Morgunblaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.11.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2015 ILVA Korputorgi, s: 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18, sunnudaga 12-18, mánudaga - föstudaga 11-18:30 Jólin eru komin Nýr bæklingur á www.ilva.is Sú stefna borgaryfirvalda á liðn-um árum að bjóða ekki nægar byggingalóðir á hagkvæmu verði þar sem fólk vill byggja hefur skilað þeim árangri að börnum í leik- skólum borgarinnar mun fækka á næsta ári, samkvæmt fjár- hagsáætlun 2016.    Vissulega má takaá bráðavanda í rekstri með ýmsum hætti og ein leiðin er að hrekja fólk frá borginni til ná- grannasveitarfélaganna eins og raunin hefur verið hjá Reykjavík.    Þetta er að vísu aðeins ámótagagnleg leið og að hita skóinn sinn með sérstökum hætti, en skammgóður vermir er betri en eng- inn horfi menn aðeins til fjögurra ára í senn.    Eins og kunnugt er hefur borgar-stjóri lofað því að hækka ekki útsvarsprósentuna á næsta ári, en það er reyndar bannað lögum sam- kvæmt því að Reykjavík er í há- marki.    Þá hefur hann talað um að hækkaekki heldur skatthlutfall fast- eignaskatta, en vegna hækkandi fasteignaverðs er afleiðingin af óbreyttu skatthlutfalli engu að síður sú að í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir tæplega 11% hækkun skatt- tekna vegna fasteigna.    Bendir sú áætlaða hækkun ekkitil að svigrúm hafi verið til að lækka skatthlutfallið?    Eða er svo komið í afleitumrekstri borgarinnar, sem fjöl- menn áróðursdeild borgarstjóra kallar „viðsnúning í rekstri,“ að kreista þarf hverja krónu sem hægt er út úr borgarbúum? Dagur B. Eggertsson 11% hækkun fasteignaskatta STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.11., kl. 18.00 Reykjavík 8 alskýjað Bolungarvík 6 alskýjað Akureyri 7 rigning Nuuk -7 skafrenningur Þórshöfn 10 skúrir Ósló 7 súld Kaupmannahöfn 11 súld Stokkhólmur 10 skýjað Helsinki 7 skýjað Lúxemborg 13 skýjað Brussel 16 skýjað Dublin 12 léttskýjað Glasgow 13 skýjað London 17 skýjað París 17 skúrir Amsterdam 16 skýjað Hamborg 13 skýjað Berlín 15 alskýjað Vín 11 léttskýjað Moskva -1 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt Madríd 22 heiðskírt Barcelona 18 heiðskírt Mallorca 21 léttskýjað Róm 18 heiðskírt Aþena 16 heiðskírt Winnipeg 1 snjóél Montreal 17 alskýjað New York 21 alskýjað Chicago 9 alskýjað Orlando 29 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. nóvember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:30 16:54 ÍSAFJÖRÐUR 9:50 16:43 SIGLUFJÖRÐUR 9:34 16:26 DJÚPIVOGUR 9:03 16:19 Annar sunnudagur í nóvember er ár- legur kristniboðsdagur Þjóðkirkj- unnar og verður margvísleg dagskrá í tilefni dagsins. Kristniboðsalmanakið fyrir árið 2016 er komið út og verður því víða dreift í guðsþjónustum dagsins. Íslenskir kristniboðar hafa undan- farna áratugi starfað í Eþíópíu, Jap- an og Keníu og sinnt þar boðunar- og fræðslustarfi og tekið þátt í þróun- arverkefnum með samstarfskirkjum sínum. Margvísleg verkefni eru styrkt fjárhagslega. Má þar nefna boðunarverkefni, skólabyggingar, námsstyrki, biblíuþýðingar, lestrar- verkefni og Af götu í skóla í Eþíópíu. Nú verður sjónum sérstaklega beint að konum og kristniboði í til- efni af 100 ára kosningarétti kvenna hér á landi, segir í tilkynningu frá Kristniboðssambandinu. Sérstök hátíðarsamkoma verður í tilefni dagsins í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58-60 kl. 14 á sunnu- dag og árleg kaffisala Kristniboðs- félags karla í Reykjavík verður í beinu framhaldi á sama stað. Á sam- komunni flytur Ólafur Jóhannsson, sóknarprestur og formaður stjórnar Kristniboðssambandsins, hugleið- ingu. Á Akureyri verður samkoma í fé- lagsheimili KFUM og KFUK í Sunnuhlíð kl. 17. Þar mun Margrét Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur segja frá og flytja hugleiðingu. Haldið upp á kristniboðsdaginn  Sjónum verður sérstaklega beint að konum og kristniboði  Árleg kaffisala Kristniboð Mikiláherslu er lögð á menntun barna og unglinga. Sunnudaginn 8. nóvember verður Sigurður Grétar Helgason settur prestur í Graf- arvogskirkju við guðsþjónustu sem hefst kl. 11. Sr. Sigurður lauk embættis- prófi frá Háskóla Íslands, 1996. Hann var skipaður prestur í Sel- tjarnarneskirkju, 1998 til 2000 og í framhaldi af þeim tíma sem sókn- arprestur til ársins 2012. Sigurður starfaði einnig sem prestur í norsku kirkjunni og í af- leysingum innan Þjóðkirkjunnar. Síðasta vetur starfaði Sigurður í afleysingum við Grafarvogskirkju og einnig í Breiðholtskirkju. Hann var skipaður prestur í Grafarvogskirkju frá 1. ágúst sl. Settur í embætti prests í Grafarvogi Sigurður Grétar Helgason Biskup Íslands auglýsti fyrir skömmu eftir presti til afleys- ingaþjónustu í Útskálaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi. Biskup hefur nú í samráði við fulltrúa sóknarnefnda sett séra Báru Friðriksdóttur til þjónustu sóknarprests í Útskálaprestakalli frá 1. nóvember sl. til 31. desember 2016. Sóknarprestur í Útskála- prestakalli er sr. Sigurður Grétar Sigurðsson Leysir af í Útskála- prestakalli

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.