Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.12.2015, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. DESEMBER 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Kannski að rökvísin sé ekki fullkomin – ekki nærri því. Vertu opin/n fyrir hvers konar félagsstarfi. 20. apríl - 20. maí  Naut Þetta er góður dagur til að hefja nám eða nýjar rannsóknir. Hafðu það í huga þegar þú veltir því fyrir þér hvað skal gera um helgina. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú hefur komið þér vel fyrir og mátt þess vegna gefa þér tíma til að njóta ávaxtanna af erfiði þínu. Frábært! Stuðið sem þú sérð fram á er bæði mögulegt og löglegt. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Bjartsýni ræður ríkjum í dag en dreg- ur úr henni með kvöldinu. Kannaðu þá möguleika sem eru í stöðunni. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Fólk sýnir þér mikla athygli og frægðin bíður þín jafnvel – ef þú vilt. Ef þetta gerist í vinnunni, vertu þá þolinmóður við starfs- félaga þína. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Vertu heima og slappaðu af í dag ef þú mögulega getur. Gerðu málin upp í hvelli svo þú getir haldið ótrauður áfram – reynsl- unni ríkari. 23. sept. - 22. okt.  Vog Fólk bregst furðulega við velgengni þinni. Eitthvað óvenjulegt mun eiga sér stað, annaðhvort í formi óvæntrar uppákomu eða þá að þú hittir einhvern sem er allt öðruvísi og forvitnilegur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Dagurinn í dag er kjörinn til að ræða langtímaáform við maka. Vitanlega vilt þú komast til botns í þessu leyndarmáli. Ekki hika við að sinna rannsóknum eða leita nýrra lausna við vandamálum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er rosalega gaman þegar allt gengur manni í hag. Einnig væri ráð að skila því sem þú hefur fengið að láni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einhver sem þú virðir fær þig til að skipta um skoðun. Kannski fór einhver yf- ir strikið. Vertu raunsær og sanngjarn um leið. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Vertu ekki alltaf að velta því fyrir þér hvað öðrum kunni að finnast um orð þín og gjörðir. Forðastu að vera viðvaningur. Nýttu þér lögmál aðdráttaraflsins. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú þykist vita hvers vegna viss aðili gerir það sem hann gerir, en ert ekki alveg viss. Verk sem tengjast ljósmyndun, skemmtana- og kvikmyndaiðnaðinum ganga sérstaklega vel. Páll Imsland heilsaði leirliði íaðdraganda óveðurs en fór síðan út í aðra sálma: Hún er fagureyg kona hún Friðsemd og fræg fyrir algjöra siðsemd en eignaðist son með annarri kon. Það kallaði’ hún sprottið að kviðsemd. Eftir að veðrið var skollið á skrifaði hann: „Þó mér láti ekki vel að semja vísur um veðrið og sé lagnara að kjafta um það í fyrir- lestri, þá datt mér í hug að reyna að vera með. Veðrið er greinilega aðalumræðuefni dagsins á leir og utan hans. Þetta’ er veður vonsku strítt þó vonandi komi stilla. Strunsar óður stormur vítt. Stendur sig lognið illa.“ „Í logninu milli stormanna“ skrifaði Páll um „þrifnað Rósu“ og sagði: Far eftir rassinn á Rósu reyndist á hrygg þeirrar ljósu. Skýrt lýsir það að skortir á bað hjá þeirri dugnaðardrósu. Um miðaftansbil á þriðjudag reit Ármann Þorgrímsson í Leir- inn um veðrið og sagði: „Mér finnst áberandi hvað margir kvarta undan veðrinu í dag. Sér- staklega finnst mér gamlir karlar yrkja mikið í þessum dúr, en ég vil bara segja: Meðan ykkar unaðsvarta ekki burtu fýkur varla þurfið þið að kvarta þessum stormi lýkur.“ Bjarki Karlsson brást þannig við: Nú er úti veðurvá verður ástand klúrið. Allsberan fýsir Almar þá aftur að fara í búrið. Jón Arnljótsson kallar þetta sannindi og er nokkuð til í því! Oft er betra þú ef þegir, þumbist við og hálsinn reigir, því aðrir taka, yfirleitt, ekki neitt mark á því sem maður segir. Menn velta veðrinu á ýmsa vegu fyrir sér. Sigmundur Benediktsson sagði í gær: Ég hélt að lognið hefði burtu fokið og hingað aldrei sneri það á ný, en stundum er það sterkara en rokið það stendur núna úti og hlær að því. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Friðsemd, dugnaðar- drós og Almari Í klípu „ÉG ÞARF AÐ KOMAST Í SAMBAND VIÐ MITT INNRA BARN – OG HANDTAKA ÞAÐ FYRIR HANGS, ÓSKUNDA OG ÓSPEKTIR Á ALMANNAFÆRI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JÚ, JÚ, ÞÚ GETUR FENGIÐ ÞAÐ FYRIR ÞÚSUNDKALL, EN MYNDIR ÞÚ EKKI FREKAR VILJA EIGA 20.000 KRÓNA MÁLVERK?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að deila úrræðum til þess að halda á sér hita. BLA, BLA, BLA, BLA HUNSA, HUNSA, HUNSA HUNSA, HUNSA ... OOOOG HUNSA ÉG NAUT HEIMSÓKNAR- INNAR OKKAR, GRETTIR BLA, BLA, BLA ... ÞETTA #$%¤%$ SÁPUSTYKKI MUN EKKI SNERTA MÍNA $%#&$@$ HÚÐ! ÞÚ HEFUR RÉTT FYRIR ÞÉR MEÐ ÞAÐ! Kunningi Víkverja á Facebookbirti áhugaverða mynd á dög- unum úr skólabók barnsins síns. Gat þar að líta „Kötu kommúnista“, teiknimyndafígúru sem virtist eiga að vera einhvers konar táknmynd fyrir róttækling millistríðsáranna. Gekk það ekki betur en svo að Kata var klædd í Che Guevara-bol með alpahúfu á kollinum, en hvort tveggja ætti betur heima á sjöunda eða áttunda áratug 20. aldar en þeim þriðja eða fjórða. x x x Við nánari eftirgrennslan kom íljós að Kata þessi var nú ekki ein, heldur átti hún þrjá félaga; Níels nasista, Jóhann jafnaðarmann og Fríðu frjálslyndu. Því miður var engum myndum póstað af því þríeyki svo Víkverji gæti borið kar- akterana saman. Honum fannst þó forvitnilegt að sjá hvað Kata þessi kommúníska talaði mikið undir rós um það hvernig ríkisvaldið ætti að tryggja það að „enginn vinni gegn byltingunni eða kommúnismanum“. x x x Enga aðra vísbendingu var þó aðfinna í þessu „námsefni“ um þá staðreynd að ríkisvaldið í ýmsum kommúnistaríkjum hefði nú gull- tryggt það á sínum tíma að hundrað milljón manns myndu ekki „vinna gegn byltingunni eða kommúnism- anum“ með því að taka þá af lífi. Enda á það ekkert erindi við börn, þegar hægt er að setja upp glans- mynd af tálsýn í staðinn. x x x Þættinum hefur borist bréf“ varstundum sagt í útvarpinu í gamla daga og sama gildir um Vík- verja, sem fékk þá ábendingu að það væri lítið mál að skipta um trúfélag og krefðist ekki sérstaks ferðalags til Þjóðskrár þar sem allt væri nú hægt á netinu. Því miður er Víkverji einn af þeim fáu sem ekki hafa orðið sér úti um íslykil eða rafræn skilríki. Hann er því í sömu sporum og fyrr. Að auki var Víkverja bent á að lík- lega væri hægt að búa til „lífsskoð- unarfélag“ utan um Vesturbæjar- stórveldið. Víkverji er svo sem til í að reyna það en nennir varla að finna 24 aðra einstaklinga sem hugsa svipað. víkverji@mbl.is Víkverji Ég vil lofa Drottin meðan lifi, lof- syngja Guði mínum, meðan ég er til. (Sálm. 146:2) Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is STURTUKLEFAR Mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp. ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.