Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Side 14
S
ara Gunnarsdóttir sér um teikning-
ar í kvikmyndinni The Diary of a
Teenage Girl, sem hefur hlotið
góðar viðtökur. Myndin er leikin
en með myndskreytingum Söru og
í aðalhlutverkum eru Kristen Wiig, Alexander
Skarsgård og nýstirnið Bel Powley sem hefur
vakið mikla athygli fyrir leik sinn. Marielle
Heller leikstýrir en hún var tilnefnd til DGA-
verðlauna í vikunni (Directors Guild of Am-
erica). Það styttist í að íslenskir áhorfendur
geti séð myndina en gaman er að segja frá
því að hún verður opnunarmynd Stockfish-
kvikmyndahátíðarinnar sem fram fer í Bíó
Paradís 18.-28. febrúar.
Sunnudagsblaðið náði tali af Söru á Skype
en hún er búsett í Brooklyn, New York, þar
sem hún vinnur jafnan heiman frá sér.
Sara ólst upp í Hafnarfirði og var alltaf að
teikna sem barn og átti fyrirmynd í afa sínum
sem teiknaði mikið. Listaferilinn hóf hún á
listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Hún hélt áfram listnámi og útskrifaðist með
BFA í myndlist frá Listaháskóla Íslands
(LHÍ) árið 2005. Eftir það lá leiðin vestur til
Bandaríkjanna. Áhuginn á teiknimyndagerð
kviknaði í áfanga í grafískri hönnun í LHÍ og
ákvað hún því að fara í framhaldsnám í til-
raunakenndri teiknimyndagerð (experimental
animation) við CalArts-háskólann í Kaliforníu
og útskrifaðist þaðan með MFA-gráðu 2012.
„Ég byrjaði í skólanum haustið 2008 og var
bara búin að vera í mánuð þegar allt hrundi.
Ég kláraði fyrsta árið mitt og tók svo ársfrí
heima þar sem ég var að vinna og safna pen-
ingum. Ég fór síðan aftur út 2010 og kláraði
þá seinni tvö árin,“ segir hún en það hentaði
ágætlega því námið er þannig upp byggt að
hún gerði stuttmynd eftir fyrsta árið og tók
síðan tvö síðari árin í að gera útskriftarmynd-
ina, tíu mínútna stuttmyndina Sjóræningi ást-
arinnar (The Pirate of Love), sem sagt er frá
hér til hliðar.
„Lösturinn“ varð kostur
Hún segist vera svolítið gamaldags í vinnu-
brögðum en hún hefur haldið í pappírinn. „Ég
vinn allt á pappír ennþá. Allir rammarnir eru
teiknaðir á pappír, sem ég skanna inn,
hreinsa upp og lita ef það á að vera litur,“
segir hún en þá kemur tölvutæknin til sög-
unnar en hún litar myndirnar í Photoshop og
setur síðan allt saman í After Effects.
Í skólanum hélt hún sig við að gera allt á
pappír en segir að fólk hafi mikið verið byrjað
að teikna í tölvunni til að losna við að skanna
inn pappírinn. „Ég var alltaf að hugsa með
mér að ég yrði að prófa þetta en mér fannst
óþægilegt að teikna beint á skjáinn,“ segir
Sara en henni fannst hún líka missa ákveðna
tilfinningu fyrir blýantinum með því að vinna
í tölvu. „Ég gerði það ekki og hélt mig við
pappírinn. Og þegar ég útskrifaðist þá varð
þetta ekki löstur heldur kostur því það eru
ekki allir sem vinna svona,“ segir hún. Hún
segir að þar sem hún sé ekki að gera það
sem flestir séu að gera fái hún meira spenn-
andi verkefni sem henti henni betur. Aðferðin
sem hún notast við er í grundvallaratriðum sú
sama og hefur verið notuð frá upphafi við
teiknimyndagerð. Tölvurnar eru samt komnar
inn í stað glæra sem litað var á.
Hún komst í kynni við Marielle Heller,
leikstjóra The Diary of a Teenage Girl, í
gegnum stelpu sem var með henni í bekk og
benti á hana. Henni fannst Sara smellpassa
fyrir þetta verk og hafði rétt fyrir sér en
samstarf Heller og Söru gekk vel.
Myndin hefur fengið átta verðlaun og um
30 tilefningar. Hún er með 7,0 á imdb.com,
87/100 á Metacritic og 94% á Rotten Tom-
atoes og hreppti gulltómat í lok árs.
Myndin gerist í San Francisco á áttunda
áratugnum og segir frá hinni 15 ára Minnie
Goetz, sem hefur áhuga á að vera teiknari.
Sara er í stóru hlutverki í myndinni því teikn-
ingar hennar birtast mikið á skjánum sam-
hliða leiknum og setja mark sitt á myndina.
Myndin er byggð á myndasögu Phoebe Glo-
eckner.
Sara byrjaði vinnuna við myndina með leik-
stjóranum sumarið 2013 en tökur hófust í jan-
úar 2014 en þá var Sara búin að leggja lín-
urnar, þróa útlitið og byrjuð að teikna.
„Ég ætlaði mér alltaf að gera þetta ein og
vissi að þetta yrði mikil vinna og undirbjó
mig eins mikið og ég gat,“ segir hún.
Mesta vinnan fór síðan af stað í mars sama
ár þegar byrjað var að klippa myndina. Sú
vinna stóð yfir í sex mánuði og á meðan
teiknaði Sara og segir að stöðugt samtal og
samstarf hafi átt sér stað allan þann tíma.
Fékk tennisolnboga af álagi
„Ég var meðvituð um það að ég var að vinna
með mjög persónulegt efni einhvers annars.
Þetta er saga Phoebe Gloeckner og hennar
líf. Það var mjög mikilvægt fyrir mig að virða
hana og hennar teikningar og stíl,“ segir Sara
en til heiðurs Gloeckner er fyrsta myndasag-
an sem hún samdi gerð að 40 sekúndna svart-
hvítri teiknimynd. Hinar teikningarnar eru
síðan í stíl Söru sjálfrar en hennar teiknistíll
er ekki svo langt frá stíl Gloeckner. Hún
hafði teikningar hennar að leiðarljósi og vísar
í þær.
Fyrirætlun hennar um að gera allt sjálf
Tungumál
töfranna
TEIKNARINN SARA GUNNARSDÓTTIR HEFUR ÁTT VELGENGNI AÐ FAGNA
AÐ UNDANFÖRNU EN HÚN GERIR TEIKNINGARNAR Í STJÖRNUM
PRÝDDU MYNDINNI THE DIARY OF A TEENAGE GIRL EN ÍSLANDS-
FRUMSÝNING MYNDARINNAR VERÐUR Á STOCKFISH-KVIKMYNDAHÁTÍÐ-
INNI Í NÆSTA MÁNUÐI. SARA ER AÐ VINNA AÐ HEIMILDARMYND, SEM
VERÐUR AÐ STÓRUM HLUTA TEIKNUÐ, ÁSAMT LEIKSTJÓRANUM ÁRNA
SVEINSSYNI OG HRÚTA-FRAMLEIÐANDANUM GRÍMARI JÓNSSYNI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Teiknuð útgáfa aðalsöguhetjunnar Minnie sem Bel Powley leikur.
Sara hefur búið í
Bandaríkjunum
síðustu ár.
Viðtal
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.1. 2016
Söru er margt til lista lagt en hún hefur
saumað út frá því hún var í LHÍ. „Ég hef
svo verið að sauma meira út síðustu ár
og þá útsaum í bland við málningu. Ég tek
þetta upp inn á milli verkefna og þegar
mér finnst ég þurfa hvíld frá teikningu,“
segir Sara og rifjar upp að móðir hennar
og amma hafi kennt henni krosssaum
sem barn.
Hún segist aðeins sauma flatsaum í
dag.
„Útsaumsmyndirnar eru bara teikn-
ingar sem mér finnst henta vel til út-
saums. Ég geri stundum teikningu bara til
að sauma hana út,“ segir Sara og útskýrir
að það sé alltaf teikning í grunninn hvort
sem um er að ræða útsaumsmynd eða
myndband.
Hvíld í
útsaumi