Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Blaðsíða 12
* Ég og umsjónarmenn Stundarinnar okkarerum sammála um að barnaefni er ekki og á ekki að vera vettvangur pólitískrar ádeilu.
Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, um Stundarskaupið
Landið og miðin
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Báturinn sem bræðurnir keyptu
hét upphaflega Vöttur SU-3, smíð-
aður 1975, og fyrsta heimahöfn
hans var Eskifjörður. Hann var
síðast í eigu Ólafs Ármanns Sig-
urðssonar á Húsavík og notaður
við veiðar allt þar til fyrir fjórum
árum að útgerðarmaðurinn fékk
sér nýrri bát. Hét þangað til Haf-
örn en nafninu var breytt í Ási
þar sem Ólafur notaði Hafarn-
arnafnið á nýja bátinn. Til stóð að
rífa þann gamla en þegar bræð-
urnir settu sig í samband við Ólaf
var hann meira en til í að selja
þeim gripinn.
Þarna var tækifærið!
„Við erum búnir að hugsa mikið
um þetta; það hefur lengi blundað
í okkur að gaman væri að eignast
einn af gömlu Vararbátunum,“
sagði Halldór þegar blaðamaður
ræddi við þá bræður.
„Við höfum alltaf haft mikinn
áhuga á eikarbátum, það gerir lík-
lega uppeldið,“ bætir Egill við.
„Við höfðum gjarnan þann starfa
að hempa nagla; að festa tjöru-
hamp við hausinn á nöglunum sem
voru svo notaðir til að festa eik-
arborðin.“
Egill segir þá bræður hafa reynt
að vera viðstaddir í hvert einasta
skipti sem bátur var sjósettur í
Vör „og svo var maður mættur
niður á bryggju alla daga þegar
skólinn var búinn til að fara með í
prufusiglingar.“
Halldór, sá kunni knattspyrnu-
maður á árum áður bætir við: „Þá
var slegist um að vera fremst, það
var svo spennandi að fá gusur í
andlitið.“
AKUREYRI
Ekki bara
bátur heldur
ættardjásn
ÞRÍR BRÆÐUR Á AKUREYRI KEYPTU NÝVERIÐ TÆPLEGA
30 TONNA EIKARBÁT. ENGINN ÞEIRRA HEFUR RÉTTINDI
TIL AÐ SIGLA HONUM EN MEÐ KAUPUNUM HEIÐRA ÞEIR
MINNINGU FÖÐUR SÍNS OG ANNARRA SEM SMÍÐUÐU
BÁTINN OG FLEIRI SLÍKA Í BÁTASMIÐJUNNI VÖR.
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016
UM ALLT LAND
SELFOSS
Eitt af þremur nýjum
hjúkrunarheimilum
fyrir aldraða, sem til
stendur að byggja,
verður í Árborg. Hin
borgarsvæðinu.tvö verða á höfuð
eimildum sunnlenska.is hefur ve
ve l lóðar sem sv
Árborg á í Hagalandi á Selfossi.
RIF
Versluninni Virkinu á Rifi
verður lokað á næstu
dögum og starfsemi
hætt. Þar með lýkur 30
ára sögu fyrirtækisins
og 50 ára samfelldri
sögu matvörubúðar
á Rifi. Sólveig Bláfeld
kaupmaður segir á
vefnum skessuhorn.is
sjálfhætt, því reksturinn
standi ekki undir sér.
FJARÐABYGGÐ
Viðlagatrygging Íslands
þarf að bæta tjón á 25
stöðum í Fjarðabyggð
vegna skemmda sem
þar urðu í ofsaveðri í
desemberlok. Bættur er
skaði af völdum vatns-
flóða, krapaskriða eða
sjávarflóða og annars
þess sem tryggingafélögin
sinna ekki. Mestur varð
skaðinn á Eskifirði.
SAUÐÁRKRÓKUR
Skipulags- og byggingarnefnd Skagafjarðar hefur samþykkt að taka hótelbyggingu
á Flæðunum við Faxatorg á Sauðárkróki til deiliskipulagsmeðferðar. Fyrirtækið
60 til 80h ð undir h
Hymis,hefur eftir Pétri Bjarnasy
öguleika á að reisa þr
rði á bilinu 2600-3000 fm2. „V
og þeir aðilar sem við erum í viðræðum við teljum a
koþetta mi til með að auka túrisma á svæðinu,“ segir
Pétur við Feyki. Hann segir að verið sé að vinna í þv
fá rekstraraðila en að ekkert sé í hendi að svo stöddu.
ÍSAFJÖRÐUR
Stefnt e
hátíðard
í Ísafjarð
helgina
í sumar. Þetta er í tilefni af
afmæli Ísafjarðarbæjar og
kaupstaðarafmæli.
Sævar, Egill og Halldór Áskelssynir um borð í báti sínum á Akureyri. „Skrokkurinn er nánast eins og nýr,“ segir Egill.
Morgunblaðið/Skapti HallgrímssonÞegar Egill og Halldór ÓmarÁskelssynir slitu gúmmí-skónum og öðrum slíkum
farartækjum á Akureyri snemma á
áttunda áratug síðustu aldar vörðu
þeir drjúgum tíma í Bátasmiðunni
Vör við Óseyri eða niðri á bryggju.
Karl faðir þeirra, Áskell Eg-
ilsson, var einn stofnenda og eig-
enda Varar, þar sem smíðaðir voru
eikarbátar svo fallegir að bræð-
urnir hafa fylgst grannt með þeim
æ síðan og í haust rættist loks
langþráður draumur: þeir keyptu
einn gömlu Vararbátanna í félagi
við yngri bróður sinn, Sævar Lár-
us Áskelsson. Sá er menntaður
vélstjóri en hefur reyndar ekki
réttindi til að sigla bát bræðranna
frekar en hinir. Það er hins vegar
seinni tíma vandamál að leysa hver
verður við stýrið þegar þar að
kemur. Aðalmálið nú er að draum-
urinn rættist.
Bræðurnir þrír með frænda sínum, Hallgrími Skaptasyni, framkvæmdastjóra
og eina stofnanda Varar sem er á lífi, þegar báturinn kom til Akureyrar í haust.