Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016
„Fyrirkomulagið ekki óeðlilegt“
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-son, forsætisráðherra, telurað breyta þurfi verklagi í
skipulagsmálum í miðborg Reykja-
víkur, svo verktakar komist ekki
upp með að sýna ekki teikningar af
húsum fyrr en rétt áður en til
stendur að samþykkja byggingu
þeirra. Ráðherra tók býsna sterkt
til orða í samtali við Morgunblaðið.
Tilefnið er myndir af fyrirhug-
uðum húsum á svonefndu Hafnar-
torgi, austan Lækjartorgs, en svæð-
ið blasir við þegar horft er út um
glugga á skrifstofu forsætisráðherra
í Stjórnarráðshúsinu.
Ólöf Örvarsdóttir, sem lengi var
skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar,
er nú sviðsstjóri Umhverfis- og
skipulagssviðs borgarinnar; æðsti
embættismaður í málaflokkunum.
Minna byggingamagn
Útlit húsa og byggingamagn á
Hafnartorgi hefur hvort tveggja
verið gagnrýnt. „Auðvitað er þetta
töluvert byggingamagn en það er
mikilvægt að nýta landið vel því
land er takmörkuð auðlind,“ segir
Ólöf. „Það er verið að efla þjónustu
í miðborginni með þessu, þarna
verður mikið af vönduðu verslunar-
rými, sem opnar marga möguleika,
ýmis þjónusta og líka íbúðir.“
Hún segir byggingamagnið hafa
verið ákveðið af ríki og borg á sín-
um tíma og inn í það skipulag hafi
lóðarhafi gengið. „Magnið hefur ver-
ið ljóst mjög lengi því það var sam-
þykkt í deiliskipulagi 2006 í kjölfar
alþjóðlegrar samkeppni um þennan
reit 2001. Það má reyndar segja að
endurhönnun hafi átt sér stað síðan
2006 því byggingamagnið er orðið
mun minna; tveir stórir byggingar-
reitir voru minnkaðir í fjóra minni
sem aftur voru brotnir í smærri ein-
ingar. Ég skil þess vegna alls ekki
hvernig forsætisráðherra fékk út að
byggingamagnið hefði aukist.“
En það ótækt að verktakar sýni
teikningar jafn seint og raun ber
vitni eins og forsætisráðherra
nefndi? Er etv. ástæða til að breyta
því verklagi sem unnið er eftir?
Hún segist ekki vilja fullyrða að
fyrirkomulagið geti ekki orðið betra
„en fyrirkomulagið er ekki óeðlilegt
í dag“, segir hún.
„Ef um er að ræða byggingar
sem eiga rísa eftir skipulagi sem
samþykkt er eftir gildistöku skipu-
lagslaga frá 2010 þá eiga skilmálar
um útlit og yfirbragð bygginga að
vera hluti af skipulaginu.“
Ef sú er ekki raunin og um eldra
skipulag er að ræða, segir Ólöf í
einhverjum tilvikum gott að fá rýni-
myndir af fyrirhuguðu yfirbragði
bygginga með tilliti til skírskotunar
í umhverfið tiltölulega snemma.
„Umhverfis- og skipulagsráð hefur
kallað eftir slíkum teikningum af
byggingum í miðborginni og fengið
kynningar tiltölulega snemma í
hönnunarferlinu en þá erum við að
tala um einskonar hönnunarkonsept
eða drög, því útlit bygginga sem
slíkt er auðvitað niðurstaða langs
ferils sem tekur tillit fjölmargra
þátta og er sjaldnast upphafs-
punktur. Ef útlitið væri upphaf og
endir alls væri verið að hanna leik-
myndir en ekki byggingar fyrir
manneskjur og mannlíf sem eiga
að endurspegla þann samtíma
sem þær tilheyra um leið og
þær eiga að taka tillit til og að-
laga sig að anda staðarins.“
Forsætisráðherra
nefndi að sérstaklega
þyrfti að breyta vinnu-
brögðum varðandi
uppbyggingu í mið-
borginni. Ólöf segir
fjölmörg dæmi um stíf-
ar kröfur um hönnun og útlit í
skipulagi, t.d. við Ingólfstorg, á
Hljómalindarreit og fleiri stöðum
þar verið er að flétta nýja byggð við
gamla. Sama muni gilda á horni
Lækjargötu og Vonarstrætis.
Hún segir ekki mikið fjallað um
fagurfræði í byggingarreglugerð.
„Þar er ein setning um fagur-
fræði. Umhverfis- og skipulagsráð
lét hinsvegar skipa í fagrýnihóp sem
Arkitektafélagið og Félag landslags-
arkitekta eiga fulltrúa í, sérstaklega
til að rýna útlit bygginga í miðborg-
inni og gefa á þeim álit til bygging-
arfulltrúa sem veitir byggingar-
leyfið. Það er ekki hægt að fjalla
um útlit sem afmarkaðan hátt að
mínu mati en ef við tökum Kvosina
sem dæmi þá er þar að finna elsta
hús borgarinnar sem og glæsileg-
ustu fulltrúa byggingarlistar frá
hverjum tíma fyrir sig.
Góð nýting lands
Á Hafnartorgi á að byggja nú-
tímalegt verslunar- og þjónustu-
húsnæði sem og íbúðir. Á svæðinu
voru áður skemmur, íshús, pakkhús,
kolageymslur og öflug atvinnu-
starfsemi og auðvitað stórt bílastæði
í mörg ár. Reiturinn er hluti af
skipulagi Austurhafnar en á þeim
reitum er byggingarmagn töluvert.
Það var alltaf vitað að Harpa yrði
hluti af því samhengi og bygging-
arnar sem liggja hvað næst Hafn-
artorgi eru nokkuð voldug hús af
ýmsu tagi og misjöfn að útliti og
stærð. Þó vegleg og lóðir vel nýttar.
Góð nýting lands og það að byggja
þétt er umhverfisvænt og gefur
möguleika á öflugri þjónustu og það
má ekki gleymast í umræðunni.
Sjálf hef ég trú á því að reiturinn í
heild, frá Tryggvagötu að Hörpu
verði spennandi og mikilvæg viðbót
við miðborgina.“
Fyrirhuguð bygging
austan Lækjartorgs,
gegnt Arnarhóli
PK arkitektar/Birt með leyfi
FORSÆTISRÁÐHERRA VARPAÐI SPRENGJU ÞEGAR HANN GAGNRÝNDI HARÐLEGA ÚTLIT FYRIRHUGAÐRA BYGGINGA Á HAFNARTORGI VIÐ
LÆKJARTORG OG SAGÐI AÐ BREYTA ÞYRFTI VERKLAGI SVO VERKTAKAR SÝNI TEIKNINGAR MUN FYRR EN TÍÐKAST. SVIÐSSTJÓRI UMHVERFIS-
OG SKIPULAGSSVIÐS BORGARINNAR SEGIST MYNDU VILJA SJÁ MEIRI KRÖFUR UM FAGURFRÆÐI Í BYGGINGARREGLUGERÐ EN NÚ ER
* Ef þarna yrði byggt [skv. myndum sem birtar hafa verið] yrðiþað líklega seinna álitið eitt mesta skipulagsslys í miðbæReykjavíkur í seinni tíð og jafnvel alla tíð.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson um fyrirhugaða uppbyggingu gegnt Arnarhóli
Þjóðmál
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Ólöf Örvarsdóttir segir
stjórnvaldið ekki geta tekið
ákvarðanir, til dæmis varðandi
útlit húsa, eftir geðþótta. „Við
höfum vitskuld stefnu í þess-
um efnum og nýlegt dæmi er
að í sumar var kynnt fyrir-
hugað hótel á horni Lækjar-
götu og Vonarstrætis, mjög
nútímalegt hús en teikning-
arnar féllu hvorki borgarbúum
né skipulagsráði vel í geð.
Fólki finnst húsið ekki
passa vel við það sem
er í nágrenninu,
þarna fara nú fram
ákveðnar breytingar
á deiliskipulagi og
mig grunar að það
þurfi nokkurn
veginn að byrja
upp á nýtt
varðandi þetta
hús. Þegar við
blöndum okkur í svona mál
verður það að gerast á skipu-
lagsstigi.“
Ólög segir sjálfsagt mál að
ræða hver séu einkenni Kvos-
arinnar, vegna umræðu um fyr-
irhugaða uppbyggingu á Hafn-
artorginu svonefnda: „Er það
fjölbreytni bygginganna, sem
eru allt frá því smæsta upp í
það stærsta? Á svæðinu er
ekki einsleitni en samt ákveð-
inn tónn.“
Hún segir að mjög mörgu
að hyggja þegar unnið er nýtt
deili-skipulag eða eldra skipu-
lagi breytt og nefnir sem dæmi
Hljómalindarreit við Laugaveg.
„Þar erum við að endurskoða
skipulagið með lóðarhafa,
gerðar eru róttækar breyting-
ar og um leið eru settir inn
stífir útlitsskilmálar enda verið
að prjóna við gamla byggð.“
STJÓRNVALD ÁKVEÐUR EKKERT EFTIR GEÐÞÓTTA
Ólöf Ívarsdóttir
Hljómalindarreiturinn við Laugaveg. Þar er nú unnið að miklum breytingum.
Morgunblaðið/Jakob Fannar