Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.01.2016, Side 15
gengu ekki alveg eftir því snemma í ferlinu
fékk hún tennisolnboga, sem er auðvitað
hvimleitt fyrir teiknara. Hún þurfti því að
minnka álagið og réð með sér teiknarann Ca-
leb Wood, sem hún segir hafa átt mjög vel
við verkefnið.
„Ég var búin að hanna allar teiknuðu sen-
urnar og hann gerði síðan það sem ég bað
um,“ segir Sara sem kann vel að meta flæð-
andi stíl Wood. „Á endanum reyndist þetta
blessun fyrir mig að fá hann með því mér
fannst hann bæta einhverju við sem ég hefði
ekki komið með sjálf.“
Sara er að jafna sig af tennisolnboganum,
sem kom til vegna ofnotkunar á úlnliðnum.
„Þetta var ákveðin lexía. Ég áttaði mig á því
að það er ekki hægt að sitja við 10-12 tíma á
dag og teikna. Þetta er búið að taka tvö og
hálft ár.“ Núna hefur hún tamið sér að teygja
áður en hún byrjar að teikna og komið hreyf-
ingu inn í rútínuna.
Að taka þátt í þessari mynd svo skömmu
eftir útskrift hefur reynst góð reynsla fyrir
Söru.
„Ég var bara ótrúlega heppin. Það að
myndin gengur svona vel hjálpar ótrúlega til
að koma minni fyrstu mynd í fullri lengd á
laggirnar. Það er gott að hafa reynsluna af
svona stóru verkefni og vera búin að kynnast
öllu framleiðsluferlinu,“ segir hún.
Þetta er góður tími fyrir Söru þar sem
bæði heimildarmyndir og ekki síður myndir
sem eru teiknaðar eru í mikilli uppsveiflu.
„Það er einhver sprenging í gangi. Það er
að stórum hluta að þakka nýrri tækni. Áður
þurfti svo mikið mannafl í teiknimyndir en
núna eru margir listamenn að vinna sjálfstætt
í teiknimyndum.“
Í verkum Söru er að finna ákveðna fantasíu
en hún segir að hið töfrakennda eigi vel við
teiknimyndir. „Ég er spenntari fyrir því þeg-
ar það er raunveruleg ástæða til að nota
teiknimyndir og að þær séu sitt eigið tungu-
mál, frekar en þegar teiknimyndir eru not-
aðar út af því að það eru ekki til myndir af
einhverju,“ segir hún og útskýrir að teikni-
myndir hafi oftar en ekki verið notaðar á
þann hátt í heimildarmyndum. Þannig verður
hið teiknaða frekar uppfyllingarefni en túlk-
un. „Ég hef miklu meiri áhuga á því því að
heiðra teiknimyndir fyrir að vera sitt eigið
tungumál og að teikningarnar séu notaðar af
því að þær segi eitthvað nýtt og bæti ein-
hverju við.“
Með heimþrá
Sara fann ástina í Kaliforníu en hún er gift
Bandaríkjamanninum Ethan Clarke. Þau
kynntust í skólanum en þau voru bekkjar-
félagar og útskrifuðust saman. Þau voru bæði
tilnefnd til Stúdentaóskarsins fyrir útskrift-
armyndirnar sínar, hvort í sínum flokknum.
Þau fluttu til New York vorið 2013 en Clark
vinnur hjá Titmouse-stúdíóinu sem vinnur
meðal annars teiknimyndaefni fyrir Disney og
Dreamworks.
Sara segir að það ríki ekki samkeppni á
milli þeirra. „Nei, mér finnst ég bara rosa
heppin og vel gift.“
Það hefur komið til tals hjá þeim að flytja
til Íslands. „Ég hef verið með heimþrá en það
gengur allt rosalega vel hérna hjá okkur,“
segir Sara sem býst við því að þau verði
þarna eitthvað áfram. „En ég flyt einhvern
tímann heim aftur.“
Dæmi um skemmtilegt útlit
myndarinnar. Búningurinn er
teiknaður að hluta og ljær þessu
sýruatriði í myndinni flottan blæ.
Sara hannaði þetta plötuumslag en tónlistin úr
myndinni kom út á vínyl.
* Ég hef miklu meiriáhuga á því því aðheiðra teiknimyndir fyrir
að vera sitt eigið tungu-
mál og að teikningarnar
séu notaðar af því að þær
segi eitthvað nýtt og bæti
einhverju við.
17.1. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Lokaverkefni Söru frá CalArts var tíu mínútna teiknuð stuttmynd
með viðtölum, sem nefnist Sjóræningi ástarinnar eða The Pirate of
Love. „Þetta er mynd byggð á flökkusögu, þannig að það er rík fant-
asía í henni, sem hentar mjög vel fyrir teiknimynd,“ segir Sara.
Hún tók viðtöl fyrir myndina heima á Íslandi þegar hún var í árs-
leyfi frá skólanum og gat því farið á fullt við að teikna þegar hún
kom út aftur.
Sara útskýrir að það hafi verið dularfullar sögusagnir kringum
geisladisk sem fór manna á milli í Reykjavík. Þessi diskur inniheldur
15 lög, mestallt ástarljóð til stúlku sem heitir Sherry. Orðrómurinn
var sá að disknum hefði verið stolið af rúmenskum trukkabílstjóra
sem gekk undir nafninu Daníel C. Persóna tónlistarmannsins var
með öllu ókunn en sögur fóru af því að hann hefði flutt til Kanada.
Sara lauk við myndina í maí 2012 og hefur hún verið sýnd á kvik-
myndahátíðum um allan heim, m.a. á Telluride, American Film Insti-
tute Film Fest og New Directors New Films í MoMA og Lincoln
Center í New York.
Hún segir að það sé heimagerður tónn á þessari plötu og hægt
hafi verið að ímynda sér að tónlistarmaðurinn hafi gert plötuna til
þess að játa ást sína en að hann hafi ekki ætlað að sýna neinum
öðrum hana. Allir voru sammála um að þetta hlyti að hafa endað
illa.
Þessi diskur hefur „költ“-stöðu á meðal ákveðinna hópa í Kan-
ada og náði að berast til Reykjavíkur.
Ári eftir að myndin fór á netið fékk hún skilaboð frá afgreiðslu-
stjóra í vörubílafyrirtæki í Mississippi sem sagði henni að einn af bíl-
stjórunum hans, Daniel Ciocan, hefði samið tónlistina. Maðurinn
var vissulega rúmenskur trukkabílstjóri sem flúði landið til Kanada.
Sara sá að þarna væri efni í eitthvað meira og fór og ræddi við
Ciocan, sem býr í Mississippi, er núna kvæntur Sherry, sem hann
syngur um á plötunni, og á tvö börn en þau kynntust á stefnumóta-
síðu fyrir sjöunda dags aðventista.
„Ég er að þróa þetta verkefni í heimildarmynd í fullri lengd ásamt
Árna Sveinssyni og Grímari Jónssyni. Árni ætlar að vera meðleik-
stjóri og Grímar framleiðir. Við Árni erum búin að vera að vinna í
handriti og erum að byrja á fjármögnun,“ segir Sara.
Stefnan er að myndin verði um 40% teiknimynd en til viðbótar
verða viðtöl og leikið efni.
Sara komst að því að Daniel C. gerði diskinn snemma á tíunda
áratugnum og bjó til nokkur eintök til að senda á útgefendur.
En hvað fannst honum um að vera umfjöllunarefni í stuttmynd
eftir íslenska konu?
„Ég held að hann hafi bara verið mjög kátur með þetta. Hann
vissi ekki að það væru eintök af disknum á flakki þarna úti. Mig
grunaði aldrei þegar ég var að gera þessa mynd að hann myndi finn-
ast,“ segir Sara.
Heimildarmyndin verður að hluta til fantasía aðdáenda tónlistar-
innar. „Til þess að teikna upp þá hlið sögunnar langar mig að fá
ólíka sjálfstæða teiknara til að teikna upp einn kafla hvern,“ útskýrir
Sara en hún, Árni og Grímar hafa ennfremur hug á því að fara og
tala meira við manninn í vor.
Útkoman getur varla orðið annað en spennandi.
Sjóræningi ástarinnar
Túlkun Söru á
Daniel C. og
Sherry.