Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Page 10
bara ekki boðið sjálfum mér og
konunni minni uppá þetta. Ég get
ekki boðið stráknum mínum uppá
þetta. Ég hef því tekið þá ákvörð-
un að ég mun ekki bjóða mig fram
til forseta Íslands í þetta skiptið.
Kannski einhvern tíma seinna. Ég
þakka fyrir alla þá vinsemd og
virðingu sem mér hefur verið
sýnd.“
U
m leið og ljóst var
að Jón Gnarr hyrfi
úr stóli borgarstjóra
sumarið 2014 fóru
fjölmiðlar að inna
hann eftir því hvort Bessastaðir
kæmu til greina sem næsti við-
komustaður hans. Jón sagði þá
ítrekað í fjölmiðlum að framboð
hans til forseta væri ekki útilokað,
án þess þó að gefa neitt meira út
um þau mál.
Það kom því heldur á óvart þeg-
ar Jón sagðist í pistli í Frétta-
blaðinu í mars 2015 hafa ákveðið
að fara ekki í forsetaframboð í
kosningunum 2016. Fyrirsögn pist-
ilsins var Jón forseti og í honum
sagði Jón Gnarr meðal annars:
„Mér óar við þeirri tilhugsun að
verða á þennan hátt hluti af þeim
ömurlega og hallærislega kúltúr
sem er íslensk stjórnmálamenning.
Ég nenni ekki að standa aftur
andspænis freka kallinum. Ég get
Pistilinn var ekki hægt að skilja
öðruvísi en sem afdráttarlausa yf-
irlýsingu um að Jón ætlaði ekki
fram í kosningum 2016, þótt hann
útilokaði ekki framboð síðar.
Í vikunni kom Jón svo með nýja
tilkynningu, ekki um framboð,
heldur um það að hann hygðist tjá
sig um mögulegt framboð á föstu-
dag í einum af miðlum 365.
Í fréttatengdum skemmtiþætti á
Stöð 2 sem nefnist Ísland Today
greindi Jón Gnarr frá því að hann
ætlaði ekki í framboð. Segja má
að Jón hafi endurtekið fyrri yfir-
lýsingu í gær, þ.e. þá sömu og
kom fram í pistlinum frá því í
mars á síðasta ári. Hann ætlar alls
ekki í framboð. En hann ætlar sér
hins vegar að koma meira að inn-
lendri dagskrárgerð og ekki-
tilkynningin var í raun kynning á
því að Jón mun framvegis stýra
spjallþætti á föstudagskvöldum. Ef
til vill býður hann núverandi og
verðandi forsetaframbjóðendum í
þáttinn þegar fram líða stundir.
En sjálfur verður Jón Gnarr sem-
sagt ekki í kjöri til forseta þetta
árið, þótt hann útiloki ekki fram-
boð síðar.
Frambjóðendur til forseta hafa
almennt haft sig fremur hæga
þessa vikuna. Sturla Jónsson hef-
ur enn ekki boðað
framboð sitt form-
lega, þ.e. ekki
með neinni opin-
berri tilkynningu,
en hefur þó sagst
ætla fram bæði í
útvarpi og á Fa-
cebook-síðu sinni í svörum til
þeirra sem kallað hafa eftir hans
kröftum til emb-
ættisins.
Hildur Þórð-
ardóttir forseta-
frambjóðandi
skrifaði grein sem
birt var á Vísi í
vikunni þar sem
hún fjallaði um
vísindi og skýrði nánar út hvað
hún ætti við með fyrri yfirlýsing-
um um að þau væru á villigötum.
Hugmyndir um orkulíkamann eru
henni hugleiknar sem og andleg
málefni en hún segir þó rúm fyrir
skoðanaskipti í þeim efnum.
„Verði ég forseti mun ég ekki
þröngva orkulíkamanum upp á
fólk heldur vil ég miklu frekar að
samfélagið sameinist um að finna
leiðir til að austrænar lækningar
og vestrænar geti unnið saman,“
skrifar Hildur. Hún fjallar talsvert
um framboð sitt á Facebook og
virðist nota þann vettvang til að
koma boðum til sinna stuðnings-
manna.
„Allt er eins og það á að vera.
Fínt að þetta andlega komi út
núna, þá þarf það ekki að koma
neinum á óvart þegar nær dregur.
Ekki láta hugfallast þótt fjölmiðlar
taki mér ekki fagnandi. Það tekur
tíma fyrir samfélagið að venjast
tilhugsuninni um manneskju eins
og mig á Bessastaði. Það er miklu
betra fyrir mig að geta verið sterk
eins og ég er, heldur en að vera
að þykjast vera eitthvað annað.“
JÓN GNARR TILKYNNTI Í ANNAÐ SINN Á FÖSTUDAG AÐ HANN HYGÐIST EKKI BJÓÐA
SIG FRAM Í FORSETAKOSNINGUNUM Í SUMAR. VIKAN HEFUR VERIÐ TÍÐINDALÍTIL OG
ENGINN NÝR FRAMBJÓÐANDI STIGIÐ FRAM
Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is
Jón Gnarr tilkynnti í mars í fyrra að hann hygðist ekki fara í framboð til forseta
og á föstudag tilkynnti hann nákvæmlega það sama. Jón Gnarr ætlar ekki fram.
Morgunblaðið/Kristinn
23
vikur til kosninga
Ekki í framboð
Forsetavaktin
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
SÓFAR / STÓLAR / BORĐSTOFUSTÓLAR / BORĐ / SKÁPAR
SVEFNSÓFAR / LJÓS / PÚĐAR / SMÁVARA
Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið
Opið kl. 11-18 alla virka daga
Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is
• Tímasparnaður
• Engin kemísk efni
• Ódýrara
• Umhverfisvænt
• 6 x hreinna - betri þrif
• Vinnuvistvænt
• Minni vatnsnotkun
Nýja ENJO vörulínan er komin á markað
Ferskari, líflegri og enn meiri gæði