Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016
Karl Marx, sem lést 1883,
skrifaði geysimikið og þeir
eru vafalaust fáir sem hafa
lesið allt sem eftir hann ligg-
ur. Eftir bankahrunið á Vest-
urlöndum 2008 uppgötvuðu
einhverjir að hann hafði
skrifað einstaklega nútíma-
lega gagnrýni á bankakerfið.
Gagnrýni sem víða var deilt.
En vandinn er að engum
hefur tekist að finna þessa
gagnrýni í því sem boðberi
kommúnismans skrifaði. Er
þá sama hvar menn
leita, í bókum eða
blaðagreinum, en
Marx var um hríð
Evrópufréttarit-
ari fyrir
banda-
rískt
dagblað.
Sólin verður að geta haldið hitaá fólki, það má ekki bruðlameð hana til að framleiða sól-
arorku … Framleiðslan veldur því
að svo margt aldrað fólk deyr [úr
kulda] að vetrarlagi,“ var haft eftir
Michelle Bachmann, umdeildum,
fyrrverandi fulltrúadeildarþing-
manni í Bandaríkjunum úr röðum
repúblikana. Haft eftir henni á Fa-
cebook-færslum fyrir skömmu og
vakti mikla kátínu andstæðinga
hennar. En sagði Bachmann þetta?
Nei, þetta er uppspuni, segir vef-
síðan snopes.com sem í tvo áratugi
hefur sérhæft sig í því að rekja og
sannreyna margvísleg ummæli sem
höfð eru eftir þekktu fólki. Og ekk-
ert sé heldur hæft í því að Barack
Obama forseti hafi nýlega látið reka
flotaforingja vegna þess að hann
hafi gagnrýnt meint kaup forsetans
á glæsivillu í Dubai. Það sé líka
ósatt að Obama hafi ætlað að láta
flytja á brott með forsetatilskipun
þúsundir manna í Montana til að
rýma fyrir indjánum.
Snopes segir það einnig rangt að
Donald Trump hafi í viðtali við
tímaritið People árið 1998 sagt að
hann myndi bjóða sig fram fyrir
repúblikana ef hann reyndi einhvern
tíma að komast í Hvíta húsið. Þeir
væru nefnilega ,,heimskasti kjós-
endahópurinn“ í landinu og myndu
trúa öllu sem hann segði. Snopes
segir að ekki finnist neitt viðtal í
öllu greinasafni People þar sem
Trump hafi sagt þetta.
Hverjum eigum við að trúa, get-
um við trúað Snopes? Fáir nenna
eða geta lagt það á sig að rekja
sjálfir hvort fullyrðingar eru sannar
eða ósannar. Magnið af netupplýs-
ingum, sönnum og ósönnum, er svo
yfirþyrmandi. Sumar blekkingar eru
fremur saklausar þótt deila megi
um smekkvísina. Þannig var í vik-
unni birt fölsuð ljósmynd af tveim
nýlátnum listamönnum, David Bo-
wie og Lemmy Kilmister, saman í
partíi. Reyndar er óvíst hvort þeir
hittust nokkurn tíma við slíkar að-
stæður, segja heimildarmenn.
En nafnleysi netsins er oft notað í
von um að einhverjir trúi fáránlegu
bulli, rétt eins og auglýsendur vita
að einhverjir trúa alltaf versta
skruminu þeirra. Og takist að koma
af stað rógi um einstakling loðir oft-
ast eitthvað hann enda þótt sagan
sé afsönnuð.
Lygar og myndfalsanir á vegum
stjórnvalda undir yfirskini frétta
eiga sér langa sögu, ekki síst í
Rússlandi og forvera þess, Sov-
étríkjunum. Hefðin er sterk. Fyr-
ir nokkrum áratugum fór af stað
saga um að Bandaríkjamenn
hefðu búið til HIV-veiruna til
að reyna að útrýma Afr-
íkumönnum. Eftir langa
leit tókst að finna hvar þessi „frétt“
hefði fyrst birst. Það gerðist í litlu
dagblaði í Vestur-Afríkuríkinu Gí-
neu á níunda áratugnum og heimild-
armaðurinn var starfsmaður KGB,
leyniþjónustu Sovétríkjanna.
Fljúgandi diskar og
burundanga
Á ensku er talað um urban legends,
sögur og goðsagnir sem hafa birst
aftur og aftur um allan heim, oft í
dálítið breyttu gervi. En vekja alltaf
áhuga. Allir þekkja sögur af fljúgandi
diskum sem margir hafa „séð“ og
jafnvel náð af þeim ljósmyndum.
Engu skiptir hve oft tekst að afsanna
frásögurnar, aragrúi manna vill frem-
ur trúa á diskana. Ævintýrið er
miklu skemmtilegra en veruleikinn.
Óhjákvæmilegt er að einhverjir
geri út út á óttann, sókn okkar eftir
spennu og hryllingi. Fyrir nokkrum
árum fóru að sjást frásagnir af því í
samskiptamiðlum að glæpamenn í
Bandaríkjunum notuðu nú „hættu-
legasta lyf í heimi,“ burundanga.
Það væri mun hættulegra en nauðg-
unarlyfið rohypnol, væri framleitt í
Kólumbíu og gæti lamað frjálsan
vilja fórnarlambsins, þurrkað út
minnið og jafnvel mætti drepa fólk
með því. Sögurnar voru ógnvekj-
andi.
Á bensínstöð kemur maður og
býður konu að mála fyrir hana hús-
ið, hann lætur hana því hafa nafn-
spjaldið sitt. Maðurinn og félagar
hans elta síðan konuna á bíl. Hana
fer skyndilega að svima, hún finnur
undarlega lykt af hendinni sem tók
við nafnspjaldinu. Hún stöðvar bíl-
inn en sér þá mennina fyrir aftan
sig og flautar þá margsinnis í ör-
væntingu. Þeir flýja.
Fullyrt var að lyfinu hefði verið
smurt á spjaldið. En lögreglumenn
segja útilokað að aðferðin geti virk-
að. Og Snopes segir að allar frá-
sagnir á samskiptamiðlum af notkun
þess utan Kólumbíu séu greinilega
tilbúningur.
En þetta get-
ur alls ekki
verið satt!
SAMSKIPTAMIÐLARNIR SJÁ UM AÐ ALLT GETUR FARIÐ
LEIFTURHRATT UM HEIMINN. FLÖKKUSÖGUR, SAKLAUST
GRÍN EN LÍKA KLÓKINDALEGUR RÓGUR SEM MARGFALD-
AST OG EINHVERJIR ERU ALLTAF REIÐUBÚNIR AÐ TRÚA.
TILBÚNINGUR
Geimför frá fjarlægum plánetum, „Fljúgandi diskar“, munu sjást oft á himni og jafnvel á jörðu, að sögn fjölda óljúgfróðra
heimildarmanna um allan heim. Sögurnar fóru einkum að heyrast skömmu eftir seinni heimsstyrjöld.
* Lygi getur ferðast um hálfan heiminn á meðan sannleikurinn er enn að fara í skóna.Mark Twain, bandarískur rithöfundur.AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON
kjon@mbl.is
HEIMURINN
LÍBERÍA
MONROV gð í
vikunni að nn hófst
egja
m
u um
dum
ríu, þar
NDÓI
JAK
um íö
udag ogJa
ms, IS,mu
orgarar oga a
krir hinnaárásafimm af
mennirnirorufndu vsíðarne
óvember,ktu mjög
r og sendi-arréðust m.a.
afi á síðusturáð.Talið er a
árum farið til
ðberjast
íaum
ki
RA
tingarvör
ndaríska sjóliða semfimmtudag lausa 10 ba
hafa farið inn í landhelgi Íranavoru til fanga eftir að
óa. Þeir sögðust hafa villstvið litla eyju á Persafl
ögubúnaði og báðust afsökunar.vegna bilunar í leiðs
Handtaka i miklum titringi um hríð. Sþeirra oll ennirnir hafi
utanríkisráðherrar landannverið látnir eftir að vegja ræddust við.
RKDAN
ANNAHÖFNMKAUP Danska þingið h
tillögu ríkisstjórnarinnarí vikunni
ar ágyum bre tin
m.a. ákvæði um að gera megií þeim eru
a og verðmæta hluti í eigumng
eytingin hefur verið gagnrýnhælisleitenda, allt að 1
harkalega o ýtur stuðnings jafnaðarg sögð óm
og Danska kksinsVenstre.