Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 2
Verður EM-stofan með hefðbundnu sniði? „Já, það má segja það. Það verða alla vega engar byltingar. Við Edda Sif Pálsdóttir munum skipta umsjóninni á milli okkar og höfum okk- ur til aðstoðar toppsérfræðinga, Loga Geirsson, Bjarka Sigurðsson og Reyni Þór Reynisson, sem þekkja leikinn út og inn. Við vitum að margir fylgjast bara með stórmótum í handbolta og fyrir vikið er mikilvægt að svona þáttur sé á mannamáli án þess þó að það bitni á greiningu sérfræðinganna.“ Verður meiri gestagangur hjá ykkur? „Það á eftir að koma í ljós. Við þurfum að prufukeyra þáttinn og sjá hvað virkar. Þátturinn verður nefnilega heldur styttri en áð- ur; korter fyrir leik og líklega ekki nema fimm mínútur eftir leik. Þetta verður styttra og snarpara.“ Ertu sjálf áhugasöm um handbolta? „Já, ég æfði handbolta með HK og Val og náði meira að segja einum Evrópuleik með Val. Ég segi gjarnan að ég hafi hætt á toppnum en ég lagði skóna á hilluna eftir að hafa verið valin í úrtak vegna 21-árs lands- liðsins.“ Fyrir liggur að þessi þjóð er handboltasjúk. Er ekki pressa að stjórna svona þætti? „Heldur betur. Enda fékk ég að heyra það þegar ég byrjaði með HM- stofuna í fyrra. „Veit hún eitthvað um handbolta?“ Sá tónn breyttist reyndar þegar á leið og fyrst mér bauðst að halda áfram í ár tek ég því svo að þetta hafi nú heppnast sæmilega. Ég hef bæði bakgrunn og áhuga á handbolta en þetta er eina íþróttin sem ég myndi treysta mér til að fjalla um með þessum hætti. Ég myndi til dæmis aldrei lýsa hestamannamóti. Það má heldur ekki gleyma því að ég er bara að stjórna þættinum, það kemur fyrst og síðast í hlut sérfræðinganna að greina leikinn.“ Er ekki líf og fjör kringum útsendinguna? „Jú, það eru mikil læti enda gerist allt mjög hratt. Koma þarf upplýsingum og myndum frá leikjum strax á framfæri. Það er hrein unun að vinna með Hilmari Björnssyni útsendingarstjóra og hans fólki enda vita þau nákvæmlega hvað þau eru að gera. Maður fær aldrei óp í eyrað í útsendingu. Fagmennskan á íþróttadeildinni er mjög mikil en fólk áttar sig ekki alltaf á álaginu sem þetta fólk er undir. Það er mjög gaman að taka þátt í umfjöllun um svona stórmót í handbolta, sérstaklega þegar íslenska liðinu gengur vel.“ Hvernig líst þér á íslenska liðið? „Ágætlega. Ég er bjartsýn á að það nái settu marki, það er sæti í forkeppni fyrir Ólympíuleikana. Það er stór gulrót og ég er ekki í vafa um að menn muni leggja allt í sölurnar til að komast til Ríó. Margir leikmannanna eru komnir á síðustu ár ferilsins og vilja örugglega toppa sig. Ég þori ekki að spá liðinu ákveðnu sæti á mótinu. Spái maður of lágt er maður svikari og spái maður of hátt eru það skýjaborgir. Það sem skiptir mestu er að við tryggjum okkur í forkeppnina.“ Morgunblaðið/Eggert ÞÓRA ARNÓRSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Styttra og snarpara Í fókus 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016 Mér finnst þeir sanngjarnir. Þessir menn eiga að afplána fyrir það sem þeir gerðu. Einar Eðvarð Steinþórsson Ég hef ekki myndað mér skoðun á þessu en fangar hafa líka rétt. Karl Jóhann Baldursson Svona er karma. Ingibjörg Stefánsdóttir. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Ég hef ekki kynnt mér það vel. Ef þeir gerðu eitthvað slæmt þá já, já. Thelma Lind Valtýsdóttir Morgunblaðið/Eggert SPURNING VIKUNNAR HVAÐ FINNST ÞÉR UM FANGELSISDÓMA YFIR BANKAMÖNNUM? Í janúarmánuði er algengt að fólk taki sig saman eftir hátíðarnar og hefji eins- konar líkamsræktarátak. Þá er nauðsynlegt að eiga góðan íþróttafatnað en sumartískan 2016 er að hluta til mikið undir áhrif- um frá sport- inu. Tíska 37 ÚR BLAÐINU Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson Sara Gunnarsdóttir gerir allar teikningarnar í kvikmynd- inni The Diary of a Teenage Girl, sem hefur vakið mikla at- hygli að undanförnu. Hún vinnur ennfremur að heimild- armyndinni Sjóræningi ást- arinnar sem verður að stórum hluta teiknuð Viðtal 14 Skíðamennska er frábært fjölskyldusport en huga þarf að öryggi og þekkja skíðareglur. Framkvæmda- stjóri skíðasvæðanna mælir með notkun bakbrynja og segir að foreldrar verði að sýna gott fordæmi í brekk- unum. Fjölskyldan 30 Helgi Ingólfsson vakti mikla athygli fyrir fimm ár- um með glæpasögu sem gerðist um það leyti sem Kristján IX. kom hingað til lands 1874. Helgi hefur sent frá sér annan reyfara sem gerist fimmtán árum síðar, en nú er Gestur Pálsson í aðalhlutverki. Bækur 50 Þóra Arnórsdóttir hefur umsjón með EM-stofunni í Ríkissjónvarpinu í tilefni af EM í handbolta sem hófst í Póllandi á föstudaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.