Morgunblaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015
28. nóvember – 22. desember
Lukkulíf áKanarí
Flogið með Icelandair
á mann m.v. 2 í gistingu án fæðis.
*Verð án Vildarpunkta 129.900 kr.
Þú færð að vita daginn fyrir brottför á hvaða hóteli þú gistir.
Verð frá
og 12.500 Vildarpunktar
119.900 kr.*
24 nætur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ingvar Smári Birgisson
isb@mbl.is
Ekki tókst að koma sanddæluskipinu Perlu
á flot í gærkvöldi og situr það enn á botni
Reykjavíkurhafnar. Aðgerðir stóðu yfir í
allan gærdag til að koma skipinu á flot, en
erfiðið bar lítinn árangur. Björgunar-
aðgerðum var hætt um klukkan hálfellefu
og fundað verður í hádeginu í dag, þar sem
staðan verður tekin og næstu skref ákveð-
in.
Dæling fór vel af stað í gærmorgun og
lyftist afturhluti skipsins frá botni á u.þ.b.
klukkustund. Illa gekk að halda skipinu í
jafnvægi þar sem fremri hluti þess var und-
ir yfirborðinu. Að lokum var vatni hleypt
aftur að skipinu og ferlið hófst að nýju um
klukkan sex, þegar fjarað hafði í höfninni.
Voru þá fengnir tveir vörubílar ásamt
krana til að halda skipinu stöðugu. Það bar
ekki tilætlaðan árangur.
„Vandinn er sá að menn finna ekki lausn-
ina á því að ná stefninu upp. Hvað veldur
er ekki gott að segja,“ segir Gísli Gíslason,
framkvæmdastjóri Faxaflóahafna.
Perla enn
á hafsbotni
Aðgerðir stóðu yfir
frá morgni til kvölds
Morgunblaðið/Júlíus
Vandi Björgunaraðilar funda í hádeginu í dag og ræða næstu skref. Vandinn er sá að ekki hefur tekist að finna lausn á því að ná stefninu upp.
Guðni Einarsson
Anna Marsibil Clausen
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnað-
ar- og viðskiptaráðherra segir ýmis-
legt rangt hafa komið fram á blaða-
mannafundi sem Björk Guðmunds-
dóttir söngkona og Andri Snær
Magnason rithöfundur efndu til í
gær. Hún skrifaði á Facebook að sér
„hefði fundist smartara ef Björk
hefði notað þetta tækifæri til að
hvetja til samstarfs og samtals um
þessi mikilvægu mál, frekar en að
biðja alþjóðapressuna um þennan
stuðning gegn okkur í ríkisstjórn-
inni“.
Ragnheiður Elín kvaðst aldrei
hafa rætt umhverfis- og orkumál við
Björk. „Ég held að við sem sitjum í
núverandi ríkisstjórn séum ekki þeir
miklu andstæðingar hennar eins og
mér sýnist hafa verið dregið upp á
blaðamannafundinum áðan. Ég held
að báðar séum við unnendur ís-
lenskrar náttúru og viljum framtíð
landsins okkar og þjóðar sem allra
besta.“
Vilja þjóðgarð á hálendinu
„Það er ekki til nein álfaorka. Ís-
land er alvörustaður, með alvöru-
fossum og alvörunáttúrulífi.“
Þetta sagði Andri Snær Magnason
á blaðamannafundi náttúruverndar-
samtakanna Gæt-
um garðsins í
Gamla bíói í gær.
Þar kynntu Andri
og Björk Guð-
mundsdóttir sam-
tökin og kröfu
þeirra um að
miðhálendinu eða
„hjarta Íslands“,
eins og þau kalla
svæðið, verði
breytt í þjóðgarð
og komið verði í veg fyrir fyrirætl-
anir um háspennulínur og frekari
virkjanir á miðhálendinu.
Frestur almennings til að mót-
mæla háspennulínum sem til stend-
ur að setja upp þvert yfir miðhálend-
ið rennur út eftir 10 daga. Sögðu þau
Björk og Andri að kannanir sýndu að
80% Íslendinga væru fylgjandi því
að hálendið yrði gert að þjóðgarði en
engu að síður hygðust yfirvöld ganga
gegn þeim óskum. Biðluðu þau til
heimsbyggðarinnar, í gegnum þann
fjölda erlendra fréttamanna sem við-
staddir voru fundinn, að hjálpa sam-
tökunum að berjast gegn ríkisstjórn-
inni.
Björk fór hörðum orðum um ís-
lensk stjórnvöld í svörum sínum við
spurningum viðstaddra. Hún benti
m.a. á að kjörtímabil ríkisstjórnar-
innar væri aðeins rúmlega hálfnað
og hún gæti enn náð að valda óaftur-
kræfum skaða á hálendinu.
„Þeir eru að þröngva vísinda-
mönnum til að framkvæma mat á
þessum stöðum, sem er eins og
klikkaðasta krossapróf sem ég hef
séð,“ sagði Björk. Sagði hún að vís-
indamönnunum væri gert að vinna
hratt og skila af sér mati fyrir febr-
úar og að jafnvel þótt þeir kæmust
að því að það yrði að vernda hálendið
þyrftu yfirvöld ekki að fylgja ráð-
leggingum þeirra.
Umdeilt „hjarta Íslands“
Ráðherra segir ýmislegt rangt hafa komið fram á blaðamannafundi um hálendið
Björk söngkona og Andri Snær rithöfundur vilja að hálendið verði þjóðgarður
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Andri Snær
Magnason
Björk
Guðmundsdóttir
Samgöngustofa hafnaði á þriðjudag
beiðni Þ.G. Verktaka ehf. um leyfi til
að reisa byggingarkrana á Hlíðar-
endasvæðinu. Fréttastofa Stöðvar 2
greindi frá. Ástæða höfnunarinnar
var að kranarnir myndu skaga upp í
aðflugsflöt að NA-SV-flugbraut
Reykjavíkurflugvallar.
Þorvaldur Gissurarson, forstjóri
Þ.G. Verktaka ehf., sagði í samtali
við Morgunblaðið að sótt hefði verið
um leyfi fyrir tveimur til þremur
krönum. Þeir eru um 30 metra háir.
Þorvaldur sagði að synjunin breytti
engu fyrir framkvæmdirnar á með-
an jarðvinna stæði yfir. Jarðvinnan í
verkefninu væri umfangsmikil og
veturinn færi í hana. Líklega yrði
ekki þörf fyrir kranana fyrr en í vor.
„Þetta er nokkuð sem þarf að leysa
áður en þarf að reisa byggingar-
kranana,“ sagði Þorvaldur. „Við
reiknum með að þetta verði leyst á
milli ríkis og borgar og trúum ekki
öðru.“ gudni@mbl.is
Beiðni um krana á
Hlíðarenda neitað
Myndu skaga upp í aðflugsflöt
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hlíðarendi Fyrsta skóflustunga að
framkvæmdum tekin í síðustu viku.
Launanefnd Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðræðunefnd u.þ.b.
40 bæjarstarfsmannafélaga og
verkalýðsfélaga ræddust við í húsa-
kynnum ríkissáttasemjara í gær.
Næsti fundur er boðaður eftir há-
degi á mánudag. Engar viðræður
verða því um helgina.
Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri
kjarasviðs sveitarfélaganna, sagði að
unnið hefði verið í samningum
þeirra stéttarfélaga sem tengjast
starfsmati sveitarfélaganna. Um er
að ræða launaröðunarkerfi sem tek-
ið var upp snemma á þessari öld.
Umrædd stéttarfélög eru með sömu
launatöflu og þurfa því að viðhafa
ákveðna samvinnu í viðræðunum.
gudni@mbl.is
Viðræður
við bæjar-
starfsmenn
Fundur á mánudag
Engan sakaði þegar eldur kviknaði
í vélarrúmi skipsins Bjarna Sæ-
mundssonar í Slippnum í Reykjavík
kl. 14:04 í gær. Tveir starfsmenn
voru við rafsuðuvinnu neðanþilja
og kviknaði í þili hinum megin við
vegginn þar sem rafsuðan hafði
farið fram. Brunaviðvörunarkerfi
skipsins fór í gang, sem bjargaði
mönnunum, samkvæmt upplýs-
ingum frá slökkviliði höfuðborg-
arsvæðisins. Vélstjóri skipsins var
fljótur að bregðast við og slökkti
eldinn að mestu. Allt tiltækt
slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu
var kallað út og var eldurinn end-
anlega slökktur rétt fyrir kl. 16.
Bjarni Sæmundsson er rannsókn-
arskip í eigu Hafrannsóknastofn-
unar.
Slökktu eld í Bjarna
Slippurinn Engan sakaði vegna eldsins.