver hlutur sinn stað ár eftir ár. Hátíðir voru einnig í föstum skorðum hjá henni. Það sama með skötuna, hangikjötið og kirkjan á aðfangadag kl. 18:00. Steikin á sunnudögum í hádeginu með sultu og brúnuðum kart- öflum var ógleymanleg. Þegar barnabörnin fóru að koma fylgdist hún vel með upp- vexti þeirra og hafði gaman af því að fá þau í heimsókn. Þau fengu oft að gista í afa og ömmu „holu“ og leið þeim vel þar. Það sama má segja um börnin sem hún passaði en lengst voru hjá henni þau Pálmar og Sísí. Pálmar hefur alla tíð sinnt mömmu og pabba vel og hann hefur ætíð verið tek- inn sem hluti af fjölskyldunni. Mörg af barnabörnunum passaði hún reglulega og eru börn Grét- ars ævarandi þakklát fyrir allar stundirnar með ömmu Mundu uppi í Mosfellsbæ, þegar mamma vann þar við að gæta þeirra. Brynjólfur fékk einnig að vera löngum stundum hjá þeim sem verður seint þakkað. Mamma var kát og stutt var í hláturinn hjá henni. Hún var trú- rækin, vinmörg og reyndist sín- um vel. Elsku hjartans mamma okkar. Nú ert þú loksins komin á þann stað sem þú þráðir svo heitt að komast til. Mikið hefur verið yndislegt að fá að njóta þín öll þessi ár. Það er sama hvar komið er niður, alltaf færð þú sömu um- sögnina: Góð, jákvæð kona sem er svo þakklát fyrir allt sem gert er fyrir hana. Við getum með sanni sagt það sama við þig. Hjartans þakkir fyrir okkur. Þú varst okkar stoð og stytta í gegn- um lífið. Ómetanleg móðir sem við erum stolt af. Megi minning um góða konu lifa um ókomna framtíð. Megi englar Guðs vaka yfir þér, pabba og Grétari eldri. Blessuð sé minning þín. Megir þú hvíla í friði. Grétar, Oddur og Guðbjörg. Í dag kveð ég Guðmundu K. Þorgeirsdóttur, tengdamóður mína, eða Mundu, eins og hún var kölluð. Hún var ákaflega vönduð kona og bar hag fjöl- skyldunnar fyrir brjósti. Hún var mjög hjálpsöm og mátti ekkert aumt sjá og alltaf tilbúin að leggja fram hjálparhönd og naut þess að hjálpa öðrum en sjálf var hún hógvær og vildi ekki láta hafa mikið fyrir sér. Það átti vel við hana að vinna sem sjálfboða- liði Rauða krossins sem hún gerði í mörg ár. Munda var jákvæð og bros- mild og lagði hún sig fram um að gera gott úr öllu. Hún var mjög barngóð og nutu barnabörnin þess að vera hjá henni og afa Ei- ríki í húsinu þeirra í Hlíðargerði 23, enda skemmtilegt hús með háalofti sem geymdi alls kyns dót sem börnum fannst gaman að skoða og búa til sinn töfraheim á loftinu. Hún naut sín við afgreiðslu- þjónustu í versluninni Búbest í Grímsbæ. Hún var mjög nákvæm og bar snyrtilegt heimili hennar vitni um það, þar átti allt sinn stað. Eitt sinn var ég að hjálpa henni að taka til í skápum og fannst mér ótrúlegt hve vel var raðað í skápana og hve öllu var hagan- lega komið fyrir, það var alltaf eins og raðað hefði verið í skáp- inn í gær. Farið var vel með alla hluti og geymt lengi, eins og um- búðir og kassa, sem var svo end- urnýtt. Munda var mjög skipulögð í vinnu sinni í eldhúsinu og þegar maður kom í mat var allt tilbúið, búið að leggja á borð af mikilli natni og maturinn rétt ókominn á borð svo hún gæti notið sem mestrar samveru með gestunum. Þar sem líður að jólum var nú ekki jólastressið hjá henni Mundu enda hófst undirbúning- ur hjá henni mjög tímanlega og man ég að hún var farin að spyrja um jólagjafir í september. Oft var jólagjöfinni svo pakkað í kassa sem sóttur var á háaloftið. Munda var mikil handavinnu- kona og gerði fallega handavinnu af mikilli nákvæmni, bæði í saumaskap og prjóni, og ef sást í villu var það ekki sett fyrir sig að rekja upp hálfa peysu og byrja aftur til að handbragðið væri gott. Munda hafði gaman af að ferðast og ferðuðust þau hjónin mikið innanlands en reglulega var farið til útlanda að heim- sækja Gróu systur hennar í Eng- landi, til ættingja í Lúxemborg og víðar. Einnig fórum við nokkr- um sinnum með þeim hjónum í sumarbústað og var Munda hjálpsöm í öllu heimilishaldi og óþrjótandi að vaska upp, maður var varla búinn að leggja frá sér bollann þegar hún var búin að vaska upp, henni fannst gaman að vaska upp. Þótt Munda tæki ekki bílpróf kunni hún alveg á umferðina og sagði bílstjóranum til við aksturinn og sérstaklega ef henni fannst einhver glannaskap- ur í bílstjóranum og eitthvað mætti betur fara. Síðustu ár dvaldi hún á Eir þar sem hún naut góðrar hjúkrunar og fór vel um hana þar. Alltaf spurði hún um fólkið sitt þegar maður kom í heimsókn því henni var í mun að fylgjast með öllum og að allir hefðu það gott. Munda var mjög sátt við að kveðja og nú hittast þau Eiríkur á ný. Það var margt sem ég lærði af tengda- móður minni og er ég þakklát fyrir allar þær stundir sem ég átti með henni og gott er góðs að minnast og vil ég kveðja þig með bæn. Alda. Guðmunda Kristbjörg Þor- geirsdóttir var alltaf svo góð og elskuleg amma við okkur barna- börnin. Það var alveg sama hversu oft við komum í heimsókn til hennar, hún tók alltaf vel á móti okkur og það sama má segja um afa Eika, sem hét Eiríkur Oddsson. Hver man ekki eftir því þegar amma eldaði gott kjöt í karrí í hádeginu, skar svo fituna af kjötinu og gaf fuglunum hana. Kjötið sem amma eldaði var allt- af svo gott. Þegar amma og afi bjuggu í Hlíðargerði 23 fórum við krakk- arnir stundum inn í garð og lék- um okkur þar og spiluðum krik- ket, klifruðum upp í tré og spiluðum ólsen ólsen út í eitt með ömmu og afa. Afi og amma voru mjög dugleg að vera úti með okk- ur. Afi fór oft með okkur krökk- unum í bæinn, þar sem við feng- um að skoða í fiskikerin sem standa við hafnarbakkann í Reykjavík og þar fengum við að skoða okkur um. Svo fórum við með afa niður að tjörninni og gáf- um öndunum brauð. Það voru skemmtilegir tímar. Uppi á lofti í Hlíðargerðinu var líka heill heim- ur af skemmtilegum hlutum að gera. Þar var hægt að fara í búð- arleik og endalaust hægt að skoða lyklakippu- og pennasafnið hans afa. Þar sem amma var ekki með bílpróf naut hún þess að fara með okkur í strætó niður í bæ og þar gerðum við ýmsa hluti. Við eigum margar góðar minn- ingar um stundir okkar sem við eyddum með ömmu og munu þær gleymast seint. Til dæmis þegar Brynjólfur og amma fóru með blöðin til Möggu sem var systir ömmu og hlustaði Brynjólfur á sögur um æskuárin hennar. Berglind minntist þess þegar hún fór og gisti hjá ömmu og fékk alltaf kókópuffs í nýmjólk og Gunnar man vel hversu fallegt bros hún var alltaf með. Svo höfðum við barnabörnin mjög gaman af að biðja ömmu um leyfi til að fá að kveikja á sjónvarpinu og setja einhverja mynd í tækið. Amma átti myndir eins og Börn- in í Ólátagarði, Emil í Kattholti, Emil og grísinn, Pétur Pan- teiknimyndir og Free Willy og oftar en ekki varð myndin Emil í Kattholti fyrir valinu. Brynjólfi fannst það svo merkilegt hvað hann Emil gerði mikið af skamm- arstrikum í myndinni. Það var ástæðan fyrir því hvers vegna myndin Emil í Kattholti varð oft- ast fyrir valinu. Amma var elskuð heitt af öllum barnabörnunum sínum. Það var alltaf svo gaman að sjá ömmu, því hún var alltaf með bros á vör, við sáum hana aldrei leiða. Þegar hún brosti brostum við til baka. Amma, við elskum þig mjög mikið. Brynjólfur Jóhann Bjarnason, Berglind Lára Bjarnadóttir, Gunnar Stefán Bjarnason. Góð kona og yndisleg mann- vera, hún Munda okkar, er fallin frá. Það er bara hægt að segja fallega hluti um hana Mundu. Það geislaði frá henni góð- mennskan og kátínan. Við erum búin að þekkja hana Mundu í 40 góð ár. Okkar kynni hófust þegar Munda hóf að passa tveggja ára son okkar, hann Pálmar. Þar var honum ekki í kot vísað. Hann var umvafinn ástúð og hlýju frá fyrsta degi, ekki bara frá Mundu, heldur líka frá Eiríki og krökk- unum, þeim Grétari, Oddi og Guðbjörgu. Guðbjörg notaði Pálmar í mömmuleikjunum og Grétar og Oddur hlupu stundum undir bagga á frídögum og tóku stráksa með sér þegar ungu for- eldrarnir þurftu að vinna og lesa fyrir próf. Mundu þótti afskaplega vænt um alla okkar fjölskyldu. Alltaf spurði hún frétta og fylgdist með okkur öllum. Hún hafði náttúr- lega sérstakt dálæti á Pálmari, sem býr í London, en ekki síður fylgdist hún með hinum börnun- um, Rakel í Lúxemborg, en þangað hafði Munda komið nokkrum sinnum í heimsókn til ættingja sinna. „Og hvað er hann Siggi litli að gera núna?“ spurði hún um þann yngsta, sem orðinn er nú fullorðinn maður. Þó Pálm- ar okkar hafi ekki verið nema tæp tvö ár í pössun hjá Mundu þá eignuðust þau sérstakt samband, Munda og Pálmar. Þau urðu vinir fyrir lífstíð. Þó Pálmar okkar hafi haldið ungur utan í nám og ílengst erlendis þá var hann ekki fyrr kominn til Íslands en hann var mættur í heimsókn til Mundu. Erfiðir tímar urðu hjá okkar konu þegar þau Eiríkur lentu í bílslysi og slasaðist Munda alvarlega. Með sínu góða skapi, jákvæðni og fallega bros- inu sínu þá náði hún nokkrum bata en annað áfall reið síðan yfir þegar okkar elskulegi Eiríkur féll frá langt um aldur fram fyrir sextán árum. Það var mikið áfall fyrir hana Mundu og börnin. Munda stóðst hins vegar þessa raun. Í kjölfarið seldi hún Hlíð- argerðið og skapaði sér nýtt, fal- legt og notalegt heimili að Hæð- argarði, þar til hún flutti á hjúkrunarheimilið Eir fyrir rúmu ári. Og alltaf var jafn fallegt og notalegt að heimsækja hana. Að vera í návist Mundu var í raun nærandi á sál og líkama. Það var svo núna í september sem Pálm- ar kom í stutta heimsókn og að sjálfsögðu var farið í blómabúð og keyptur fallegur blómvöndur og farið til Mundu á Eir. Þar átt- um við okkar síðustu, fallegu og notalegu stund með henni Mundu okkar. Börnin okkar, Pálmar Jósafat, Rakel Sif og Sig- urður Hjörvar, senda sína hinstu kveðju. Að leiðarlokum viljum við þakka samfylgdina og biðjum Guð að vera með börnum, tengdabörnum og barnabörnum og styrkja í sorginni. Blessuð sé minning hennar. Elenóra og Sigurður. Guðmunda Kristbjörg Þorgeirsdóttir Elsku afi. Það er svo ljúft að minnast þín og allra þeirra gleði- stunda sem við áttum saman. Þú varst alltaf svo rólegur og með endalausa þolinmæði fyrir okkur barnabörnin. Þær voru ófáar góðu stundirnar sem við áttum saman með ykkur ömmu í Skipholtinu og á Dalbrautinni. Það var svo notalegt að fá að kúra á milli ykkar ömmu og hlusta á sögur um Gutta á Grænlandi sem þú spannst upp jafn óðum fyrir okkur. Fá að leika uppi á háalofti, fara í ís- bíltúr á sunnudögum og þræða allar bílasölurnar og hlusta á líflegan hlátur þinn. Þér fannst fátt betra en að gæða þér á vín- arbrauði og randalínu og gátum við yfirleitt stólað á að fá ran- dalínuköku með kaffinu hjá þér. Þú varst alltaf svo þakk- látur og fannst fátt skemmti- legra en þegar fjölskyldan kom saman og í hvert skipti stóðstu Sigurður Kristófer Óskarsson ✝ Sigurður Krist-ófer Óskarsson fæddist 18. júlí 1925. Hann lést 29. nóvember 2015. Útför Sigurðar fór fram 9. desem- ber 2015. upp og hélst litla þakkarræðu. Þú varst mikill ræðu- maður og hélst nú síðast fallega þakk- arræðu í tilefni 90 ára afmælisins þíns í júlí síðastliðnum. Elsku afi, takk fyrir allar sam- verustundirnar okkar, við munum varðveita þær um alla ævi. Við pössum upp á ömmu fyrir þig. Þar til síðar, „þrjú grönd“. Þín afabörn, Sigurður, Hildur og Guðmundur. Þessa dagana er óvenjumikið vetrarríki á landinu og fann- hvítur snjór yfir öllu. Það er ákveðinn friður og ró sem fylgir þannig veðri þótt snjóélin byrgi sýn á milli. Þannig var umhorfs í höfuðborginni þegar frændi minn Sigurður Kristófer Óskarsson kvaddi þennan heim, nýlega kominn á tíræðisaldur. Enda þótt það sé hár aldur er maður ávallt óviðbúinn dauð- anum þótt það sé eins víst og að nótt fylgir degi að hann ber að dyrum að lokum og velur sjálfur sinn stað og sína stund. Sigurður Kristófer, sem æv- inlega var kallaður Kiddi, var Snæfellingur í húð og hár, fæddur þar sem jökulinn ber við himin í Bakkabúð á Brim- ilsvöllum. Kiddi fór snemma á sjóinn og að loknu námi í Stýrimanna- skólanum var Kiddi stýrimaður og skipstjóri, lengst á Þorsteini Ingólfssyni. Upp úr 1960 fór Kiddi í land og starfaði við fisk- mat og kennslu í Fiskvinnslu- skólanum þar til hann varð sjö- tugur. Ófáum stundum varði Kiddi í störf fyrir sjómanna- stéttina og fyrir störf sín í þágu íslenskra sjómanna hlaut hann heiðursmerki Sjómannadags- ráðs. Kiddi frændi hefur allt frá því ég man eftir mér átt fastan og öruggan stað í mínu hjarta. Hann var jafnaldri og starfs- félagi föður míns, þeir voru systrasynir og fylgdust að í uppvextinum og milli þeirra var djúpstæð vinátta. Ég á margar góðar minningar um heimsókn- ir í Skipholtið til þeirra Sillu og Kidda og þau voru aufúsugestir á heimili foreldra minna. Sjálf- ur naut ég þess að vera oft sendur í „fóstur“ til þeirra. Silla og Kiddi voru mér alltaf óskaplega góð og indæl og þau sterku tengsl sem mynduðust þegar ég var barn að aldri hafa haldist allar götur síðan, þótt samverustundum hafi farið fækkandi. Það var mér því sér- lega dýrmætt að fá að gleðjast með Kidda og fólkinu hans á ní- ræðisafmælinu í sumar. Þrátt fyrir háan aldur bar hann sig vel, það var stutt í brosið og kersknina, og að sjálfsögðu hélt hann ræðu eins og hann gerði svo oft í fjölskylduboðum. Kiddi var hár vexti og spengilegur með sterkan augn- svip og tignarlegt fas. Hann var einstakt ljúfmenni, ég man ekki eftir honum öðruvísi en í góðu skapi, hann var glettinn og kunni að gera að gamni sínu og gleðja aðra. Hláturmildur var hann með eindæmum og það var auðvelt að þekkja hláturinn hans Kidda langar leiðir. Í einkalífi var hann gæfumaður og þau Silla fylgdust að í hartnær sjö ára- tugi í ástríku og samrýndu hjónabandi. Dætur þeirra, Haf- dís og Linda, voru þeim báðum miklir gleðigjafar og svo hafa nýjar kynslóðir bæst í hópinn sem hafa auðgað líf þeirra beggja. Þótt það sé sárt að kveðja er afar dýrmætt á kveðjustund að geta yljað sér við ljúfar minningar og þar er af nógu að taka. Ég og mitt fólk kveðjum Kidda frænda í þökk og virð- ingu og vottum elsku Sillu, Hafdísi, Lindu og aðstandend- um öllum okkar dýpstu samúð. Ég sé Snæfellinginn Kidda fyr- ir mér í því himneska landi sem Nóbelsskáldið lýsir svo eftir- minnilega í Fegurð himinsins: „Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt, en jörðin fær hlutdeild í himn- inum … þar ríkir fegurðin ein.“ Árni Þór Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.