Víkurfréttir


Víkurfréttir - 19.09.1991, Side 19

Víkurfréttir - 19.09.1991, Side 19
Hvað segja þjálfararnir eftir tímabilið? _________19 \4kurfréttir 19. sept. 1991 Bjarni Jóhannsson, þjálfari UMFG: „Vorum ótrúlega stutt frá ævintýrinu" „Ég held að lokastaðan sé ekkert óeðlileg. Skagaliðið hef- ur mikinn styrk á bak við sig og Þórsliðið hefur lengi verið efni- legt. Það sem kannski helst kom á óvart var með hversu lítilli reisn Þórsararnir fóru upp,“ sagði Bjami Jóhannsson, þjálf- ari Grindavíkur um lokastöð- una. -Ertu sáttur við frammi- stöðu liðsins? „Já, ég er alveg sáttur við hana. Það hefði að vfsu verið gaman að veita toppliðunum meiri keppni fyrr í mótinu, því þá er aldrei að vita hvernig þetta hefði spilast í lokin. Markmiðið hjá okkur var hins vegar að forðast botnbaráttuna. Við töld- um að 26-30 stig yrði góður ár- angur og allt fyrir ofan 5. sætið væri mjög gott.“ -Nú náði iiðið í mikið af stigum gegn sterkustu lið- unum, en tapaði að sama skapi stigum til botnliðanna. Hver er ástæðan? „Að mínu mati voru þetta hugarfarsbrestir í liðinu. Menn verða að bera virðingu fyrir öll- um andstæðingum. Það er hins vegar gott hvað við stóðum í sterku liðunum og í raun vorum við ótrúlega stutt frá æv- intýrinu, sérstaklega þegar maður horfir aftur til næst- síðasta leiksins, gegn Selfossi. Þar hefðum við hæglega getað unnið 6:0.“ -Hver var lykillinn að þessu góða gengi ykkar í sumar? „Það var fyrst og fremst gott undirbúningstímabil og góð æf- ingasókn. I vor sóttum við æf- ingar á höfðuborgarsvæðið til að geta æft á gervigrasi og þær æfingar voru okkur ómetan- Iegar. Ég tel að það sé brýnt að fá a.m.k. einn gervigrasvöll hingað til Suðurnesja." •Telur þú að það standi í veginum fvrir því að Suð- urnesin eignist a.m.k. eitt virkilega gott knattspvrnu- lið? „Margir vilja kenna að- stöðuleysi um, sem er að vissu Ieyti rétt. Það sem háir hins vegar háir knattspymunni mest á Suðurnesjum er karakter- leysið. Menn eru margir hverjir ekki tilbúnirað leggja sig 100% fram, og svo er fótboltinn ekkert fyrir fýlupúka. Allt of margir leikmenn, og þetta á við öll Suðumesjaliðin, fara bara í fýlu ef eitthvað er við þá sagt. Ef það á að ná árangri, þá þarf 11 menn inn á völlinn, sem eru tilbúnir að gefa sig í þetta af lífi og sál.“ -Hverju má kenna um þetta karakterleysi? „Það er kannski erfitt að benda á einhverja eina ástæðu, en þó tel ég að það vanti aga í yngri flokkana. Það þarf að vinna markvisst að upp- byggingarstarfinu.“ -Hvernig verður með næsta ár hjá þér? „Ég gerði tveggja ára samn- ing við Grindavík, sem er að vísu uppsegjanlegur af báðum aðilum. Við munum því að sjálfsögðu ræða saman áður en nokkuð annað gerist,“ sagði Bjami Jóhannsson, þjálfari UMFG. • Bjarni Júhannsson með tvíburadætur sínar Brvnju og Bryndísi í fanginu. Nú þegar farið er að hægja á fótboltanum ættu þær að fá að sjá aðeins meira af pabba sínum. • Kjartan Másson með hundinn sinn Yl. Ylur var áheit frá Guðjóni Ólafssyni í Sandgerði, til Kjartans árið 1986. Viðtöl og myndir: GKV Kjartan Másson, þjálfari ÍBK: „Er að verða kynslóðaskipting í hópnum" „Það má segja að þetta hafi farið svona nokkurn veginn eins og maður reiknaði með. Það lið sem var heppið fór upp.“ sagði Kjartan Másson, þjálfari ÍBK aðspurður um álit á loka- stöðunni í 2. deildinni. -Ertu sáttur við árangur þinna nianna? „Já, ég held ég geti ekki verið annað en sáttur við þá. Við átt- um í smá vandræðum framan af með að skora, en það lagaðist seinni hlutann. Það eina sem ég er virkilega ósáttur við er leik- urinn gegn Þór, þar sem leik- menn höfðu reyndar ekkert um það að segja hvernig leikurinn fór. Ég spurði dómarann reynd- ar að því strax eftir leikinn hvort hann gerði sér grein fyrir því að hann hefði kostað okkur fyrstu deildar sæti!“ -Hvað með sjálfan þig, ertu sáttur við eigin frammistöðu? „Já, persónulega hefur þetta verið gott ár hjá mér. Ég náði að koma handboltastúlkunum upp í 1. deild í vor og var ekki langt frá því með strákana í bolt- anum. Við skulum hins vegar átta okkur á því að við bættum árangur okkar verulega frá því í fyrra. Við erum tveimur sæt- um ofar, og með 9 stigum og helling af mörkum meira en á síðasta ári, þannig að við erum á réttri leið. -Telur þú að liðið liail átt erindi í fvrstu deild núna? „Það er spurning. Fyrir mig persónulega hefði það kannski verið meiriháttar gott, en hvort liðið hefði verið tilbúið er aftur annað mál. Ég lýsti því oft yfir fyrir þetta keppnistímabil, bæði við strákana og opinberlega, að ég vildi gera þetta á tveimur árum til að byggja upp sterkara lið fyrir fyrstu deildina." -Nú verður þú aftur þjálf- ari næsta ár, áttu von á því að hópurinn breytist mikið? „Það er ekki svo auðvelt að gera sér grein fyrir því strax. Það er nokkuð ljóst að það er að verða kynslóðaskipting í hópn- um og mikið af ungum leik- mönnum að koma inn í liðið. Hvað varðar skipti á milli fé- laga þá er fátt komið á hreint um þau í dag. Ég veit þó ekki um neina sem eru á förum frá okk- ur.“ -Verður þá bara lialdið á- fram á fullu? „Já, við byrjum aftur strax í október og tökum reyndar þátt í 15 liða haustmóti á gervi- grasinu í Reykjavík, sem í leika 10 Reykjavíkurlið ásamt 5 ut- anbæjarliðum. Að lokum vildi ég svo fá að koma á framfæri þakklæti til starfsfólksins í íþróttahúsinu í Keflavík. Þau eru alltaf tilbúin að gera sitt besta til að bjarga okkur hvað sem upp á kemur,“ sagði Kjartan Másson að lok- um. 90 krakkar í körftiboltaskóla UMFN og íslandsbanka Unglingaráð körfuknatt- leiksdeildar UMFN og ís- landsbanki stóðu fyrir körfuknattleiksskóla fyrir krakka á aldrinum 6-15 ára í á- gústmánuði. Alls sóttu um 90 krakkar skólann, en aðalþjálfari var Patrick McCool, sem ráðinn hefur verið til að hafa yf- irumsjón með unglingaþjálfun hjá UMFN. Honum til halds og trausts voru fjölmargir að- stoðarmenn sem leiðbeindu einnig við skólann. íslandsbanki var að- alstyrktaraðili skólans, en ung- lingaráð UMFN og Islandsbanki gerðu nýverið samkomulag sín á milli um ýmiskonar styrki frá bankanum til félagsins. Gaf Is- landsbanki m.a. fjölmörg verð- laun sem afhent voru fyr- irmyndar nemendum svo og þeim sem sköruðu framúr í skothittni og vítahittni. Viðurkenningarnar féllu eft- irfarandi í skaut: Fyrirmyndar nemendur voru: OlafurRafn Brynjólfsson, Bimir Björnsson, Ægir Gunnarsson, • Þátttakendur í körfuknattleiksskóla UMFN ásamt kenn- uruni og fulltrúa Is- landsbanka. Heiða Björk Árnadóttir, Anna Steinunn Jónasdóttir og Örvar Kristjánsson. Bestu skytturnar voru: Sig- urður Einarsson, Eyþór Sæ- mundsson, Skúli Sigurðsson, Helga Jónasdóttir, Anna Stein- unn Jónasdóttir og Auður Jóns- dóttir. Bestu vítaskytturnar voru: Jóhann Jóhannsson, Jón Björn Olafsson, Einar Jóhannsson, Kristín Rúnarsdóttir, Rannveig Þorvaldsdóttir, og Sólveig Karlsdóttir.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.