Morgunblaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015 Jólasnyrtingin Að ýmsu þarf að hyggja þegar jólin nálgast og hér snyrtir Guðrún Harðardóttir, dýralæknir hjá Dýralæknastofu Reykjavíkur, klærnar á Bellu, sem horfir hugfangin á. Árni Sæberg Kostnaður við heil- brigðisþjónustu hefur aukist og mun halda áfram að vaxa hraðar en verg landsfram- leiðsla. Fólk lifir nú lengur en áður og verði engar breytingar gerð- ar á heilbrigðisþjón- ustu stefnir í að sam- félag okkar muni með tímanum ekki geta staðið undir kostnaði við þjónustuna. Fólk er al- mennt meðvitað um þessa þróun og er tilbúið að fjárfesta í heilsu sinni og forvörnum gegn aldurstengdri hrörnun. Þegar veikindi koma upp vill fólk geta treyst því að viðeigandi heilbrigðisþjónusta sé í boði án veru- legs aukakostnaðar. Hröð þróun upplýsingatækni Í erfiðum rekstri Landspítalans og heilbrigðisþjónustu við eldra fólk leynast tækifæri til nýsköpunar. Með teymisvinnu fagfólks í öldrunarþjón- ustu heilsugæslu, sjúkrahúsa og fé- lagsþjónustu skapast möguleikar á að stórbæta þjónustuna. Fyrst þarf að greina heildarþarfir, ákveða hvaða þjónusta verður boðin, hver veitir hana og hvenær. Hanna þarf þjón- ustuna með tilliti til þess að ná fram hámarksgæðum og nýtingu þeirra auðlinda sem hún krefst – en það eru einkum starfskraftar. Gæði og ör- yggi þjónustunnar skipta mestu, að hún sé áreiðanleg, fylgja megi eftir framkvæmd hennar og tryggja að hún sé aðgengileg fyrir þá sem njóta hennar. Þá þarf að skilgreina hvaða viðmið eiga að gilda um gæði. Oft eru þeir sem njóta þjónustunnar sjálfir illa færir að meta gæði hennar eða gera athugasemdir. Þá er mikilvægt að aðstandendur séu hafðir með í ráðum, þeir upplýstir og þeim gert kleift að styðja sitt fólk eins og að- stæður leyfa. Upplýsinga- og fjarskiptatækni er lykill að lausn vandans. Svonefndar snjalllausnir sem byggjast á þeirri tækni geta rutt úr vegi ýmsum hindr- unum og greitt götu umbóta í heil- brigðisþjónustu sem og á aðliggjandi velferðarsviðum samfélagsins. Þær þjóðir sem eiga þess kost að nýta þessa þróun tækninnar geta stór- bætt þjónustu við eldra fólk og aukið umfang hennar án þess að kostnaður hækki að sama skapi. Fyrst er að nefna nútímavæðingu í meðferð heil- brigðisupplýsinga. Heilbrigðisgögn má gera mun aðgengilegri fyrir heil- brigðisstarfsmenn en nú er. Ef tryggja á rétta meðferð og góða ráð- gjöf verða upplýsingar að vera bæði réttar og ítarlegar. Rafrænt heild- rænt öldrunarmat InterRAI er að- ferð sem reynst hefur vel til að ná ut- an um aldurstengdar breytingar í lífi fólks, s.s. marga sjúkdóma, lyfja- notkun, færnitap og breytingar á fé- lagslegum aðstæðum. Þessa aðferð má nýta á öllum sviðum heilbrigðis- og félagsþjónustu fyrir eldra fólk og fólk með langvinna sjúkdóma óháð aldri. Öryggisnet fyrir eldra fólk Flestir vilja búa heima sem lengst og í orði kveðnu hefur það verið stefna stjórnvalda að styðja við sjálf- stæði eldra fólks. Til að það gangi eftir þurfa að koma til margs konar lausnir til hjálpar eldra fólki sem vill búa heima þrátt fyrir skerta færni. Auðvelt er að mæla margs konar at- hafnir og virkni fólks, telja skref, mæla ferðir upp og niður stiga og jafnvel að skynja þegar fólk fellur til jarðar. Fram eru komnar aðferðir til þess að staðsetja fólk sem hægt er að nýta, t.d. fyrir fólk með heilabil- unarsjúkdóm. Einnig fást nú úr sem gamalt fólk getur borið og notað sem farsíma með innbyggðri stað- arákvörðun. Þá fást hurðalásar sem stýrt er með farsíma og veita má til- teknum aðilum heimild til að opna. Þá geta þjónustuaðilar sjálfir, að fenginni aðgangsheimild, opnað dyr með auðkenningu um farsíma. Skrá má með þar til gerðum hugbúnaði veitta þjónustu eins og heimilisþrif, heimsóknir hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara eða lækna. Einnig má senda með sjálfvirkum hætti skilaboð til aðstandenda eða annarra þeirra sem koma að þjónustu og mynda saman öryggisnet í kringum aldr- aðan einstakling. Það er vandi að út- færa þjónustukeðju heimaþjónustu heilsugæslu og félagsþjónustu svo vel fari. Ef raunverulega á að veita ein- staklingsmiðaða þjónustu getur þjón- ustukeðjan orðið flókin sé ekki vel að öllu gætt. Til að hugmyndin nái vel fram að ganga þarf að fela einum að- ila frumkvæði og ábyrgð á allri þjón- ustu gagnvart tilteknum einstaklingi. Slíkur aðili stýrir síðan hópi fagaðila. Lífsskrá Haft er eftir Platon að læknisfræði sé stunduð af kostgæfni þegar hún tekur mið af siðfræði. Hafi það verið mikilvæg hugsun í fornöld, þá er vægi hennar ekki minna nú. Allar tækni- framfarir í heilbrigðisþjónustu hafa á sér siðfræðileg hlið og með aukinni tækni verður sú spurning áleitin hvort ætíð sé rétt að veita alla hugs- anlega meðferð. Þegar taka þarf ákvarðanir við lífslok er lögð meg- ináhersla á sjálfræði einstaklingsins og borin virðing fyrir viðhorfum hans og óskum. Þetta sjónarmið er áréttað í lögum um málefni sjúklinga sem kveða á um rétt sjúklings til að ákveða sjálfur hvort hann þiggur meðferð eða ekki. Á Landspítala hafa verið útbúnar leiðbeiningar í þessum anda um takmörkun meðferðar. Þar er siðfræðilegur grunnur reifaður og leiðbeint um samtalið og nálgun þess, auk þess sem kveðið er á um skrán- ingu slíkra takmarkana í sjúkraskrá. Mennta þarf alla heilbrigðisstarfs- menn og þjálfa í samtalinu um þessi viðkvæmu mál, ekki síður en að þjálfa þá í allri tækni er lýtur að endur- lífgun. Fyrir allmörgum árum setti Emb- ætti landlæknis á laggirnar svokall- aða Lífsskrá. Með Lífsskránni var hugmyndin að einstaklingur gæti sjálfur tekið ákvörðun um að ekki væri hafin meðferð eða meðferð hald- ið áfram sem er án raunhæfrar vonar um lækningu eða líkn. Þá er sér- staklega átt við meðferð og rann- sóknir sem einungis eru íþyngjandi og lengja dauðastríðið. Lífsskránni var ætlað að geyma upplýsingar um vilja einstaklings á þeim tíma er hún var undirrituð. Í Lífsskránni voru tvö mikilvæg atriði. Annars vegar eru það óskir um meðferð við lok lífs, geti viðkomandi ekki tekið þátt í ákvörð- unum sjálfur. Hins vegar er tilnefn- ing talsmanns sem valinn er til að koma fram fyrir hönd viðkomandi til að taka þátt í umræðum um óskir varðandi meðferð við lífslok, hvort heldur það er að þiggja, hafna eða draga til baka meðferð. Því miður hefur Lífsskráin ekki verið útfærð með þeim hætti sem til stóð. Hún kom til framkvæmda sem pappírs- eyðublað og hefur enn ekki verið tölvuvædd og gerð aðgengileg heil- brigðsstarfsfólki allan sólarhringinn árið um kring, svo sem nauðsynlegt hefði verið. Í stað þess að gangast í þá tæknilegu útfærslu sem þurft hefði hefur Embætti landlæknis nú lokað Lífsskránni. Auk þess að mennta og þjálfa heilbrigðisstarfs- fólk í því að takast á við þessi mik- ilvægu málefni væri vert að end- urvekja hugmyndina um Lífsskrána, tölvuvæða hana og finna henni um- sjónaraðila og stað. Samhliða væri mikilvægt að fara í samfélagslegt samtal um þessi mál, þannig að fólk fengi hvatningu og stuðning til þess að hugsa um þessi mikilvægu málefni og í kjölfarið tækifæri til þess að koma þeim hugsunum á framfæri. Andleg aðhlynning er mikilvæg Maðurinn er efni og andi. Því er mikilvægt að nálgast heilbrigðisþjón- ustu með heildrænum hætti. Þrátt fyrir að mikilvægi andlegrar að- hlynningar fólks sé almennt við- urkennt, verður hún oft útundan í heilbrigðisþjónustunni. Því veldur tímaleysi starfsfólks sem er störfum hlaðið og mæta þarf kröfu samfélags- ins um bætta framleiðni. Ættingjar og vinir eiga oft í erfiðleikum með að finna tíma til heimsókna vegna hraða og álags sem einkennir nútíma- samfélag. Heilsu- eða færnitap minnir fólk óþægilega á að lífi hér á jörð eru tak- mörk sett. Því vex mikilvægi and- legrar aðhlynningar þegar á líður ævina. Nærvera er kjarni andlegrar umönnunar. Þar er sjónum beint að tilfinningalegum, félagslegum og andlegum þáttum og samskipti eru af öðrum toga en við læknisfræðilega meðhöndlun. Hið andlega er ekki það sama og hið trúarlega og því getur fólk verið andlega sinnað og átt sinn andlega veruleika án þess að trúa á Guð eða æðri mátt. Brugðist við einmanaleika Margir kannast við að einmana- leiki fólks eykur kvíða og skerðir lífs- gæði verulega. Við þessu reyna fjöl- skyldur að bregðast með símhringingum og heimsóknum. Ekkert kemur þó í staðinn fyrir ná- lægð annarrar manneskju sem með skilningi, hlýrri nærveru, samræðu og hlustun örvar lífsgleði þess sem sjálfur kemst ekki út. Umhugsunarvert er hvernig sam- félagið getur hjálpað fólki sem glímir við einmanaleika, þunglyndi og kvíða, er nánum ættingjum sleppir. Sú leið hefur verið nefnd að bjóða mætti fólki sem þjáist af þessum ein- kennum að búa í opnu sambýli með öðru fólki. Að þessu þurfa sveit- arfélög að huga. Innri samfélagsgerð og skipulag byggðar þarf að taka mið af velferð allra – alla ævi. Í stefnu Reykjavíkurborgar um að verða ald- ursvæn borg felst virðing við eldra fólk og viðurkenning á mikilvægi þess fyrir samfélagið allt. Með því að mæta þörfum eldra fólks er um leið stuðlað að velferð allra í samfélagi okkar. Þeirri hugmynd hefur áður verið varpað fram af höfundum þessarar greinar að þjóðkirkjan, sem lengi hefur verið hluti velferðarkerfisins vegna hins kristna mannskilnings síns, taki sér stærra hlutverk í and- legri aðhlynningu fólks en verið hef- ur. Prestar og djáknar vitja um sjúkt og aldrað fólk og sinna því eins og þeir best geta. Víðtækari stuðningur er veittur með liðsinni fólks í kirkju- sóknum og nærumhverfi. Þá hefur Rauði krossinn skipulagt starf heim- sóknavina með líkum hætti og þjóð- kirkjan. Á hans vegum heimsækir fólk sjúklinga á heilbrigðisstofnunum sem annars fengju sjaldan eða aldrei heimsóknir – og sömuleiðis aðra er búa við einsemd. Þetta lofsverða sjálfboðaliðastarf hefur mikla þýð- ingu fyrir þá sem njóta. Þjóðkirkjan gæti án efa, vilji hún það, skipulagt meira starf af þessu tagi innan sókna í nærumhverfi fólks. Innan vébanda kirkjunnar er fjöldi fólks sem ekki sinnir lengur fastri vinnu en er við góða heilsu og með vilja til að láta gott af sér leiða. Það fólk er vel fallið til að styðja meðbræður og -systur með heimsóknum og nærveru – og auðga um leið eigið líf. Eldra fólk í tæknivæddri veröld Eftir Pálma V. Jónsson og Svönu Helen Björnsdóttur » Í erfiðum rekstri Landspítalans og heilbrigðisþjónustu við eldra fólk leynast tæki- færi til nýsköpunar. Pálmi V. Jónsson Pálmi er yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítala og prófessor við lækna- deild Háskóla Íslands. Svana Helen er verkfræðingur, stofnandi og stjórnarformaður Stika og fv. formað- ur Samtaka iðnaðarins. Höfundar starfa saman að nýsköpun í þjónustu við eldra fólk. Svana Helen Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.